Alþýðublaðið - 29.07.1982, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.07.1982, Blaðsíða 1
alþýöu blaðió Fimmtudagur 29. iúli 1982 111. tbl. 63. árg. Sameiginlegt skipbrot Sjá leiðara Kosningar og skoðanakannanir Sjá grein bls. 4 „Við eigum að tala minna um gamla fólkið en framkvæma meira” sjá grein bis. 4 Mikil verðlækkun á lýsi og mjöli á mörkuðum heims: w Oseldar birgðir í Suður- Ameríku meginástæðan Mikil verölækkun hefur orðið á lýsi og mjöli á siðustu mánuðum. Nú eru hér á landi birgðir af óseldu fiskimjöli sem nema um 8000 lestum og eru það miklu meiri birgðir en venjulega eru til hér. Astæðan er sú, að fiskimjöl hefur safn- ast fyrir á mörkuðum i Suður- Ameriku vegna mikillar framleiðslu þar, en einnig hef- ur markaðurinn i Evrópu dregist nokkuð saman. Til marks um að hrun sem orðið hefur á verði fiskimjöls þá var gert ráð fyrir þvi i fyrrahaust að rúmir 7 dollarar fengjust fyrir tonnið en reynd- in er sú að nú fást ekki nema um fimm dalir á tonn og er það með allra lægsta verði sem þekkst hefur um árabil. Lýsið hefur einnig hrapað i verði og er komiö niður fyrir 300 dali tonn en reiknað hafði verið með að yfir 400 dalir fengjust fyrir tonnið. Ekki er búist við að neinar verðhækkanir verði á þessum vörum á næstunni og jafnvel talið að verðið geti fariö enn meira niður eftir þvi sem heimildarmenn Alþýöublaðs- ins sögðu igær. Atvinnulífid á Raufarhöfn: „Útgerðin hangir á honiminni” — segir Guðmundur Lúðviksson hjá Jökli hf. Að sögn Guðmundar Lúðviks- sonar hjá Jökli h/f, sem gerir út togarana tvo á Raufarhöfn, hefur útgerðin þar hangið á horriminni um nokkurt skeið. „Hér eru málin leyst frá degi til dags. Aflinn er nokkuð minni en i fyrra, en hann verður þó að telj- ast sæmilegur og ef frá eru taldir erfiðleikarnir vegna skulda og oliukostnaðar hefur þetta gengið þokkalega. Við höfum getað stað- ið við launagreiðslur og höfum ekki þurft að fækka fólki meðan aflinn hefur verið sæmilegur. Eins og er er þvi nóg að gera”, sagði Guðmundur. Á Raufarhöfn hefur verið næg atvinna að undanförnu. Starfs- mönnum hjá Sildarverksmiðju rikisins þar hefur fækkað nokkuð frá fyrri árum en það hefur ekki skapað atvinnuleysi. Þó er það svo að þegar haustar hafa verk- efnin þar verið meiri og þá hafa trillukarlar komið þangað til starfa sem e.k. varavinnuafl. Ekki er útlit fyrir að svo verði i ár, með hliðsjón af stöðvun loðnu- veiðanna. A Raufarhöfn hefur vöxtur bæj- arins verið litill undanfarin ár og hefur dregið úr fólksfjölda frá þvi hann náði hámarki 1978. Þá náði ibúatalan 512, en um þessar mundir búa á Raufarhöfn og i hreppnum um 470 manns. Ekkert Framhald á 3. siðu. óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands tslands. Sjómenn eftir fundinn með Steingrími: fund Steingríms Her- mannssonar sjávarút- vegsráðherra til að fá staðfest hvort líklegt þætti að í væntanlegum aðgerðum ríkisstjórnar- innar fælist skerðing á hlutakjörum sjómanna. Nánar tiltekið er hér átt við þær hugmyndir framsóknar- manna aö hækka fiskverðið framhjá skiptum á bilinu 6 til 6.5%, sem mundi samsvara þvi að oliugjald færi upp i um 13- 14% af fiskverði. Óskar Vigfús- son heíur lýst þvi yfir að slikar aðgerðir myndu þýða lokahögg- Fundarmenn hafa ekki viljað greina náið frá hvað fram fór á fundinum, en i samtali við Al- þýðubiaðið sagöi óskar Vigfús- son, formaður Sjómannasam- bandsins,að vegna þessara hug- mynda hefðu forystumenn sjó- manna ákveðið aö hvetja sina umbjóðendur til að segja upp kjarasamningum sinum. „Sjómannastéttinni er þörf á að hafa vaðið fyrir neðan sig vegnaþessara mála. Við munum gripa til þeírra lögmætu að- gerða sem við teljum þurfa. Við fengum ekki staðfest hvaða til- lögur eru nákvæmlega á ferð- inni, en okkur var tjáð að innan rikisstjórnarinnar væri ekki samstaða um aðgerðir. Það hef- ur verið tilhneiging allra stjórn- valda að krukka i launakerfi MUNUM SEGJfl SAMNINGUNUM UPP - til að knýja á um að ekki verði krukkað i launakjör sjómanna Á þriðjudaginn gengu fulltrúar sjómanna á ið á hlutakjör sjómanna og af- leiðingin yrði stórátök milli þeirra og útgerðarmanna. okkar og við verðum að tryggja að svo verði ekki nú. 1 þvi augnamiði ætlum við að segja upp kjarasamningunum”, sagöi Oskar. Ánægja í herbúðum hvalverndunarmanna: „Mjög ánægð með hvalveiðibannið — segja forsvarsmenn Skuldar, samtaka áhugafólks um y hvalaverndun Samþykkt Hvalveiði- ráðsins um að lækka alla hvalveiðakvóta niður í 0/ sem jafngildir hvalveiða- banni/ mælist misjafn- lega fyrir eins og búast mátti við. Kristján Lofts- son hefur í þessu sam- hengi talað um skrípa- leik. Nú hefur Banda- ríkjastjórn sett alla and- stöðu af islendinga hálfu í hnút# þar eð þeir hóta hva Iveiðiþjóðum að stöðva allan fiskinnflutn- ing frá þeim ef sam- þykktin verður ekki virt. Og þar er auðvitað miklu stærri hagsmuna að gæta. Þegar Alþýðublaðið ræddi við Skúlg Magnússon og Eddu _ Bjarnadóttur, forsvarsmenn ' Skuldar, samtaka áhugafólks um verndun hvalastofnsins.var mikil ánægja rikjandi. „Þetta er vissulega stórfinn áfangi. Við vissum að til þessa kæmi fyrr eða seinna. Þessi á- kvörðun hefði upprunalega átt að koma upp úr 1972, þegar um- hverfismálaráðstefna Samein- uðu þjóðanna samþykkti yfir- lýsingu um að rétt væri að stöðva hvalveiðar meðan stofn- inn væri kannaður rækilega. Þessa yfirlýsingu undirritaði Magnús Torfi Ólafsson, þáver- andi ráðherra, fyrir hönd is- lenskra stjórnvalda. Alþjóða hvalveiðiráðið tók hins vegar þessa yfirlýsingu ekki til greina og var tillaga um þetta felld þar, m.a. af fulltrúa islenskra stjórnvalda. Þetta sýnir tvö- Framhald á 3. siöu. 536 óhöpp og slys í umferðinni w ■ w •¥ i jum Samkvæmt bráðabirgða- skráningu umferðarslysa urðu 536 slys og óhöpp i umferðinni i júnimánuði einum hér á landi. Samkvæmt þessu hefur tala umferðarslysa og óhappa i umferðinni heldur hækkað en samsvarandi tala fyrir júni- mánuð i fyrra var 510. Óhöpp þar sem einungis er um eigna- tjón að ræða voru 487, slys meðmeiðslum voru 47 og hafa þau aukist um þriðjung frá siðasta áriog dauðaslys voru 2 i júni á þessu ári en eitt dauða- slys varð i júnimánuði á sið- asta ári. Það vekur athygli þegar töl- ur um hina slösuðu eru skoð- aðar, að rúmur þriðjungur þeirra er á aldrinum 17-20 ára og þar af er helmingur ökumenn bifreiða og bifhjóla. Tveir staðir á landinu skera sig úr hvað fjölda slasaðra á- hrærir en það eru Reykjavik þar sem 21 slasaðist i mánuð- inum og i Kópavogi, þar sem 16 slösuðust. Vöruskiptajöfnuður jan.-júní óhagstæður um 1353 milljónir: Sjö fiskiskip flutt inn fyrir um 120 milljónir — þar af sex skuttogarar Stöðugt hallar undan fæti i viðskiptum landsmanna. Vöru- skiptajöf nuður landsmanna fyrstu sex mánuði ársins er nei- kvæður um 1353 milljónir króna samkvæmt nýju yfirliti Hafstof- unnar. (Jtflutningur nemur samtals rúmum 3600 milijónum en innflutningur er rúmlega 5000 miiljónir króna, þannig að vöruskiptajöfnuðurinn er langt frá þvl að vera I jafnvægi. Þetta helst I hendur við það verö sem nú er á islensku krónunni, en talið er að erlendur gjaldeyrir sé nú seldur á útsöluverði enda er nú talið að gengisfelling sé ekki langt undan. Það sem hlýt- ur að vekja sérstaka athygli I slðustu fréttatilkynningu Hag- stofunnar, er að alls voru flutt inn 7 fiskiskip á þessu timabili og fyrir þau greitt samtals um 120 milljónir króna. Af þeim sjö fiskiskipum sem flutt voru inn, var eitt frá Dan- mörku, 4 skuttogarar voru flutt- ir frá Bretlandi, einn skuttogari var fluttur frá Danmörku og einn var fluttur frá Noregi. Samtals gerir þessi innflutning- ur nálægt 120 millj. króna. Samtals voru flutt inn skip að upphæð um 250 millj. króna og eru þá með talin vöruflutn- ingaskip og ein bilferja. Af útflutningi var flutt út ál og álmelmi fyrir 441 millj. kr. og kisiljám fyrir um það bil 76 millj. króna. Hagstofan getur þess I at- hugasemd með þessum upplýs- ingum, aö við samanburð á ut- anrikisverslunartölum 1981 veröi að hafa i huga að meðal- gengi erlends gjaldeyris i janú- ar-júni 1982 sé talið vera 42.8% Framhald á bls 3. Hvalur dreginn á land I Hvalfirði. Ferðamenn hefðu örugglega meiri ánægju af að sjá Hvalfjörðinn krökkan af hvali og þar með bera nafn sitt með réttu, telja forsvarsmenn hvalverndarsinna. Stöðugt bætist I fiskiskipaflota landsmanna og dýrmætum gjaldevri er eytt til að stækka flota sem allir eru sammála um að sé allt of stór , — myndin er af aflaskipinu Vigra frá Reykjavík.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.