Alþýðublaðið - 11.09.1982, Qupperneq 3
Laugardagur 11. september 1982
llr skýrslu 4
færslu og þjónustujafnvægis i
landinu.
Þaö þýöir ekki annaö en aö
viðurkenna þaö, aö ekki verður
komist hjá þvi, ef dreifbýlis-
menn vilja halda vöku sinni,að
lita á málin á raunsæjan hátt, aö
jafna verður kosningarétt og
efla heimastjórn i landshlutum,
eftir héruöum og sveitarfélög-
um, auk dreiföar velferöarþjón-
ustu rikisins. Þetta eru verkefni
sem er undirstaða nýrrar
byggðastefnu, sem jafnframt
beinist að nýtingu orkunnar til
stærri og smærri iönþróunar
sem grundvöll varanlegs
byggðajafnvægis. Það þarf
engin aö láta blekkja sig á þvi
að hægt sé aö byggja upp hag-
sæld og atvinnuþróun á upp-
byggingu þjónustustarfsemi
eingöngu, ef undirstöðuna
vantar. Atvinnustarfsemin og
byggöahagsmunir fólksins
veröa aö réttlæta tilfærslu þjón-
ustustarfseminnar og uppbygg-
ingu nýrra þróunarkjarna. Mis-
tökin hafa verið þau, að ekki var
gætt að byggja upp þessar
greinar i kjölfar atvinnuupp-
byggingarinnar.
A sama tima og stjórnar-
skrárbreyting er i undirbúningi
starfar nefnd, sem vinnur að
endurskoðun sveitarstjórnar-
skipulags, og samningu sveitar-
stjo'rnarlaga. Það má segja aö
nú sé kjörið tækifæri fyrir
sveitarstjórnarmenn að láta i
sér heyra um hver sé þeirra
skoðun. Framundan er lands-
fundur Sambands isl. sveitar-
félaga. Það er þvi ekki að
ófyrirsynju, að fyrir þessu þingi
liggur tillaga um, að Fjórðungs-
samband Norðlendinga leiti
samstöðu annarra landshluta-
samtaka um að gæta hagsmuna
landsbyggðarinnar, vegna af-
leiðinga breyttra áhrifa lands-
hlutanna á Alþingi, eftir kosn-
ingalagabreytingu. Það verður
ekki komist hjá þvi að viður-
kenna staðreyndir. Meta verður
gildi landshlutasamtakanna,
sem virkan hlekk i sveitar-
stjórnarkerfinu. I þessu máli
verður að reyna á þolrifin i
samstarfi landshlutasamtak-
anna”.
Dagskrá
Verkalýðsmála-
ráðstefnunnar
Laugardagur, 11. september.
Ráðstefnan i Reykjavfk.
Kl. 10.00
Ráðstefnan sett. örlygur Geirs-
son, varaform. verkalýðsmála-
nefndar.
Framsöguerindi:
Samvinna Norska Verkamanna-
flokksins og Norska Alþýðusam-
bandsins með sérstöku tilliti til
Norður Noregs.
Framsögumaður: Asbjörn
Kristofersen.
Umræður. Fyrirspurnir.
Framsöguerindi:
Samvinna Finnska Jafnaðar-
mannaflokksins og verkalýðs-
hreyfingarinnar i Finnlandi.
Framsögumaður: Kurt Gustafs-
son frá Finnska ASl
Umræður. Fyrirspurnir.
Framsöguerindi:
Alþýðuflokkurinn og verkalýðs-
hreyfingin.
Framsögumaöur: Karvel Pálma-
son, alþingismaður.
Umræður. Fyrirspurnir.
Hádegisverðarhlé.
Pallborðsumræöur: Hvaö getum
við lært af frændum vor-
um — hvernig eigum viö að haga
vinnubrögðum okkar hér á Is-
landi?
Umræöustjóri: Jón Baldvin
Hannibalsson, ritstjóri.
Niðurstööur.
Kl. 18.00.
Ráðstefnuslit.
Sunnudagur 12. september
Ráöstefnan sett á Isafiröi.
Kl. 11.00
Dagskráin að ööru leyti eins og i
Reykjavik.
Kl. 18.30.
Ráðstefnuslit.
Verkalýðsmálanefnd
Alþýðuflokksins.
Um mótun nýrrar byggða-
stefnu segir hann:
„Það er búið aö koma miklu
óorði á byggðastefnuna svo-
nefndu. Þetta má aö mestu
rekja til handabakavinnu-
bragða í Framkvæmdastofnun
rikisins, á kauphallarmarkaði
hinna pólitisku hrossakaupa.
Menn hafa eignað það byggða-
stefnu að of margir skuttogarar
eru i landinu. Séu hins vegar at-
huguð skipakaup siðustu ára
hefur bróðurparturinn af inn-
flutningi farið á Suövestur-
hornið. Fiskvinnslan og út-
gerðin hefur ekki haft viðunandi
rekstursgrundvöll, þannig að
þessi fyrirtæki viðsvegar um
landið hafa lent i vanskilum.
Það er reynt að koma óorði á
byggðastefnu, þegar þessum
rekstri er veitt skuldajöfnunar-
lán úr Byggðasjóði. Þannig má
lengi telja. Hinu gleyma menn
að byggðastefna áttunda ára-
tugsins var sú framleiöslustefna
til lands og sjávar, sem sýndi og
sannaöi að þjóðin gæti búið i
landi sinu á innlendum atvinnu-
vegum. Þetta var uppbygg-
ingarstefna, sem skapaöi þjóð-
inni góð lifskjör.
Nú er þessi þróun stöðvuð.
Aflatakmarkanir draga úr afla-
magni. Skipulagður samdráttur
i landbúnaöi. Margfeldisáhrifin
á byggðastarfsemi, viöskipti og
þjónustu eru aö hverfa. Fólki
mun fækka i sveitum og viö fisk-
veiðar. Liklegt er að um 100
manns á Noröurlandi þurfi á
hverju ári, á þessum áratug, að
hverfa að nýjum atvinnu-
greinum. Hvort sem mönnum
likar betur eða verr verða menn
að horfa framan i þær stað-
reyndir aö hvorki landbúnaður
og sjávarútvegur verða nógu
mannmargar atvinnugreinar til
að standa undir vexti i þjónustu-
greinum”.
iffe RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stödur
LANDSPÍTALINN
HJOKRUNARFRÆÐINGAR og LJÓS-
MÆÐUR óskast á Kvennadeild.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
29000.
SJÚKRALIÐI óskast í hlutastarf virka daga á
dagdeild öldrunarlækningadeildar. Upplýs-
ingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
STARFSMAÐUR óskast á barnaheimili Land-
spítalans við Engihlíð. Vinnutími frá kl. 14.30
til 19.00
Upplýsingar veitir forstöðumaður barna-
heimilisins í sima 29000 (591)
Ví FILSSTAÐASPíTALI
MEINATÆKNIR óskast sem fyrst í hálft
starf á rannsóknastof u Vífilsstaðaspítala.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir í síma
42800
KLEPPSSPÍTALI
HJOKRUNARFRÆÐINGAR óskast sem fyrst
eða eftir samkomulagiá ýmsar deildir spítal-
ans. Barnaheimili og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
38160
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á ýmsar
deildir spítalans.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Klepps-
spítalans í síma 38160
RANNSÓKNASTOFA HASKÓLANS
AÐSTOÐARMAÐUR óskast við krufningar.
Upplýsingar veitir deildarstjóri krufninga í
sima 29000
Reykjavik, 12 september 1982
RÍKISSPITALARNIR
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar óskar eftir tilboðum
i 20 stk. dreifisperra v. Rafmagnsveitu Reykjavikur. Ot-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi. Til-
boö verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 12. október
1982 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Staða
viðskiptafræðings
Hafnamálastoí'nun rikisins óskar að ráða
viðskiptafræðing til að vinna við áætlana-
gerð og kostnaðareftirlit hafnafram-
kvæmda.
Umsóknir um starfið sendist skrifstofunni
fyrir 24. september.
PÓST- OG
SlMAMÁLA-
STOFNUNIN
óskar að ráða
VERKAMENN
til staría i nágrenni Reykjavikur og úti á
landi.
Nánari upplýsingar verða veittar i starfs-
mannadeild
Rikisstarfsmenn
BSRB í BSRB
Utankjörstaöaatkvæðagreiðsla um aðal-
kjarasamninginn er á skrifstofunni
Grettisgötu 89, á skrifstofutima til föstu-
dagsins 17. september
Yfirkjörstaöastjórn
S JÁV AR ÚTVEGSRÁÐ U N E YTIÐ
REYKJAVlK
Laus staða
Staða háskólamenntaðs fulltrúa i sjávar-
útvegsráðuneytinu er nú þegar laus til
.umsóknar. Hagfræði- eða viðskiptafræði-
menntun æskileg. Laun samkvæmt launa-
kerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist ráðuneytinu fyrir 1. október
1982
Nemendur sem vilja læra NORSKU og
SÆNSKU til prófs i stað dönsku komi til
viðtals sem hér segir og hafi með sér
stundaskrár sinar:
NORSKA
5 bekkur mánud.
6 bekkur mánud.
7 bekkur þriðjud.
8bekkur miðv.d
9bekkur miðv.d.
13/9 kl. 17.00
13/9 kl. 18.00
14/9 kl. 17.00
15/9 kl. 17.00
15/9 kl. 18.00
1. og 2. ár framhaldsskóla mæti þriðjud.
14/9 kl. 18.00
SÆNSKA
5bekkur miðv.d.
6bekkur miðv.d.
7 bekkur þriðjud.
8 bekkur þriðjud.
9 bekkur mánud.
15/9 kl. 18.30
15/9 kl. 17.00
14/9 kl. 18.30
14/9 kl. 17.00
13/9 kl. 17.00
1. ár framhaldssk. mæti til kennslu i
Laugalækjarskóla miðv.d. 6/10 kl. 19.30
2 ár framhaldssk. mæti i Laugalækjarsk.
13/9 kl. 18.30
7—10 ára
Ekki er boðið að kenna sænsku og norsku
fyrir 4. bekk, en foreldrar sem vilja láta
kenna 7—10 ára börnum sinum þessi mál
til þess að viðhalda kunnáttu þeirra ættu
að hafa samband við Námsfl. Rvk. i
simum 12992 / 14106 þvi að i ráði er að
setja upp frjálst nám fyrir þau. Reynt
verður að hafa kennslu yngstu barnanna
viðar en á einum stað i bænum.