Tíminn - 13.12.1966, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 13. desember 1966
3
TÍMINN
Gráhári skrifar:
Enn um Viðey.
„Tvisvar áCur, (29. sept. 03 18.
otk.), hefir verið minnzt á Viðey
í þáttum Landiára, og skal hér
enn nokkru hætt við. —
Aðaltilgangurinn með þessum
skrifum er sá, að beina athygii
forráðamanna okkar, að þeirri
menningarlegu skyldu, sem á
þjóðinni hvílir, um endurreisn stað
arins. — Á það hefir verið bent
hve umkomuleysi þessa mikla
sögustaðar er augljóst og nötur-
legt, en eyðileggingin þó ekki enn
svo algjör, að ekki megi bjarga því
sem mestu máli skiptir, en það
er sjálf „Viðeyjarstofan", þetta
eina minnismerki sem við eigum
frá upphafi þess endurreisnartíma
bils sem hófst fyrir atbeina Skúla
Magnússonar.
Jafnframt hefir verið bent á
nokkra hugsanlega möguleika til
að festa aftur byggð í eynni, því
varanleg búseta þar er að sjálf-
sögðu frumskilyrði fyrir því, að
hægt sé að hefjast handa um upp
byggingu staðarins.
— En hverjir eiga að hafa frum
kvæði hér um?
Við eigum nú varla neinn auðug
an hugsjónamann á borð við Sig
urð Jónasson sem líklegur væri til
að kaupa Viðey og afhenda hana
síðan ukinu til eignar og um-
ráða, — eins og gert var um
Bessastaði.
Segja má að forráðamönnum
Reykjavíkurborgar stæði þetta
næst, en eins og nú er högum
háttað þar á bæ, verðru þess varla
vænzt að þaðan komi sú fyrir-
greiðsla sem með þarf, — hvorki
um fjármagn né framtak.
Er þá Alþingi sá aðilinn sem
helzt ætti að mega yænta ein-
hvers af, enda því í raun og
veru málið skyldast. — Alþingi
hefir áður fjallað um hliðstæð
verkefni á Þingvöllum, Skálholti
og Hólum. Og þótt á sumum þess
ara staða hafi ekki allt. farið sem
skyldi, má um flest telja að vel
hafi tekizt og sé allrar virðingar
vert. Hinar opinberu aðgerðir hafa
þar komið í veg fyrir, að þessir
sagnhelgu staðir yrðu okkur leng
u tfl skammar en raun varð á.
—En endurreisn Viðeyjar er
eftir. — Hún hefir orðið útundan
í uppbyggingu og endursköpun
þess framkvæmdatímabils sem
staðið hefir yfir síðustu áratugina.
Skoðun sögustaða hefir ekki ver
ið beint þangað og m. a. þess
vegna, hefir minna verið rætt um
hlutskipti eyjarinnar, en annars
myndi orðið hafa. Sögufrægð Við-
eyjar er þó fyllilega sambærileg
við þá staði aðra, sem ríkið hefir
hafið til nýrrar reisnar, Og eitt
hefir hún umfram þá alla: nálægð
ina við höfuðborgina, svo öll verð
mætasköpun sem þar yrði gerð,
hlyti að verða í hærra mati en
annars staðar yrði.
Lega Viðeyjar, einangruð en þo
innan hringvers höfuðstöðva at
hafnalífsins, skapar þá sérstöðu ti’,
afnota sem meta má eftir þ/‘
hvaða hlutverk henni er ætlað
komandi árum E.n hvi rt sem hlut
skipti Viðeyjar verður má þó alltaf
fullyrða að öll fjárfesrmg þar hlýt
ur verða arðvænlegri og líklegri til
vaxandi gildis, en viða annars stað
ar, svo fremi að tekið sé tillit að
einhverjum afnotum sem orðið
gætu aðkallandi, áður en langh
tímar líða.
— Alþingi það sem nú situr
ætti að taka endurreisn Viðeyjar
upp á sína arma og veita málim:
þá fyrirgreiðslu, sem með þarf.
Myndi þag af fáum ettirtalið.
— Og með ólíkindum væri það
að einhverjir þingmanna hafi ekki
þann stórhug og þjóðarmetnaö,
sem til þess þarf. Hitt er líka ó-
sennilegt að þeir yrðu margir sem
reyndu að koma í veg fyrir að mál
ið fengi sómasamlega lausn.
— Er óneitanlega forvitnilegt að
sjá hver ríða muni hér fyrstur á
vaðið, og eins það hver viðbrögð
manna verður við þeirri menningar
legu skyldu sem hér hefir verið
höfðað til.
Ritað 1. des. 1966.
Gráhári.“
Z
**P.AA»*
lO/i
Tilboð óskast í framleiSslu, flutninga og uppsetn-
ingu á steinsteyptum útveggjaeiningum í fjölbýlis
hús Framkvæmdanefndar byggingaráætlunar í
Breiðholtshverfi.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Timbur og járn
Steinull, panell og annar trjáviður til sölu, alit með
hálfvirði- Uppl. í síma 32326, ennfremur í Gamla
pakkhúsinu hjá Eimskip.
Hörður.
BRÚÐKAUPSMYNDATÖKUR
passamyndir og fleira. — Sértímar eftir umtali.
Ljósmyndastofa Péturs Thomsen
Ingólfsstræti 4 — Símar 10297, eftir kl. 6, 24410
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóða upp
á annaS hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar mcS baki.og borSplata sér-
smíSuS. EldhúsiS fæst mcS hljóSeinangruS-
um stólvaski og raftækjum af vönduSustu
gerS. - SendiS eSa komið meS mól af eídhús-
inu og viS skipuleggjum eldhúsiS samstundis
og gerum ySur fast verStiIboS. Ótrúlega hag-
stætt verS. MuniS aS söluskattur er innifalinn
í tilboSum fró Hús & Skip hf. NjótiS hag-
stæSra greiSsluskilmóla og /CJN _. _ _
lækkiS byggingakostnaSinn. JRírafTæicÍ
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Eftir kröfu skiptaráðanda í þrotabúi byggingar
félagsins Snæfell h. f. fer fram nauðungaruppboð
í eftirtöldum eignum: Bifreiðinni U-717 á verk-
stæði Egils Vilhjálmssonar h. f. Skurðgröfu
J. C. B. 4 í vörzlu Vöku h. f. og vinnuskúr 0. fl. á
Krossamýrarbletti 15.
Nauðungaruppboð þetta fer fram fimmtudaginn
15. desember 1966 og hefst að Laugavegi 118 hjá
hjá Agli Vilhjálmssyni h. f. kl. 10 árdegis.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Skrifstofustúlka
óskast til starfa strax.
Æskiiegt er að umsækjendi hafi stúdents- verzlun
arskóla eða kvennaskólamenntun.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist fyrir 20. 12 n. k.
Raforkumálaskrifstofan,
starfsmannadeild, Laugavegi 116.
NITTO
JAPÖNSKU NITT0
HJÓLBARDARNIR
í flostum stærðum fyrirliggjandi
I Tollvðrugoymslu.
FUÓT AFGREIDSLA
DRANGAFELL H.F.
Skipholti 35-Sími 30 360
Þetta er bók sem ekki á keppi
naut á markaSinum þama er
samandregin mikili fróöloikur
um upphaf togveiða.
Svo er á málum haldið að
bókin er jafnframt ósvikinn
skemmtilestur.
Kaflaheiti bókarinnar segja
nokkuð um efni hennar og eru
þau þessi:
Hengilrifið á Hrauninu, Lagt
upp í langa ferð, Eyjarskeggj-
ar skera sér fjöðurstafi, itlórar
og skottur og hin eilífa ásókn,
Skip koma af hafi, Kastað
Flóanum. Þar var margur þunn
ur á síðuna, Grásieppur allar
urðu andvaka í Garðasjó. Hljóð
úr horni, Hið náttúrnlega ösk-
ur, Brennivín og '.olfiskur
Amma gamla, Gott er að hafa
tungur tvær Það birtir af degi.
Ýtt úr vör á röngu lagi, Nú
fara margir að • bræð‘ann,
Fyrsti íslenzki togarinn, Fyrsti
fslenzki togaraskipstjórinn.
Samtímalýsingar á aldamóta-
Skrítinn fiskur
Skrítin bók
Stefán Jónsson er sérstæður
rithöfundur, sem fer sínar eig-
in götur, einlægur, opinskár,
ófeiminn og beitir hvö3sum
penna.
Hann talar mál sem fólkið
skilur en fer m. a. í taugarn
ar á menningarsnobbum. Af-
staða þeirra til Stefáns fyrr og
síðar ætti að vera honum næg
meðmæli
í Gadda-skötu eru margar ó-
gleymanlegar lýsingar þar er
utangarðsmönnum lýst af
snilldarlegri nærfærni.
Meiiningarsnobbarnir segja:
„Það er skrítið fólk sem hefir
ánægju af að lesa bækur eftir
Stefán Jónsson en við segjum:
„Það er skrítið fólk sem ekki
nýtur þess að lesa t. d um
Runólf Pétursson heimspeking
inn, hjartahlýa, um Kalla
gæzk og stéttvísina. Um Valda
með augað og kettling með
pela, um sigmanninn sem stökk
út í bláinn úr tíræðu bjargi og
greip dinglandi festina, um
skúminn hinn róttæka jafnaðar
fugl, með léttlætið sín megin,
um sálarfræðina og frönsku
tíkina og ótal margt fleira
mætti nefna.
Lseið þennan höfund, sem
gengur um. hlustandi eftir
æðaslætti hversdagslífsins, og
er meistari að láta hið smáa
lýsa hinu stóra.
Ægisútgáfan
Ásgeir Jakobsson
togurunum og lýsing á botn-
vörpu.
Kastað i Flóanum er án efa
óskabók allra sjómanna og
allra sem áhuga haía á atgerð
og veiðiskip.
Ægisútgáfan