Alþýðublaðið - 18.03.1982, Qupperneq 3
Fimmtudagur 18. mars 1982
3
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Almennur félagsfundur verður haldinn
í Iðnó mánudaginn 22. mars kl. 20.30.
Fundaref ni:
Borgarmálef nin.
Framsögumenn verða: Sigurður E.
Guðmundsson, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
Bjarni P. Magnússon og Guðríður Þor-
steinsdóttir.
Fundarstjóri verður Jón Baldvin
Hannibalsson.
Stjórnin
Tilboð óskast i smiði og afgreiðslu lampa
af ýmsum gerðum fyrir byggingu 7 á
Landsspitalalóð.
Útboðs- og verklýsing er til afhendingar á
skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykja-
vik. Tilboð verða opnuð i viðurvist við-
staddra bjóðenda á sama stað kl. 11 f.h.
þriðjudaginn 11. mai n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 -
Staðfestir 4
sveitir hafa beint spiótum sin-
um að. Það hefur þvi oft verið
tilviljunum háð, hvernig þús-
undir óbreyttra borgara hafa
orðið fyrir barðinu á öryggis-
sveitum.
Amnesty International átti
viötal við flóttamenn í Mexikó,
Hondúras og Costa Rica. Lýs-
ingar þeirra á voðaverkum og
kúgunaraðgerðum voru sam-
hljóða og staðfesta upplýsingar
margra annarra aöilja. Lýsing-
um flóttamanna bar þannig
saman þrátt fyrir það, að engin
leið væri fyrir þá að hafa sam-
band sin á milli. Nokkrum
fangabúðum var einungis hægt
að komastað i litlum flugvélum.
Fjöldi fómarlamba báru ör á
likama sinum, sem virtust stað-
festa frásagnir þeirra.
Allar sveitir stjórnarher-
manna og og lögreglu tengjast
þessum ógnarverkum, herinn,
lögreglusveitir, og sveitir i
tengslum við herinn.
Nokkur dæmi um ógnar-
verk
Meðal þeirra vitnisburða,
sem nefndin hlýddi á má nefna
eftirfarandi dæmi:
„Hermennnirnir brenndu
húsið okkar i júnimánuði, þeir
drápu frænku mina, sem gekk
með fyrsta barn sitt.. þeir
tóku fóstrið og köstuðu þvi fyrir
hundana....”
„Þjóövarðliðar drápu föður
minn, þeir skáru hann á háls.
Siðan nauðguðu þeir mér — all-
ir. Þeir nauðguðu síðan 15 ára
gamalli dóttur minni einnig.
Siöan var hnifblaöi brugðið á
háls mér og mér varpað ofan á
lik föður mins.”
„Þrjátiu vel vopnaðir menn i
herjökkum með grimur fyrir
andlitum með áletruninni
„dauðasveitir” komu inn i þorp-
ið okkar, þeir handtóku og
drápu nokkra bændur. Siðan
fóru þeir til þorps i grenndinni,
handtóku Romilia Hernandez
(21 árs)... Þeir nauðguðu henni
og skáru hana siðan á háls....
samdægurs voru þessir „dauða-
sveitarmenn” fluttir burt i
þyrlu Salvadorhers.”
Fréttabréfið lýsti hinni vax-
andi ofbeldisöldu i landinu, allt
frá þvi að stjórnvöld lýstu yfir
neyöarástandi i mars 1980.
Flest grimmdarverk unn-
in af stjórnarhermönnum
1 skýrslu samtakanna segir,
að Amnesty hafa vitaö af hern-
aðarátökunum i E1 Salvador og
frásögnum af mannréttinda-
brotum stjórnmálaafla, sem
ekki eru i tengslum viö stjórn-
völd. Amnesty hefur hins vegar
komist að þeirri niöurstöðu, eft-
ir vandlega athugun, að flest
brotanna, þar meö taldar pynt-
ingar, mannshvörf, og morö af
yfirlögðu ráði, eru unnin af ör-
yggissveitum landsins og bein-
ast að óbreyttum borgurum,
sem engan þátt eiga i aðgerðum
skæruliöa.
Fulltrúi samtakanna sagði
þann 9. mars s.l. að yfirvöld i E1
Salvador hefðu hvað eftir annað
verið krafin svara um ýmis atr-
iöi, en engin svör hefðu borist
við fyrirspurnum samtakanna.
Amnesty —,Þ
Leikhús 4
En það eru fleiri en Brynja,
sem hafa lagt krökkunum liö.
Leikmynd Sigurjóns Jóhanns-
sonar er hreint afbragð, og er
ótrúlegt, hve mikið rúmast á
svo litlu sviöi. Ennfremur eru
búningar hans mjög vandaöir
og mátulega stiliseraðir. Það
eina sem rauf annars mjög góð-
an heildarsvip, var byltingar-
senan á götum úti. Hún var
veikasti hlekkur sýningarinnar,
bæði leiklega og hvaö umgerð
snerti. Það vantaði allan sann-
'færingarkraft i þaö atriði, enda
mjög erfitt og ólikt öllu öðru i
verkinu.
Ekki má sleppa að geta lýs-
ingarDavids Walters, sem virt-
ist einstaklega vönduð og upp-
lyftandi.
Það var sem sagt ekkert til
sparað, svo að þessi sýning
mætti verða eins góð og kostur
var. Fjórir viðurkenndir lista-
menn lögðu nemendum lið, og
mætti jafnvel bæta þeim
fimmta við, þvi að skólastjór-
inn, Pétur Einarsson.brilleraði i
hlutverki erindreka drottning-
ar.
Og hvernig féllu krakkarnir
að þessari glæsilegu umgerð?
Allt eru þetta fallegir krakkar,
sem hafa hlotið góða þjálfun.
Samstilltur hópur, sem virðist
vera góðum hæfileikum búinn.
Ekki er ástæða til að geta neins
sérstaklega, þvi að þau eru
nokkuð jöfn. öll eiga þau það
sammerkt að vera ekki enn orð-
in fulloröin og hafa þvi ekki
nægilega reynslu til að bera til
að geta túlkað mergjaðar per-
sónur Genet á fullkomlega
sannfærandi hátt. Enda bjóst
kannski enginn við þvi. En þau
bættu það upp með leikgleðinni,
sem geislaði af hverju andliti,
og þau beittu fyrir sig ágætri
tækni, sem ber skólanum góðan
vitnisburð. En þau eru enn of
ung til að skilja allt.
Bryndis Schram
Þekkír þú
lífeyrísrétt þinn?
Þessir lífeyrissjóðir mynda eina lífeyrisheild.
• Lsj. ASB og BSFI
• Lsj. byggingamanna
• Lsj. Dagsbrúnarog Framsóknar
• Lsj. Félagsgaröyrkjumanna
• Lsj. Landssambands vörubifreiöastjóra
• Lsj. málm- og skipasmiða
• Lsj. Nótar, félags netagerðarfólks
• Lsj. rafiðnaðarmanna
• Lsj. verksmiðjufólks
• Lsj. Vesturlands
• Lsj. Bolungarvíkur
• Lsj. Vestfirðinga
• Lsj. verkamanna, Hvammstanga
• Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði
• Lsj. Iðju á Akureyri
• Lsj. Sameining Akureyri
• Lsj. trésmiða á Akureyri
• Lsj. Björg Húsavík
• Lsj. Austurlands
• Lsj. Vestmanneyinga
• Lsj. Rangæinga
• Lsj. verkalýðsfélagaáSuðurlandi
• Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurnesjum
• Lsj. verkafólks í Grindavík
• L.sj. Hlífar og Framtíðarinnar
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrishieild
Kjartan Jóhannsson
Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir
Guðmundur Vé-
stcinsson
Jóhanna Sigurðar-
dóttir
Bjarni P. Magnús-
son
Kristin Guðmunds-
dóttir
Sveitarstjórnaráðstefna
Sveitarstjórnarráð og framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins gangast fyrir ráð-
stefnu um sveitarstjórnarmál laugardaginn 20. mars í veitingahúsinu Gaflinum
Dalshrauni 13, 2. h. Flafnarf irði og hefst hún kl. 10.
DAGSKRÁ:
Kl. 10 Ráðstefnan sett af formanni sveitarstjórnar-
ráðs, Sjöfn Sigurbjörnsdóttur
1) Umræður um stef numið.
a) Sjálfsforræði sveitarfélaga,
f ramsaga: Magnús H. Magnússon
b) Þjóðareign á landi
framsaga: Guðmundur Vésteinsson
c)
2)
3)
F jölskyldumál
framsaga: Jóhanna Sigurðardóttir
Kosningaundirbúningur:
framsaga: Bjarni P. Magnússon
Kristín Guðmundsdóttir.
Ráðstef nuslit: Kjartan Jóhannsson,
Alþýðuf lokks.
Magnús H.Magnússon
formaður