Alþýðublaðið - 04.12.1982, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. desember 1982
3
Ræða Sighvats Björgvinssonar í
vantraustsumræðunum:
Alþýðuflokkurinn vill
kerfisbreytingar í stað
skammtímaráðstafana
Reynslan hefur
dæmt stefnu
ríkisstj órnarin nar
Hér er hvorki staður né stund til
að deila við gamlan samherja. í
fjölmörgum málum höfum við Vil-
mundur Gylfason staðið saman og
barist saman. Pað er ekkert
launungarmál, að ég sé eftir Vil-
mundi úr Alþfl. og svo er um fleiri
flokksbræður mína. En ákvörðun
hans fékkst ekki breytt. Við, gaml-
ir samherjar hans í Alþfl., viljum
kveðja hann án hnjóðsyrða og ósk-
um honum góðs. Merkið stendur
þótt maðurinn falli. Vilmundur
hefur nú vikið sér undan merki
Alþfl. Pað er okkar hlutverk,
hinna, að halda því á lofti. Pað
munum við gera.
Samkv. upplýsingum Þjóðhags-
stofnunar er hraði verðbólgunnar
nú sá hinn sami og var þegar ríkis-
stj. tók við völdum. Störf hennar;
niðurtalning Framsfl. hafa ná-
kvæmlega engum árangri skilað.
Stöndum við þá í sömu sporum og
fyrir tæpum þremur árum? Því
miður ekki.
Rányr/cjustefna
Kaupmáttur umsaminna launa
hefur lækkað um 5% í valdatíð
stjórnarinnar.
Gengi krónunnar hefur rýrnað
um 2/3 á sama tíma.
Nýja krónan er nú 48 aurá virði.
52 aurar af upphaflegu verðgildi
hennar hafa horfið.
Lausafjárstaða banka hefur
versnað þrítugtfalt í tíð ríkisstj.
10% ríkistekna fara nú í að halda
Kjartan 1
uppi fölsku verði á landbúnaðaraf-
urðum og útgjöld þjóðarinnar þess
vegna nema sömu fjárhæð og varið
er til allra heilbrigðismála í
landinu.
Erlendar skuldir hafa í tíð
ríkisstj. aukist á föstu verðlagi úr
11 milljörðum í 17.5 milljarða kr.
eða um 59%.
Þessi stefna er rányrkjustefna.
Fyrir þremur árum varaði
Alþ.fl. þjóðina við, hvað gerast
mundu ef slíkri stefnu yrði áfram
fylgt. Nú hefur reynslan dæmt.
Skammtímaráðstafanir eins og
þær, sem brbl. ríkisstj. eru nýjasta
dæmið um, eru haldlausar. Þess
vegna er Alþfl. á móti brbl. í stað
þeirra krefjumst við kerfisbreyt-
inga. Við viljum nýja stefnumótun
í málefnum atvinnuveganna, svo
að verðmætin, sem þjóðin lætur
þeim í té, fari að skila sér til hennar
aftur í bættum lífskjörum. Við vilj-
um gerbreyta skattakerfinu, setja
mörk á erlendar lántökur og gera
þjóðarátak til þess að losa okkur út
úr feni erlendra óreiðuskulda. Við
viljum skipulega valddreifingu á
öllum sviðum. Breytingar af þessu
tagi verða ekki fluttar í einu þing-
máli. Til þess eru þær allt of
víðfeðmar. Við Alþfl. menn höfum
þegar gengið frá umfangsmiklum
tillögum okkar í veigamestu atr-
iðum þessarar nýju stefnu og mun-
um á næstunni leggja sérstakt kapp
á að kynna þær fyrir almenningi.
Við höfum smíðað vopnin. Við
höfum trú á þeim. Við förum þess á
leit að fá að sýna þá trú okkar í
verki.
Ábyrgðina verðum við
aftur að leiða til
öndvegis
Góðir hlustendur. Stærsti vandi
okkar er samt ekki af efnahags-
legum rótum runninn. íslenska
þjóðfélagið er opið og frjálst en
frelsi má ekki misnota. Það gerist
nú æ tíðara að einstakir hópar og
ráðamenn telja sér ekki lengur
skylt að fylgja leikreglum nema
þeir sjái sér persónulegan hag í því.
Slíkt er ekki frelsi, hæstv. forsrh.,
það er stjórnleysi. Þannig vinnu-
brögð, eru við það miðuð að aðrir
axli ábyrgðina að leikslokum.
Samskiptareglur okkar þurfa
ávallt að vera í endurskoðun og
þeim má vissulega breyta, en menn
verða að virða þær leikreglur, sem
þeir sjálfir setja sér. Engin snilld er
í því fólgin að brjóta það, sem
menn ætla öðrum að virða. Snilld-
in, sem margir halda að felist í því
þegar valdsmenn brjóta leikreglur
sjálfum sér til framdráttar kemur á
síðari stigum fram sem reikningur
til aðdáendanna, reikningur, sem
menn borga fyrir með rýrnandi lífs-
kjörum. Núv. ríkisstj. var mynduð
á þessum grundvelli, ekki til þess
að ná tilteknum árangri, heldur
annars vegar til að færa ákveðnum
einstaklingum upphefð og hins
vegar til þess að reka fleyg í einn af
flokkum þjóðarinnar. Sumir hafa
dáðst að þeim mönnum, sem léku
þessa leiki. Nú, hæstv. forsrh., ert
þú að afhenda aðdáendum þínum
reikninginn.
Góðir áheyrendur. Innan fárra
mánaða verða nýjar kosningar. Ég
vil hvetja ykkur til þess að gera
ykkur ljóst hvaða afleiðingar það
hefur að ýta þá enn frekar undir
það los og ábyrgðarleysi, sem orðið
er þjóðarmein. Slíkur leikur er of
dýru verði keyptur til þess að við
höfum efni á, að láta hann eftir
okkur. Ábyrgðina verðum við
aftur að leiða til öndvegis. Slíkt á
að geta orðið sameiginlegt mark-
mið okkar allra, hvaða stjómmála-
skoðun svo, sem við höfum. Slíkt
verður að vera takmark okkar og
tilgangur, að næstu kosningum
loknum á meðan við enn höfum til
þess tíma.
Markús Á. Einarsson, Salomé
Þorkelsdóttir og Karl Steinar
Guðnason sem lagt hafa fyrir-
spurnina fram. Nánar til tekið eru
spurningarnar þessar:
1) Hvar er að finna lagaákvæði
eða samninga, þar sem Hafnar-
fjarðarkaupstað er gert að taka þátt
í kostnaði við athugun á starfsemi
íslenska álfélagsins, sem iðnaðar-
ráðuneytið hefur staðið fyrir?
2) Hver tók þá ákvörðun að
Hafnarfjarðarkaupstað er gert að
taka þátt í umræddum kostnaði,
sem ríkisbókhaldið tilkynnir í bréfi
5. nóv. s.I.?
3) Hefur Hafnarfjarðarkaupstað
áður verið gert að taka þátt í slíkum
kostnaði?
4) Hefur verið haft samráð við
Hafnarfjarðarkaupstað um þá at-
hugun sem fram hefur farið?
5) Var umrædd ákvörðun tekin
með vitneskju Hafnarfjarðarkaup-
staðar?
6) Hvenær hófust greiðslur á um-
ræddurn kostnaði?
7) Hvernig skiptist kostnaður á
árinu 1981 vegna athugunar á starf-
semi íslenska álfélagsins, að fjár-
hæð kr. 2.831.803 á eftirtalda út-
gjaldaflokka:
a) Aðkeypt sérfræðiþjónusta.
b) Ferðakostnaður.
c) Funda- og risnukostnaður.
d) Annað?
8) Hver er útlagður kostnaður
vegna athugunar á starfsemi ís-
lenska álfélagsins til 31. okt. 1982
og hvernig greinist hann á sömu
útgjaldaflokka?
9) Hefur verið tekin afstaða til
athugasemda Hafnarfjarðarkaup-
staðar vegna umræddrar gjald-
færslu?
Lausar stööur
Borgarverkfræðingurinn
í Reykjavík
óskar að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
1. Almenn skrifstofustörf.
2. Ljósprentun.
Góð kunnátta í íslensku og vélritun ásamt
hæfni til að starfa sjálfstætt áskilin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu sendist skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, fyrir 13.
desember n.k.
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja og Sjóefnavinnslan hf.
óska eftir tilboðum í raufun á fóðurrörum fyrir
gufuholur. Magn ca 3000 m.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu
Guðmundar og Kristjáns, Laufásvegi 12
Rvík. frá og með þriðjudeginum 7. des. 1982.
Tilboðsgögn verða opnuð á sama stað
mánudaginn 13. des. 1982.
Flokksstjórn
Alþýðuflokksins
Fundur verður í flokksstjórn Alþýðuflokksins
n.k. mánudag 6. desember kl. 17.00 í Iðnó
(uppi).
Dagskrá:
1. Alþýðublaðið
2 Kjördæmamálin
3. Onnur mál
Formaður v
Staða
Hafnamálastofnun ríkisins óskar að ráða við-
skiptafræðing.
Starfsvið: Kostnaðareftirlit, áætlanagerð og
bókhald.
Umsóknir sendist fyrir 10. desember.
Hafnamálastofnun ríkisins
Seljavegi 32
Sími 27733
Jektorar
Fyrir lensingu I bátum og fiskvinnslustöðvum.
Síiyirteiygjyir J(S)iri)®®®in)
ESTABLISHED 1 925 — TELE X: 2057 STURLA-IS - TELEPHONES 14610 & 15210
Styrkur til háskólanáms í Hollandi
Hollensk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa íslendingum
til háskólanáms I Hollandi skólaárið 1983-84. Styrkirnir eru
einkum ætlaðir stúdentum sem komnir eru nokkuð áleiðis í
háskólanámi eða kandídötum til framhaldsnáms. Nám við
listaháskóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við
almennt háskólanám. - Umsóknir um styrkina, ásamt nauð-
synlegum fylgigögnum, skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 5. janúar n.k. -
Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
1. desember 1982
ffi| Borgarspítalinn
Ifil LAUSAR STÖÐUR
Afleysingastaða hjúkrunarfræðings á sótt-
hreinsunardeild.
Vinnutími 4 klst. virka daga.
Stöður hjúkrunarfræðinga á ýmsum deildum
spítalans.
Um er að ræða 8 klst. eða 4 klst. vaktir.
Stöður sjúkraliða á lyflækninga-, handlækn-
inga- og endurhæfingadeildum.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrun-
arforstjóra sími 81200.
LAGERMAÐUR
Óskum eftir að ráða lipran mann til framtíðar-
starfa í birgðastöð spítalans sem fyrst. Upp-
lýsingar um starfið veitir Brynjólfur Jónsson í
síma 81200 - 368 milli kl. 10-12.
Reykjavík, 3. des. 1982
Borgarspítalinn