Alþýðublaðið - 08.04.1982, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 08.04.1982, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 8. apríl 1982 RITSJÓRNARGREIN ísland og umheimurinn Sú venja hefur skapazt á Alþingi seinustu árin, að talsmenn stjórnmálaflokkanna geri allítarlega greinfyrir viðhorfum flokka sinna til utariríkis- og alþjóðamála, í tilefni af skýrslu utanríkisráðherra um utanríkismál. Þessu ber að fagna. íslendingar geta ekki, fremur en aðrar þjóðir, búið í einangrun. Við erum flestum öðrum þjóðum fremur háðir alþjóðaviðskiptum. Islendingum jafnt sem öðrum stafar ógn af takmarkalausu víg- búnaðarkapphlaupi stórveldanna. Þeir hljóta þess vegna að reyna að afla sér þekkingar og mynda sér skoðun á afvopnunarrftálum. Mis- skipting auðsins í heiminum er helzta undir- rót ófriðar og hernaðarátaka. islendingar hljóta því að láta sig varða, hvaða stefnu bandalagsþjóðir þeirra taka í málefnum þriðja heimsins Utanríkismálaumræðan s.l. þriðjudag leiddi rækilega í Ijós um hvað er samstaða og um hvað er ágreiningur milli stjórnmálaflokk- anna í viðhorfum til alþjóðamála. Sérstaða Alþýðubandalagsins er gamalkunn. Alþýðu- bandalagið er eini íslenzki stjórnmálaf lokkur- inn, sem vill rjúfa varnarsamstarf lýðræðis- rikjanna og ætlar Islendingum að treysta á varnarleysi og pólitíska einangrun. En þótt hinir f lokkarnir séu sammála um það, að þátt- taka fslendinga í varnarsamtökum lýðræðis- rikjanna haf i gef izt vel, og eigi áf ram að vera hornsteinn islenzkrar utanríkisstefnu, þá er verulegur munur á viðhorfum þeirra til alþjóðamála. Það er reginmunur á afstöðu Alþýðuf lokksins annars vegar, og Sjálfstæðis- flokksins hins vegar, til vandamála þriðja heimsins og spurningarinnar um, hver skuli vera stefna lýðræðisríkjanna í málefnum þess heimshluta. Þessi skoðanamunur kom berlega fram í ólíkum málflutningi þeirra Geirs Hallgrímssonar og Kjartans Jóhannssonar í utanríkismálaumræðunni á Alþingi. Að mati jafnaðarmanna ber að setja kröfuna um virð- ingu fyrir mannréttindum á oddinn. Forystu- riki lýðræðisins mega undir engum kringum- stæðum veita andlýðræðislegum herforingja- stjórnum stuðning, hvorki í orði né verki. Hið tvöfalda siðferði sem lýsir sér í afstöðu Reaganstjórnarinnar til Pótlands og El Salva- dor er ekkert einkamál Bandaríkjastjórnar, vegna þess að það veikir siðf erðisþrek og póli- tíska stöðu lýðræðisríkjanna á alþjóðavett- vangi. En þrátt fyrirþennan skoðanaágreining er engu að síður víðtæk samstaða með þremur stjórnmálaflokkum um áframhaldandi þátt- töku íslendinga í varnarsamtökum lýðræðis- ríkjanna, sem tryggt hef ur f rið í okkar heims- hluta í bráðum f jóra áratugi. Um það sagði Kjartan Jóhannsson í ræðu sinni: „Atlanz- hafsbandalagið var stofnað sem vörn gegn út- þensiu sovétkommúnismans. Hlutverk þess var að tryggja lýðfrjálsum þjóðum á Norður- hveli frið og öryggi og standa þannig vörð um lýðræðisskipulagið. Það hefur tekizt. Við höf- um notið friðar. Þann einfalda sannleika skul- um við festa okkur í huga". Ennfremur sagði Kjartan: „Varnarleysi Is- lands býður heim hættunni á hernámi og ógn- unum, eins og dæmin sanna einmitt þessa dag- ana. Alþýðubandala^smenn segja að aðild okkar að Atlanzhafsbandalaginu og tilvera varnarstöðvargeri okkur aðskotmarki Rússa. Ég segi: Varnarleysi við núverandi aðstæður mundi gera okkur að tálbeitu og skotmarki beggja. Tómarúm á islandi, eins og AB berst fýrir, mundi auka umsvif beggja á haf inu um- hverf is okkur og við gerðum frelsi okkar, ör- yggi og sjálfstæði að leiksoppi. Um afvopnunarmál og hlutverk f riðarhreyf- inga sagði Kjartan: „Við Alþýðuflokksmenn tökum undir þá kröfu friðarhreyfinganna að kjarnavopnakapphlaupið verði að stöðva. Vandinn er hins vegar sá, að austan járntjalds skiptir vilji fólksins valdhafana engu, en þeir verða að leggja sitt af mörkum til þess að raunveruleg takmörkun vígbúnaðar náist. Sannleikurinn er sá, að einhliða takmörkun vígbúnaðar mun ekki endast. Jaf nvel þótt hún yrði ákveðin, er fullvíst, að jafnskjótt og sá aðili, sem til þess gripi/teldi að á hann hallaði, yrðu þau öfl yfirsterkari sem teldu að víg- búast yrði á ný, til að jafna metin. Hér getur hvorki gilt: Þú fyrstsvo ég,— né heldur: Ég f yrst svo þú. Báðir aðilar veróa að stíga skref- in samtímis." —JBH Ballett Bryndis Schram skrifar mt w JAZZ-STE MMA Söngleikurinn JAZZ-INN í Háskólabfói Höfundur: Bára Magnúsdóttir Hljómsveitarstj.: Arni Schev- ing Ekki er að spyrja aö dugnað- inum i henni Báru. Ekki nóg með, að hún reki öflugan skóla fyrir fólk á öllum aldri.heldur ' stofnar hún til meiri háttar uppákomu i einu stærsta sam- komuhúsi landsins meö öllum þeim tilkostnaði, sem þvi fylgir. Hún ræður fjölmenna hljóm- sveit — og það enga smákalla — virkjar einn vinsælasta popp- söngvara landsins og dregur upp á svið úrval ungra glæsi- kvenna og kennir þeim að dansa af hjartans list. Þetta gæti ekki hver sem er. Bára hefur ekkert til sparað, lýsing er vönduð og fjölbreytileg, „soundið” óað- finnanlegt, og búningar allir vel úr garöi geröir, bæði hvaö varð- ar litaval og sniö. Allt skal vera eins glæsilegt og kostur er. Bára hefur sjálf samiö hand- rit að sýningu þessari.Þar hefur hún ætlað ser heldur mikiö, þvi að handritið er veikasti hlekkur sýningarinnar. Bæði er, að sag- an er fremur einföld og barna- leg, og heldur ekki spennunni til loka. Auk þess er textinn ekki nógu vandaður til að veita ánægju. Það hefði verið mikill styrkur fyrir Báru að fá til liðs viö sig gagnrýninn rithöfund eða bara einhvern, sem þekkir reglur og takmörk leikhússins. Það hefði verið til mikilla bóta að þjappa textanum saman og stytta sýninguna um einn þriðja. Þá hefði hún orðið hnit- miðaðri og meira spennandi. A hinn bóginn er Bára snjall dansahöfundur. Hún kann vel á það fólk sem hún vinnur með, ofbýður þvi hvergi, hefur frjálslegan stil, þar sem hún byggir að nokkru á klassiskri hefð, en fer þó meira út i diskó- stil. Nemendur hennar hafa fæstir langan skóla að baki, og setur það henni strax viss tak- mörk. En hún notfærir sér náttúrlegar hreyfingar og gef- ur dansgleðinni lausan tauminn, sem er kannski endanlega það takmark, sem hún setur sér. Dansarnir eru vel upp byggöir, nokkuð einhæfir aö visu, en rythmiskir og gleðirikir. Hóp- dansarar eru þrautþjálfaðir og þokkafullir, og þeir renndu sér i gegnum verkiö af krafti og inn- lifun. Þeir voru nokkuö jafnir að getu, og ekki ástæða til að lofa einn umfram annan. Bardaga- listamennirnir Haukur og Hörð- ur ásamt félögum vöktu sér- staka athygli, og var gaman aö hafa þá með i hópnum. Aðalhlutverkin voru i höndum þeirra Sigrúnar Waage og Guö- mundar Garöarssonar. Sigrún hefur um árabil æft listdans og ýmist naut þess eða galt i þessari sýningu. Ef tii vill hefði hún ver- iö meira „sexy” ef henni heföi tekizt að þurrka burt klassisk áhrif, en hins vegar naut hún þess miklu frekar og oftar að eiga að baki mikla þjálfun sem listdansari. Hún hefur fallegan likama og elskulegt andiit og vann samúð áhorfenda með þokkafullri túlkun sinni. Sigrún hefur ekki mikla söngrödd en fór vel meö það, sem henni var faliö. Guömundur Garðarsson er einnig ágætur dansari, léttur og fimur, en hins vegar galt hann þess að vera ekki nógu tónviss i söngatriðunum. Pálmi Gunnarsson fór hins vegar á kostum i söngnum. Hann hefur einkar þægilega rödd og naut þess greinilega að hlaupa úr einu gervinu i annað. Þá er eftir að geta hljómsveit- arinnar og hennar framlags til þessarar sýningar. Sá þáttur var frábær, lögin kraftmikil og hvetjandi, auk þess sem útsetn- ingin var bæði hugmyndarik og fjölbreytileg. Einkum þótti mér blásarinn koma skemmtilega á óvart. Það er ómetanlegt fyrir dans- ara að hreyfa sig eftir lifandi tónlist, og væri óskandi, aö is- lenzki ballettinn nyti alltaf sömu aðstöðu og nemendur Báru. tslenzk dansmær sem starfar erlendis, tók svo til oröa i fjölmiölum fyrir skömmu, aö einhver dugmikil og efnuð kona (eða maður) þyrfti að taka að sér tslenzka dansflokkinn og styðja hann til dáða, eins og tiðkast i öðrum löndum. Ég sé ekki betur en að sú kona sé fundin. Bryndis Höfundur handrits og dansa: Bára Magnúsdóttir. llljómsveitar- stjóri: Arni Scheving. Nefnd um Þjóðskjala- safnið A aldarafmæli Þjóðskjalasafns tslands 3. þ.m. skipaði mennta- málaráðherra nefnd til þess að fjalla um þróun safnsins og fyrir- komulag opinberrar skjala- vörslu. Skal nefndin i þvi sambandi hyggja að hlutverki héraðsskjalasafna og tengslum þeirra við Þjóðskjalasafn. Einnig ber að kanna hvort leggja skuli rikari skyldur en nú er á atvinnu- fyrirtæki og umsvifamiklar opin- berar stofnanir um skjalageymd og safnþjónustu i tengslum við Þjóðskjalasafn. Þá er nefndinni ætlað að rannsaka itarlega hug- myndir um grisjun embættis- skjala og hvern hlut tækni af ýmsu tagi gæti átt i hagstæðri þróun Þjóðskjalasafns og skjala- vörslu. Nefndinni ber að leggja mikla áherslu á að meta hús- næðisþörf Þjóðskjalasafns og gera tillögur um hvernig hag- felldast verði aö fullnægja henni og þá höfð hliðsjón af þvi að Þjóð- skjalasafni er ætlað að fá til sinna nota allt Safnahúsið þegar Lands- bókasafn flyst i Þjóðarbókhlöðu. 1 nefndina eru skipaðir Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri, for- maður, Bjarni Vilhjálmsson Þjóðskjalavörður og Bjarni Einarsson, framkvæmdastjóri byggöadeildar Framkvæmda- stofnunar rikisins. Bílbeltin hafa bjargað

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.