Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 13
FRAMTIÐAR-
MÚSÍK
Safn yfir samtímamúsík, helgað poppstjörnunni
Jimi Hendrix, hefur risið í Seattle og höfundurinn er
frumlegasti arkitekt samtímans, FrankO. Gehry.
✓
STÓRUM dráttum má segja að í lok 20.
aldar vinni meiripartur arkitekta heimsins
í anda þess módemisma, sem fyrr á öldinni
tók sér fyrir hendur að dauðhreinsa bygg-
ingar af öllu óþarfa skrauti. Þessi hugsun gat
af sér harðlífi í arkitektúr, sem náði hámarki
um 1960 með byggingum sem nú er víða verið
að brjóta niður. Síðan hafa menn að vísu haldið
áfram í anda módernismans, en aukið ýmsum
tilbrigðum við stefið. Aðeins örfáir arkitektar
hafa fengið tækifæri til að láta gamminn geisa;
teikna stórhýsi sem skera sig úr öllu sem áður
er þekkt. Utzon fékk tækifæri til þess þegar
hann teiknaði ópemhúsið í Sydney og sams-
konar tækifæri fengu Renzo og Piano við
hönnun Pompidou-listamiðstöðvarinnar í Par-
ís. Enda þótt Pompidou Center hafi alla tíð
vakið athygli og aðdáun leið langur tími án
þess að séð væri að þessi hönnun hefði víðtæk
áhrif. Það gerist í raun og vem fyrst í aldarlok
með verkum bandaríska arkitektsins Franks
0. Gehrys. Það er engu líkara en hann hafi
týnt reglustikunni sinni og snúið sér alfarið að
formmótun í tölvu.
Með nýja Guggenheim-safninu í Bilbao á
Spáni vakti Gehry verulega athygli, en að
sjálfsögu hefur margt niðrandi verið sagt um
þá byggingu og engin undur, svo byltingar-
kennd sem hún er. I framhaldi af henni hefur
Gehry verið ráðinn til að teikna annað Gug-
genheim-safn í New York. Nú er hvorttveggja,
að Gehry fer mikinn og beinlínis til þess ætlast
að hann teikni eitthvað gersamlega óvenju-
legt.
Frá nýjasta stórvirki Gehrys hefur nýlega
verið sagt í tímaritinu The Architectural Rev-
iew, en það er safn yfir samtímamúsík í Seattle
í Bandaríkjunum. Vera má að einhver hnjóti
um þetta, að byggt sé safn yfir músík, en það
er ekki einsdæmi og má benda á poppmúsíks-
afn í Sheffield á Englandi og ein af stóra
stjörnunum í arkitektúr, I.M. Pei, teiknaði
Rock and Roll-safn í Cleveland í Bandaríkjun-
um.
Það að menn ákváðu að hefjast handa í
Seattle og byggja músíksafn má rekja til þess
að þaðan er poppgoðið Jimi Hendrix.
Ekki svo að skilja að Gehry tæki hugmynd-
inni fagnandi: „Þetta eru ekki mínai- ær og
kýr, ég hlusta á Haydn,“ sagði hann. En þetta
var verkefni þar sem hann gat fengið alveg
frjálsar hendur og með því frelsi hefur Seattle-
borg fengið nýtt kennileiti á svæðinu þar sem
heimssýningin var haldin 1962.
Safnið í Seattle minnir á Guggenheim-safnið
í þá vera að málmklætt ytra byrði er sjaldnast
með beinum línum, en því oftar með formum
sem minna á sjálfa náttúrana. Aðalhvelfingin
er að utanverðu úr ryðfriu stáli sem hefur ver-
ið meðhöndlað með sýru og virðist tilsýndar
eins og risastór steinn. Aðrir hlutar safnsins
eru „mekkanískari" í útliti, en það er þó fyrst
og fremst að innanverðu að fjör færist í leikinn
og er það ugglaust í anda Jimi Hendrix.
Vinnubrögð Gehrys era í hæsta máta nú-
tímaleg. Hann notar tölvutækni við hönnunina
og með tölvutækni er málmurinn sveigður og
teygður.
Spurningin er að hve miklu leyti Gehry hef-
ur markað tímamót og hvort þetta nýstárlega
svipmót sé sú framtíðarmúsík sem verði stíll
21. aldarinnar. Á forsíðunni má sjá verk eftir
unga og óþekkta arkitekta, Domenique Jakob
og MacFarlane, sem fenu það verkefni að
hanna nýtt veitingahús í Pompidou-listamið-
stöðina þegar endurbætur fóra fram á henni
nýlega. Margskonar pípur og sver rör hafa frá
upphafi einkennt þetta hús og hafa höfundarn-
ir hannað svo gildar pípur, að inni í þeim sum-
um era sérstakar vistarverar. Að sjálfsögu er
það í beinu framhaldi af upphaflegri hönnun
þeirra Renzos og Pianos, en það má líka sjá
áhrifin frá Gehry gægjast þarna í gegn.
GÍSLISIGURÐSSON
Ytra byrðið á hluta tónlistarsafnsins í Seattle er úr ryðfríu stáli, sem gert er hvítt með sýru.
Til vinstri: Innanhússhönnun eftir Gehry og
félaga. Við Times Square í New York hefur
nýlega verið byggt íburðarmikið kaffihús
þar sem vel er hátt til lofts og þar hefur
Gehry látið gamminn geisa. Efnið er gler
og samlímdar plötur.
Til hægri: Stálhjálmur yfir aðalinngangi
safnsins í Seattle minnir á aðra fræga
byggingu eftir Gehry, Guggenheim-safnið
í Bilbao.
Djarfleg litanotkun í forsal hússins og burðarvirkin höfð vel sýnileg.
Safnið í Seattle. Oft er sagt um byggingar Gehrys að þær
séu eins og hús að hruni komið eftir jarðskjáifta.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 4. NÓVEMBER 2000 1 3