Alþýðublaðið - 01.04.1982, Qupperneq 2
Fimmtudagur 1. apríl 1982
RITSJ ÓRN ARGREIN
STERKUR LISTI
fllþýðufolkkurinn varð seinastur til þess að ganga
éndanlega frá framboðslista sínum fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor. En þeir sem leggja
seinast upp i róður eru ekki endilega þeir sem bera
minnstan afla að landi. Það er flestra manna mál að
vel hafi tekizttil um skipan listans. Um hann ríkir al-
ger einhugur innan flokksins. Frambjóðendur verða
hvarvetna varir við góðar undirtektir.
Fyrsta sæti listans skipar Sigurður E. Guðmundsson/
framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar. • ríkisins.
Sigurðurer einn helzti sérfræðingur Alþýðuf lokksins í
húsnæðismálum. Húsnæðis- og skipulagsmál eru jaf n-
aðarlega eitt mikilvægasta úrlausnarefni allra
sveitarstjórna. Starfs síns vegna býr Sigurður yfir
langri reynslu og haldgóðri þekkingu á þeim málum.
Sú þekking mun koma borgarstjórn að góðum notum á
næsta kjörtímabili. Sigurður hef ur lýst því að á næsta
kjörtímabili þurfi að gera meiri háttar átak í hús-
næðismálum í Reykjavík/ i líkingú við það sem gert
var upp úr júnísamkomulaginu 1965 og leiddi til bygg-
ingar 1250 ibúða, sem láglaunafólk hafði forgang að.
Öðru sæti listans er Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
boryarfulltrúi. Sjöfn er trúlega umdeildasti borgar-
fulltrúinn í núverandi meirihlutasamstarfi. Hún er
þekkt að því að geta tekið sjálf stæðar ákvarðanir og
láta ekki auðveldlega segja sér fyrir verkum. Borgar-
búar bafa tekið eftir þvi að hún lætur ekki kommana
komast upp með moðreyk, ef því er að skipta. Hún
skírskotar því sterklega til þeirra f jölmörgu kjósenda,
sem treysta litt á verkhæf ni sjálf stæðismanna, vegna
eilífra flokkadrátta og úlfúðar.
i þriðja sæti listans er Bjarni P. Magnússon, sem er
hagfræðingur að mennt og framkvæmdastjóri fyrir
ungu iðnfyrirtæki. Þrátt fyrir ungan aldur á Bjarni að
baki mikið starf innan Alþýðuf lokksins. Hann var í
fremstu röð þeirra ungu manna sem opnuðu Alþýðu-
flokkinn upp á gátt fyrir nýjum hugmyndum og
nýjum og lýðræðislegri vinnubrögðum og leiddi til
hins mikla kosningasigurs flokksins árið 1978. Bjarni
hefur starfað mikið að borgarmálum á liðnu kjör-
tímabili, m.a. verið fulltrúi flokksins í stjórn veitu-
stofnana Reykjavíkur. Hagfræðimenntun hans,
reynsla af, atvinnurekstri og borgarmálum munu
koma honum að góðum notum sem borgarf ulltrúa.
Fjórða sæti listans skipar Guðriður Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur og framkvæmdastjóri jafnréttisráðs.
Guðriður hefur verið virk i starfi innan raða ungra
jafnaðarmanna. Reynsla hennar af starfi í þágu jafn-
réttisbaráttu kvenna mun koma að góðum notum á
vettvangi borgarmálanna.
Ohætt er að f ullyrða að almenn ánægja ríkir meðal
jafnaðarmanna í Reykjavik með skipun framboðs-
listans. Menn treysta því að hér sé boðið úpp á sam-
stæðan og vel verki farinn hóp, sem hafi allar for-
sendur til aðgegna störfum borgarf ulltrúa með sóma.
Meðal borgarbúa rikir eðlilega mest eftirvænting
um það, hverjir muni mynda nýjan meirihluta í
borgarstjórn að kosningum loknum. Of snemmt er að
slá neinu föstu um það f yrirf ram. Sú ákvörðun er auð-
vitað fyrstog fremst í höndum kjósenda sjálfra. Hið
nýja kvennátramboð eykur óvissuna um það til muna.
Sá'meirihluti, sem farið hef ur með völd í borgarstjórn
á liðnu kjörtímabili, leggur nú sin mál undir dóm kjós-
enda. En kosningarnar snúast ekki bara um það sem
liðið er. Þær snúast líka um þau mál sem flokkarnir
munu setja á oddinn sem meginverkefni á næsta
kjörtímabili. Þar mun athygli kjósenda ekki hvað sízt
beinast að málabúnaði flokkanna í atvinnumálum
höfuðborgarinnar, húsnæðis- og skipulagsmálum.
Síðan er það kjósenda sjálfra að leggja línurnar um
framhaldið. Samstaða um málefnin hlýtur síðan að
skera úr um það, hverjir veljast til samstarfs að kosn-
ingum loknum. '
— JBH
Potturinn og Pannan
Nýr matsölustaður á horni Brautarholts og Nóatúns
ísiðustu viku var opnaður nýr
matsölustaður á horni Brautar-
holts og Nöatúns, þar sem veit-
ingahúsið Hliðarendi var áður
til húsa. Eigendur staðarins eru
þeir Sigurður Sumarliðason,
Úlfar Eysteinsson og Tómas
Tómasson, sem hefur talsvert
komið náiægt veitingahúsa-
rekstri í borginni á siðustu
misserum. Þeir hafa lagt út f
miklar breytingar á húsnæðinu,
sem uppfyllir nú allar þær
kröfur, sem gerðar eru til salat-
barstaða i henni Ameriku.
Tómas Tómasson sagði við
opnun staðarins, að það vekti
fyrst og fremst fyrir eigendum
staðarins aðbjóða upp á ódýran
mat i vistlegu umhverfi, þar
sem fólk gæti komið og borðað
fyrir hóflegt verð. Aðalsmerki
veitingahússins verður salat-
barinn að ameriskum sið. Þri-
réttuð máltið dagsins mun kosta
80—90 krónur. Ekki verður
framreitt vin á staðnum, enda
telja eigendur það ekki við hæfi,
þar sem fjölskyldan fer út að
borða,að vin sé haft um hönd.
Potturinn og Pannan er opinn
daglega frá 8.00 — 23.30.
Samtök sveitarfélaga i
Vesturlandskjördæmi:
Fundur um
húshitunarmál
i Stykkishólmi
Samtök sveitarfélaga i
Vesturlandskjördæmi boða til
fundar um húshitunarmál á
Snæfellsnesi og í Dölum föstu-
daginn 2. aprfl n.k. kl. 13.00 i
Hótel Stykkishólmi.
Tilgangur fundarins er að
ræða ýtarlega um þá mögu-
leika, sem nú eru fyrir hendi á
húshitun á svæðinu og stuðla
þannig að sem bestri stefnu-
mótun hlutaðeigandi aðila.
Til umræðu verður almenn
stefnumörkun rikisvaldsins i
húshitunarmálum, mögulegar
orkusparnaðaraðgerðir, orku-
öflunarmöguleikar, niður-
stöðurog horfur á jarðhitaleit,
rafhitunarmöguleikar,
reynsla af RO-veitum, laus-
legur kostnaðarsamanburður,
gjaldskrármál o.fl.
Framsögumenn verða full-
trúar frá Iðnaðarráðuneyti,
Orkustofnun og Rafmagns-
veitum rikisins. Auk þeirra er
alþingismönnum Vesturlands-
kjördæmis, sveitarstjórnar-
mönnum á svæðinu og öðrum
áhugamönnum sérstaklega
boðið á fundinn.
ðlafur__________________1
Þær skýringar sem lik-
legastar eru taldar á fjarveru
Olafs eru, að hann telji sig ekki
þurfa að skýra eitt né neitt i
sinni embættisfærslu fyrir
flokksmönnum. Þá mun Ólafi
Jóhannessyni ekki hafa líkað
alltof vel framkoma Steingrims
formanns i Helguvikurmálinu
og talið hann meö undirlægju-
hátt við Alþýðubandalagiö i
málinu. Þá var þvi einnig fleygt
á tittnefndum miðstjórnarfundi,
að ólafur væri orðinn dauð-
þreyttur á pólitiska vafstrinu og
vildi frið frá drepleiðinlegum og
innihaldsrýrum Framsóknar-
langlokum. Hann hafi þvi ein-
faldlega ekki nennt á nefndan
miðstjórnarfund. Þykir það
ekki ólfklegasta skýringin, sér-
staklega með hliðsjón af bragð-
daufum, löngum og rislitlum
miðstjórnarfundum.
Kjartan 1
1. Hvað liöur afgreiðslu rikis-
stjórnarinnar á ósk Hafnar-
fjarðarbæjar um endurskoð-
un á hlutdeild bæjarins i
framleiðslugjaldstekjum af
tSAL, samkvæmt samnings-
bundinni kröfu bæjaryfir-
valda?
2. Hvenær má vænta lagafrum-
varps um þetta efni i sam-
ræmi við ákvæði samnings
milli iðnaðarráðuneytisins og
bæjarstjórnar frá þvi i mai-
mánuði 1976, sem bæjarstjórn
hefur óskað atbeina forsætis-
ráðherra við?
Verður fróðlegt að heyra svör
forsætisráðherra við þessum
spurningum þingmannanna, en
hér er á feröinni mikilvægt
hagsmunamál fyrir Hafnfirð-
inga.
í|j Laus staða
Staða forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar er
laus til umsóknar.
Launakjör eru skv. kjarasamningi við Starfsmannafélag
Reykjavikurborgar.
Staðan verður veitt frá lv júli I982aðtelja.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu minnar fyrir 20. april
n.k.
Borgarstjórinn i Reykjavik
Egill Skúii Ingibergsson
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
LOFTSKEYTAMENN/SÍMRITARA
til starfa í Neskaupstaö og á Höfn í Horna-
f irði.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfs-
mannadeild og stöðvarstjórum í Neskaupstað
og á Höfn.
Ungir jafnaðarmenn
Ráðstefna um húsnæðismál verður haldin
næstkomandi laugardag, 3. apríl, klukkan
13.30. Ráðstefnan verður haldin f hinu nýja
húsnæði Sambands ungra jafnaðarmanna við
Hverfisgötu 106 A, þriðju hæð. Framsögu-
maður um húsnæðismálin verður Magnús H.
Magnússon alþingismaður.
Allir velkomnir.
Verkalýðsmálanefnd SUJ
Formaður: Árni Hjörleifsson
Magnús H. Magnússon