Tíminn - 23.12.1966, Page 6

Tíminn - 23.12.1966, Page 6
6 Gamlir íslenzkir jólaleikir Gamlir íslenzkir jólaleikir. Á aðfangadagskvöld jóla mátti hvorki spila á spil eða fara í leiki. Jóladagurinn var einng það mkill helgidagur, að helzt mátti ekki spila eða leika sér, fyrr en þá um kvöldið, að dálítið tók að slakna á helgihaldinu. Var þá gjarnan „slegið í púkk“, sem kallað var, en „Púkkið" var spil, sem var spil að af einum 6 eða 7 manns. Þá voru það alls konar leikir innan húss og skal nú reynt að lýsa nokkrum þeirra. Að setja í hom. Tveir leika, en aðrir eru áheyr- endur. Annar leikenda setur fjóra pilta í hvert horn stofunnar, þó þannig að hann hvíslar aðeins nöfnum þeirra að einum áheyr- anda og getur þess um leið, hver sé í hverju horni. Hinn leikand- inn gerir slíkt hið sama, en notar þá stúlkna-nöfn. Vakti það oft mikla kátínu, þegar ljóst varð, hverjir höfðu valizt saman í horn unum. Skip mitt er komið að landi. Þessi leikxrr er svipaður leikn- um ,, að setja í horn“ og eru einn ig tveir leikendur og svo áheyr- endur. Fyrri leikandinn mælir af munni fram: „Skip mitt ex komið að landi“. — Mótleikari segir: „Hvað hefur það að bera?“ Sá fyrni segir: „Þrjár yngismeyjar vænar ,vænar“, eða þá yngismenn, ef það eru stúlkur, sem leika. Einnig segir hann upphafsstafinn í öllum nöfnunum, t. d. A, B, D. Mótleikari segir: „Ég tek A, spásséra með B og fleygi D.“ — Þetta getur hann þó haft á ýmsa vegu, t. d. tekið D, spássérað með A og fleygt B. — Síðan segir skipsmaður tO um það, hver voru hin réttu nöfn meyjanna eða svein anna á skipinu. Lauma. Þessi leikur er þannig, að börn- in standa í hring þétt saman með hendur fyrir aftan bök. Eitt barnið stendur innan í hringnum. —. í höndum þeirra er hringinn mynda er smáhlutur, t. d. eldspýtustokk- ur eða lyklakippa. Þessi hlutur gengur nú hratt eða hægt milli handa barnanna aftan við bök þeirra. Sá, sem inni í hringnum er, á að reyna að sjá það af hreyf ingum barnanna, hvar hluturinn er og benda þá snögglega á hand- hafann. — Geti hann rétt, má hann fara inn í hringinn, en sá, sem hluturinn fannst hjá, verður inni í hringnum næst Að þrœða nál á flösku Að þræða nál á flösku. Venjuleg sívöl flaska er lögð á hliðina á gólfið. Sá, sem reyna viU við þennan leik á að setjast á flöskuna, en stútur hennar snýr aftur. Fætur eru teygðir beint fram og krosslagðir þannig, að að- eins annar hællinn kemur niður á gólfið. í þessum stellingum á hann svo að reyna að þræða grófia saum- nál. Skollablinda. Helzt þarf leikur þessi að fara fram í rúmgóðri stofu og gæta þarf þess að fjarlægja alla brot- hætta hluti. Einn leikenda er „skolli" og er bundið fyrir augu hans með klút. Honum er snúið nokkra hringi og siðan sleppt á miðju gólfi og hann beðinn að segja til um áttirnar. Venjulega getur hann það ekki, ringlaður eftir snúninginn. Hinir leikendur, sem standa utar við veggina, segja þá: „Klukk, klukk, skolli, ekki skaltu mér ná, fyrr en á miðjum morgni“. Nú reynir skollinn að handsama leikendur og ef hann nær í föt þeirra, má ekki slíta sig af hon- um, heldur standa grafkyrr. Nú á skolli að segja til um það, hvern hann hefur handsamað og segja síðan: „Klukk, klukk, sittu kyrr í holu þinni þangað til á morgun“. Sá, sem náður er, má ekki hreyfa sig, fyrr en leiknum . r lokið. Sá verður skolli næst, er sáðastur er handsamaður. Skollabllnda ■ner Húsgagnsleikur Húsgangsleikur. Leikendur skipa sér niður í öll horn stofunnar en einn — Hús- gangurinn — er á miðju góifL Nú fer hann að ganga um meðal manna og segir: „Gefðu mér pláss“ — En svarið er ávallt hið sama: „Farðu til þess næsta“. Meðan húsgangurinn er að þessu rápi milli manna hefur hann þó fulla gát á öllu, því að horna- mennirnir eru sífellt að reyna að skipta um horn, og ef húagangin- um heppnast að komast I eiiíbvert hornið. meðan skiptingar fara , fram, verður sá. er þar var áður, aö gerast húsgangur. Sklp mltt er komið að landi. Laumc

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.