Alþýðublaðið - 18.03.1982, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 18.03.1982, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 18. mars 1982 RITSTJÓRNARGREIN—----------------- Sök bítur sekan Það hefur verið fróðlegt að blaða í stjórnarmál- gagninu Þjóðviljanum undanfarna daga. Olafur //verzlar með land á Suðurnesjum" segir á forsíðu þann 10/3. //Aukning á umsvifum hersins". //Furðuleg vinnubrögð", segir Svavar formaður. „Utanríkisráð- herra getur ekki ákveðið að taka hvaða land sem er undir herinn". Og næsta dag: „Með hótunum, fjárboðum og landsverzlun" hefur ólafur þröngvað bæjarstjórninni i Keflavík til hlýðni." Vegur hefur nú verið ruddur áleiðis að því markmiöi hersins að koma upp hafnar- aðstöðu f yrir 35 þús. lesta olíuskip í Helguvík, og olíu- stöð, sem þjóna á i framtíðinni vaxandi flotaumsvif- um á N-Atlantshafi og eldsneytissveit á Keflavikur- flugvelli. Allt eru þetta liðir í áformum Bandaríkja- stjórnar um aukinn vigbúnað í Evrópu..." Og enn- fremur: „Hernaöarhagsmunir Bandaríkjanna og valdahroki í utanrikisráðuneytinu ráða ferðinni" í rikisstjórninni. Daginn eftir segir yfir þvera forsíðu: „Fram- sóknarflokkurinn styður útþenslustefnu ólafs". Og degi síðar: Allt mun þetta „færa Island nær því að verða þungamiðja i hernaðarkerfi Bandarikjanna á N-Atlantshafi". Spurter: „Getur utanríkisráðuneytið lagt Þingvöll undir herinn?" „Ég trúi því ekki"/segir Svavar formaður, „að ólafur Jóhannesson ætli að keyra málið á enda". En það er nákvæmlega það sem Ólaf ur Jóhannesson hef ur gert: Hann hef ur keyrt málið á enda. Geip Þjóð- viljans og kommaráðherranna um hótanir, mútur, lagabrot, útþenslustef nu, hernaðarumsvif etc., eru að vísu staðleysustafir. ölafur hefur framfylgt fyrir- mælum Alþingis, tekið ákvörðun um staðarval olíu- tanka í samræmi við ráðgjöf sérfróðra aðila og sam- eiginlegar kröfur hlutaðeigandi sveitarfélaga. Hann hefur hvergi farið út fyrir valdsvið sitt. Engin lög brotið. Ekki lagt neitt nýtt land undir varnarsvæði. Og hann hef ur tekið tillit til sérþarfa Alþýðubandalagsins um að geymarými verði ekki aukið. Ákvörðun Ólafs er endanleg og hún stendur óhögguð. Það uppátæki Svavars formanns að setja af ráðgefandi nefnd um skipulagsmál og skipa aðra nýja er markleysa. örþrifaráð Hjörleifs til að útiloka is- lenzkan verkta1<a frá að standa við gerðan samning þýðir það eitt, að verkið f ærist í hendur útlendinga og ríkissjóður verður skaðabótaskyldur. Utanríkiráðherra hefur brugðizt hart við ögr- unum kommanna og ófrægingarherferð. Hann hefur keyrt málið á enda — sem Svavar Gestsson vildi í lengstu lög ekki trúa. Nú liggur það fyrir. Að baki þeirri ákvörðun stendur meirihlutavilji þriggja þing- flokka. Hvað gera kommar þá, þegar þeir hafa teflt sig heimaskítsmát? Ekki tjóar að bera fram vantraust. Það yrði kolfellt. Að hætti japanskra samuraja hefur Fljótamaðurinn boðið þeim útgönguleiðina — að fremja pólitíska kviðristu — ef þeim er annt um ær- una. Enþað stóðaldrei til. Máliðvar af komma hálfueitt stórt blöff, f rá upphaf i til enda. Það stóð aldrei til að velja milli ærunnar og ráðherrastólanna. En um ná- kvæmlega það stendur málið nú og annað ekki. Nú mega allir sjá og heyra, hvorn kostinn Alþýðubanda- lagið velur. Það velur stólana. Áróðursherferðin, sem átti að minna einlæga herstöðvaandstæðinga á hug- sjónatryggð Flokksins,hefur snúizt í höndum þeirra eins og búmerang, og hittir nú fyrir, ekki utanríkis- ráðherra, heldur þá sjálf a. Þannig fór um sjóferð þá. Hitt er mesti misskilningur að það sé nokkurt f arar- snið á „þjóðfrelsishreyfingunni" út úr ráðherra- stólum. Það hvarflar ekki að sjálfstæðishetjunum Ólafi Ragnari og Svavari að fara að manna götuvígin. Að vísu er boðaður fundur á Hótel Borg. En hann er ekki til annars en að kvarta undan meðferðinni. Kommarnir reyna að telja sínu fólki trú um að féjags- málaráðherra eigi ósagt síðasta orðið þegar kemur að staðf estingu á hönnun haf narf ramkvæmda. En það er aumlegt yfirvarp, ætlað til þess eins að vinna tíma í ráðherrastólunum og blekkja auðtrúa sálir. Niðurstaða málsins er einföld: Forystulið Alþýðu- bandalagsins hefur hamrað á því, að lausn Helgu- víkurmálsins, sem þegar liggur fyrir, sé sú að gera ísland að „þungamiðju í hernaðarkerfi Bandaríkj- anna á N-Atlantshafi". Trúi þeir sínum eigin áróðri, eru þeir með áframhaldandi setu sinni í þessari rikis- stjórn orðnir samábyrgir þessu hernaðarkerfi. Fram- hjá þeirri óhagganlegu staðreynd komast þeir ekki, hvernig sem þerir reyna að klóra í bakkann á safnaðarfundum. I þessu máli hefur verið látið á reyna trúnað þeirra við málstaðinn í eitt skipti fyrir öll. Og þeir voru vegnir —og léttvægir f undnir. —jbh Kveðja frá Iðnskólanum í Reykjavfk: UNNUR BJARNADÓTTIR Unnur Bjarnaddttir iþróttakennari var skipuii kennari við Iðnskólann i Reykjavlk haustið 1980. Unnur haföiáðuri mörg árkenntiðn- nemum iþróttir þótt aðaistarf hennar væri við Vörðuskól- ann.sem áður hét Gagnfræöa- skóli Austurhæjar. Auk iþrótta og leikfimi kenndi Unnur skyndihjálp. Hún var vel látin sem kennari, lifsglöð og áhugasöm um að auka menntun sina. Fáir voru jafn ötulir og hiín við að sækja allskyns nám- skeið. Við þetta sviplega fráfall Unnar þakkar skólinn henni vel unnin störf i þágu iðnnema og vottar ættingjum og vinum sam úð. Ingvar Asmundsson Opinber stofnun óskar eftir HÚSNÆÐI Hollustuvernd rikisins, sem tekur til starfa i haust i samræmi við lög nr. 50/1981, um hollustuhætti og heilbrigðis- eftirlit, óskar eftir húsnæði til leigu sem allra fyrst. Um er að ræða húsnæði að stærð 1.200 til 1.500 fermetrar. Allar nánari upplýsingar gefur Ingimar Sigurðsson, stjórnarformaður Hollustu- verndar rikisins, Laugavegi 116, Reykja- vik, s. 25000 og 28455. Tilboð óskast send á sama stað fyrir 10. april n.k. Reykjavik, 16. mars 1982. lÉr Iðnskólinn í Reykjavík Skrifstofa skólans verður lokuð frá kl. 14 i dag vegna útfarar Unnar Bjarnadóttur iþróttakennara. Kennsla fellur niður frá sama tima. iðnskólinn i Reykjavik. Alþýðuorlof og Dansk Folke-ferie i samstarfi við Samvinnuferð- ir/Landsýn, munu á næsta sumri efna til þriggja gagnkvæmra orlofs- ferða fyrir félagsmenn verkalýðssamtakanna á íslandi og Danmörk. Hér er um að ræða framhald og aukningu á þvi samstarfi sem hafið var á siðasta ári milli þessara samtaka. Ferðirnar til Danmerkur verða sem hér segir: 1. ferð: Frá 28. júni til 17. júli. Verðkr. 5.700,00 Innifalið i verðinu er rútuferð um Danmörk frá 28. júni til 10. júli þar sem er gisting og fullt fæði ásamt leiðsögn. Gist er i sumarhúsum og skólum hinna einstöku félaga innan danska verkalýðssambandsins. 17. júli heimferð til Keflavikur. 2. ferð: frá 17. júli til 31. júli. Verð kr. 3.700,00 Hér er um að ræða 2ja vikna ferð, þar sem að hóparnir dvelja eina viku i senn i sumarhúsum i Karrebeksminde og Helsingör. Farin verður ein dagsskoðunarferð á hvorum stað, en að öðru leyti er dvöl- in þar án skipulagðrar dagskrár. Fæði ekki innifaiið. 31. júli heimíerð til Keflavikur. 3. ferð: Frá31. júli til 18. ágúst. Verð kr. 5.700,00 31. júli til7. ágúst dvalið um kyrrt á einum stað i 7 nætur i sumarhús- um, án skipulagðrar dagskrár. Fæði ekki innifalið þann tima. Frá7. ágúst til 18. ágúst er rútuferð um Danmörk þar sem er gisting og fullt fæði ásamt leiðsögn. Gist er i sumarhúsum og skólum hinna einstöku félaga innan danska verkalýðssambandsins. 18. ágúst heimferð til Keflavikur Afsláttur fyrir börn innan 12 ára er krónur 800.- i hverja ferð. Rétt til þátttöku i ferðunum eiga félagsmenn i aðildarfélögum Alþýðu- orlofs, sem eiga orlofshús i ölfusborgum, Svignaskarði, Vatnsfirði, Illugastöðum eða Einarsstöðum og fær hvert orlofssvæði tiltekinn fjölda þátttakenda i hverja ferð. Alls verða 120 sæti bókuð i hverja ferð eða samtals 360 sæti i allar ferðirnar. Bókanir i ferðir þessar fara fram á timabilinu frá 17. mars til 31. mars 1982 og er tekið við bókunum á eftirtöldum stöðum: Alþýðuorlof, Lindargötu 9, Reykjavik simi 91-28180 (kl. 13.00-17.00) Alþýðusamband Vestfjarða Alþýðuhúsinu, ísafirði simi 94-3190 Alþýðusamband Norðurlands, Brekkugötu 4, Akureyri. Simi 96-21881 Alþýðusamband Austurlands, Egilsbraut 25, Neskaupstað. Simi 97-7610 Stjórn Alþýðuorlofs.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.