Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1996, Side 13
tiBfflSBSKgBK,
mmmmm
ÍSLENSK MAWNAWÖFN 10
RAGNHEIÐUR OG PÉTUR
Ragnheiður felur í sér birtu og hreinleika, svo og
mátt goðanna. Hina síðari áratugi hefur nafnið
orðið sjaldgæfara, er nú í 15.-18. sæti. Pétur er
nafn hins fræga postula og finnst hér þegar á 1 1.
öld, en 1989 var nafnið í 18. sæti eins og 1703.
EFTIR GÍSLA JÓNSSON
KRISTJÁN J.
GUNNARSSON
DAGG-
ARSPOR
í afkimum hugans
innilokuð
öi-veik minning
um sporin þín
ég
döggin á grasinu,
döggin sem fyrir þig
skín
döggin sem aðeins féll
til að markaðist slóðin
þar sem þú gengur
hvarf svo í hita dagsins
og engin daggarspor
eftir lengur.
PIETISMI
Á langri ævi
stalstu þér
hamingjustund
og stöðva vildirðu
skeiðklukku tímans
með því að segja
nú gengur þú
ekki lengur.
En tíminn
silast áfram í öldum
og lætur
að endingu
allt sem þú áttir
eyðast, týnast
og deyja
og aftan úr
grályndri forneskju
heyrirðu meinfýsið
hvíslið
illur fengur
illa forgengur.
Höfundur er fyrrverandi fræðslustjóri.
INGUNN
ÓSK ÓLAFSDÓTTIR
TIL ALLRA
FÓRNAR-
LAMBA
Ég þekki ekki andlit ykkar
sem tjá skelfingu heimsins
Ég mæti ekki hryllingi ykkar
fyrir framan hús mitt
En égreyni aðgera méríhugar-
lund
hvernig er að lifa
blæðandi, titrandi
frelsisþyrst sál
í svörtum hrammi
Égreyni aðgera méríhugar-
lund
hvernig þær hljóta að engjast
sálir stríðsherranna
og stundum roðna ég afblygðun
þegar ég er minnt á
að þeir séu líka menn
menn, eins og hugrökk fórn-
arlömb þeirra
sem þó, bjarga síðustu leifunum
af trú minni á mannkynið.
Höfundurinn er ung Reykjavikur-
stúlka. Hún tileinkar Ijóðið öllum
fórnarlömbum styrjalda og mann-
réttindabrota í heiminum.
XX. Ragnheióur
Hrópi og rógi,
ef þú eyst á holl regin,
á þér munu þau þerra það,
segir í Lokasennu. Holl regin eru goðin, og
menn áttu mikið undir hylli þeirra, einmitt
af því, að þau voru regin, það er „hin ráðandi
öfl“; ragin á gotnesku merkir ráð eða ákvörð-
un. Þágufall af regin var rögnum og eignar-
fall ragna. Himinninn kallast ragna sjöt=goða
heimkynni í Völuspá.
Ég hef víst margsagt áður hversu fólki var
tamt að helga börn sín guði eða goðum í skírn-
inni. Ein aðferð forfeðra okkar var sú að hefja
nafnið á Ragn, Regin og Rögn, svo sem Ragn-
heiður, Reginleif og Rögnvaldur. Milli tíu og
tuttugu nöfn hófust svo, þegar flest var. Heið-
ur merkir björt eða hrein, og Ragnheiður
felur í sér birtu og hreinleika annars vegar,
hylli eða mátt goðanna hins vegar. Nafn þetta
loddi lengi við íslenskar höfðingjaættir. Hann-
es Hafstein kvað:
Heiður er hálft þitt nafn,
hálft leitt af sjálfum Drottni.
Geitir Lýtingsson í Krossavík, sem fær þá
eina umsögn í íslenskum æviskrám, að hann
væri göfugmenni, átti sonardóttur er Ragn-
heiður hét. Þá var og Ragnheiður sonar- '
dóttir Þorkels kröflu Vatnsdæiagoða.
Héðinn inn mildi gerði bú á Svalbarði
á Svalbarðsströnd 16 vetrum fyrir
kristni. Hann átti Ragnheiði Eyjólfs-
dóttur, systur Einars Þveræings og
Guðmundar ríka.
Á Sturlungaöld er langfrægust
Ragnheiður sú byskupssystir er Jón
Loftsson unni hugástum í meinum, og
gekk bróður hennar, Þorláki byskupi
helga, seint að stía þeim í sundur, og
ekki fyrr en Ragnheiður Þórhalisdóttir
hefði alið Jóni syni tvo, heldur en ekki
mennilega, þá sem urðu Páll byskup í
Skálholti og Ormur goðorðsmaður á
Breiðabólsstað í Fljótshlíð, faðir Hall-
veigar sem gerði helmingafélag við
Snorra Sturluson.
Pétur Loftsson, lögréttumaður í
Djúpadal í Eyjafirði, um 1500, átti Sig-
ríði Þorsteinsdóttur og við henni Ragn-
heiði á rauðum sokkum. Hún þótti
kiæðumprúð, skartgjörn og ekki lítil-
þæg, varð og mikil ættmóðir, átti Jón
Magnússon á Svalbarði, og meðal barna
þeirra voru Magnús prúði, sýslumaður
í Ögri, Jón lögmaður, Staðarhóls-Páll
og Steinunn, kona sr. Björns Jónssonar
byskups Arasonar. Þetta eru miklar
ættir. Staðarhóls-Páll átti við Helgu
Aradóttur Jónssonar byskups á Hólum
Ragnheiði sem varð móðir Brynjólfs
biskups í Skálholti, enda hét dóttir bisk-
ups einnig Ragnheiður, líklega frægust
með því nafni allra íslenskra kvenna.
Lét biskup dóttur sína svetja eið til að
hrinda af sér og sínum illmæli, enda
hafði hann gengið úr skugga um að
það væri ekki meineiðUr. En stolt ættar-
innar í Ragnheiði svaraði með þeim
einum hætti, sem hún taldi því samboð-
ið, og ól elskhuga sínum son, eftir
hæfilegan meðgöngutíma frá eiðtök-
unni, svo að ekki skakkaði um daginn.
í raunum og veikindum Ragnheiðar sendi
Hallgrímur Pétursson henni handrit sitt af
Passíusálmunum, enda átti hann föður hennar
stórmikið upp að unna.
Ekki er vitað hvað Ragnheiður biskupsdótt-
ir átti margar nöfnur, því að þá var hún lát-
in, þegar farið var að telja landsmenn ná-
kvæmlega, en Ragnheiðar voru 204 árið 1703
og nafnið í 35. sæti kvenna. Síðan hefur það
verið í sleitulítilli sókn.
Árið 1703 var Ragnheiður Jónsdóttir Ara-
sonar prests í Vatnsfirði ekkja eftir tvo bisk-
upa, sú sem núna er komin á seðil, eða eftir-
mynd hennar.
í aðalmanntali röskri öld síðar hafði Ragn-
heiðum fjölgað nokkuð, enda þótt landsmönn-
um í heild fækkaði. Þá var í blóma aldurs
síns Ragnheiður dóttir Olafs stiftamtmanns
(sú er átti Jónas Scheving sýslumann á Víði-
völlum), systir Magnúsar dómstjóra. Enn fjölg-
aði þeim er þetta nafn báru. Árið 1845 var
alisheijarmanntal. Þá var húsfreyja á Reyni-
stað Ragnheiður Benediktsdóttir, móðir Katr-
ínar konu Einars Benediktssonar skálds, en
Einar átti Ragnheiði bæði að systur og dótt-
ur. Stefán amtmaður Stephensen á Hvítárvöll-
um, bróðir Magnúsar dómstjóra, átti dótturina
Ragnheiði, þá sem giftist Helga_ Thordersen
er biskuð varð, en dóttir þeirra, Ástríður, var
kjörmóðir Ragnheiðar konu Hannesar Haf-
steins skálds. Dóttir Hannesar hét og Ragn-
heiður, amma Ragnheiðar Erlu prests, en
Ragnheiður kona Jóhanns Hafsteins forsætis-
ráðherra, var dóttir Sofíu Hannesdóttur Haf-
stejns.
I manntalinu 1910 er ungar að finna bæði
Ragnheiði Jónsdóttur er skólastjóri varð
Kvennaskóians, og alnöfnu hennar rithöfund-
inn.
Árin 1921-1950 hlutu 587 meyjar nafnið
Ragnheiður, það er þá í 24. sæti kvenna, með
1. 3%. Nú hina síðari áratugi hefur nafnið
verið í 15.-18. sæti kvenna, heldur á niðurleið.
XXI. Pétur
Pétur þar sat í sal
með sveinum inni.
Tvennt hafði hanagal
heyrt að þvi sinni,
segir sr. Hallgrímur Pétursson í 12. passíu-
sálmi. Sá, sem þarna kallast Pétur, er nefndur
á fimm vegu í Heilagri ritningu, en Jesús gaf
honum nafnið Kefas, af aramesku kefa=hellu-
steinn, klettur. Þótti þetta rætast á Pétri eft-
ir krossfestingu Jesú; hann reyndist bjargfast-
ur fyrir, meiri klettur en um þær mundir sem
haninn gól. Grikkir þýddu Kefas með Petros,
og úr því er nafnið Pétur á okkar tungu. Það
er með allra elstu tökunöfnum, komið inn
þegar á 11. öld. Það náði hins vegar ekki eins
skjótri útbreiðslu og Páll, voru sex eða sjö
íslendingar nefndir Pétur í Sturlungu, en Páll .
milli 20 og 30.
Seldælir í Arnarfirði tóku snemma upp
Pétursnafn, afkomendur Bárðar svarta í Sel-
árdal, og reyndar ýmis fleiri framandi heiti
mjög snemma, svo sem Aron, Cecilía og Urs-
úla. Þetta voru ættingjar Hrafns Sveinbjarnar-
sonar, sem Hrafnseyri er kennd við, og ijátlað-
ist fljótt af þeim fíkn í erlend nöfn, nema
hvað Tómas fylgdi þeim lengi.
Nafn hins fræga postula og fyrsta páfa
hafa margir borið vítt um veröld, og kirkja,
heldur en ekki stórhreinleg, við hann kennd
í hinni eilífu borg Róm.
Pétur mikli var keisari Rússaveldis báðu-
megin við aldamótin 1700, og Pétur (I.) var
konungur Serba á fyrsta hluta þessarar aldar.
Um 1400 var danskur byskup á Hólum,
Pétur Nikulásson að nafni; svo sem öld síðar
var Pétur Loftsson lögréttumaður í Djúpadal
í Eyjafirði, faðir hinnar fagurbúnu frúar,
Ragnheiðar á rauðum sokkum, sem var ætt-
móðir margra mikilmenna, sem sagt var, og
á siðskiptaárunum var uppi Pétur Einarsson,
bróðir Marteins biskups; þótti ekki dæll viður-
eignar, bar fyrstur íslenskra manna gleraugu,
enda nefndur Gleraugna-Pétur.
I manntalinu 1703 var Pétur í 18. sæti
karla, menn sem það nafn báru, voru 248,
dreifðir um alit land, en þó að marki flestir í
Snæfellsnessýsiu. Ekki var þá fæddur Pétur
Þorsteinsson, sýslumaður á Ketilsstöðum á
Völium, faðir sýslumannanna Guð-
mundar í Krossavík og Sigurðar
leikritaskálds, og lét Pétur Þor-
steinsson gera mynd af sér og fólki
sínu undir krossmarki með Frelsar-
anum.
Pétur Þorsteinsson var horfinn
af þessum heimi í næsta allsheijar-
manntali, 1801. Voru Pétrar þá
ívið færri en 1703, dreifðir um
allt land. Röskum 40 árum síðar
hafði fjölgað allvel, voru Pétrar
þá 350, og nú var fleirnefnasiður-
inn svo í land kominn, að 15 þess-
ara hétu Pétur að síðara nafni,
Var Pétursnafn orðið algengast í
Skagafjarðarsýslu og var það
lengi. Þá voru margir góðir Pétrar
í blóma lífsins: Pétur Pétursson, •
sá er biskup var, bróðir Brynjólfs
Fjölnismanns; Pétur Guðjónsson
organisti, sem forfeður hans
bjuggu til nafnið Guðjón á 18. öld
frammi í Eyjafirði, og Pétur Haf-
stein amtmaður, faðir Hannesar
skálds.
Líður nú og bíður, og kemur
mikið manntal 1910. Pétrar voru
þá 585 og nafnið í 21. sæti karla
með 1,4%, flestir fæddir í Skaga-
firði. Voru uppi sem fyrr ágætir
menn með nafni þessu, svo sem
Pétur Jónsson bóndi og ráðherra
á Gautlöndum, Pétur Halldórsson
bóksali, söngvari og borgarstjóri,
jafnaldrarnir Pétur Magnússon
bankastjóri og ráðherra og Pétur
Ottesen sem sat á alþingi lengur
en aðrir íslendingar, 43 ár sam-
fleytt og alltaf fyrir sama kjör-
dæmið; og Pétur Á(rni) Jónsson
sem seinna söng mikið og vel; var
svo vinsæll í Þýskalandi, að Þjóð-
veijar sögðu „unser Peter“= Pétur
okkar.
í þjóðskrá 1989 voru Pétrar hartnær tvö
þúsund og nafnið í 18. sæti, öldungis eins og
1703, en hefur sveiflast síðustu áratugina
ansi mikið og meira niður á við, þrátt fyrir
þá tísku sem mörg Biblíunöfn hafa komist í.
Niðurlag í næstu Lesbók.
Höfundur er fyrrverandi menntaskólakennari.
JÓMFRÚ Ragnheiður biskupsdóttir í Skálholti (hér ásamt móð-
ur sinni á teikningu Halldórs Péturssonar) er með frægustu
konum á Islandi sem borið hafa þetta nafn.
POSTULINN Pétur með lykla Himnaríkis (Hér á teikningu Hall-
dórs Péturssonar úr Guilna Hliðinu) er sá sem Pétursnafnið
er sótt til um víða veröld.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 1996 13