Alþýðublaðið - 06.03.1982, Page 2
Laugardagur 6. mars 1982
2------------RITSTJÓRNARGREIN--------------
AF RITSTJÓRUM
MORGUNBLAÐSINS OG
RAUÐU STJÖRNUNNI
Allóvenjulega frétt var að finna „í blaði allra
landsmanna", Morgunblaðinu fimmtudaginn 4. mars
s.l.. Þar var f rá því greint, að Rauða stjarnan dagblað
hersins í Sovétríkjunum hafi nýlega birt óvænta frétt
af ástandinu í Afganistan. I fréttinni er opinská lýsing
á lifinu hjá rússneskum hermönnum og þeim hörm-
ungum, sem þeir þurfa að horfa upp á í baráttunni við
andstæðinga stjórnarinnar. Hin mannlega eymd
óbreyttra borgara, sem dregnir eru inn í hildarleik
borgarastríðs er gerð að umtalsefni í fréttinni. Að
mati þeirra Morgunblaðsmanna þykir þessi frétt
Rauðu stjörnunnar" óvenju mannleg ef mið er tekið
af skrifum sovéskra blaða."
Það er illt að þurfa að benda þeim Morgunblaðs-
mönnum á, að í þessu dæmi geta þeir sitthvað lært af
ritstjórum Rauðu stjörnunnar. Það verður nefnilega
ekki sagt um fréttaskrif Morgunblaðsins af borgara-
stríðinu í El Salvador, að þar f ái að birtast hin mann-
lega hlið átakanna.
Dag eftir dag hefur Morgunblaðið birt fréttafrá-
sagnir og umsagnir af gangi mála i El Salvador. í
þessum skrifum er þess vandlega gætt að færa þau í
þann búning, sem hentar áróðursmaskfnu Bandaríkj-
anna. „Skæruliðaher El Salvador stjórnað að utan",
er haft eftir Alexander Haig í flennifyrirsögn á for-
síðu Morgunblaðsins á miðvikudag sl. án þess þó að
nokkur rök séu færð fyrir þessari fullyrðingu. Heim-
ildirnar eru frá leyniþjónustu Bandaríkjanna CIA.
r
Afimmtudag er aftur slegið upp stórfrétt, ákalli
Jóse Napoleons Duartes, forseta El Salvador, sem
ber ábyrgð á einhverjum mestu f jöldamorðum síðari
ára. Forsetinn ákallar allar lýðræðisþfóðir heims til
stuðnings við lýðræðið. Forsetinn hefur þó ekki virt
lýðræðið meira en svo í sínu heimalandi, að hann hef-
ur bannað alla andstöðu og aðra stjórnmálaf lokka en
sinn eiginn og sannkallaða fasistaflokka hægri
manna. Er það þetta lýðræði sem Morgunblaðið vill
hampa á forsiðum sinum dag eftir dag?
Ákalli Duartés á síðum Morgunblaðsins er vart hægt
að líkja við annað en hræðilega martröð. „Okkar bar-
átta er ekki aðeins í El Salvador, heldur f yrir lýðræðið
alls staðar í latnesku Ameríku", segir Napoleon
Duarte. Hvers konar lýðræði á hann við? Lýðræði eins
og i Chile, þar sem stjórnarandstæðingar hafa horf ið
eða verið myrtir þúsundum saman, á síðustu árum?
Eða er hann máski að tala um lýðræði í eigin landi,
sem byggist á vopnuðum sveitum öryggislögreglu og
dauðasveita, er taka lögin i sínar hendur eftir að
dimma tekur. Hverjum er Morgunblaðið að þóknast
með þessum fréttaf lutningi?
Vitaðer að fréttasendingar frá El Salvador verða
nú óáreiðanlegri eftir því sem átökin í landinu f ærast í
aukana. Sérstök ástæða er til að taka fréttum frá
Hvíta húsinu með f yrirvara. Það er af knýjandi nauð-
syn, sem f jölmörg blöð í Evrópu og víðar hafa sent
sina eigin fréttamenn til landsins til að f lytja fregnir
af ástandinu. Á Norðurlöndum eru blöð uppfull af
f regnum f rá El Salvador. Það eru ekki fréttir f rá for-
setaskrifstofu landsins eða Alexander Haig. Menn
vita hvaðþeir f uglar syngja. Þaðeru fréttir af fólkinu
i landinu, þeim hildarleik og mannlegum örlögum sem
tengjast þessu blóðbaði. Það eru f réttir af börnum og
ungmennum sem horf a upp á misþyrmingar og morð
á foreldrum sínum. Það eru fréttir sem sýna okkur
hina manniegu hlið átakanna, þá hlið sem Morgun-
blaðinu hef ur nánast alveg láðst að birta landsmönn-
um.
Blöð jafnaðarmanna í Evrópu og ekki síst á Norð-
urlöndum, hafa sinnt fréttaflutningi af strfðinu í El
Salvador af miklum áhuga. Þau hafa f lest ekki dregið
dul á samúð sína með almenningi oa fvrirlitninau
sína á hernaðarstuðningi stjórnarinnar í Washington
við þá ógnarstjórn, sem fer með völdin í El Salvador.
Viðhorf almennings og stjórnmálamanna i þessum
löndum mótast því orðið verulega af sönnum frétta-
flutningi, sem ekki liggur gegnum Hvíta húsið á leið
sinni til Evrópu.
Það er ógæf a okkar, að stærsta og víðlesnasta blað
landsins skuli halda að landsmönnum falskri mynd af
því sem er raunverulega að gerast i El Salvador. Von-
andi vilja ritstjórar Morgunblaðsins ekki vera eftir-
bátar kollega sinna á Rauðu stjörnunni, dagblaði
Rauða hersins, og fara að flytja okkur „hina mann-
legu hlið " átakanna í El Salvador.
Jfe RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
SÉRFRÆÐINGAR (2) i kvensjúkdóma-
fræðum og fæðingarhjálp óskast til starfa
frá 1. mai n.k. eða eftir samkomulagi. Til
greina kemur ráðning i hlutastarf.
Umsóknir er tilgreini náms- og starfsferil
sendist stjórnarnefnd rikisspitalanna
fyrir 5. april n.k. Upplýsingar veita yfir-
læknar Kvennadeildar i sima 29000.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á lyf-
lækningadeild frá 1. april n.k. til 1. árs.
Umsóknir er greini nám og fyrri störf
sendist Skrifstofu rikisspitalanna fyrir
25. mars n.k.
Upplýsingar veita yfiriæknar lyf-
lækningadeildar i sima 29000.
KLEPPSSPÍTALINN
Lausar eru til umsóknar sex stöður
GÆSLUMANNA við Kleppsspitalann.
Umsóknir berist Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 25. mars n.k.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri i
sima 29000.
Reykjavík, 7. mars 1982,
RÍKISSPÍTALARNIR.
Mælingaverkfræðingur
Varnarliðið á Keflavikurflugvelli óskar að
ráða mælingaverkfræðing á Verkfræði-
skrifstofu Varnarliðsins.
Byggingaverkfræðingur með starfs-
reynslu i landmælingum kemur einnig til
greina. Mjög góðrar enskukunnáttu kraf-
ist.
Umsóknir sendist Ráðningarskrifstofu
Varnarmáladeildar, Keflavikurflugvelli,
eigi siðar en 19. mars 1982. Nánari upplýs-
ingar veitir Ráðningarskrifstofa Varnar-
máladeildar i sima 92-1973.
Landmælingar íslands
KORTADEILD
Staða kortateiknara er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins. Æskilegt er að umsækjandi hafi
lokið prófi i tækniteiknun. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist Samgönguráðuneyt-
inu fyrir 29. mars 1982.
Nánari upplýsingar gefur deildarstjóri
Kortadeildar, Svavar.Berg Pálsson.
Tilboð óskast i að steypa upp og fullgera
geymsluhús við Lögreglustöð á Akranesi.
Stærð 85 íermetrar, 248 rúmmetrar.
Útboðsgagna má vitja á Verkfræði- og
teiknistofuna s/f Kirkjubraut 40 Akranesi
gegn 500 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtu-
daginnl8.marsn.k.
Bæjarfógetinn á Akranesi.
lítboð
FLOKKSSTARI
Akureyri
Fundur vqrður haldinn i
anna laugardaginn 6. mar
Stjórnin.
Akureyri
Kvenfélag Alþýðuflokks
laugardaginn 6. mars kl.
Félagskonur mætið vel o
Stjórnin.
FUJ-Reykjavil
Félag ungra jafnaðarms
sinn fyrir árið 1982 í Iðnó '
mars klukkan 20.30.
Venjuleg aðalfundarstöi
önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Kópavogsbúai
Skrifstofa Alþýðuflc
7 verður opin virkí
laugardaga og sunn
44700.
Alþýðuflokksfélögin
Alþýðuflokksl
Hafnarfirði
Arshátið Alþýðuflokksféla
daginn 6. mars i Gaflinur
með borðhaldi kl. 7.30 e.h
Allir velkomnir.
Miðapantanir og nánari u
Arui Ujörleifsson, s. 52453
Klin Harðardóttir, s. 52911
Valgeröur Guðmundsdóttii
Alþýðuflokksfélögin Hafna
Prófkjör í Mosfe
Prófkjör Alþýðuflokksfé
bjóðenda i þrjú efstu sæ
sveitarstjórnarkosningarn
fram dagana 13. og 14. mai
stendur kjörfundur yfir frá
Frambjóðendur eru þei
11—3. sæti listans
Gréta Aðalsteinsdóttir
tanga 59.
Sigurður R. Simonarsi
20.
12—3. sæti listans
Bryndis Öskarsdóttir, h
Oddur Gústafsson, hljói
1 3. sæti listans:
Grétar Snær Hjartarsi
tanga 30.
Georg H. Tryggvason, 1
32.
Rétt til þáttöku i próf
lögheimili i Mosfellssveit
kjördegi hinn 22. mai n.
öðrum stjórnmálaflokki.
Niðurstöður prófkjörsim
listanum ef frambjóðandi
kvæðamagns sem félagið
kosningum.
Til þess að atkvæði sé
sætin.
Upplýsingar um rétt ti
fundar veitir formaður kjc
yfirverkstjóri, Markholti £
Grindavík
Alþýðuflokksfólk c
prófkjör Alþýðuflc
n.k. kl. 10.00 — 22
Ákveðum öll skipa
Stjórnin