Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.2000, Qupperneq 12
í Hvítárbók sinni kemur Hjálmar víða við og fjaliar í myndum um atvinnuhætti og manniíf á vatna- svæði árinnar. Hér hefur hann fangað hrífandi sýn, sem ef til vill heyrir brátt sögunni til: Fjallsafn Hrunamanna rekið til rétta. Berserkjasveppur er meðal skrautlegustu sveppa sem gróa á íslandi. Ástaratlot nefnir Hjálmar þessa mynd af tveimur fullvöxnum berserkjasveppum. Hún er úr bók hans, íslenskum gróðri, 1999. sér upp í háloftin. Fremur hið gagnstæða: Að lúta lágt þvf myndefnið er oft við fætur ljós- myndarans. Flestar myndanna tók Hjálmar á Hasselblad-vélina með macro-linsu sem er sérstaklega gerð fyrir nærmyndir. Það kann að koma á óvart, en við þessar aðstæður notar Hjálmar blossa, tveggja lampa macroflash, jafnvel í sólskini. Hjálmar hefur þann hátt á í bókum sínum að hann byijar á því að bregða ljósi á myndunar- sögu og uppruna. Náttúruunnendur geta ef þeir vilja fengið í samþjöppuðu formi ágætar upplýsingar. Vestfjarðabókin hefst til dæmis á greinargerð um myndun Vestfjarðakjálkans og í Hvítárbókinni er upphafskafli um vatnið í * öllum sínum myndum. I nýjustu bók Hjálmars um gróður íslands er á sama hátt farið aftur í tímann og hugað að því sem steingervingar segja okkur um gróðurfar fyrir 12-14 milljón- um ára. í bókinni er margt hnýsislegt sem ástæða væri til að vekja athygli á, en rýmið leyflr það ekki hér. Til dæmis mætti nefna sveppi, sem vaxa villtir og íslendingar þora helzt ekki að bragða og telja þá alla eitraða. Einn er sá sveppur sem af ber sökum litfegurðar. Það er berserkjasveppur og er í bókinni minnisstæð mynd af tveimur slíkum, sem virðast vera í ástaratlotum. Á En verður ekki að hafa grasafræðing með í ferðum þegar ráðizt er í svona verkefni? Ekki hafði Hjálmar með sér neinn slíkan að stað- aldri, en Eyþór Einarsson grasafræðingur fór með honum í þijá leiðangra. Bók um gróður verður hinsvegar ekki unnin nema með því að hafa til hliðsjónar ýmsar skrár um gróður og þar er Flóra íslands eftir Stefán Stefánsson grundvallarrit. Nokkrar aðrar greiningabæk- ur studdist Hjálmar við svo sem sjá má af langri ritaskrá aftast í bókinni. Einnig hafði hann samband við helztu sérfræðinga okkar og þeir greindu plöntur fyrir hann þegar hann var í vafa og aðstoðuðu hann við gerð mynda- textanna. Þar var haft að leiðarljósi að text- amir væru almenns eðlis en lýstu þó plöntun- um. Upphaflega var hugmynd Hjálmars að búa til eina bók um grjót og gróður. Myndefnið vatt hinsvegar svo upp á sig að niðurstaðan varð sú að skipta því í tvær bækur. Fjölmargar myndir hefur hann tekið sérstaklega fyrir þessar bækur, en hann gengur einnig í sjóð mynda sinna frá fyrri áratugum. Gróðurmynd- imar eru frá síðustu 20 ámnum, segir hann. Þegar Hjálmar lítur til baka telur hann að Fuglabókin hafí verið tímafrekust. Hugmynd- in var upphaflega sú, að Finnur Guðmundsson, fuglafræðingur og frændi Hjálmars, skrifaði texta bókarinnar en Hjálmar tæki myndirnar. En áður en til þess kom dó F'innur. Hjálmar hélt samt sínu striki og í myndatextum studd- ist hann við ýmsar ritgerðir Finns um fugla. „Feður okkar Finns ólust upp saman í Kolla- fjarðamesi," segir Hjálmar, „og ég tileinkaði honum bókina.“ Hvítárbókin var mjög víðfeðmt verkefni. Þemað er í rauninni hringrás vatnsins og hug- myndin kviknaði við dálítinn læk sem sprettur Jöklasóley vex á melum og í grjótskriðum hátt til fjaila og hér á landi hefur hún fundist í 1600 m hæð. Þessa jöklasóley fann Hjálmar í 600 m hæð á Vestfjörðum, en myndin er úr nýjustu bók hans, íslenzkum gróðri. Hrafninn hefur tengst landsmönnum á sérstakan hátt með því að hrafnar skiptu sér niður á bæi. Hrafninn á þessari Ijósmynd Hjálmars er ungur heimahrafn. Myndin er úr bók Hjálmars, Fuglar ís- lands, sem út kom 1986. upp og rennur yfir mosa við innstu upptök Fúlukvíslar við Langjökul. Hún rennur síðan í Hvítárvatn en bókin spannar allt vatnasvæði Hvítár. Hjálmar fylgir öllum ám sem falla til Hvítár og neðan við ármót Sogs og Hvítár fylgir hann Ölfusá til ósa. En það er ekki aðeins náttúran og vatna- svæðið sem er umfjöllunarefni í þessari frá- bæru bók; þar er margt um mannlíf og sögu og að vanda rúmast margvíslegur fróðleikur í myndatextum. Við gerð þeirra kveðst Hjálmar hafa orðið að lesa sér mikið til, bæði um sögu- leg ogjarðfræðileg efni. Ljósmyndaleiðangrar Hjálmars eru orðnir fleiri en tölu verður á komið. Emn af þeim minnisstæðustu var ferð til Hveravalla um jólaleytið með Sigurjóni Rist vatnamælinga- manni. Farartældð var beltadráttarvél. Hún var ekki ýkja hraðskreið og í tvær nætur urðu þeir ferðafélagar að sofa inni í þröngu vélar- húsinu. Báðir voru stórvaxnir en þetta tókst með því að báðir lágu í vinkil. I náttúruljósmyndun vinna menn stundum með heimildagildi sem forgangsverkefni, eða á hinn bóginn að megináherzlan er lögð á list- rænu hliðina. I seinni tíð hefur mikil gróska orðið í ljósmyndun í íslenzkri náttúru og nýjar og fallegar myndabækur um Island koma út á hverju ári. Listræna áherzlan er þar oftast í fyrirrúmi og við höfum eignast nokkra úrvals- ljósmyndara sem sinna þessu. Eftir því sem fleiri myndabækur koma út - oft með verulega áherzlu á gleiðlinsumyndir - er sýnt að þrátt fyrir tilbreytinguna í íslenzkri náttúru gætir orðið tilbreytingarleysis í þess- um bókum. f þessum bókaflokki skera bækur Hjálmars R. Bárðarsonar sig nokkuð úr. í fyrsta lagi vegna þess að honum tekst oft vel að sameina heimildagildi og listræn vinnubrögð, en einnig vegna þess að bækur hans eru um leið hafsjór af fróðleik. 1 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 6. MAÍ 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.