Lesbók Morgunblaðsins - 13.12.1997, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 13.12.1997, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Gunnlaugur ANNA Sigríður Gunnarsdóttir og Sigrún Ásta Jónsdóttir í Norska húsinu í Stykkishólmi, þar sem 125 Ijóð eftir 84 skáld prýða veggi. LJÓÐASÝNING stendur nú yfir í Norska húsinu í Stykkishólmi. 125 Ijóð eftir 84 skáid hafa verið hengd upp á vegg á efri hæð hússins en ijóðin voru valin af 104 einstaklingum, flestum frá Stykkishólmi. Að sögn Sigrúnar Ástu Jónsdóttur, for- stöðumanns Norska hússins, voru send út 250 bréf með óskum um að fólk sendi inn uppáhaldsljóðið sitt. „Viðbrögðin við bréf- inu voru mjög góð, þótt mörgum hafi fundist erfitt að velja bara eitt ljóð. Vin- sælasta skáldið var Steinn Steinarr og svo Tómas Guðmundsson. Hér eiga líka skáld eins og Sigfús Daðason og Snorri Hjartar- son tvö jjóð, einnig yngri skáld eins og Bragi Ólafsson og Gyrðir Elíasson. Elsta skáldið er höfundur Hávamála og það yngsta er 9 ára skólapiltur hér í Stykkis- hólmi.“ Sigrún segir að Ijóðin myndi eins konar JÓN ÓSKAR TILNEFNDUR TIL ARS FENNICA 1998 MYNDLISTARMAÐURINN Jón Óskar hefur verið tilnefndur til finnsku Ars Fenn- ica verðlaunanna árið 1998 fyrir íslands hönd. Verðlaunin eru hæstu myndlistarverð- laun sem veitt eru á Norðurlöndum, 2,6 milljónir ísl. kr. skattfrjáls- ar auk þess sem gefíð er út kynningarrit um verð- launahafann og verk hans sýnd í þremur listasöfnum í Finnlandi. Sigurvegarann velur forstöðumaður Tate gallerísins í Lundúnum, Jeremy Lewison, og til- _________ kynnt verður um niður- Jón Óskar stöðuna í mars á næsta ári. Ars Fennica verðlaunin voru stofnsett árið 1990 á grunni listasjóðs Hennu og Pertiis Niemistö. Fyrstu tvö árin og þau tvö síðustu, 1996 og 1997, hafa ein- göngu finnskir listamenn verið tilnefndir til verðlaunanna en árið 1993 var keppnin opn- uð fyrir öðrum Norðurlandaþjóðum og frá 1994 hafa baltneskir listamenn og listamenn frá St. Pétursborg einnig verið tilnefndir. Að þessu sinni hafa sjö listamenn frá fimm lönd- um, Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og íslandi, hlotið tilnefningar. Þeir eru: Per Barclay og Jon Arne Mogstad frá Noregi, Peter Frie og H&kan Rehnberg frá Svíþjóð, Pekka Jylhá og Jussi Niva frá Finnlandi, Lo- ne Hoyer Hansen og Kirsten Ortwed frá Danmörku og Jón Óskar frá íslandi. UPPÁHALDS- UÓÐÍ HÓLMINUM myndverk á veggnum sem þau hafa verið sett upp á. „Þau mynda eiginlega foss, eins konar hraunfoss og eru mjög falleg. En það er merkilegt og vekur mann til umhugsunar að lesa hlið við hlið sígild ljóð og ljóð dagsins í dag, form, gerð og viðfangsefni ljóðanna eru svo fjölbreytt en þó eiga þau flest eitthvað sameiginlegt; það er kannski bara það að ljóð eru ljóð og þess vegna geti þau verið hlið við hlið MENNINGARMÁLANEFND Garðabæjar hefur fengið listrænan stjómanda Schubert-hátíðarinnar, Gerrit Schuil, til þess að skipuleggja nýja tónleikaröð, sem verður frá janúar til maí á næsta ári, og ber yfirskriftina Kammertónleikar í Garðabæ. Framkvæmdastjóri tónleikanna er Hugi Guðmundsson. Á Kammertónleikunum í Garðabæ koma fram sex listamenn auk Gerrits, sem leikur á píanó á öllum tónleikunum. Fyrstu tónleik- arnir verða 17. janúar, en þá mun Sigrún Eð- valdsdóttir leika með Gerrit og verða þetta einu tónleikara Sigrúnar hér á landi í vetur. Á dagskránni eru sónötur fyrir píanó og fiðlu eftir Mozart, Beethoven og Brahms. Þann 14. febrúar mun Magnea Tómasdóttir sópran- söngkona syngja, en þess má geta að nýverið var hún ráðin við Kölnaróperuna og kemur hún gagngert til íslands fyrir þessa einu tón- MENNINGARMÁLANEFND Mosfellsbæj- ar gengst fyrir aðventutónleikum í Mosfells- ■ kirkju mánudaginn 15. des- Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir sópransöng- kona og blásarasextett skipaður klarinettuleikur- unum Sigurði Inva Snorra- syni og Kjartani Óskars- þótt þau séu ólík innbyrðis. Hérna hanga til dæmis hlið við hlið ljóð eftir Jónas Hall- grímsson og Diddu og ekkert virðist at- hugavert við það. Eg hugsa að það væri erfitt að gera þetta við eitthvert annað listform en Ijóðið." Flest Ijóðin eru prentuð en nokkur þeirra eru þó handskrifuð af þeim sem þau valdi. Með ljóðunum birtist nafn höf- undar og þess sem það valdi. Nokkur ljóð- anna liafa verið myndskreytt af þeim sem valdi. Fyrirhugað er að sýningin standi að hluta næsta sumar er þess verður minnst að 200 ár eru liðin frá fæðingu Sigurðar Breiðfjörðs rímnaskálds í Rifgirðingum á Breiðafirði. I húsinu er einnig sýning Láru Gunnars- dóttur myndlistarmanns. A sýningunni eru myndir ristar í tré og málaðar. leika. Hún mun flytja sönglög eftir Mozart og R. Strauss. Rannveig Fríða Bragadóttir mezzosópransöngkona kemur fram á tónleik- unum 14. mars og mun hún syngja Frauen- liebe und Leben eftir Sehumann og hluta úr Des Knaben Wunderhorn auk sönglaga eftir Grieg og Sibelius. Á fjórðu tónleikunum, þann 4. apríl, verður flutt tríó fyrir píanó, klarinett og selló eftir Beethoven og það verða þeir Guðni Franzson klarinettleikari, Gunnar Kvarn sellóleikari og Gerrit Schuil sem flytja. Gunnar og Guðni munu einnig koma fram hvor í sínu lagi með Gerrit og flytja sónötur eftir Beethoven og Brahms. Sigurvegari Tónvakans 1997, baritónsöngv- arinn Keith Reed, mun svo koma frma á síð- ustu tónleikunum og flytja verk eftir Brahms og Vaughan Williams þann 2. maí. Allir tón- leikamir verða haldnir í Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ. Emil Friðfinnssyni og Þorkeli Jóelssyni og fagottleikurunum Brjáni Ingasyni og Birni Th. Ámasyni. Á efnisskránni em blásarasextettar eftir Joseph Haydn, J.C. Bach og W.A. Mozart. Með sextettinum syngur Sigrún Hjálmtýs- dóttir Alleluia og Laudate Dominum eftir Mozart, Ave Maria eftir Bach/Gounod, Ó helga nótt eftir Adolphe Adam og íslenska jólasálminn Nóttin var sú ágæt ein eftir Sig- valda Kaldalóns. DIDDÚ Á AÐVENTUTÓNLEIK- UM í MOSFELLSKIRKJU KAMMERTÓNLEIK- AR í GARÐABÆ MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Þjóðminjasafn Islands I Bogasal: Allir fá þá eitthvað fallegt. Jólasýning, til 5. janúar. Listasafn íslands I öllum sölum safnsins er sýning á verkum Gunnlaugs Schevings og sýnd sjónvarps- mynd daglega um Scheving. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sýning vetrarins, Svífandi form. Verk Sig- urjóns Olafssonar. Safnið verður opið samkvæmt samkomulagi í des. og jan. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 - Ásmundarsalur Asmundarsalur: Sýning á samkeppnistil- lögum um útilistaverk við Sultartanga- virkjun. Til. 18. des. Ásmundarsafn - Sigtúni Yflrlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Kjarvalsstaðir - Flókagötu Jóhannes Kjarval í austursal. Sýning á að- fongum safnsins árið 1997 í vestursal og miðrými. Á sýningai-vegg í austursal eru sýndarþúsateikningar. Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða- stræti 74 KyiTalífs- og blómamyndir ásamt mynd- um úr Reykjavík og nágrenni. Til febrúar- loka. Stöðlakot, Bókhlöðustig 6 Bjai’nheiður Jóhannsdóttir. Til 21. des. Dada, Art Gallery, Kirkjutorgi 4 Sölusýning á nútímalist. Einnig antikmun- ir frá Vestur-Afríku. Til 24. des. Norræna húsið - við Hringbraut Skartgripasýning til 31. des. Hafnarborg Brian Pilkington sýnii' til 23. des. Taru Harmaala og Ása Gunnlaugsdóttir sýna skart til. 23. des. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði v/Suðurgötu Handritasýning til 19. des. Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b Guðjón Ketilsson. Svartisalur: Gunnar Árnason. Bjarti salur og Súm salur: Krist- ín Blöndal. Setustofa: Gestur er Rúna Gíslasdóttir. Ailar sýn. til 14. des. Gallerí Horn Bjarni Þór Bjarnason. Til 23. des. Gallerí Listakot „Gnægtarborðið", samsýning til. 3. jan. Galleríkeðjan Sýnirými Sýnibox: Ándré Tribbensee. Gallerí Barmur: Ráðhildur Ingadóttir. Gailerí Hlust: Gunnai’ Magnús Andrésson. Síminn er 551 4348. Gallerí 202m: Gabríela sýnir til 14. desem- ber. Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8 Toon Michiels sýnir til 14. des. Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn Guðný Magnúsdóttir og sýning á nýjum aðfóngum til 21. des. Listhús 39 Strandgötu 39, Hafnarfírði Samsýning 14 listamanna. Gerðuberg Valdimar Bjarnfreðsson. Til 18. janúar. Sjóminjasafn Islands við Vesturgötu í Hf. Almenn sýning og sýning á olíumyndum Bjarna Jónssonar. Sunnudagur 14. desember Áskirkja: Kammersveit Reykjavíkur, kl. 17. Mánudagur 15. desember Listasafn Kópavogs: Guðrún Birgisdóttir, Martial Nardeau, Elín Guðmundsdóttir og Pierre Séchet, kl. 20.30. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Vox Feminae kl. 20.30. Mosfellskirkja: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigurður Ingvi Snorrason, Kjartan Óskarsson, Emil Friðfmnsson, Þorkell Jó- elsson, Brjánn Ingason og Björn Th. Árnason, kl. 20.30. Föstudagur 19. desember Langholtskirkja: Kór og Gradualekór Langholtskirkju, kl. 23. LEIKLIST Borgarleikhúsið Augun þín blá, lau. 13., sun. 14., fös. 19. des. Galdrakarlinn í Oz, lau. 13., sun 14. des. Dómínó, fim. 18., fös 19. des. Loftkastalinn Á sama tíma að ári, lau. 13. des. Kaffileikhúsið Revían í den, lau. 13. des. Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyi-ir kl. 16 á mið- vikudögum merktar: Morgunblaðið, Menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 5691181. Netfang: menn- ing@mbl.is. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 13. DESEMBER 1997

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.