Alþýðublaðið - 03.11.1982, Qupperneq 3
Miðvikudagur 3. nóvember 1982
3
Fasteignamat ríkisins:
Fasteignaverð hefur hækkað
meir en dæmi eru til áður
Byggingakostnaður hækkaði um 64.1% á einu ári
í nýútkomnu fréttabréfi Fast-
eignamats ríkisins kemur fram að
fasteignaverð hækkaði frá 1. okt.
1981 til sama tíma þessa árs meir
en dæmi eru til um áður. Þetta á
við allar gerðir fasteigna þótt
hækkunin hafi verið breytileg
eftir tegundum og landshlutum.
Byggingakostnaður hækkaði á
þessu tímabili um 64,1% og hefur
hækkunin aldrei verið meiri á
þessu tímabili frá því Fasteigna-
matið tók til starfa 1976. Arin
1977-1981 nam hækkunin nálægt
50% öll árin.
íbúðir í fjölbýlishúsum hækk-
uðu hlutfallslega mest, um 88%
yfir árið.
Frá 1978 hefur verð íbúða á
höfuðborgarsvæðinu hækkað um
nálægt 40% umfram bygginga-
kostnað, en utan þess svæðis hef-
ur íbúðarverð aftur á móti fylgt
hækkun byggingakostnaðar
nokkuð vel.
í september s.l kostaði hver
fermetri í íbúð í fjölbýlishúsi í
Reykjavík 10.600 kr. Þá er miðað
við að íbúðin sé greidd á einu ári.
Samkvæmt útreikningum
Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins, sem er
grundvöllur vísitölu byggingar-
kostnaðar, kostaði fermetrinn
8.900 kr. í okt. Sameign er sleppt
í báðum tilfellum.
Þessar tölur benda eindregið til
þess að íbúðir í fjölbýlishúsum
seljast nú yfir byggingarkostnaði.
Reykjavíkurborgar
1983
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar fyrir árið 1983.
Athygli borgarbúa, svo og hagsmunasam-
taka (t.d. íbúasamtaka), er vakin á að óskir,
tillögur og ábendingar varðandi gerð fjár-
hagsáætlunarinnar þurfa að hafa borist
borgarráði fyrir 15. nóvember n.k.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
1. nóvember 1982.
Flokksstarfid
Aðalfundur
Alþýðu-
flokksfélags
Akraness
Þorvaldur Þorvaldsson var kjör-
inn formaður Alþýðuflokksfélags
Akraness á aðalfundi félagsins, sem
fram fór 1. nóvember s.l.
Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Böðvar Björgvinsson, varafor-
maður, Sigurjón Hannesson, rit-
ari, Baldur Magnússon, gjaldkeri
og Magnús Þórðarson, meðstjórn-
andi.
Líflegar umræður urðu á fundin-
um um starf vetrarins og hyggur
félagið á öflugt starf, en að undan-
förnu hafa því bæst allmargir nýir
liðsmenn.
Á fundinum flutti Eiður Guðna-
son alþingismaður einnig erindi um
stj órnmálaástandið.
Ragnar 1
lögur um framkvæmdir og hraða
þeirra, en eins og ég gat um hafa
engar endanlegar ákvarðanir ver-
ið teknar, þær munu byggjast á
því hvað við treystum okkur til að
taka að láni erlendis frá. Meira er
eiginlega ekki hægt að segja um
málið að svo stöddu", sagði Rang-
ar Arnalds fjármálaráðherra í
_____________________
Marianella 4
og lýðræði. Stjórn Ronalds Reag-
ans er á góðri leið með að leiða
Bandaríkjamenn inn í nýtt
Vietnam-stríð. Við biðjum banda-
rískan almenning að hafna stefnu
Reagans í málefnum MiðAmeríku.
Þetta gerum við til þess að æska
Bandaríkjanna verði ekki send út í
nýtt Víetnamstríð og komið verði í
veg fyrir þjóðarmorð í Mið-
Ameríku.
Hvað getum við gert?
Við Norðurlandabúa viljum við
segja tvennt: í fyrsta lagi að barátta
okkar er barátta fyrir réttlæti. Hitt
er að hafa í huga hverjir sitja á
stjórnlagaþingi E1 Salvador. For-
seti þingsins er Roberto D’Abuis-
son, sem er morðingi Romerbs
erkibiskups. Og það eru fleiri á
stjórnlagaþinginu, sem hafa staðið
að morðum og pyntingum. Og
hvernig getur slíkt þing hlotið
traust þegar allir, þar á meðal leið-
togar þess.eru viðurkenndir morð-
ingjar.
Fólk hefur rétt til að verja sig,
þegar á það er ráðist með vopnum.
Eina hryðjuverkastarfsemin í E1
Salvador er sú sem stjórnvöld
styðjast við til að halda völdum.
Það er mikilvægt að fólk á
Norðurlöndum geri sér grein fyrir
þessu og veiti okkur siðferðilegan
stuðning.
Umsóknir um framlög
úr Framkvæmda-
sjóði aldraðra
Heilbrigöisráöherra hefur staöfest reglur um
úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Skv.
[Deim reglum veitir sjóðurinn framlög meö eft-
irgreindum hætti (reglurnar birtast innan
skamms í B-deild Stjórnartíöinda);
.1. Allt að 10% byggingarkostnaðar íbúða
fyrir aldraða.
2. Allt að 50% byggingarkostnaðar dvalar-
heimila fyrir aldraða.
3. 85% byggingarkostnaðar hjúkrunar- og
sjúkradeilda fyrir aldraða.
Sjóðstjórn auglýsir eftir umsóknum um
framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra árið
1983. I umsókn skal vera ýtarleg lýsing á
húsnæði, fjölda vistrýma, sameiginlegu rými,
byggingakostnaði, fjármögnun og verk-
stöðu.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsóknir skulu hafa borist sjóðstjórninni í
síðasta lagi 1. desember n.k., Laugavegi
116, 105 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra
MFl Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Dagvistun barna Fomhaga 8, simi 27277.
Ný dagheimili
Stöður forstöðumanns dagheimila við Ból-
staðarhlíð og Bústaðaveg eru lausar til um-
sóknar. Fóstrumenntun áskilin. Laun skv.
kjarasamningi borgarstarfsmanna. Umsókn-
arfresturertil 14. nóvember. Umsóknirsend-
ist til skrifstofu Dagvistar barna, Fornhaga 8,
en þar eru veittar nánari upplýsingar.
Hjúkrunarfræðing-
ur- Hafnarfjörður
Vegna forfalla óskast hjúkrunarfræðingur til
afleysingastarfa við skóla-heilsugæslu nú
þegar. Umsóknir sendist undirrituðum að
Strandgötu 6.
Bæjarritarinn Hafnarfirði
FUJ - Reykjavík
Félagsfundur verður haldlnn í kvöld, þriðjudaginn 2. nóvember
klukkan 20.30. Fundarstaður: Hótel Esja, 2 hæð.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosningar til fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík.
3. Stjórnmálaviðhorfið. Frummælandi Sighvatur Björgvinsson al-
þingismaður.
4. Ónnur mál.
Stjórnin.
FUJ - Hafnarfirði
Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 3. nóvember næst-
komandi klukkan 20.30 í Alþýðuhúsinu.
Dagksrá:
1. Greint frá þingi SUJ, sem fram fór um síðustu helgi.
2. Rætt um þing Alþýðuflokksins.
3. Starf vetrarins og fjármál félagsins.
4. önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin
Fulltrúaráð
Alþýðuflokksins
í Reykjavík
Fundur verður haldinn í Fulltrúaráðinu n.k. miðvikudag 3. nóv. kl.
20.30 að Hótel Esju.
Dagskrá:
Kosning fulltrúa í flokksstjórn Alþýðuflokksins fyrir næsta kjörtíma-
bil.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Framboðsfrestur vegna
prófkjörs Alþýðuflokksins
í Reykjavík
Prófkjör um skipan fjögurra efstu sæta á framboðs-
lista Alþýðuflokksins við næstu væntanlegar Alþingis-
kosningar í Reykjavik fer fram dagana 27. og 28.
nóvember 1982.
Kjörgengi hafa þeir, sem fullnægja kjörgengisákvæð-
um laga um kosningar.til Alþingis, og hafa auk þess
skrifleg meðmæli minnst 50 manna, sem flokks-
bundnir eru í félögum Alþýðuflokksins í Reykjavík.
Prófkjör er bindandi um skipan sætis á framboðslista,
ef sá frambjóðandi, sem kjöri nær, hlýtur a.m. k. 20 af
hundraði kjörfylgis Alþýðuflokksins í Reykjavík við síð-
ustu Alþingiskosningar. Berist aðeins eitt löglegt fram-
boð í eitthvert sæti listans er sjálfkjörið í viðkomandi
sæti.
Kosningarétt hafa allir þeir, sem orðnir eru 18 ára og
lögheimili eiga í Reykjavík, enda séu þeir ekki flokks-
bundnir í öðrum stjórnmálaflokki.
Fre nboðsfrestur rennur út kl. 24.00, laugardaginn 13.
nóvember n.k.. Tillögur um framboð ber að senda
formanni kjörstjórnar, Grétari G. Nikulássyni, á skrif-
stofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10, Reykjavík.
Reykjavík 11. október 1982
KJÖRSTJÓRN