Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Qupperneq 10
Þessi Ijósmynd Hjálmars af lúpínuakri hjá Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti ætti að gleðja vini og aðdáendur lúpínunnar á íslandi. Því miður heldur lúpínan þó þessum fallega bláa lit aðeins í fáa daga. Myndin er úr bókínni íslenskur gróður, 1999. EINNÁ FERÐ - OG ORAST MEÐ , MYNDAVEL Ein magnaðasta Ijósmynd sem Hjálmar hefur tekið í ríki náttúrunnar er þessi. Hún er úr Surtsey. í baksýn sést jökulbunga Eyjafjallajökuls, en nýlega storknað hraun með hraunrelpum myndar þak yfir hraunrás með glóandi hraunstraumi. Myndin er úr bók Hjálmars, íslenskt grjót, sem fyrst var útgefin 1995. UOSMYNDARINN HJALMAR R. BARÐARSON EFTIRGÍSLASIGURÐSSON HJÁLMAR R. Bárðarson er maður ekki einhamur. Fyrir utan það að teikna skip og síð- ar að gegna erilsömu embætti siglingamálastjóra liggur eft- ir hann umfangsmikið og glæsilegt höfundarverk. I marga áratugi hefur Hjálmar verið einn af okkar fremstu ljósmyndurum og segja má, að hann sé búinn að mynda náttúru Is- lands frá öllum hugsanlegum sjónarhomum á rúmlega 60 árum og er enn á fullu, enda ekki nema 81 árs. íslandsbækur Hjálmars eru orðnar 11. Sú fyrsta, Ísíand farsælda frón kom út 1953 og sú síðasta, íslenskur gróður kom út í árslok 1999. Áður hafði hann gefið út kennslubók í ljósmynd- un og Flugmál íslands, verðlaunaritgerð úr MR frá 1939. Bókverk Hjálinars hefur alveg sinn eigin svip, sem heigast af því, að hann hefur tök á því að hanna bækumar sjálfur í tölvu. Hann leggur með öðrum orðum gjörva hönd á heila móverkið nema prentunina og gefur bækumar út sjálfur. Tvennt er það einkum að mínu mati sem gefur bókum Hjálmars gildi. Annarsvegar margar af- burða góðar ljósmyndir sem eru ávöxtur mynd- rænnar tilfinningar og þeirrar elju og þolin- mæði að gefa sér tíma til þess að fara aftur og aftur á sömu staði á ýmsum árstíðum. Hinsveg- ar felst gildið í ítarlegum og frábærlega vel unn- um myndatextum þar sem Hjálmari tekst að koma yfirgripsmikilli fræðslu á framfæri. Hjálmar R. Bárðarson er fæddur á ísafirði 1918 og þar ólst hann upp. Ungur að aldri fór hann að taka ljósmyndir á ferðalögum með skátafélagi og jafnframt eignaðist hann snemma góða myndavél, Rolleikord 6x6 og 35mm Ret- inu. Núna er hann betur vélvæddur og tekur mest á Hasselblad og Nikon; en Fuji 6x17 bregður hann fyrir sig þegar myndefnið krefst þess að hafa mjög breiðan vinkil. Ljósmyndir af íslenzkri náttúru fór Hjálmar að taka um 1930, en í fyrsta eiginlega Ijós- myndaleiðangurinn fór hann sumarið 1939, sem eftir skrám Veðurstofunnar er bezta sumar 20. aldarinnar á íslandi. Þá fór Hjálmar einsamall í nærri þriggja vikna gönguför um Hornstrandir og á þeim tíma var þar enn byggð. Þá var ekki um annað ræða en svarthvítar myndir og Morgunblaðið/RAX Hjálmar R. Bárðarson með Hasselbiad-mynda- vélina sem hann notar oftast við myndatökur úti í náttúrunni. Hjálmar fór í fyrsta alvöru Ijósmyndalelðangur sfnn sumarið 1939 um Hornstrandir og tók þá þessa mynd af bænum og heimilisfólkinu á Oddsflöt í Grunnavfk. Gulfoss er ekki síður fallegur í vetrarbúningi. Hér stendur maður á ísuðum stalli við neðri fossinn og virðir fyrir sér frostúðann. Myndin er úr bók Hjálmars, Hvítá frá upptökum til ósa, 1989. Frá Vestmannaeyjagosinu 1973. „Ég lifi og þér munið lifa“ stendur á sáluhliði Landakirkju, en ( baksýn er jarðeldurinn í Eldfellf. Úr bók Hjálmars, lceland - a portrait of its land and people, 1982. Hjálmar myndaði mest landslag, en líka bæi og fólk. Þótti þeim Strandamönnum stórskrýtið að maður gæti verið við aðra eins iðju um hábjargræðistímann. Eftir stúdentspróf lagði Hjálmar stund á skipaverkfræði í Danmörku. Að loknu námi starfaði hann fyrst hjá Stálsmiðjunni og teikn- aði þar dráttarbátinn Magna, fyrsta stálskipið sem smíðað var á íslandi. Síðar varð hann skipa- skoðunarstjóri og skipaskráningarstjóri og gegndi embætti siglingamálastjóra frá 1970 til 1985. Síðan þá hefur bókverkið verið aðalvið- fangsefni hans. Fyrsta íslandsbók Hjálmars, ísland farsælda frón kom út með texta á 6 tungumálum 1953. Hún er nú uppseld. Næst í röðinni var ísland - Iceland - Islande, 1965, einnig með texta á 6 tungumálum og einnig hún er uppseld. Sú þriðja var Is og eldur 1971, sérútgáfur á íslenzku, ensku, dönsku og þýzku. Fjórða bókin er ísland, svipur lands og þjóðar, 1982 og 1986, sérútgáfur á íslenzku, ensku og þýzku. Sú fimmta í röð ís- landsbóka er Fuglar Islands, sem fyrst kom út 1986, sérútgefin á fjórum tungumálum. Sú sjötta er Hvítá frá upptökum til ósa 1989 og var hún sérútgefin á íslenzku, ensku og þýzku. Sjöunda íslandsbókin er Vestfirðir 1993, sú átt- unda er íslenskt grjót, 1995 og sú níunda er jafnframt sú nýjasta: íslenskur gróður, 1999. Hjálmar er búinn að „kemba landið“ eins og stundum er sagt. Hann hefur verið óþreytandi ferðagarpur á öllum árstíðum og telur þær allar jafn góðar til ljósmyndunar. Ekki tekur hann eitt landsvæði fram yfir annað, en meðal þess, sem hann hefur lagt sérstaka stund á að mynda, eru eldgos. Hann er félagi í Jöklarannsóknafé- '■ laginu og í Surtseyjarfélaginu hefur hann verið frá stofnun þess. í jöklaferðir hefur hann ekki farið öðruvísi en í einhverjum félagsskap, en annars er hann oft- ast einn á ferð - og þá vel vopnaður myndavél- um. Það getur tekið langan tíma að finna mynd- efni, rétt sjónarhorn og bíða eftir hagstæðri birtu, og það er naumast á aðra leggjandi að vera á ferðinni með náttúruljósmyndara. Jafn- framt hefur Hjálmar verið á ferðinni í loftinu; tekið urmul mynda úr flugvél. Sveinn Björns- son, sonur hins þekkta flugmanns Björns Páls- sonar, hefur flogið með Hjálmar á eins hreyfils Cessna-flugvél. Úr þeirri flugvél tók Hjálmar margar frábærar loftmyndir í Vestfjarðabók v sína; einnig í Hvítárbókina. Vegna nýju bókarinnar um íslenzkan gróður hefur Hjálmar hinsvegar ekki þurft að bregða 1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 6. MAÍ 2000 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 6. AAAÍ 2000 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.