Lesbók Morgunblaðsins - 13.12.1997, Blaðsíða 8
EINAR I GARÐHUSUM
- 100 ÁR LIÐIN FRÁ OPNUN VERZLUNAR HANS í GRINDAVÍK -
EFTIR ÓLAF EINARSSON
í búðinni hjá Einari fékkst allt
milli himins og jarðar, bæði
stórt og smátt. Þar ægði
saman óskyldustu hlutum eins
og sápu og súkkulaði eða
sykri og pipar. Og margs
konar varningur hékk í loftinu,
einkum búsáhöld, og
blikuðu eins og stjörnur
á heiðskíru húmkvöldi.
EINAR G. Einarsson, bóndasonur
frá Garðhúsum í Grindavík, var
aðeins tuttugu og fjögurra ára er
hann sótti um verslunarleyfi til
sýslunefndar og sýslumanns Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. Ekki þarf
að efa að þurft hefur kjark og
mikið áræði til þeirrar ákvörðun-
ar. Að fá leyfi til verslunarreksturs þá var
ekki kvaðalaust, til dæmis þurftu menn að
vera bindindismenn og stúkubundnir. Ekki
var leyfið heldur gefins því það kostaði fimm-
tíu krónur sem voru miklir peningar árið
1897. Leyfii sitt til reksturs sveitaverslunar í
Grindavíkurhreppi fékk Einar svo staðfest
með bréfi frá sýslummanni hinn 1. maí með
því skilyrði að sækja leyfisbréfið til Hafnar-
fjarðar á skrifstofu sýslumanns og greiða til-
greinda upphæð, fyrr mætti ekki hefja rekst-
urinn.
Þegar eftir það hófst Einar handa og reisti
verslunarhús miðsvæðis í hreppnum fyrir of-
an lendinguna í Járngerðarstaðahverfi. Stað-
setningin hefir að sjálfsögðu einnig miðast við
það að vera sem næst sjómönnunum, því öll
úttekt myndi greiðast með sjávarafla hvers og
eins. Vafalítið hefir hann þá þegar verið búinn
að ákveða að gerast fiskverkandi jafnframt,
vitað sem var að án þess gæti verslun í Gr-
indavíkurhreppi ekki þrifist. Á þessum tíma
voru nær öll viðskipti á íslandi í vöruskiptum.
Um fyrstu árin segir Tómas Snorrason svo
frá í Ægi, 5. tbl árið 1929: „Það mun flestum
skiljast, að erfið hafi aðstaða hans verið í
• byrjun, hann óþekktur, efnalítill og lítt kunn-
ur verslunarsökum, en staðhættir þannig, að
helst varð að byrgja verslunina að vörum að
sumrinu, er endast þurfti til næsta sumars.
Auðvitað þraut ýmislegt, einkum fyrst framan
af, og margan leiðangurinn mun hann hafa
gert út með þá hesta er fáanlegir voru að
vetrinum til, til að viða að sér nauðsynjum;
mun margt hafa stuðlað að því, t. d. varfæmi
að binda sér ekki þær skuldabyrðar, er hann
gæti ekki staðið í skilum með, ört vaxandi við-
skipti o.fl. Vafalaust hefir það f byrjun aukið
tiltrú til hans hjá þeim, sem hann fékk vörur
hjá, að hann átti ríka foreldra...“
Við þetta er því til að bæta að stórbóndinn
Lárus í Grímstungu sagði mér, höfundi þess-
arar greinar, svo frá er ég heimsótti hann í
Vatnsdalinn sem oftar að hann hefði í mörg
haust rekið stóðhesta til Grindavíkur ein-
göngu fyrir Einar bónda og kaupmann í Garð-
húsum. Hann hefði staðgreitt hrossin og veitt
vel bæði í mat og drykk. Sagði hann mér að
þessi viðskipti hefðu verið þau ánægjulegustu
sem hann hefði átt, og bætti því við að þar
hefði verið 'maður að sínu skapi. Ekki er ólík-
legt að einmitt þessir hestar hafi borið mikið
af varningi Grindvíkinga.
Einar í Garðhúsum hafði áður en hann hóf
kaupmennsku verið sjómaður á bátum föður
síns frá sextán ára aldri til tvítugs, en þá byrj-
aði hann með sinn eigin bát og var formaður á
þeim báti næstu fjögur árin. Honum tókst vel
til við formennskuna og átti, eftir því sem
best verður séð, bjarta framtíð í útgerð og
fiskverkun auk búskapar. En það var nokkuð
sem hann gat ekki fellt sig við og það voru
verslunarhættir þess tíma. Ástæðu þess að
hann ákvað að stofna til reksturs lýsir hann í
blaðaviðtali við Sigurð Benidiktsson í „Stund-
inni“ árið 1940, á þessa leið:
GUNNLAUGUR Scheving: Gamia búðin í Grindavík, 1961. Olíulitir á striga, 130x145 sm. Eigandi: Listasafn Reykjavíkurborgar. Gunnlaugur átti
heima í Grindavík á fjórða áratugnum og myndin er ómetanleg heimild um þessa verzlun.
VIÐ verzlun Einars í Garðhúsum
„Mér er í barnsminni, þegar Grindvíkingar
báru flestar nauðsynjar sínar á bakinu frá
Keflavík, en það er um tuttugu kílómetrar.
Jafnvel voru dæmi þess, að fólk bar salt á
bakinu frá Keflavík til fiskverkunar í Grinda-
vík.. .Og vegna fátæktar áttu Grindvíkingar
ekki upp á háborðið í Keflavíkurverslun og
urðu ósjaldan að híma þar við búðardyrnar
hálfa og heila dagana áður en þeir fengju
áheym, sem eins vel gat falið í sér fullkomna
synjun um úttekt og úrbætur. Svona var
þetta þá. Ungur fylltist ég beiskju og upp-
reisnaranda gegn þessum viðskipaviðbjóði og
ákvað að gera það, sem ég gæti til að bæta úr
þessu böli sveitunga minna. Þessvegna, og
fyrst og fremst þess vegna, setti ég á stofn
fyrstu og einu verslunina í Grindavík.
Ég man allvel hvernig Einarsbúð, en svo
var hún oftast nefnd leit út en vel þó frekar að
vitna í æviminningar Tómasar Þorvaldssonar
útgerðarmanns, en þar segir svo: „Búð Ein-
ars eins og ég man fyrst eftir henni, þætti
ekki stór nú á dögum: varla meira en um þrjá-
tíu fermetrar. En hún breyttist og stækkaði
smátt og smátt. Verslunarhúsið var úr timbri,
ein hæð með lágu risi. í fyrstu var gengið
beint inn í búðina, en fljótlega var byggð lítil
forstofa.
Þegar inn var komið, var fyrst fyrir u-laga
búðarborð, sem oftast var nefnt diskur. Á
hliðarborðinu vinstra megin var fremst póst-
kassi, því að búðin gegndi líka hlutverki póst-
húss; menn kíktu í kassann um leið og þeir
versluðu til að gá að, hvort þeir hefðu fengið
bréf. Þar fyrir innan var seinni árin glerkassi
með ostum og fleira góðgæti. Innan á sjálfu
búðarborðinu, sem sneri fram, voru skúffur
svo stórar sumar hverjar, að þær tóku tvo
mjölsekki. Þarna var geymt hveiti, rúgmjöl,
haframjöl og fleira, og í minni skúffum voru
rúsínur og sveskjur og sykur og allt var þetta
selt í lausri vigt að sjálfsögðu og vegið á gam-
aldags vog, sem lóð voru sett á.
Hægra megin á aðalborðinu stóð svo grind
með umbúðapappír, þremur rúllum af mis-
munandi stærðum. Og þar við hliðina á var
EINAR G. Einarsson, landskunnur sem kaup-
maðurinn Einar í Garðhúsum.
peningakassi, skrautlegt undratæki að mér
fannst í þá daga, með ótal tökkum og sveif -
og síðast en ekki síst hringdu bjöllur fagur-
lega, þegar skúffan var opnuð. A hliðarborð-
inu hægra megin var fyrst hleri og hurð, sem
opnuð var fyrir þá, sem fengu að fara inn fyr-
ir diskinn. Við hliðina á því var loks púlt með
rimlum fyrir framan, og þar færði búðarmað-
urinn í þykkar bækur andvirði þess sem við-
skiptavinimir tóku út eða lögðu inn.“
I búðinni hjá Einari fékkst allt milli himins
og jarðar, bæði stórt og smátt. Þar ægði sam-
an óskyldustu hlutum eins og sápu og
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 13. DESEMBER 1997