Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1996, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1996, Blaðsíða 4
FRÉTTAMYND ársins 1995, eftir Lucian Perkins Ijósmyndara á The Washington Post, er frá Tsjetsjniju. FRÉTTAMYNDIR ÁRSINS 1995 MYNDARÖÐ Ástralans Stephen Dupont af tyrkneskum oli'ubornum glímumönnum hlaut önnur verðlaun í íþróttaflokknum. HLJÓMSVEIT Al-Nour wal Amal-mið- stöðvarinnar, fyrir blindar konur og stúlk- ur í Kaíró, er efni myndraðarinnar sem Lori Grinker hjá Contact Press Images hlaut fyrstu verðlaun fyrir sem mynda- sögu um listir. ARLEG sýning á fréttaljós- myndum ársins - World Press Photo - verður opn- uð í dag á göngum Kringl- unnar. Verðlaunamyndirn- ar sem sýndar eru koma víðsvegar að úr heiminum, en alls tóku yfir 3.000 ljós- myndarar frá 103 þjóðlöndum þátt í sam- keppninni um þessar bestu frétta- og blaðaljós- myndir ársins 1995 og sendu inn tæplega 30.000 myndir. Verðlaunamyndunum, sem sýndar eru í Kringlunni, er skipt í marga og ólíka flokka. Veittar eru viðurkenningar fyrir stakar mynd- ir og myndaraðir í hveijum flokki. Mynd árs- ins er einnig valin og að þessu sinni er hún eftir Bandaríkjamanninn Lucian Perkins. Þetta er vissulega óvenjuleg verðlaunamynd, sem sýnir dreng í afturglugga rútu sem er að flytja fólk frá átakasvæðunum í Tsjetsjníu. Formaður dómnefndarinnar sem valdi mynd- irnar, segist dást að formrænum gæðum verð- launamyndarinnar og er sannfærður um að augu barnsins sem er að flýja stríðið heima fyrir muni snerta undirmeðvitund áhorfandans og að uppréttar hendur drengsins eins og skipi tímanum að standa í stað svo betur sé hægt að upplifa augnablikið. Athygli vekur að 42% myndanna sem bár- ust í keppnina að þessu sinni eru svarthvítar, en með svarthvítum myndum geta ljósmyndar- ar oft unnið á persónulegri hátt. Á margan hátt er erfiðara að ná sterkri svarthvítri ljós- mynd en litmynd, en þegar þær svarthvítu lukkast vel verða þær iðulega áhrifameiri og virðast lifa lengur en litirnir í svipmyndunum sem brugðið er upp á sjónvarpsskjáum um gjörvalla heimsbyggðina og eru horfnar á sama augnabliki. Margar ljósmyndanna á sýningunni í ár eru áhrifamiklar. Meðal þeirra er sigurröðin um fötluð börn bandarískra hermanna sem börð- ust í Persaflóastríðinu. Önnur myndröð sem hefur vakið mikla athygli er um umskurð á ungri stúlku í Senegal. Hörmungar af völdum stríðaátaka gefur að líta á sumum myndanna en aðrar hliðar mann- lífsins - og stundum bjartari - birtast í mynd- röðum eins og úr tónlistarskóla fyrir blindar stúlkur í Kaíró, frá rússneska lýðveldinu Da- gestan og síðustu eimlestaverksmiðjunni í Ind- landi. - efi ÁTÖKIN í Grosni í janúar 1995 eru efnið í myndröð fréttamynda sem Patrick Chauvel hjá Sygma tók fyrir Newsweek. Hann hlaut fyrstu verðlaun fyrir myndirnar. FRÁ Dagestan. Thomas Kern, sem starfar fyrir Lookat Photos í Sviss, hlaut þriðju verðlaun fyrir myndröð sína af daglegu lífi fólks í þessu rússneska lýðveldi. 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 1996

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.