Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1996, Blaðsíða 1
O R G U N L A Ð S Stofnuö 192 5 'f. tbl. 27'. janúar 1996 — 71. árg. ÚR HAUKADAL um 1950. Næst eru gömlu býlin Höll og Miðbær. Fjær Holtabæirnir sem risu á uppgangstímum Haukadals fyrir liðugri öld síðan. í Haukadal við Dýrafjörð VIÐ sunnanverðan Dýrafjörð skerast dalir inn í rismikið hálendið. Allir eiga þeir áþekka jarð- sögu en sinn hverja um byggð og mannlíf. Einn þeirra komst snemma inn í þjóðarsöguna og hlaut þar töluvert rými; varð aðalvettvang- ur einnar þekktustu fornsögunnar - Gísla sögu Súrssonar. Færri þekkja seinni tíma sögu þessa dals. Hún er líka forvitnileg. Dalurinn heitir Haukadalur. Þar dveljum við næstu línurnar. Forfeðurnir áttu flestir sjóleiðina til Haukadals. Eftir barning fyrir nes og núpa komu þeir á Haukadalsbót. Þar var skipum öruggt og fjara þægileg til lendingar. Við seinni tíma menn komum oftast þjóðveginn út með firðinum frá Þingeyri, ekki langt frá þeirri götu er Vésteinn frá Hesti, mágur Gísla Súrssonar, reið til haustboðsins í Haukadal þegar öll vötn féllu til Dýrafjarð- ar. Sú ferð, reyndist örlagarík. Okkur liggur minna á en Vésteini. Stönsum því á Nesjun- um, grjótborinni og gróðurlítilli jökulurð við innanvert mynni Haukadals. Frönsku Sjómennirnir Sem vin í þessari jökulurð er Fransmanna- FRÁ SÆBÓLI. Horft upp til hólsins þar sem bær G/sfa Súrssonar á að iiafa staðið. Haukadalur gengur líkt og skápur inn í hálendið. Þar var bær Gísla Súrssonar og þar áttu útvegsbændur löngu síðar mikil samskipti við Fransmenn. Eftir BJARNA GUÐMUNDSSON

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.