Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1996, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1996, Qupperneq 2
I Barnsminningunni „Og svo var það æðarfuglinn," sagði Lín- ey Jóhannesdóttir sem ólst upp á Laxamýri í byrjun aldarinnar. „Hann þurfti mikla umhyggju og fékk hana. Dúntekjan gat orðið 300 pund um árið. Enn þann dag í dag er þetta eins og heilagur fugl í mínum augum. Það fór vel um hann niðrí eyjunum. Þar hafði Sigurjón afi minn byijað að gróð- ursetja runna til að hæna fuglinn að og því var haldið áfram. Pabbi gamli gekk ævinlega varpið á vor- in. Hann var ákaflega nákvæmur við fugl- inn. Gömlu kollurnar þekktu hann orðið. Þær hvæstu og ætluðu okkur lifandi að drepa, stelpurnar, ef við komum of nærri þeim. En hann gat gengið að þeim og kiapp- að þeim. Þó hann aldrei stryki okkur, stelp- unum sínum, þá strauk hann kollunum. Og honum var umhugað um að það væri ekki gengið of nærri æðarfuglinum. Víða var það siður að taka helminginn af eggjunum. Hann tók bara eitt fyrst úr hveiju hreiðri og einstöku sinnum annað seinna. Aldrei fleiri en tvö af hverri kollu. Dúnhreinsunin var líka nostursvinna. Og henni fylgdi ótætis flóin. Dúnninn var fyrst breiddur í halla á móti sól og síðan þurrkað- ur við hita á geysistórri eldstó í pakkhúsinu, minnir mig og þurfti að vaka yfir honum. Einhvemtíma var sýslumannsfrúin stödd á Laxamýri að sumarlagi og vildi óð og upp- væg sjá dúninn sem náttúrlega var auðsótt. Áður en hún vissi af var hún komin í miðjan flekkinn. Þá sagði pabbi: „Og passaðu þig nú, frú mín góð, því nú koma flæmar." Flæmar vom okkur kvalræði fram eftir sumri og væri aðkomukrakki með stríðni við okkur þá var stundum sagt: „Ég skal láta dúnfló á þig.“ Það þótti ekki vinsamlegt tal. Eftir þurrkinn fór dúnninn svo inní dúnhús. Dúnhúsið var að nokkm leyti yfirráðasvæði þeirra frænda minna, Egilssona. Þar var dúnvél sem þeir höfðu smíðað. Hún tók við dúninum þegar búið var að hita hann. í lækn- um utan við dúnhúsvegginn var mylluhjól sem sneri þessari vél. Hún var eins og kerl- ing í laginu, digur niður og gluggi á andlit- inu þar sem dúnninn sást svífa yfír. Alltaf fannst mér eins og eitthvert kynlega hægf- ara líf í þessari vélkerlingu. Þegar dúnninn kom úr vélinni var hann tíndur. Við það sátu þeir bræður langt fram á haust. Allt þetta unnu þeir fjarskalega vel og dúnninn var framúrskarandi. Konurnar komu svo og keyptu sér ofurlít- inn dúnhnoðra eftir því sem þær höfðu efni á, kannski í smábarnasæng eða til að bæta í gömlu sængurnar. Dúnsængur vom um alla Þingeyjarsýslu." Staldrað Við í Stórey „Við tökum bátinn sem liggur í vari. Það er gaman að vera farþegi og sitja á miðþóft- unni og virða fyrir sér umhverfið. Við sjáum ekki æðarfuglinn ennþá, en strax fljúga yfír okkur fímm hrafnsendur og hvín í vængjun- um. Straumandarhjón í smáhólma við hliðina á okkur láta sér lítið bregða og þau hafa líklega ákveðið að nema þar land og verpa. Tilsýndar er hávellan, auðþekkt á stélinu, en lómurinn heldur sig lengra, hann vill lít- ið láta á sér bera. Hreiðrið er við árbakkann og stingur hann sér beint í vatnið verði hann var við mannaferðir og duglegur kaf- ari er hann. Tíminn líður hratt þegar umhverfíð grípur hugann og brátt nálgumst við Stórey. Þetta er svo stuttur róður. Það eru margir biikar á bakkanum þar sem við leggjum bátnum og þeir víkja frá í rólegheitum og synda í aðra átt. Þótt æðarfuglinn vilji búa hjá manninum þá er alltaf best að vera í hæfilegri fjar- lægð. Kollurnar sem synda þarna verpa í runnunum því þær sækja í skjólið. Yfír daginn rabba blikarnir saman á bökk- unum eða fá sér sundtúra. í lokin verða þeir leiðir á að hanga yfir þessu og fara út á sjó þegar líður á klaktíma eggjanna. Það er misjafnt hvað fuglinn sest snemma og þó liðið sé á varpið eru alltaf einhveijar sem koma seint, hvað sem veldur. Gaman er að sjá drifhvítar breiðurnar meðfram bakkanum og allir virðast þeir eins þó líklega hafí þeir sín sérkenni rétt eins og við mennirnir. Runnamir eru mest víðirunnar, gul-og grávíðirunnar staðsettir af náttúmnnar hendi, misjafnlega háir, þó allir góð hreiður- stæði. Á milli þeirra er grasi gróið en ekki em nema rúm tuttugn ár síðan allt var sleg- ið og rakað. í þá tíð var Stórey eins og lystigarður þegar heyskap var lokið. Engja- taða af þessum 16 hektumm þótti góð fyr- ir skepnurnar og oft voru víðisprotar í hey- hrúgunum sem fiuttar vom heim og þurrk- aðar á þurm túni. Þetta tilheyrir nú fortíð- inni og sinan hefur völdin allavega í bili. En hvað skyldi æðarvarpið hafa verið hér lengi? Það veit enginn með vissu. Líklega skiptir það hundmðum ára. Sögur af bænd- um hér áður fyrr segja að þeir hafi haft mikinn dún en þó gekk það ætíð í sveiflum. Hafísár hafa sfn áhrif og þá verpir fuglinn lítið hér og fer í lágmark sem þýðir dauf- lega vist í Stórey. Ömgglega er það rétt að fuglinn hefur verið hér um aldir því í brotnum árbökkun- um má sjá bláskeljalög sem fylgja fuglinum og hugsi maður til ömefna á svæðinu virð- ist hafa verið hér æðarfugl frá örófí alda. Það er slæmt hvað Stórey er lág. Þegar vorleysingar koma seint þá flæðir næstum yfír allt og lítið er hægt að gera. Þá er mörg kollan illa sett og þegar flæðir inn í hreiðrin flýja þær og fara. Eftirá er aðkom- an ekki góð, egg og dúnn um alla ey og koliumar standa á sandeyrum í ánni von- sviknar með lífíð. í vorhretum hríða þær stundum í kaf en standa allt af sér komi ekki til stórskaflar. Hroðaiegt að sjá skafrenninginn fylla runn- ana á einni nóttu og hrekja burt fuglinn. Stærsti runninn í Stórey er kallaður Hái- mnni. Gamall gulvíðirunni og vinsæll varp- staður. Þar má vara sig á að stíga ekki á hreiðrin. Oft er erfítt að ganga mnnann þegar gróðurinn er orðinn mikill, gras, hvönn og lauf, allt í einni bendu, hreiðrin næstum ófínnanleg og dúnpokinn þungur. En þetta er paradís æðarfuglsins og oft em blikarnir margir sem kúra við Háaranna á vorin. Skemmtilegt er „úið“ í fuglinum. Stund- um heyrist það í vorkyrrðinni heim i bæ og þá veit maður að fuglinn er kominn. Þá er komið vor. Kollurnar fara ekki langt þó þær fari margar af hreiðrunum. Þær fara fram á bakkann og snyrta á sér fiðrið og aðrar fara út á ána. Sumar verpa í dekk eða hús, en flestar inn í mnnunum þó eru enn aðrar sem kjósa að vera á berangri. Þeim til heiðurs em skilti og skærir litir settir upp meðfram bakkanum. - Skrítinn landbúnaður æðarbúskapur- inn.“ Dúnhreinsunarvélar Gömlu Laxamýrarbænda Sonarsonur Siguijóns Jóhannessonar á Laxamýri, Sigurður Egilsson, tók þátt í smíði dúnhreinsunarvéla og sagði svo frá í sunnu- dagsblaði Tímans fyrir liðlega þrjátíu ámm. „Á síðustu öld var draumur þeirra sem áttu mikil varplönd að fínna einhver tæki sem gætu létt það vonda verk að hreinsa dúninn. í þeim hópi voru Laxamýrarbændur sem fengu árlega mikinn dún. Orðrómur var uppi um það að í Kaupmannahöfn myndu vera til tæki sem notuð væm til þess að hreinsa grænlenskan æðardún en talið var að yfir þeim hvíldi leynd sem ekki yrði rofin þó reynt væri og víst var það að aldrei fékkst nein gagnleg fræðsla um dúnhreinsun í Danmörku. Þess vegna sneri Siguijón Jóhannesson á Laxamýri sér til Magnúsar Þórarinssonar uppfyndingamanns á Halldórsstöðum í Lax- árdal með tilmæli um að hann reyndi að smíða gagnlega dúnhreinsunarvél. Mun það hafa verið fyrir 1890. Magnús brást vel við þessu og tók að smíða tilraunavélar sem þó komust ekki í not að svo stöddu enda margir annmarkar torleystir. Mest mun hann hafa fengist við sívalninginn sem hann nefndi svo en það var strengjavél þar sem tvær kringlur úr þykku efni voru festar á gildan járnöxul. Vélin gafst ekki sem skyldi enda féll rusl- ið sem úr losnaði innan í sílvalningum jafn- óðum ofan í viskina aftur svo að hreinsun miðaði hægt. Tilraunir lágu niðri mörg ár þar til þeir Laxamýrarbræður Egill og Jóhannes Sigur- jónssynir fengu Magnús til þess að byija aftur á smíði og tilraunum þar sem frá hafði verið horfíð. Líklega 1911-1912. Smíð- aði hann vél með fastri grind á eins metra háum traustum undirstöðum. Allmikið hug- vit kom þarna fram og smíðin var vönduð. En yfírleitt reyndist það sem úr járni var gert of grannt og veikbyggt. Því miður reyndist vélin seinvirk og náði aldrei vel úr nema helst með því að hafa mjög lítið á grindinni í einu og var orsökin sú að grind- in var föst og varð ekki snúið þegar viskin var komin í gegn eins og gert var með gamla laginu. Vélin var notuð í nokkur ár og létti allvemlega hreinsunarerfíðið án þess að skemma dúninn svo að talist gat. Var aðferð sú viðhöfð að tvær stúlkur rifu á grindum en vélin var látin vinna svo lengi að hverri visk að heim stæðu afköst hennar eftir að búið var að þurrka og kvennanna tveggja. Að lokum var handtínt eins og gert hafði verið frá fornu fari. Sumarið 1913 barst sú frétt að á Hraunum í Fljótum væri að verki dúnhreinsunarvél sem var uppfundin af Hellulandsfeðgum Sigurði og Ólafí. Fyrir milligöngu Stefáns skóla- meistara á Ákureyri var fengið leyfi handa Sigurði Egilssyni á Laxamýri til þess að skoða vélina og smíða eftir henni ef henta þætti. Fór hann að Hraunum í byijun árs 1914 og er heim kom smíðaði hann sams konar vél sem var svo notuð í mörg ár með þeim árangri að nú gekk verkið greitt og var auðunnið miðað við eldri aðferðir. Því miður verður að segja að dúnninn slitn- aði og styttist í honum en þó minna eftir að tókst að endurbæta þurrkunaraðferðirnar. Seinna smíðaði Sigurður tvær vélar af þess- ari gerð fyrir aðra varpeigendur og einnig tvo eða þijá þurrkofna í umboði Einars á Hraunum sem átti þá uppfmningu. Vegna muns á gæðum dúnsins reyndu Laxamýrarmenn á ný við strengjavél Magn- úsar og reyndu að laga sívalninginn. Með aðgerðum þeirra tókst að gera vélina not- hæfa og skilaði hún vel unnu verki en var áfram seinvirk. Stafaði það af því hve erfítt var að láta dúninn tolla á strengjunum. Héldu þeir bræður síðan áfram að þróa tæknina og að sögn Sigurðar var margt gert að nýju og telur hann að það hafí verið 1928 er vem þeirra lauk á Laxamýri að þeir væm búnir að sjá fullan árangur af starfí sínu og gátu hreinsað í tilraunavélinni með ágætum árangri. Vom þeir þá ráðnir í að koma upp framtíðarvél að líkri gerð.“ Og Svo Var Það Krían Hjartað tekur viðbragð í bijóstum fólksins á bænum það segir fagnandi hvert við annað: Krían er komin veit að eftir tvo daga er hún alkomin Eftir það þagnar hún aðeins um lágnættið Með fráum vængjum og hvðssu rauðu nefi hrekur hún illgfygli úr varpinu heggur okkur i höfuðið sem komum nálægt fátæklegu heimili hennar einu eða tveim eggjum á berangri Hún er félagsmálafugl og bert fyrir réttlæti og umbót- um en lítt hneigð til heimilisstarfa Á köldu vori krókna ungamir hennar Litlir dröfnóttir hnoðrar með vísi að vængjum rigna ofan í grasrótina (Þóra Jónsdóttir) Heimildir: Atli Vigfússon: Rabbað í æðarvarpi. Árni Magnússon/Páll Vídalín: Jarðabók Þing- eyjarsýslu. Hallgrímur Jónsson: Á slóðum manna og laxa. Sigurður Egilsson: Dúnhreinsun og dúnhreinsun- arvélar. Skúli Skúlason: Laxamýrarættin Þorgeir Þorgeirsson: Það er eitthvað sem eng- inn veit. Þóra Jónsdóttir: Línur í Iófa. Höfundur er bóndi á Laxamýri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.