Tíminn - 23.12.1966, Side 16
mjtmt
294. fbl. — Föstudagur 23. desember 1966 — 50. árg.
FRIOUR I VIETNAM
BEZTA JÓLAGJÖFIN
NTB—Róm, fimmtudag.
Páll páfi sjötti beindi í dag máli
sínn sérstaklega til styrjaldaraðila
í Vietnam og skoraði á þá að fram
lengja fyrirhugað vopnahlé yfir
jólin og hefja raunverulegar frið-
arviðræður. f jólaboðskap sínum,
sem páfinn flutti í útvarp Vatikans
ins í dag lét hann í ljós ánægju
sina með, að vopnahlé yrði í Viet-
nam yfir jólahátíðina, en lagði jafn
framt áherzlu á, að hið fyrirliug-
aða hlé yrði að framlengja því að
ef báðir aðilar sýndu góðan vilja
væri hægt að koma á friði.
Ef báðir aðilar sýndu góðan vilja
í verki og hættu hernaðaraðgerð
rnn, yrði það bezta jólagjöfin,
Happdrætti Frara-
sóknarflokksins
Framsóknarfélögin i Kópavog)
vilja vinsamlegast minna á Happ-
drætti Framsóknarflokksins. Þau
hafa tekið að sér dreifingu og inn
heimtu í Kópavogskaupstað. Nú
eru örfáir dagar þar til dregið
verður.
Vinsamlegast komið og gerið
skil að Neðstutröð 4. Kópavogi. Op
ið frá kl. 5—10 dag hvern fram til
jóla. Sími 41590.
Framsóknarfélögin.
ÁSKRIFT
AÐ SÓKN
OG SIGRUM
Sókn og sigrar, saga Fram
sóknarflokksins, fæst bæði í
áskrift og í bókaverzlunum.
Bókin er eðlilega töluvert
ódýrari í áskrift en þeir sem
vilja gerast áskrifendur geta
snúið sér til eftirfarandi að-
ila:
Stefáns Guðmundssonar,
Hrmgbraut 30, sími 12942,
Skrifstofu Framsóknarfiokks
ins, sími 16066 og 15564 og
Afgreiðslu Tímans, Banka
stræti 7, sími 18300 og
12323.
Sókn og sigrar er glæsi-
legt verk um eitt allra
iglæsilegasta tímabiUð í
stjórnmálasögu landsins.
Fólk, sem hefur hug á að
ná sér í þessa merku bók,
ætti ekki að draga það,
vegna þess að upplagið að
bókinni er ekki stórt.
AVISANAFALSAR-
INN FUNDINN
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
Ávísanafalsarinn seim keypti hús
gögn í gær hér í borginni og lét
sendibílstjóra selja fyrir sig 45
þús. kr. ávísun í banka náðist í
gærkveldi.Hann hafði keypt hús-
gögn fyrir 67.620 krónur, en hann
hafði komist yfir heftið vegna þess
að hæstaróttarmálaflutningsmaður
nokkur hafði tapað því.
Eins og sagt var í blaðinu í
dag, þá lét hann flytja húsgögn
in á bifreiðastæðið við Rauðarár
stíg á milli Grettisgötu og Njáls
götu, en fékk siðan sendiferðabíl
til þess að flytja húsgögnin heim
til sín.
|sagði páfi. Ilann taldi stríðið í Vi-
etnam mikla hörmung og hreina
ógnun við heiminn og mannkyn
allt. Vók páfi sérstaklega máli
sínu til vietnömsku þjóðarinnar,
en einnig til annarra þjóða og al
þjóðasamtaka, sem vinna að fram
gangi friðar og framfara í heim-
inum.
Fyrir hálfum mánuði beindi páf-
inn þeim tilmælum til hinna stríð
andi aðila í Vietnam um að nota
j'ólavopnahlé til friðarviðræðna.
Þessum tilmælum páfa var illa tek
Framhald a tils 15
PENINGUM ST0LIÐ í
SUNDHÖLLINNI
KJ-Reykjavík, fimmtudag.
í dag var stolið fjögur þúsund
krónum og 28 sterlingspundum,
sem Englendingur átti, úr klefa
í Sundhöllinni. Hafði hann sett
peninga í sokk og síðan stungið
sokknum í jakkavasann, en mun
hafa gleymt að læsa klefanum eða
skápnum. Atburður þessi skeði um
klukkan 15.30. Þeir sem gætu gef
ið upplýsingar, eru beðnir að hafa
samband við rannsóknarlögregl-
una.
11111!
• í ■ ■■ ■■■ ■■ .. •• ••• /:• ,,ý,-<■'./,> •' • .••• '.■:■■
William Manchester og próförk af upphafi formála bókarirmar „Dauði forseta*'.
DEILAN UM „DAUÐA FORSETA":
JACKIE HÆTTIR VID
MÁLAFERLI GEGN L00K
EJ—Reykjavík, NTB—New
York, fimmtudag.
Frú Jacqueline Kennedy hef
ur nú hætt við málaferli sín
gegn bandaríska tímaritinu
„Look“ í sambandi við þá áætl
un blaðsins að hefja eftir ára
mótin birtingu kafla úr bók
William Manchesters „Dauði
forseta“, sem fjallar um morð-
ið á John F. Kennedy, forseta.
Hún lýsti því yfir í dag, að
jafnframt vildi hún taka það
skýrt fram. að Kennedyfjöl-
skyldan bæri á engan hátt á-
byrgð á efni bókarinnar, og að
Robert Kennedy hefði ekki fall
izt á handrit hennar.
Þetta kom fram í tilkynningu
sem hún sendi út í dag í New
York. „Look” sendi út svipaða
yfirlýsingu.
Ástæðan til þess að Kenne-
dy-fjölskyldan vill nú þvo hend
ur sínar af bókinni er aðallega
talin vera sú, að hún vilji koma
í veg fyrir, að frekari leiðin-
leg atvik eigi sér stað milli fjöl
skyldunnar og Johnsons for-
seta, að því er góðar heimildir
segja. Segja heimildirnar, að
verulegur hluti þess, sem fjall
ar um sambandið á milli John
sons og Kennedy, komi óbreytt
í útgáfu bókarinnar, en breyt-
ingar, sem gerðar hafa verið.
snerti aðeins um 1600 orð.
Enn stendur eftir deilan milli
frú Kennedy og bókaútgáfufyr
irtækisins Harper & Row, sem
ætlar að gefa bókina út í vor.
Segja góðar heimildir, að lík-
ur séu á, að það mál leysist
einnig án þess að dómstólamir
þurfi að fjalla frekar um það.
Manchester fær geysilega
peninga fyrir þessa bók sím.
Framhald á ots
WSOLUHÆIW BÆKURNAR
HJÁ ÞREMUR BÓKSÖLUM
SJ-Reykjavík, fimmtudag-
Nú er jólabókavertíðin senn á
enda og útgefendur eru ýmist
hressir eða óhressir þessa dagana.
Bækurnar hafa haldið velli al-
niennt talað; einkum hafa þó bók
salar úti á landi selt vel fyrir þessi
jól, en tvennum sögum fer af því
meðal bóksala í Reykjavík hvort
þeir hafi almennt gcrt betri verzl
un nú en í fyrra.
Tíminn fór þess á leit við þrjár
bókaverzlanir í Reykjavík að gefa
upp samkvæmt nákvæmri talningu
nöfn tíu efstu bókanna miðað við
daginn í dag.
Eysteinn Þorvaldsson, verzlunar
stjóri í KRON, sagði að í ár væru
bækur stærri hluti af heildarsöl
unni en á'ður og er listinn yfir 10
söluhæstu bæburnar í KRON
þannig:
1. Landið þitt
2. Veislan j farángrinum
(þýdd)
4. Menn í sjávarháska
5. Gaddaskata
6. Danskurinn í bæ
7. Æskufjör og ferðagaman.
8. Karlar eins og ég
9. Síðustu Ijóð Davíðs
10. Öldin sautjánda
Björn Jónsson, verzlunarstjóri
hjá Norðra, sagði að salan væri
óvenju jöfn og dreifð og listinn
frá horiuni lítur þannig út:
1. Síðasta skip frá Singapore
(þýdd)
2. —5. Síðustu ljóð Davíðs
Þættir og drættir
Æskufjör og ferðagaman
Húsið á bjargmu (þýdd)
6.—7. Landið þitt
Myndír daganna
8—9. Æviminningar Stefáns
Jóhanns
Prinsessan
10—12. Feðraspor og fjörusprek
Blind ást (þýdd)
Frá víti til eilífðar (þýdd)
Framhald á bls. 14.
FÉLL AF ÞAKI
OG BEIÐ BANA
I dagur til jóla
! KJ-Reykjavík, fimmtudag
j Síðdegis í gær fór gestkomandi
maður, að Snorrabraut 33, út á
þak hússins þeirra erinda að l'ag
færa sjónvarpsloftnet. Hált var
á þakinu og skrikaði manninum
fótur með þeim afleiðingum að
hann rann framaf brúninni, og
féll í götuna með þeim afleiðing
um að hann lézt. Maðuri ,n hét
Valdimar Valdimarsson til heim
ilis að Hringbraut 85. Hann var
tæplega 51 árs að aldri.
Jólafagnaö-
urVerndará
aðfangadag
Jólafagnaður Verndar
verður í Góðtemplarahúsinu
við Templarasund á aðfanga
dag. Húsið verður opnað kl.
3 e h. Þangað eru allir vel
komnir, sem ekki hafa tæki
færið til að dvelja hjá vin-
um eða vandamönnum á
essu hátíðakvöldi. Fram-
reiddar verða veitingar og
úthlutað fatnaði til þeirra,
sem vilja.
(Frá jólanefnd Verndar).
HAPPDRÆTTI FRAMSÚKiiARFLOKKSINS
Dragið nú ekki lengur að
gera skil fyrir heimsenda
miða. Hinn 23. þessa mán-
aðar verður dregið um eft-
írtaldar þrjár bifreiðir, sem
eru hver annarri eigulegri.
eins og öllum ber saman
um, einn SKÁTA, einn KA-
DETT CARAVAN og einn
VAUXHALL VIVA. Happ
drættið er í fullum gangi
og miðar seldir hjá fjol-
mörgum umboðsmönnum
um allt land. I Reykjavík
fást miðar á eftirtöldum
stöðum: Á skrifstofu happ-
drættisins. Hringbraut 30,
símar 1-29-42 og 1-60-66.
Hjá afgreiðslu Tímans
Bankastræti 7, sími 12323
og 18300 og úr Vivunni, til
sýnis við Útvegsbankann í
Austurstræti.