Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Síða 2
Ein af myndum Guðmundar Ingólfssonar Ijósmyndara í Galleríi Kambi. ENGIR TYLLI- DAGAR GUÐMUNDUR Ingólfsson opnar ljósmynda- sýningu í Galleríi Kambi í dag kl. 15. Yfirskrift sýningarinnar er Island í hvunndagsfötum. I myndum Guðmundar eru engir tyllidagar, heldur blákaldur (myndirnar allar svart-hvít- ar) veruleiki hvunndagsins. Islenskur mánu- dagur í æðra veldi. „Hér áður fyrr fannst manni mánudagar hálffúlir dagar, áfall eftir stórsteik og rólegheit á sunnudögum. Svo hugkvæmdist okkur að breyta þessu, til dæmis með því að hafa góðan mat á mánudögum í stað afganganna frá deg- inum áður. Viti menn, mánudagar urðu að til- hlökkunarefni, með tímanum ljúfir dagar,“ segir listamaðurinn. Guðmundur Ingólfsson er fæddur í Reykja- vík 1946. Stúdent frá MR1966. Gerði tilraun til náms við HÍ 1966-67. Nam ljósmyndun við Folkwangschule fíir Gestaltung í Essen í Þýskalandi hjá prófessor Ottó Steinert 1968- 71 og vann sem aðstoðarmaður Steinerts síð- asta námsár sitt. Frá 1972 hefur Guðmundur rekið ljósmyndastofuna Imynd í Reykjavík. Hann hefur tekið þátt í mörgum samsýning- um, innanlands og utan. Sýningin í Galleríi Kambi er opin alla daga til 4. júní, lokað á miðvikudögum. Kambur er við annan afleggjara eftir að komið er yfir Þjórsárbrú. Afleggjarinn er merktur Gíslholt. NÝ TÓNVERK Á VORTÓNLEIKUM „ÍSLANDS lag“ er yfirskrift vortónleika Karlakórs Reykjavíkur að þessu sinni og verða þeir sex talsins, í húsi kórsins, Ymi, í Skógar- hlíð 20. Fyrstu tónleikarnir verða í dag, laug- ardag, aðrir tónleikar á sunnudag, kl. 16 báða dagana. Þá 9., 10., 11 og 13. maí, kl. 20. A efnisskránni er úrval íslenskra laga. Þar er að finna sígildar perlur í bland við ný lög sem sérstaklega hafa verið samin f'yrir kórinn. Ný tónverk eftir fjóra höfunda verða flutt, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson, Gunnar Reyni Sveinsson og Gunnar Þórðarson. Þessa sömu efnisskrá mun kórinn flytja á slóðum Vestur-íslendinga í Kanada og Banda- ríkjunum í byrjun ágúst nk. Þangað fer kórinn á vegum Landafundanefndar og tekur þátt í hátíðahöldum þegar minnst verður 1000 ára afmælis landafunda Leifs Eiríkssonar. Einsöngvari með kómum er Sigrún Hjálm- týsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir ann- ast píanóleik. Stjómandi er Friðrik S. Krist- insson og era þetta tíundu vortónleikamir sem hann stjórnar Karlakór Reykjavíkur. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, veróur gestur á vortónleikum Karlakórs Reykjavíkur. PERLUR OG SKÍNANDIGULL MorgunblaðiS/Sverrir „f dag vil éggefa,“ segja leikarar Perlunnar í sýningunni. ÞAÐ ríkti gleði og eftirvænting í Iðnó þegar blaðamaður leit þar inn á æfingu leikhópsins Perlunnar. Á sunnudaginn, 7. maí, kl. 15 verð- ur framsýning á dagskránni Perlur og skín- andi gull og tilefnið er þríþætt að sögn Sigríðar Eyþórsdóttur leikkonu og kennara sem er um- sjónarmaður Perlunnar og listrænn leiðbein- andi. „Leikhópurinn er sautján ára á þessu vori og þetta er fyrsta sýningin okkar hér í Iðnó eftir að Perlan og Leikfélag Islands gerðu með sér samstarfssamning um sýningar Perlunnar hér í þessu fallega húsi. Sýningin er svo framlag okkar til Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000 og er unnin í samstarfi við Menningarborgina. Við höfum því ríka ástæðu til að gleðjast," sagði Sigríður. Sex skínandi leikperlur Sýningin samanstendur af fjórum leikperl- um og tveimur dansperlum og fjallar m.a. um ástir, gull og græna skóga. „Þetta er fjölskrúð- ug sýning, túlkuð af mikilli einlægni og leik- gleði, sem er aðalsmerki Perluleikara," segir Sigríður. Hópnum hefur bæst góður liðsauki þar sem er danshöfundurinn Lára Stefáns- dóttir. Þegar blaðamaður staldraði við æfði hópurinn bráðskemmtilegt atriði, Handaspil, undir hennar stjóm. „Við ætlum einnig að sýna Romantica, klassískan dans sem Lára hefur samið fyrir hópinn og var frumsýndur í Ráð- húsinu á opnunardag Menningarársins 29. jan- úar. Meðdansari með Perludönsurunum er Kolbrún Bjömsdóttir dansari og leikkona. Þá frumsýnum við nýtt atriði, í dag, sem er lát- bragðsleikur við ljóð Sigurðar Sigurðssonar frá Amarholti. Tónlist og áhrifshljóð hefur Þorvaldur Bjami Þorvaldsson samið íyrir okkur og Bryndís Hilmarsdóttir og Nína Njáls- dóttir búningahönnuðir hafa aðstoðað við búningaval. Önnur atriði í sýningunni eru Mídas konungur, Ef þú bara giftist... og Kærleikurinn er sterkasta aflið. Kynnir á sýningunni á sunnudaginn verður enginn annar en Öm Amason leikari, en hann er mikill vinur hópsins og hefur oft lagt okkur lið,“ sagði Sigríður. Björk leggur Perlunni lið Leikhópurinn Perlan er virt- ur leikhópur skipaður fullorðnu þroskaheftu fólki sem hefur það að markmiði að sýna opin- berlega. í hópnum era nú tólf leikarar á aldr- inum 25-50 ára. Þau heita Ásdís Gísladóttir, Birgitta Harðardóttir, Eva Peters Donalds- dóttir, Gerður Jónsdóttir, Guðrún Ósk Ingv- arsdóttir, Hildur Ilavíðsdóttir, Hreinn Haf- liðason, Ingibjörg Ámadóttir, Lilja Valgerður Jónsdóttir, Ragnar Ragnarsson, Sigrún Áma- dóttir og Sigfús Svanberg Sveinbjömsson. Hópurinn kom fyrst fram árið 1982 og hafur margoft sýnt í sjónvarpi, á ráðstefnum, hjá fé- lögum og félagasamtökum, styrktarskemmt- unum og listahátíðum. Einnig hefur hópurinn farið fjölmargar leikferðir til útlanda. Perlu- leikarar hafa hvarvetna vakið athygli fyrir ein- lægan og hrifandi leik og má segja að þau hafi með sérstæðri listsköpun sinni bætt við nýjum lit í litróf listanna. Sigríður sagði að samstarfs- samningurinn við Leikfélag Islands um afnot af Iðnó endurspeglaði þá stöðu sem Perlan hefur skapað sér. „Þetta era einlægir lista- menn sem sinna listsköpun sinni af alvöra og áhuga.“ Björk Guðmundsdóttir er vemdari Perlunn- ar og mun hún troða upp með Perlunni á árinu. „Það hefur ekki verið ákveðið með hvaða hætti það verður, en kannski föram við í stúdíó og tökum upp efni með hennar aðstoð og undir hennar leiðsögn," sagði Sigríður að lokum. MENNING/ LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur. Ásmundarsafn: Steinunn Þórarinsdótt- ir. Til 14. maí. Verk í eigu safnsins. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Þorsteinn Helgason. Til 14. maí. Gallerí One o One: Kristinn Már Ingv- arsson. Til 22. maí. Gallerí Reykjavík: Guðmundur Björg- vinsson. Til 14. maí. Gallerí Sævars Karls: Guðrún Einars- dóttir. Til 18. maí. Gerðarsafn: Ragnheiður Jóndóttir, Amgunnur Ýr Gylfadóttir, Hafdís Ólafsdóttir. Til 21. maí. Hafnarborg: Elínborg L. Lutzen, Elsa Stansfield og Madelon Hooykaas. Til 29. maí. Hallgrímskirkja: Sigurður Örlygsson. Til 1. júní. íslensk grafík: Kristín Hauksdóttir. Til 7. maí. Gallerí Kambur, Rang.: Guðmundur Ingólfsson. Til 4. júní. Kjarvalsstaðir: Jóhannes S. Kjarval. Myndir úr Kjarvalssafni. Dale Chihuly. Til 18. maí. Listasafn ASÍ: Guðjón Ketilsson og Gretar Reynisson. Til 14. maí. Listasafn Einars Jónssonar: Opið lau. og sunnud. kl. 14-17. Höggmyndagarð- urinn opinn alla daga. Listasafn (slands: Listamenn 4. áratug- arins. Birgir Andrésson. Til 14. maí. Líf- ið við sjóinn. Til 25. júní. Listasafn Signrjóns Ólafssonar: Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson. Listasalurinn Man, Skólavörðustíg: Rúna Gísladóttir. Til 14. maí. Norræna húsið: Terror 2000. Til 14. maí. Nýlistasafnið: Níu listamenn.Til 14. maí. Safnahús Reykjavíkur: Ungt fólk í Reykjavík á 20. öld. Til 15. maí. Stofnun Árna Magnússonar: Handrita- sýning opin þriðjudaga-föstudaga kl. 14- 16. Til 15. maí. Stöðlakot: Helga Jóhannesdóttir. Til 7. maí. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Víðisfiiðakirkja: Barnakóramót Hafn- arfjarðar. Kl. 17. Bústaðakirkja: Samkór Trésmiðafélags fslands. Kl. 17. Digraneskirkja: Samkór Vestmanna- eyja. Kl. 17. Kópavogskirkja: Regnbogakórinn, Léttur sem klettur, Brimkórinn og nem. Söngseturs Esterar Helgu. Kl. 13:30. Hásalir, Hafnarfirði: Kvennakór Hafn- aríjarðar. Kl. 16:30. Langholtskirkja: Skagfirska söngsveit- in í Reykjavík. Kl. 17. Ráðhús Reykjavíkur: Stórsveit Reykja- víkur, Stórsveit Tónlistarskóla FIH, Léttsveit Tónmenntaskóla Rvíkur, Léttsveit Tónlistarskóla Keflavíkur. Kl. 16. Ymir við Skógarhlíð: Karlakór Reykja- víkur. Kl. 16. Sunnudagur Salurinn: Vorhátíð Kársneskórsins. Kl. 14 og 17. Salurinn: Útgáfutónleikar Kammer- kórs Kópavogs. Kl. 20:30. Seljakirkja: Seljur, Mosfellskórinn og Karlakór SVR. Kl. 17. Ýmir, Skógarhlíð: Karlakór Rvíkur, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsd. Kl. 16. Þriðjudagur Ýmir, Skógarhlíð: Sjá sunnudag. Kl. 20. Miðvikudagur Ýmir, Skógarhlíð: Sjá sunnudag. Fimmtudagur Ýmir, Skógarhlíð: Sjá sunnudag. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Landkrabbinn, 6.,12. maí. Glanni glæpur, 7. maí. Abel Snorko, 7. maí. Jónsmessunótt, 10., 11. maí. Vér morðingjar, 7., 11., 12. maí. Hægan, El- ektra, 6., 12. maí. Borgarleikhúsið: Kysstu mig Kata, 6., 7., 11., 12. maí. Leitin að vísbendingu, 6. maí. Iðnó: Sjeikspír, 6., 11. maí. Leikhópur- inn Perlan: Perlur og skínandi gull, 7. maí. Nörd, 6., 12. maí. Hafnarfjarðarleikhúsið: Júlíus, 7. maí. Leikfélag Akureyrar: Tobacco Road, 6., 12. maí. Möguleikhúsið: Hugleikur: Ég sé ekki Munin! 6., 7. maí. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 6. MAÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.