Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.1996, Blaðsíða 15
Skáldin
í skóginum
Eg-ilsstöðum. Morgunblaðið.
SKÁLDVERKASÝNINGIN „Rjóður" í Hall-
ormsstaðarskógi verður opnuð í dag. Sýning-
in er í Tijásafninu og eru það skáldin Einar
Már Guðmundsson, Pétur Gunnarsson, Sig-
rún Eldjám, Sigurður Pálsson, Steinunn Sig-
urðardóttir og Þorsteinn frá Hamri sem
munu flytja ljóð, smásögu eða hugleiðingu.
Verkin eru flest samin í tilefni af sýningunni
en sum eldri verk eru fléttuð inn í umhverfi
skógarins. Verkin verða sett upp í Tijásafn-
inu og geta gestir komið og skoðað þau í ró
og næði.
Skáldin verða viðstödd opnunina, en sýn-
ingin verður opin fram á haust. Tilgangur
sýningarinnar er að vekja athygii á skóginum
sem perlu í islensku landslagi, sýna list í
óvenjulegu umhverfi og gefa listamönnum
tækifæri til þess að kynnast skóginum. Fjöll-
in, víðáttan og sjórinn hafa verið hugleikin
viðfangsefni íslenskra listamanna fram á
þennan dag og því er skógurinn ný upplifun
sem jafnframt mun verða hluti af íslenskri
náttúru í framtíðinni.
Þessi sýning er í beinu framhaldi af
skúlptúrsýningu 17 íslenskra listamanna sem
haldin var í Tijásafninu sl. sumar. Skógrækt
ríkisins á Hallormsstað stendur fyrir sýning-
unni, en hún er jafnframt liður í árlegum
Skógardegi skógræktarinnar.
Öregla í Nor-
ræna húsinu
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson hefur opnað
sýningu á ljósmyndum í anddyri Norræna
hússins. Kallast hún óreGla, óRegla, óregla
og er byggð á náttúruiegum formum sem
eru óregluleg eða fela í sér óreiðu.
Guðmundur er fæddur á Húsavík 1941.
Hann hefur stundað háskólanám í Bandaríkj-
unum í raun- og listgreinum, m.a. við Uni-
versity of New Hampshire og Livingston
State University í Alabama og útskrifaðist
frá Ohio State University. Hann hefur stund-
að myndlistarnám við Columbus College of
Art and Design, og ljósmyndun í Svíþjóð við
Stockholms Fotografiska Skola.
Guðmundur hefur unnið ýmis störf, til
dæmis við kennslu og skólastörf, ritstörf,
náttúruljósmyndun, kvikmyndagerð, trésmíð-
ar, teikni- og hönnunarvinnu.
Sýningin er í anddyri Norræna hússins,
og stendur til 14. ágúst.
Olöf sýnir í
Þrastarlundi
ÞRIÐJA einkasýning Ól-
afar Pétursdóttur mynd-
listarkonu stendur nú
yfir í Þrastarlundi. Sýnd-
ar eru 30 vatnslitamynd-
ir en flestar þeirra eru
málaðar á þessu ári.
Ólöf stundaði nám í
myndlist við Dundas
Valley School of Art í
Kanada á árunum 1989
til 1991. Hún hefur einn-
ig sótt fjölda námskeiða
í Myndlistarskólum
Reykjavíkur, Kópavogs
og Hafnarfjarðar hjá innlendum og erlendum
kennurum.
Sýning Ólafar stendur til 27. júli næstkom-
andi.
Öháð
listahátíó
OPINN fundur verður haldinn fyrir þá sem
áhuga hafa á að taka þátt í Óháðu listahátíð-
inni. Fundurinn verður haldinn í Djúpinu
(kjallara veitingastaðarins Hornsins) í dag,
laugardaginn 20. júlí, og hefst klukkan 15.
Allir sem telja sig hafa eitthvað listeðlis fram
að færa á tímabilinu 17. ágúst til 1. septem-
ber eru velkomnir á fundinn.
-—'
Eigandi 15.000 listaverka opnar heimili sitt
„Oðruvísi
safn“
MYNDUNUM hefur verið raðað
óskipulega á veggina, þær
hanga á nöglum og ekkert ör-
yggiskerfi er sýnilegt. Verkin eru eftir
marga helstu meistara myndlistarinnar;
Picasso, Miro, Matisse, Chagall, Modigl-
iani, Dali, Dubuffet, Klee, Magritte,
Braque, Kandinsky, svo fáeinir séu
nefndir. Höggmyndir eftir Henry Moore
eru á gólfi og leirlist eftir þekkta lista-
menn. Sérkennilegt safn, sem er ekki
síður óvenjulegt fyrir þá sök að eigandi
þess býr í því.
Safn þetta er í ítalska bænum Lido
di Spina, um 120 km frá Feneyjum og
eigandinn heitir Remo Brindisi, 78 ára
gamall auðugur sérvitringur, sem blaða-
maður Politiken heimsótti fyrir
skemmstu í „Museo Alternativo“ sem
útleggst líklega sem „Öðruvísi safn“.
Eins og risastórt
baóherbergi
Byggingin sem hýsir safnið og Brind-
isi minnir einna helst á verk Corbusier
og Bauhaus-stílinn en það er hugarsmíð
arkitektsins Nanda Vigo. Hvítar flísar
eru í hólf og gólf og speglar um allt,
rétt eins og í risastóru baðherbergi.
Ummerki um íbúa safnsins/hússins eru
greinileg, óumbúið rúm, tannkremstúba
og matarleifar, og ekki er
„aðgangur bannaður“- skilt-
um fyrir að fara.
Vinur Sartre
Eigandinn, Brindisi, málar
sjálfur. Verk hans eru expres-
sjónísk, myndir af gondólum
í Feneyjum og konum með
börn, að ógleymdri sjálfs-
myndinni sem hann vinnur
nú að, en hún er 3.000. verk
hans.
Verkin í safninu hefur
hann keypt síðustu 27 árin.
Segist ætla að arfleiða ríkið
að þeim og safnhúsinu eftir
lát sitt. Brindisi segist hafa
þekkt marga af listamönnun-
„ÖÐRUVÍSI safnið“ stendur svo sannar-
lega undir nafni. Um 15.000 listaverk og
óteljandi speglar þekja hvíta flísaveggina.
Hefur húsinu verið líkt við myndskreytt
baðherbergi.
um en hann bjó um árabil í París og
var m.a. vinur rithöfundarins og heim-
spekingsins Sartre.
Um 15.000 verk
■ safninu
Brindisi er að öðru leyti
fámáll um það hvernig hon-
um hafa áskotnast verkin.
Ljóst er að ómetanleg verð-
mæti eru í safninu, alls um
15.000 verk, en þar er ekki
krafist aðgangseyris.
Brindisi segist af verka-
fólki kominn en að hann
hafi selt verk sín fyrir háar
fjárupphæðir í Bandaríkjun-
um. Og hann hefur ekki
áhyggjur af þjófum, segir
að allir sem inn komi, hljóti
að sjá að verkin eigi best
heima þar sem flestir geti
séð þau.
Arguóinn
pússaður
STYTTA André Wallace af „Árguðin-
um“ snurfusuð áður en hún var form-
lega afhjúpuð í bresku borginni
Newcastle í tilefni þess að þar er nú
haldið upp á ár sjónlista.
Gunnar
í Deiglunni
I DAG kl. 16 verður opnuð sýning í
Deiglunni á Akureyri á málverkum
Gunnars Karlssonar. Sýningin er liður
í Listasumri og stendur út júlímánuð.
Gunnar er fæddur að Helluvaði í Rang-
árvallasýslu 1959 og nam málaralist
við Myndlista- og handíðaskóla íslands
frá 1975-1979 og við Konunglegu
listaakademíuna í Stokkhólmi frá
1980-1982. Hann hefur haldið fjórar
einkasýningar, síðast í Listasafni
Kópavogs 1995, ásamt því að hafa
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Snagar á
Karólínu
NÚ stendur yfir sýning íslenskra iðn-
hönnuða á snögum á Café Karólínu á
Akureyri. Sýningin samanstendur af
ólíkri nálgun hönnuða við snaga sem
nytjahlut og uppsprettu hugmynda.
Það er samband hönnuða og áhuga-
fólks um hönnun, FORM, sem stendur
að sýningunni og á fjöldi hönnuða sinn
snaga á sýningunni.
Þriðja
sýning
Bjarna Þórs
THOR, öðru nafni Bjami Þór Þorvalds-
son, opnar í dag sína þriðju myndlistar-
sýningu á kaffiteríu Kolaportsins. Á
sýningunni eru sex súrrealísk málverk
og verður hún opin frá kl. 11-17 til
11. ágúst.
HINN óvenjulegi
eigandi safnsins,
Remo Brindisi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. JÚLÍ 1996 1 5