Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 3
LESBÖK M()I!(,lMil M)Sl\S - MENNEVGI ISÍ II! 43. TÖLUBLAÐ - 75 ÁRGANGUR EFNI Yfirlitssýning á verkum Tryggva Olafssonar verður opn- uð í Gerðarsafni í dag í boði Búnaðarbanka Islands. Af því tilefni lagði Bragi Asgeirs- son nokkrar spurningar fyrir listamanninn á hcimili hans á Amákri. Spurði um tildrög- in að sýningunni, skoðanir, föng, líflð og listina. HEIMIR STEINSSON JÓNSMESSA ARASONAR HÓLABISKUPS Sjóminjasafnið ó ísafirði er til húsa í Turnhúsinu í Neðstakaupstað og umhverfis það. Hér heldur Gísli Sigurðs- son umfjöllun sinni um húsin í Neðsta- kaupstað áfram, en sérstök myndafrásögn með ítarlegum textum er um sjóminjasafn- ið, sem bæði er fjölbreytt og nýtur sín afar vel í þessu gamla húsi. Sálmar á barokköld Ut er komið 1. bindi fræðilegrar heildar- útgáfu á verkum séra Hallgríms Pétursson- ar. Höfundur er Margrét Eggertsdóttir og skrifar hún greinina af því tilefni. Hall- grímur var uppi á því timabili í listum sem venjulega er kennt við barokk. Einkenni tímabilsins eru einveldi konunga og sterk kirkjuleg yfírráð. Náttfaravíkur eru utan alfaralciða og svo er um þær út- hafsbyggðir á Mið-Norðurlandi, sem Val- garður Egilsson skrifar um í árbók Ferða- félags íslands árið 2000. Þær eru fyrir alllöngu komnar í eyði, en nú er efnt til gönguferða um svæðið og hafa þær orðið mjög vinsælar. Hér er gripið niður í kaflann um Náttfaravíkur. FORSÍÐUMYNDIN er úr nýju veitingahúsi, Le Georges, í Pompidou-listamiðstöðinni í París. Sjó nónar um það og Músiksafn Gehrys í Seattle ó bls. 13. Skyggiráalla Skálholts vini skelfíng bráð: Hér bjuggu þeirlandsins besta syni banaráð. Sæfíst enn yfír syndar ranni sektin löng. Nú hæfíi' að fíytja harmamanni hryggðarsöng. En þeir, sem um ár og aldir gnauða við umbreyttan sið og tón, blessa tregir þitt blóðið rauða, biskup Jón. Höfundurinn var sóknarprestur og þjóðgarðsvörður ó Þingvöllum. Hann lést 15. maí ó síðastliðnu vori. Ljóðið er úr óbirtu handriti og birt í tilefni af Jónsmessu Arasonar Hólabiskups, sem er 7. nóvember. RABB OFT ER fundið að því að Alþingi sé of háð framkvæmdavaldinu og hafi lítið frum- kvæði. Að baki þessu býr sú skoðun að valdinu skuli skipt þannig að kjömir full- trúar setji lög og standi vörð um al- mannahag en ríkisstjómin vasist í alls kon- ar framkvæmdum og hafi umsjón með að farið sé eftir lögunum. Þessar hugmyndir um skiptingu valdsins eru afsprengi frjálslyndrar stjórnspeki sem rekja má til enska heimspekingsins John Locke undir lok 17. aldar. Hún gerir ráð fyrir að samfélagið með félög sín og fyrir- tæki sé að mestu óháð ríkinu. Það þurfi þó á ríkisvaldi, lögreglu og dómstól.im að halda til að fólk fái frið fyrir ofbeldismönnum og deilur leiði ekki til stigvaxandi átaka. Ríkis- vald sem er nógu öflugt til að stemma stigu við ofbeldi er líka nógu öflugt til að beita al- menning ofríki og alltaf er hætta á að vald- hafar freistist til þess. Til að bægja slíkum freistingum frá áttu kjömir fulltrúar að setja stjórnvöldum reglur og ákveða hvað þau mættu leggja mikla skatta á lands- menn. Þessar kenningar em hornsteinar þeirr- ar lýðræðislegu stjórnskipunar sem þróast hefur i Vestur Evrópu og Norður-Ameríku. Það er því eðlilegt að menn hafi áhyggjur af óljósum skilum milli þings og ríkisstjómar. Að minni hyggju helst samþætting löggjafar og framkvæmdavalds í hendur við það sem kalla mætti stjómmálavæðingu samfélagsins. Það samfélag sem við byggj- um er ekki óháð ríkisvaldinu í þeim mæli sem John Locke og aðrir upphafsmenn frjálshyggjunnar hugsuðu sér. Alla 20. öld hafa ríkisumsvif farið vaxandi. Ríkið rekur skóla, fjölmiðla, sjúkrahús, samgöngu- mannvirki og alls konar eftirlitsstofnanir. Stór hluti af löggjöf fjallar um starfsemi þessara stofnana svo löggjafinn verður að hafa verulegt samráð við þá sem bera ábyrgð á rekstri þeirra. Þetta þýðir ekki að Alþingi sé valdalaust. Þingmenn geta sam- þykkt vantraust á ríkisstjóm eða sett lög sem stjórnarráðinu eru lítt að skapi. En HVERNIG VÆRIAÐ KJÓSENDUR VELDU SKATTHLUTFALL? þeir geta ekki sett skilvirk lög um fram- kvæmdir og rekstur á vegum ríkisins án samvinnu við ráðherra, embættismenn og sérfræðinga. Þarna vinna þing og stjórnar- ráð því hlið við hlið með þeim afleiðingum að þingmennirnir koma ekki fram sem full- trúar almennings gagnvart framkvæmda- valdinu heldur miklu fremur sem sam- verkamenn þess. Við þessar aðstæður liggur það nánast í hlutarins eðli að lög- gjafinn lítur ekki á það sem hlutverk sitt að takmarka opinber útgjöld heldur snúa framkvæmda- og löggjafarvald bökum sam- an í þeirri viðleitni að afla ríkinu sem mestra tekna. Nú kann sumum að þykja þetta gott og blessað en ég held að skattheimta sé komin á það stig að draga úr sköpunarmætti og aðlögunarhæfni samfélagsins auk þess að spilla efnalegri afkomu þorra fólks. En hér er við ramman reip að draga. Þingið sem upphaflega átti að standa gegn ásælni ríkis- valdsins er í liði með því. Eg býst við að flestir þingmenn sinni starfi sínu af lífi og sál. Sé starfið í því fólgið að stuðla að opinberum framkvæmdum í eigin kjördæmi eða styrkja einhver málefni þá mun þeim ætíð þykja þörf á meiri pen- ingum. Dugmiklu fólki sem langar til að gera eitthvert gagn finnst alltaf að það þurfi meiri peninga. Þetta verður svo auðvitað til þess að venjulegir borgarar sem vilja verða ágætir af verkum sínum hafa minna fé handa á milli. Önnur ástæða fyiir háum sköttum er að þegar kosningar snúast um opinberar fram- kvæmdir og rekstur, ríkisstyrki og því um líkt fremur en almennar leikreglur reyna kjósendur að skara eld að eigin köku með því að styðja stjórnmálamenn sem lofa þeim sérstökum sporslum. Og frambjóðendur ganga á lagið. Þeir gefa kosningaloforð sem eru óhagstæð fyrir þorra fólks en mjög hag- stæð fyrir einhvem hóp. Frambjóðandi sem lofar þúsund manna hópi hundrað milljón krónum tryggir sér atkvæði þeirra þúsund. Ef hundrað þúsund manna hópur þarf að borga kostnaðinn við uppátækið tapa þeir kannski 1.200 krónum hver. Það er of Iítið til að ráða neinu um hvemig þeir greiða at- kvæði. En margt smátt gerir eitt stórt og við búum nú við flókið kerfi styrkja, milli- færslna, niðurgreiðslna og ívilnana. Ef stjómmálaflokkur reynir að hrófla við ein- hverju af öllu þessu rísa þeir þúsund sem tapa upp á afturjappimar með írafári og lát- um. Hinir 100.000 sem græða kannski 1.200 krónur hver segja ekki neitt. Það em svo mörg svona kerfi í gangi að sennilega borga næstum allir meira en þeir fá til baka. Samt getur stjórnmálaflokkur ekki aukið fylgi sitt með því að lofa að afnema neitt eitt. Lýðræðið er lokað inni í vítahring. Þótt almenningur geti kosið milli ólíkra verkefna sem frambjóðendur lofa að styðja ráða kjósendur skelfing litlu um hvað þeir borga fyrir herlegheitin. Við erum komin óralangt frá þeirri upphaflegu hugmynd að skattheimta sé aðeins heimil að því marki sem almenningur samþykkir. Hvað er til ráða. Sumir hafa reynt að draga einhver mörk milli nauðsynlegra og þarflausra ríkisumsvifa. Þetta held ég að sé vonlaust verk. Mannlegar þarfir era að mestu leyti óskrifað blað sem við fyllum út jafnóðum og við lifum lífinu. Það er hvergi hægt að draga nein mörk og segja, þetta er það sem við raunverulega þurfum, hitt er óþarfi. Það sem setur innkaupum og eyðslu okkar mörk era ekki rök fyrir því hvað er nauðsynlegt og hvað ekki heldur takmörk- uð auraráð. Um opinber útgjöld gegnir svipuðu máli og um einkaneysluna að því leyti að ekki er hægt að draga nein glögg mörk milli þess nauðsynlega og þess óþarfa. En þau era ólík útgjöldum venjulegra heim- ila að því leyti að þeir sem ákveða þau þurfa ekki sjálfir að vinna fyrir peningunum. Það er engin leið að ákveða fyrirfram hvað stjórnvöld eiga að gera. En það er hægt að ákveða hvað þau fá mikla peninga og mér virðist réttast að kjósendur geri þetta sjálfir í almennum kosningum. Það mætti til dæmis hugsa sér að samhliða al- þingis- og sveitarstjómarkosningum yrði boðið upp á val milli óbreyttra skatta, 5% hækkunar og 5% lækkunar. Til að mæta óvæntum aðstæðum eða breyta skatthlut- falli hraðar en þessi tillaga gerir ráð fyrir ætti kannski að heimila meirihluta Alþingis eða sveitarstjórnar að setja fram fjórðu uppástunguna. Ef sveitarstjórn leggur á 10% útsvar velja kjósendur þá milli lækkunar í 9,5% (þ.e. um 5% af 10% sem er 0,5%), óbreytts hlutfalls og hækkunar upp í 10,5%. Við þingkosningar gætu menn á sama hátt kos- ið um tekjuskatt og virðisaukaskatt. Fái einn kostur meirihluta atkvæða er hann framkvæmdur. Erfiðara er að ákveða hvað gera skal ef enginn einn kostur fær hreinan meirihluta. Kannski er þá best að reikna vegið meðaltal. Þetta fyrirkomulag nýtur sín best þar sem skattareglur era einfaldar og skatt- hlutfall það sama á allar tekjur (eða öll við- skipti ef um virðisaukaskatt er að ræða). Séu skattareglur flóknar og mikið um und- anþágur er hætt við að niðurstöður verði aðrar en meirihluti manna ætlar. Þá verður líka hætta á að kjósendur reyni að finna leiðir til að verja atkvæði sínu þannig að þeirra eigin skattar lækki en aðrir borgi meira. En með einfóldu skattakerfi þar sem allir greiða sama hlutfall af tekjum sínum er þetta trúlega besta leiðin til að færa al- menningi eitthvað af þeim völdum sem ætl- unin var að tryggja honum þegar tekið var að kjósa þjóðþing með lýðræðislegum hætti. ATLI HARÐARSON HEIMSPEKINGUR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 4. NÓVEMBER 2000 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.