Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Síða 5
íslendingarnir á Point Roberts hafa ugglaust munað eftlr stórfengtegri fjöllum en þeim sem sjást hér og blasa við af suðausturodda tangans.
Pósthúsið á Point Roberts minnir á byggingar úr villta vestrinu þar sem forhliðin sem sneri út að
götunni var mun hærri en sjálft húsið. Landnemarnir á Point Roberts þurftu oft að fara á póst-
húsið til þess að vitja bréfa á fyrsta áratug aldarinnar. Hér standa nokkrir þeirra framan við bygg-
inguna um vetur.
ir fengu svínin það sem fjölskylda og vinir
torguðu ekki. Sagðist Helgi hafa náð um
fimm tonnum af heyi en hann reiknaði með
meiru að ári því hann hafi hreinsað og sáð í
tvær ekrur til viðbótar.
Helgi og Páll, uppeldisbróðir hans, áttu
saman 30 hænur og sjö svín en að auki sagð-
ist Helgi eiga tvær kýr og tvo kálfa. Hlöðu
höfðu þeir reist sem var 30x16 fet og
skemmu 16x12. Þá byggðu þeir hænsnahús,
svínastíu og reykhús en reykt kjöt um jól var
jafn spennandi í Vesturheimi og heima í Vík í
Mýrdal.
Þeir helguðu sig að mestu búskapnum en
þáðu þó vinnu þegar hún bauðst. Sagði Helgi
svo frá að þeir bræður hefðu þénað nítján
dali hvor í einni af niðursuðuverksmiðjunum
á tanganum og verið greitt hálft annað tonn
af heyi fyrir vinnu hjá amerískum bónda í
grenndinni. Loks gat hann þess að þeir væru
komnir með net og ætluðu að reyna við lax-
inn en verksmiðjurnar borguðu allt að 16
sent fyrir fiskinn.
En þótt tónninn í bréfi Helga væri jákvæð-
ur fór fjarri að íslenskum landnemum á tang-
anum væri rótt.
Barátta við bandarísk stjórnvöld
Hinn 5. júlí 1884 samþykkti Bandaríkja-
þing lög er vörðuðu jarðir hersins í landinu.
Eitt megin ákvæði þessara laga var réttur
forseta Bandaríkjanna til að ráðstafa þeim
löndum hersins sem hann var hættur að
nota. Víða hafði slíkt land verið numið í
óleyfi en lögin gerðu ráð fyrir því að þeim
sem svo höfðu gert fyrir 1. janúar 1884 væri
veittur forkaupsréttur. Allir, sem tekið höfðu
land seinna, áttu með þessu ekkert tilkall til
þess. Á Point Roberts hafði reyndar aldrei
komið her og engin herstöð. Þess vegna var
staða landnema þar óljós því landið hafði
verið ætlað hernum en varð það aldrei. Lögin
tilgreindu hins vegar einungis lönd þau sem
herinn hafði yfirgefið. Þessi munur átti eftir
að vega þungt síðar.
Helgi Þorsteinsson lýsti áhyggjum sínum
og annarra Islendinga á tanganum yfir
þessu. Segir hann að dagblað nokkurt í fylk-
inu hafi getið þess að allir ólöglegir landnem-
ar á Point Roberts megi búast við því að
verða reknir úr húsum og af jörðum sínum.
Þessi frétt olli miklu uppnámi. Landnemar
funduðu um málið og flestir undirrituðu
bænaskrá sem send var til yfirvalda í höfuð-
borginni, Washington. Meginósk íbúanna var
að allt land á tanganum yrði gefið frjálst til
landnáms og að þeir sem þegar hefðu tekið
sér bólfestu fengju forgang. I bænaskránni
var skýrt tekið fram að allir væru landnem-
arnir fátækir og gætu með engu móti keypt
hús sín og lönd, sem þeir höfðu lagt allt sitt í
ef til uppboðs kæmi.
Fjölmargir íslendinganna keyptu kofa-
hreysi og jarðskika af bandarískum landnem-
um í þeirri trú að fyrr en seinna fengju þeir
full yfirráð yfir þessum eignum sínum. Selj-
endurnir reyndu ekkert að blekkja íslend-
ingana því öllum var ljós lagaleg staða landn-
ema á tanganum. Yfirleitt voru það
fiskimenn sem seldu Islendingum kofa sína
og jarðskika umhverfis þá en þeir lögðu litla
eða enga áherslu á búskap og því var um lítið
ræktað land að ræða. En íslendingarnir ætl-
uðu sér meira og betra og tóku til óspilltra
málanna við að ryðja land og rækta. Margir
lögðu gífurlega hart að sér og líkt og Helgi
og Páll, sáu fram á bjarta framtíð. Ovissan
um hana var hins vegar óbærileg eins og
fram kemur í öðru bréfi Helga til foreldra
sinna á íslandi. Hann skrifaði það 22. mars,
1898 og segir að þriggja manna nefnd hafi
komið á tangann til að verðleggja þar öll hús
og ræktuð lönd. Allt eigi að fara á uppboð og
seljast hæstbjóðendum. I von um lausn mála
sinna réðu landnemarnir á Point Roberts sér
lögfræðing sem flutti mál þeirra fyrir fylkis-
þinginu. Átti hann að reyna að fá það sam-
þykkt að sérhver landnemi fengi hús sín og
jörð keypt á matsvirði. Þessi tilraun bar ekki
árangur frekar en bænaskráin forðum. Og
árin liðu.
Það var loksins árið 1903 að fulltrúi
Bandaríkjastjórnar í Seattle kom til Point
Roberts. Hét sá Ed. C. Ellet og var hann
þangað sendur einungis til að kanna ólöglegt
skógarhögg en sá orðrómur hafði borist
þvert yfir öll Bandaríkin, alla leið til Wash-
ingtonborgar að landnemar stundu ólöglegt
skógarhögg í svo miklum mæli að grípa yrði í
taumana. Ellet þessum var ekið til Árna
Mýrdal en hann gerðist síðan leiðsögumaður
gestsins á tanganum.
Ellet sá fljótlega að mannlífið á Point
Roberts var allt annað en almannarómur
taldi; hér bjó friðsamt og duglegt fólk en
engir morðingar, ræningjar eða smyglarar. í
stað þess að rannsaka skógarhögg gerði
hann nákvæma skýrslu um hús öll og hýbýli
svo og atvinnuvegi. Féllst hann á að reyna að
sannfæra yfirvöld um kosti þess að leyfa
ábúendum tangans að eignast lönd sín. Hann
sendi stjóminni í Washington skýrslu sína
31. desember 1904. Viðbrögð við henn voru
misjöfn. Sumum þótti sjálfsagt að veita nú-
verandi landnemum forkaupsrétt en aðrir
töldu eðlilegt að allt land yrði boðið upp og
selt á hæsta fáanlegu verði. Skýrslan fór víða
en að endingu kom það í hlut Fred nokkurs
Dennett að bregðast við henni. Sá var yfir-
maður deildar þeirrar í Washington sem
annaðist sölu og úthlutun landnámsjarða.
Hann óskaði nánari upplýsinga frá Ellet,
einkum um skógarhöggið sem enn virtist
órannsakað. í bréfi dagsettu 26. ágúst 1905
svaraði hann fyrirspurn Dennetts og taldi
með öllu rangt að ætla að lögsækja land-
námsmenn á Point Roberts fyrir ólöglegt
skógarhögg. Það litla sem þeir höggva, skrif-
aði Ellet, er til að ryðja landið. Enginn
stundaði skógarhögg í hagnaðarskyni því það
var einfaldlega ekki ábatasamt. Þá vék hann
að lagaákvæðinu frá 5. janúar, 1884 og taldi
það ekki eiga við Point Roberts vegna þess
að þar hefði aldrei verið herstöð. Hann sagði
landnám íslendinga nokkuð sérstakt því allir
tækju þeir sér 40 ekrur lands og seldu það
síðan í smærri einingum, þetta 5-10 ekrur tö
landa sinna. Ellet vitnar aftur í lagabálka og
telur íslendinga ekki þekkja til landnáms-
laga númer 2291 en þau banna landnemum
að selja skika úr sínu landi nema með sér-
stöku leyfi. Ef ný lög verði sett er brýnt að
kaupendum þessara smáskika verði veittur
sami réttur og seljendum. Islendingarnir
væru fátækir landnámsmenn sem af stakri
eljusemi höfðu byggt hús, rutt og ræktað
land og gert lítt árennilegan tanga að vist-
legri nýlendu.
Ekki var nokkur vafi á því að Ellet líkaði
strax við íslendinga þá sem hann kynntist á
Point Roberts því í upphaflegu skýrslu sinni
frá 31. desember, 1904, sagði hann að nær
helmingur landnema væru íslendingar
„...einhverjir hagsýnustu, duglegustu og
áhugaverðustu landnemar sem ég hef kynnst
í Washington fylki.“ („the most frugal, ind-
ustrious and desireable foreign settlers I
have found in the State of Washington)
Hann tók fram að allir hefðu þeir kappkostað
að tileinka sér bandaríska siði og fram-
kvæmdir þeirra á tanganum væru þær bestu
þar um slóðir. Með bandarískum siðum á
Ellet m.a. við nafnabreytingar en frumbyggj-
arnir íslensku á tanganum tóku ýmist upp
ensk (amerísk) nöfn, sbr. Kristján Benson og
John Burns eða breyttu sínum þannig að þau
væru þægilegri í framburði t.d. Sam Hauk-
dal. En hjólin snerust hægt í höfuðborginni
og enn liðu ár.
íslenskur sigur - gjöf
til Theodore Roosevelt forseta
Það var loks snemma um vorið 1908 að
frumvarp til laga, er varðaði Point Roberts,
var lagt fyrir Bandaríkjaþing. í því sagði
m.a. að allir, sem tekið höfðu land á tangan-
um fyrir 1. janúar, 1908 fái sextíu daga frá
og með þeim degi er lögin taka gildi, til að
ganga frá eignarrétti sínum. Frá því frum-
varpið var fyrst kynnt og þar til það var
samþykkt voru ýmsar breytingar gerðar en
loks var það samþykkt 1. apríl 1908. Og ekki
leið á löngu þar til bréf frá Washingtonborg
bárust íslenskum landnemum á tanganum.
Bréf til Sigurðar Mýrdal, sem dagsett var
13. maí 1908 útskýrði fyrir honum lagalegan
rétt hans:
Department of the Interior
General Land Office
Washington, D.C.
May 13, 1908
Mr. S. Myrdal
Point Roberts, Washington.
Sir:
I have to advise you that instructions were
issued on May 9, 1908, for the opening to
settlement and entry under the general
provisions of the public land laws of the
lands of Point Roberts Reserve on June
23,1908. Actual bona fide settlers on the
lands have three months from said date to
place entries of record.
Very respectfully,
Fred Dennett
Commissioner
Loksins gátu íslensku landnemarnir á
Point Roberts andað léttar. Sumir höfðu búið
á tanganum í algerri óvissu í rúman áratug,
rutt land og ræktað og byggt hús. Nú var
tryggt að öll sú mikla vinna væri ekki lengur
fyrir bí. Landnemarnir völdu dag til að fara
saman til Seattle og ganga endanlega frá
landnámi sínu en seinna sama dag eða um
leið og þeir sneru aftur með póstbátnum yrði
hátíð á tanganum. Meðan karlmennirnir voru
í burtu komu konurnar saman og skiptu með
sér verkum. Daga (Dagbjört Dagbjartsdótt-
ir) kona Kristjáns Benediktssonar og hennar
dætur sáu t.d. um bakstur og elduðu kjúkl-
inga.
Allir sem vettlingi gátu valdið á tanganum
komu þennan sólríka dag saman í Tinkham’s
Grove. Þar voru ræður fluttar og kom fram
sú tillaga frá einum ræðumanna, Edward
Tinkham að nafni að viðeigandi væri að
senda Roosevelt, forseta Bandaríkjanna, ein-
hverja sérstaka gjöf í þakklætisskyni. Helgi
Þorsteinsson kom með hugmynd. Hann slátr-
aði vænum sauð daginn eftir og gaf gærusk-
innið. Það var síðan sútað og unnið af þýsk-
um landnema, Elsner að nafni, en hann hafði
lært og unnið við sútun í Þýskalandi. Full-
unnið var skinnið síðan sent til Washington,
til Bandaríkjaforseta sem seinna þakkaði
skriflega góða gjöf og sagðist mundu varð-
veita skinnið í svefnherbergi Hvíta hússins.
Hclstu hcimildir:
Endurminningar Árna Mýrdal (Lögberg 1953)
Almanak O.S.T
Point Roberts, USA R.A. Clark.
Echoes from the Past Runa Thordarson
Laugi Thorstenson: Icelandic Waterman (Whistlep-
unks and Geoducks)
The Bellingham Herald
The Columbian
The Ottawa Telegram
U.S. Congress
U.S. Department of the Interior
Höfundur er sagnfræðingur menntaður á íslandi
(BA) og í Kanada (MA). Hlaut styrk frá landa-
fundanefnd til að rannsaka og skrifa landnáms-
sögu fslendinga í Vesturheimi 1856-1914.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 6. MAÍ 2000 5