Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Page 15
Ljósmynd/Björn Rúriksson
Horft suður eftir Náttfaravíkum. Vargsnesið fram, Rauðavík norðan undir því. Greina má hvar
Skálavík gengur inn skammt sunnan Vargsness, Naustavík í hvarfi. Sér suður Kotadal, vestur-
hlíð Bakranga í sólskini, skuggi austan í. Víknaskarð fer til suðausturs sunnan Bakrangans.
Skessufjall sunnan yfir. Skálavíkurhnjúkur lengst til hægri, Kotahnjúkur áberandi yfir mynni
Kotadals. Næst á myndinni er Syðri-Tröllá, sunnar Rauðavíkurfjall, að Ytri-Rauðuvíkurá.
Vetur í Vargsnesi.
Ljósmynd/Björn Rúriksson
Veggir úr grjóti en torf yfir því. Líkist ekki
fjárhúsi. Þarf rannsóknar við. Landbrot er
mikið í Rauðuvík og hefur gróinn lágbakkinn
mjókkað mjög í tíð núlifandi manna.
Vargsnesið gengur ofurlítið fram, og upp frá
klettabökkunum er túnið, allbratt. Framan-
undir nesinu sjálfu heitir Vargsnesbás. Þar
lentu Vargsnesbændur þegar gott var, annars
við Lendingarklett yst í Rauðuvík. Tóttir bæj:
arins eru skammt fyrir ofan bakkann. I
Vargsnesi var búið til 1933. Skorsteinninn á
bænum hefur verið steinsteyptur svo og varin-
hellan, húsið var annars timburþiljað. Bach
hljómaði hér um hús 1923. Sigríður dóttirin
lék. Pabbi hennar vissi hvað hún söng og
keypti orgel handa einkadótturinni. Upp
hamrabakkann var erfitt að koma hljóðfærinu,
sem flutt var með mótorbát frá Húsavík í
Vargsnesbás, og trékassi mikill utan um. Sig-
urbjörn bóndi fékk bræður sína í Naustavík til
aðstoðar. Kristján réði verklaginu. „Setjiði
strákar, setjiði hljóðfærið á hrygginn á mér, ég
kemst kannski með það upp gjána, ef þið styðj-
ið við“. Pabbinn hafði lært á orgel og kenndi nú
stelpunni.
Þau hjón Sigurbjörn Sigurjónsson og Pet-
rína kona hans bjuggu í Vargsnesi 1920 til
1933. Sigríður dóttir þeirra giftist Hólmgeiri
Arnasyni, hann var frá næsta bæ norðan við,
Eyri á Flateyjardal. Eggjar skilja Eyri og
Vargsnes. Stefán bróðir Sigurbjörns giftist
Sigfríði Árnadóttur frá Eyri.
Landið norður frá Vargsnesi er vel gróið. Út
og upp frá Rauðuvík er kjarri vaxið Itauðuvík-
urfjall. Bratti er vaxandi til norðurs. Utar
koma fram Tröllár tvær og Skessufjall heitir á
milli, árnar koma úr miklum Tröllárbotnum.
Utan við Ytri-Tröllá er kölluð Sæmundarhlíð,
þar verða krækiber stærri en annars staðai’.
Bakkar með sjó hækka mjög er utar dregur.
Norðan við Ytri-Ti’öllá kemur Sæmundarlæk-
ur ofan úr hlíð og brátt enda grös, en við taka
hrikaleg Hágöng hin syðri. Eru nú ókleif björg
næstu 8-9 km og norður að næsta bæ, Eyri á
Flateyjardal - þar sem einnig heita Hágöng á
máli þeirra þar. I þessa bjarghlíð eru dalverpi
tvö, Hvanndalir vestari og austari, er þeirra
áður getið við Eyri. - Hér þarf að leita fjár á
haustin í þessum bjargaskriðum, Kinnungar
ganga þá út í Hágöng (syðri) að svoköiluðu
Haugsgili norðan í björgunum. Og verður ekki
lengra komist. Þeir sem leita Flateyjardal
ganga að vestan áðurnefndar dalhvilftir,
Hvanndalina, og skulu þá ganga að Haugsgili,
en þeir hafa sitt Haugsgil um hálfum km norð-
ar en Kinnungar sitt. Undir Haugsgili þeirra
Kinnunga er skerið Haugur og skýrir nafnið.
Séra Jón Kristjánsson nefnir Odeilu í sóknar-
lýsingum 1840, hún sé þar norður á fjöllum,
ekki er vel ljóst hvar, en virðist í nánd við Há-
göng syðri. Milli Náttfaravíkna og Flateyjar-
dals er engin leið nema yfir eggjar. Fjörur fer
enginn, sums staðar eru engar. Eyrarreki
heitir slitrótt fjara undir þessum bjargaskrið-
um.
Þau Sigurbjörn og Petrína í Vargsnesi fluttu
út í Flatey. Sigurbjörn spilaði í Flateyjar-
kirkju. Sigríður og Hólmgeir fara í Látur 1936,
búa með þeim Axel og Sigurbjörgu frá Skeri.
Hólmgeir sá um sjósókn, Axel um búskapinn.
Árið 1938 flytja þau Axel til Grenivíkur. Hólm-
geir og Sigríður fara frá Látrum út í Flatey,
reistu þar býlið Grund. Orgelið fylgdi henni
alla leið - frá Vargsnesi, að Látrum og síðan út
í Flatey.
Sigríður varð organisti Flateyjarkirkju eftir
Sigurbjöm föður sinn, lék meðal annars við
vígslu kirkjunnar 1960. Þau Hólmgeir fara
1961 til Húsavíkur, Sigríður býr enn á Húsavík
og leikur enn á orgel.
Byggð á Kotamýrum er samfelld frá móðu-
harðindum og til 1910. Þar bjó síðast Benedikt
Oddsson. Flóvent frá Heiði á Langanesi er hér
frá 1787-1795, fer þá að Látrum, en næsti
bóndi er hér hálfa öld, Sigurður Þorsteinsson,
1796-1846; Hallgrímur Hallgrímsson bjó á
Kotamýrum, einnig yfir háll'a öld, 1852-1905.
Eru þetta meðmæli með kotinu. Með Hall-
grími bjó um skeið Friðfinnur tengdasonur
hans.
Hjáleigur stóðu í landi Naustavíkur og voru
að minnsta kosti tvær kallaðar Samtún, ef ekki
þrjár og voru á móunum rétt norður og upp af
bæ. Að auki hét Finnsbær sunnan Naustavík-
urár. Ekkert er nánar vitað um þær hjáleigur.
Langt inni á Kotadal heitir fomleg þúst Helga-
staðir - ekki verður séð að þar mætti búa. Ey-
vindur sá er hrakti Náttfara úr Reykjadal „lét
hann hafa Náttfaravík“ segir Landnámabók.
Eyvindur bjó síðan á Helgastöðum í Reykja-
dal. Má hugleiða hvojt
tengsl em milli Helga-
staðanna. Spurning
hvort Eyvindur hafði
eitthvað með Nátt-
faravíkur að gera.
Helgi Eyvindarson
dmkknaði á Grímseyj-
arsundi.
Landslag með sjó -
nánari lýsing. Nú
gengur standbergið
norðan í Bakrangan-
um beint í sjó - en
fram undir 1970 hafði
mátt komast inn í
Kinn um fjörur undir
bjarginu, þegar slétt-
ur var sjór. Víknameg-
in heitir Hellisvík,
hellir gengur þar við
sjávarmál inn í bjarg-
ið, Ágúlshellir. Fjaran
austan við Ágúlshelli
var nefnd Litlafjara
og Litlufjömbjarg yf-
ir, hét áður Hurðar-
bjarg. Síðustu áratugi
hefur fjara þvegist í
burt og varð alls
ófært.
Árið 1973 var
sprengt berghaft úr
hellinum í horni
bjargsins og varð þá
gengt þar í gegn úr
Kinn í Náttfaravíkur
og er þetta um 50 m
langur gangur í gegn-
um bergið. Að sunnan-
verðu (austanverðu)
opnast hellirinn út á
fjöruklappir Kinnar-
megin. Að norðan encf-
ar nú hellismunninn út
í sjó við Hellisvik, en
þó eru aðeins nokkrir
faðmar fyrir klettinn
og út í fjöra Náttfara-
vfknamegin. Botninn
fyrir klettinum hefur
verið mjög breytilegur
hin seinni ár, sum árin
þvær sjórinn alla möl
á brott og verður þá of
djúpt að vaða, enda
má heldur engin kvika
vera og er ekki reyn-
andi nema lágsjávað
sé. Munur flóðs og
fjöm er þó lítill hér.
Hellirinn heitir Ágúls-
hellir, en í sóknarlýs-
ingum 1840 kallaður
Hurðarbjargshellir. Nú, um sumar 1999, er
kallað ófært úr hellinum norðan megin. í sept-
ember 1922 dmkknuðu tveir menn við svokall-
aðan Stapa, eða Forvaða á Innri-Fjömm, það
er nokkuð utan við hellinn. Þeir vora Jónas
Vilhjálmsson frá Torfunesi og Þiðrandi Frið-
mundsson frá Ytri-Skál í Kinn. Brim hefur nú
brotið Forvaða.
Frá hellinum og út að Purkárósi em fjömr
þaktar stórbjörgum og æði seinfærar - yfir er
ókleifur bratti eða bjarg. Heita hér Innri-Fjör-
ur, frá hellinum og út að ósnum, rúmlega 1 km
leið. Snarbrött klif em að Purkánni beggja
vegna og hefur hún grafið sig furðudjúpt í
landið svo að gilkjafturinn er rétt yfir fjöra.
Brú er á ánni skammt uppi í gilinu. Norðan ár-
óssins er hólhrúgald úr ljósgrýti, heitir Nátt-
farahaugur, og Náttfaralækur kemur þar ofan
úr hlíðinni og fer niður með Náttfarahaug og í
sjó við Purká. Hér kalla Kinnungar nú Kota-
fjöm.
Norðan við Purká eða Náttfaralæk tekur
enn við standhamar til norðurs og heita þá
Vegghamrar og ná alla leið út að Naustavík.
Undir em hálar klappir - Ytri-Fjömr - en við
góðar aðstæður er hægt að fara þessar fjömr
alla leið i Naustavík og er þó forvaði á leiðinni.
Var þessi leið mikið farin áður.
Frá Purkárósi liggja götur til Naustavíkur
fyrst upp hornið norðanverðu við gilkjaftinn
og er þarna ærið bratt upp, hækkunin vel á
annað hundrað metra þar til komið er upp úr
brattanum. Þá sér inn eftir Kotadal. Til norð-
urs er smáhæðótt mólendi. Götumar halda
áfram norður á Kamba sem kallað er, þ. e. þar
til kemur á brún sunnan yfir Naustavíkurþæ.
Þar sneiðir gatan bratta kinn inn í grasigróið
dalverpið upp af víkinni. Naustavík er áður
lýst.
Á leiðinni frá Naustavík út í Vargnes em
klettar víða með sjó og göturnar liggja hátt í
brekkunum. Fyrir nokkmm ámm hmndi
feiknarleg fylla úr sjávarbakkanum um 1 km
norðan við Naustavík og fór þá gatan með og
verður nú að krækja upp fyrir jarðfall þetta og
þarf að vara sig.
Höfundurinn er læknir.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 4. NÓVEMBER 2000 1 5