Alþýðublaðið - 04.11.1982, Page 3

Alþýðublaðið - 04.11.1982, Page 3
Fimmtudagur 4. nóvember 1982 Attatuj ára: Krístján Sigurðsson, Siglufirði I dag, 4. nóvember, er Kristján Sigurðsson fyrrum verkstjóri og bæjarfulltrúi áttræður. Hann er fæddur og uppalinn Siglfirðingur og er því kunnur hér og á ýmsan hátt nátengdur sögu og uppvexti þessa byggðarlags. Kristján ólst upp í stórum hóp systkina er öll voru og eru kennd við föðurhús þeirra, Eyri í Siglu- firði, en foreldrar þeirra voru dugnaðar- og sæmdarhjónin Andrea Sæby og Sigurður Jónsson. Kristján átti ekki því láni að fagna að ganga menntaveginn, enda voru lítil skilyrði til þess fyrir verkamannabörn á þeim tíma, en meðfæddir eiginleikar og kynni almennings af honum sem traustum manni og félaga urðu til þess að alþýða þessa bæjar fól honum ýmis störf á fé- lagslegum og opinberum vett- vangi, svo að ævisaga hans og nafn eru tengd félagsmála- og bæjarmálasögu Siglufjarðar. Kristján á Eyri gerði trésmíði að ævistarfi sínu og vann í tugi ára við húsasmíði, bátasmíði og við- haldi húsa og báta. Jafnframt var hann verkstjóri á söltunarstöð Samvinnufélags Is- firðinga til fjölda ára. Kristján var harðduglegur verkstjóri og þóttu þau verk ganga vel er hann tók að sér. Ungur að árum skipaði Krist- ján sér í franrvarðarsveit sigl- firskra verkamanna og gegndi þar mörgum trúnaðarstörfunr og tvívegis var hann formaður í þeim samtökum. Hann var einn af þeim stóra hóp siglfirskra ungmenna er stofnuðu tóbaksbindindisfélagið „Gunnar“ undir handleiðslu Guðmundar heitins Skarp- héðinssonar um 1916. Heit þess- ara ungmenna var algert tóbaks- bindindi. Pað heit hefur Kristján haldið þótt áttræður sé. Áfengra drykkja hefur hann aldrei neytt. Þessi reglusemi og staðfesta Krist jáns hlýtur að mega teljast nær einsdæmi og mætti ungt fólk í dag taka sér reglusemi hans og stað- festu sér til fyrirmyndar. Kristján var einn af stofnend- um Kaupfélags Siglfirðinga og varaformaður um margra ára skeið eða þar til starfsemi þess var af mistökum lögð niður. Slíkur baráttumaður, sem Kristján Sigurðss. er.haslaði sér snemma völl við hlið þeirra manna, er aðhyllast hugsjónir og stefnumið lýðræðisjafnaðar- manna og var einn af stofnendum Alþýðuflokksfélags Siglufjarðar 8. janúar 1931 og var kosinn í fyrstu stjórn þess. Síðan hefur hann gengið ótrauður til starfa á þeirn vettvangi og verið einn helsti forvígismaður jafnaðar- manna í þessurn bæ og hvorki séð eftir vinnu né fjármunum, þegar málstaðurinn átti í hlut. Þann 27. janúar 1946 var Krist- ján kosinn í bæjarstjórn en áður hafði hann verið varabæjar- fulltrúi. Bæjarfulltrúi var hann til 27. maí 1974 eða samtals 28 ár. Hann sat 523 bæjarstjórnarfundi. Á árunum 1970 til 1974 var hann forseti bæjarstjórnarinnar. Hann gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir bæjarfélagið, enda er hann í dag manna fróðastur um sögu bæjar- málanna um áraraðir. Það verður aldrei sagt unr Kristján Sigurðsson, að hann tali eins og hver vill heyra. Hann er fljótur að átta sig á málum, er reikningsglöggur maður með af- brigðum og heldur óhikað fram skoðunum sínum og sannfær- ingu, hvort sem áheyrendur eru honum sammála eða ekki. Við fyrstu kynni er hann kannski dá- lítið hrjúfur, en þeim mun traustari, þegar inn úr skelinni er komið. Þeir eru margir siglfirð- ingarnir, sem notið hafa greiða- semi hans og hjálpar, þegar þeir hafa verið í vanda staddir. Dugnaður og hreinskilni, hjálpsemi og trygglyndi eru þeir eiginleikar Kristjáns, sem hafa gert hann traustan forsvarsmann. Slíka menn er gott fyrir land og lýð að eiga. Enn er Kristján hress í anda og fylgist vel með og baráttukjarkúr- inn er óbilaður. Það hefur aldrei verið nein lognmolla kringum Kristján á Eyri. Þar hafa stund- um stríðir stormar blásið, sem hann hefur staðið af sér með sóma, enda alltaf verið vinsæll af alþýðu manna. Kristján er ekkjumaður. Konu sína, Olöfu Gísladóttur, missti hann fyrir nokkrunt árum. Ólöf var mikilhæf og greind kona er bjó manni sínum myndarlegt og gott heinrili og þar átti Kristján gott athvarf, er hann kom þreyttur úr vinnu eða af storma- sömum og erfiðum fundum. Það var ekki tekið út með sældinni að vera verkalýðsleiðtogi og jafnaðarmaður á þeinr tímum og er það svo enn hér í dag. Um margra ára skeið tók Ólöf virkan þátt í störfum Kvenfélagsins „Von“. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en ólu upp fósturdóttur. Þau voru alltaf nrjög barnelsk. Mörg siglfirsk börn komu á heim- ili þeirra og var ætíð tekið mjög hlýlega á nróti þeim. Þetta átti ekki að vera hein ævi- saga Kristjáns Sigurðssonar, heldur aðeins, að öðrum þræði, þakka honum á þessu merka af- mæli öll óeigingjörnu störfin, en að hinurn þræðinum að bera hon- urn kveðju flokkssystkina hans á Siglufirði, sem þakka honurn fórnfús og góð störf fyrir Al- þýðuflokkinn hér, fyrir verkalýðshreyfinguna áður fyrr og bæjarfélagið okkar. Þessi störf verða honum seint fullþökkuð. Við óskum honunr bjarts og góðs ævikvölds. Undir þessar óskir taka allir Siglfirðingar, sern þekkja og hafa kynnst Kristjáni Sigurðssyni. Til hamingju með daginn, gamli vinur og baráttufélagi. Jóhann G. Möller. Kjartan 4 chenarfundinum - andi ótta og uppgjafar, er enn á kreiki”, segir ritstjórinn, og leggur Brésnev al- gerlega að jöfnu við Hitler. Áfram heldur ritstjórinn. Leiðari hans þann 7. nóv. fjallar um friðarhreyfinguna undir yfir- skriftinni „Feigðarhreyfing”. Sami tónninn er og í leiðurum hans 10., 14., og 28. nóvember. Sama gildir um leiðara hans 30. desember: „Friðarsinnar eða friðarspillar” og 18. febrúar: „Vatn á myllu kölska”. Þann27. apríl, nokkrumvikum eftir ívitnaða ræðu formanns Al- þýðuflokksins um utanríkismál, birtist leiðari ritstjórans: Pax so- vética? Þar segir ritstjórinn m.a., að meginmarkmið sovéskrar utanríkisstefnu í okkar heims- hluta sé að rjúfa varnarsamstarf V-Evrópu og Bandaríkjanna með ógnunum. Um þetta segir: „Frammi fyrir þessari hótun er evrópsk utanríkispólitík ekki til. Þetta birtist í sundurleitum og máttvana viðbrögðum V- Evrópuríkja við ágengni Sovéts- tjórnarinnar... Menn hafa notað orðið „Finnlandiseringu” um þetta ástand. Einnig má tala um „nýja Múnchen” - uppgjöf án styrjaldar.” Ég á erfitt með að sjá, hvernig málflutningur ritstjórans getur þjónað málstað þess friðar, sem jafnaðarmenn unr allan heim berjast fyrir. Engu er líkara en ritstjórinn geri sér far um að gefa einhliða og villandi mynd af bar- áttu friðarhreyfingarinnar. Það er eins og hann sé að reyna að vera á eins öndverðum meiði við Þjóðviljann og unnt er. Mönnum gæti jafnvel dottið í hug að hann vilji gera alla friðarviðleitni um þessar mundir tortryggilega. Rit- stjórinn kýs að deila á þá friðar- sinna, sem best liggja við höggi og lengst vilja ganga, hamrar á þvf, að friðarhreyfingin berjist fyrir einhliða afvopnun. Hins vegar sér hann ekki ástæðu til að gera frumkvæði jafnaðarmanna i afvopnunarmálum um þessar mundir að umtaisefni, skýra t.d. frá starfinu innan Alþjóðasam- bands jafnaðarmanna undir for- ystu Kalevi Sorsa, frá störfum Palme-nefndarinnar eða baráttu norrænna jafnaðarmanna fyrir kjarnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndum. Ætli sé ekki rétt- ara að kalla þetta að „halla sér til hægri”, en að „sækja fram fyrir sósíaldemókratískri stefnu?” „Stefna Reagans, Jóns Baldvins og Morgun- blaðsins” Ritstjóri Alþýðublaðsins tekur undir þann málflutning Reagans Bandaríkjaforseta, að Sovét- mönnum hafi tekist að raska hernaðarjafnvæginu sér í hag, þannig að nú hafi Sovétmenn yfirburði (t.d. leiðarar 7. og 10. nóvember). Þetta er meginrök- semd Reagans fyrir aukinni hervæðingu hins vestræna heims: það verði að vinna upp yfirburði Sovétmanna. Við skulum líta á, hvað Palme- nefndin um afvopnunar- og ör- yggismál segir um þetta. Álit nefndarinnar er undirritað ekki aðeins af ýmsum jafnaðar- mönnum, svo sent Olof Palme, Egon Bahr, afvopnunarsérfræð- ingi þýskra sósíaldemókrata, Gro Harlem Brundtland og David Owen, fyrrverandi utanríkisráð- herra Breta, heldur einnig m.a. af Cyrus Vance, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, auk fulltrúa austantjalds- ríkja og ríkja þriðja heimsins. Palme-nefndin segir, að það ríki nokkurn veginn jafnvægi milli Vesturs og Austurs hvað kjarnorkuvígbúnað snertir, sé litið á þau mál í heild, en hins vegar ríki mikið ójafnvægi á ein- stökum sviðum. Þannig hafi Sovétríkin fyrst og fremst ein- beitt sér að kjarnorkueldflaugum á landi niðri, lítið sett í kafbáta og svo sem ekkert í langdrægar sprengjuflugvélar. Bandaríkin hafi hins vegar snúið sér nokkuð jafnt að uppbyggingu allra þátt- anna þriggja. Þannig hafi Sovétr- íkin yfirburði í landflaugum, en Bandaríkin á hinn bóginn í sprengjuflugvélum búnum kjarn- orkuvopnum. Af einhverjum ástæðum beinir ritstjóri Alþýðu- blaðsins sjónum sínum eingöngu að einum þessara þátta, nefnilega landflaugununr, og kemst þvi að villandi niðurstöðu. Ritstjóri Alþýðublaðsins vísar gjarnan til þeirrar merku um- ræðu, sem fram fari um öryggis- og varnarmál Evrópu, úti í heimi, ekki síst íþýskum fjölmiðlum. Ég verð að játa, að ég gat því miður ekki séð, að ritstjóri Alþýðu- blaðsins hefði í leiðaraskrifum sínum og öðrum skrifum orðið fyrir miklunr áhrifum af umræð- um unr þessi mál á meðal þýrskra sósíaldemókrata að minnsta kosti, þótt ég læsi þýsk blöð og tímarit daglega sl. vetur og væri áskrifandi að málgagni þýskra krata, Vorwárts. Surnunt hefði eflaust þótt ástæða til að Alþýðu- blaðið birti eitthvað af skrifum þýskra jafnaðarmanna um þessi efni. En það er vart hægt að tala um að Alþýðublaðið hafi mynd- ast við að gera það. Á hinn bóg- inn virðist ritstjórinn helst hafa talið þörf á að leggja íhaldspress- unni lið í þessum efnunr með við- tali við talsmann hins þýska íhaldsflokks CDU í varnarmálum þann 24. sept. ífyrra meðgrein úr hinu þýska íhaldsblaði Frankfurt- er Allgemeine Zeitung þann 22. okt. og grein 3. des., þar sem byggt er á bandaríska vikuritinu TIME, sem t.d. hefur stutt stefnu Reagans í málefnunt E1 Salvador. Þegar litið er á frammistöðu og málflutning ritstjóra Alþýðu- blaðsins í þessum málum í heild, er þá furða þótt menn spyrði hann saman við íhaldið? Hver furðar sig á því, að Helgi Skúli Kjartansson, unr árabil einn helsti talsmaður ungra jafnaðar- manna, og þó ekki herstöðva- andstæðingur, skuli í nýlegri tímaritsgrein („Kjarnorkuhitler” í Tímariti MM 4/82) tala um „stefnu Reagans forseta, Jóns Baldvins og Morgunblaðsins”? Er velferðarkerfið tóm vitleysa? Hitt málið, sem ég geri hér að umtalsefni, er afstaða ritstjórans til velferðarkerfisins. Það ætti ekki að þurfa að minna á, að baráttan fyrir al- mannatryggingum hefur verið einn snarasti þátturinn f þjóð- málabaráttu jafnaðarmanna. Um þessi efni segir svo í stefnuskrá Alþýðuflokksins (bls. 8): „Mark- mið tryggingakerfisins er jöfnuð- ur lífskjara og frelsi frá ótta urn afkomu og lífsbjörg. Með þvíá að veita öryggi frá vöggu til grafar gegn áföllum af slysum, sjúk- dómum og öðrum erfiðleikum, sem ógna afkonru fólks.” Hvað dettur þá jafnaðarmanni í hug, þegar hann les leiðara Al- þýðublaðsins, „Paradísarmissir”, 6. febrúar sl.? Byrjað er á að lýsa því í háðstón, hvernig velferðar- ríki var komið á fót á Norður- löndum („Það virtust engin tak- mörk fyrir því, hvað „stóri bróðir”, hið alsjáandi ríkisvald, gat gert fyrir börnin sín”.) Síðan segir frá því, að Danir hafi vakn- að upp við vondan draum, hin skandinaviska paradís sé glötuð: „Gömlu ráðin, hærri skattar og meiri ríkisforsjá, duga ekki lengur. Þar er ekki lengur feitan gölt að flá í atvinnulífinu. Það rís ekki lengur undir allri félags- ráðgjöfinni, sem nú er orðin aðal- atvinnuvegur Dana. En hún skilar litlum arði. Að vísu er klámið enn gjaldeyrisaflandi út- flutningsgrein, en samdráttar- horfur þó alvarlegar jafnvel í þeim bransa.” Kannast menn nokkuð við tóninn? Niðurstaða leiðarahöfundar er: „Framti'ðargengi íslenzkra jafnaðarmanna er ekki hvað sízt undir því komið, hvort þeir hafa vit á að láta víti hins danska sósí- aldemókratís sér til varnaðar verða”. Hvað á ritstjórinn við? Ekki eitt aukatekið orð í þessum leiðara getur gefið vísbendingu um að eitthvað kunni að vera rétt á bak við hugmyndina um vel- ferðarríkið, þótt franikvæmdinni kunni að vera ábótavant og of langt kunni að hafa verið gengið. Leiðarann eins og hann kemur fyrir væri allt eins hægt að skilja þannig, að verið sé að boða leiftursókn „a la Reagan og Thatcher”. í leiðara 10. febrúar er þessu enn gefið undir fótinn: „Fjöl- margar rannsóknir renna stoðum undir þá skoðun að velferðar- greiðslur skili sér illa til þeirra, sem helzt þurfa á þeim að halda. Bróðurparturinn fari í að halda uppi skrifræðinu sjálfu og vexti þess.” Það væri þá kannski rök- rétt framhald af þessum „rann- sóknum” að hætta öllum vel- ferðargreiðslum, taka upp stefnu Reagans? Sækjum fram fyrir jafnaðarstefnunni! Ég vil taka það skýrt fram, að ég tel ýmsa Ijósa punkta í mál- flutningi Alþýðublaðsritstjórans, þótt því nriður séu áherslur of víða rangar, og beri allar að sama brunni. Ég tel hins vegar, að vegna þess, hve Alþýðuflokkur- inn hefur takmarkaða möguleika á að koma málfutningi sínum á framfæri við almenning, sé því mikilvægara að nota sérhverja leið því betur. Yfirvegaðri tónn, sem heyrst hefur í Alþýðublaðinu undanfarna mánuði vekur vonir um að bæta nregi það tjón, sem ég óttast að málflutningur ritstjóra Alþýðublaðsins hafi valdið. Núerflokksþingframunda. Ég tel afar mikilvægt, að það taki af öll tvímæli um raunverulega stefnu flokksins m.a. í þeim málaflokkum, sem hér hafa verið ræddir, árétti og útfæri þá stefnu, sem hann markaði sér með stefnuskrá sinni 1976. Sú er ein gæfuleið fyrir Alþýðuflokkinn og íslenzka jafnaðarstefnu. Eru luktir og glitmerki í lagi á hjólinu þínu?

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.