Alþýðublaðið - 18.12.1982, Page 2
Laugardagur 18. desember 1982
^RITSTJÓRNARGREIN
1 X ¥
Afstaða Alþýðuflokksins til bráðabirgðalaganna
hefur allt frá utgáfu þeirra verið skýr og afdráttar-
laus. Alþýðuflokkurinn telur þessar ráðstafanir kák
eitt og skipta litlu um ástand efnahagsmála. Bráða-‘
birgðalögin eru dæmigerð bráðabirgðalausn, - og
Alþýóuflokkurinn hafnar síendurteknum bráða-
birgðalausnum, þar sem ekki er tekið á vandanum,
heldur honum aðeins velt áfram.
Þirigflokkur Alþýðuflokksins gerir sér að sjálf-
sögðu (jóst að til aðgerða verður að grípa vegna
aðsteðjandi efnahagsvanda þjóðarinnar. Þing-
flokkur Alþýðuflokksins hefur í samræmi við þessa
afstöðu flokksins lagt fram tilögur til efnahagsúr-
ræða. Þessar tillögur eru í 8 liðum og fyigja nefndar-
álifl Kjartans Jóhannssonar um bráðabirgðalög
ríkisstjórna.rinnar, en Kjartan er fulltrúi Alþýðu-
flokksins í hefndinni.
I nefndarálitinu er farið nokkrum oröum um inni-
hald bráðabirgðalaganna og þar sagt ma.:
„Ráðstafanir eru gamalkunnar: Einhliöa á-
kvörðun rikisstjórnar um almenna lækkun launa
ásamt skattahækkunum og tilfærslum fjármuna í
kjöifar gengisfellingar. Aðgerðir af þessu tagi hafa
ítrekað verið reyndar á umliðnum árum. Árangur
hefur enginn orðið'þegar litið er til iengri tíma en
örfárra mánaða. Þvert á móti hafa stöðugar bráða-
birgðalausnir af þessu tagi komið í veg fyrir, að
nokkur raunveruleg stefnubreyting hafi verið gerð í
stjórn efnahagsmála, og því í sannleika sagt unnið
gegn þeim markmiðum, sem þeim hefur verið ætl-
að að ná. Þannig mun einnig fara nú.“
í nefndaráliti Kjartans Jóhannssonar eru síðan
tíunduð þau atriði, sem Alþýðuflokkurinn telur
nauðsynleg, sem skref í átt til gerbreytffar stefnu
og stjórnunar í efnahagsmálum þjóðarinnar. Skulu
þessi atriði tíunduð hér, en þingmenn Alþýðu-
flokksins hafa þegar flutt frumvörp og þingsálykt-
unartillögur á Alþingi sem ganga í sömu átt.
1. Með breytingum á lögum um tekju og eigna-
skatt verði komið á afkomutryggingu heimilanna
þar sem þjóðfélagið ábyrgist öllum þegnum
þjóðfélagsins tiltekið lágmark lífskjarastig, sem
verðbólga, skattahækkanir, tekjumissir vegna
sjúkdóma, aldurs og örorku, atvinnumissi og aðrar
fái ekki hróflað við. Jafnframt verði með breyting-
um á sömu lögum tryggð jöfnum á orkukostnaði.
2. Með breytingum á lögum um framleiðsluráð
landbúnaðarins og fjárlögum verði stigið fyrsta
skrefið í afnámi útflutningsbóta á landbúnaðaraf-
urðir með því að lækka þá fjárhæð sem til þess er
ætluð á fjárlögum, um 1/4 hluta. í staðinn verði
landbúnaðinum veittur tfmabundinn framleiðslu-
og framleiðnistyrkur til stuðnings við nýjar og ábat-
asamar búgreinar og uppbyggingu iðnaðar í
dreifbýlinu.
3. Samþykkt verði frumvarp um tímabundna
stöðvun á innflutningi fiskiskipa og hagkvæmni í
endurnýjun fiskiskipastólsins. Áhersla verði lögð á
að efla hagræðingu og tækniframfarir í fiskvinnslu
og breytingar í þá átt gerðar á lögum og reglum um
lánveitingar stofnlánasjóða.
4. Kosin verði á Alþingi nefnd til þess að gera í
samráði við sjómenn og útvegsmenn tillögur um
kvæmni fáist á íslenskum fiskimiðum og hag-
stæðustu útgerðaraðstæður fái að njóta sín.
5. Allt sparifé verði samstundis verðtryggt til
þess að tryggja hag sparifjáreigenda og skapa á ný
nægilegt framboð á lánsfé. Jafnframt verði sam-
þykkt frumvarp um breytingu á útreikningsreglum
lánskjaravísitölu þannig að greiðslubyrði af
verðtryggðum lánum auskist aldrei umfram hækk-
un verðbóta á laun.
6. Til þess að mæta sérstaklega áhrifum
verðtryggingarstefnunnar gagnvart húsbygg-
ingum verði samþykkt frumvarp um sérstök við-
bótarlán úr bankakerfinu tii húsnæðisöflunar.
7. Á næstu þremur árum verði ný eriend lán
takmörkuð við skuldbreytingar og erlenda kostn-
aðarþætti arðbærra framkvæmda, en önnurerlend
lántaka verði bönnuð.
6. Framkvæmdastofnun verði lögð niður í núver-
andi mynd, en byggðastefna verði mörkuð með
afgreiðslu Alþingis á fjármögnunar - og fram-
kvæmdaáætlun í byggóamálum til fjögurra ára i
senn. Framkvæmd slíkra áætlana verði i höndum
aðila, sem lúti sameiginlegri stjórn ríkisvalds og
sveitarfélaga.
í þessum tillögum Alþýðuflokksins er lagt til at-
lögu við efnahagsvanda þann sem að þjóðinni
steðjar. Með ofangreindum aðgerðum yrói stigið
fyrsta skrefið í átttil kerfisbreytingar í efnahagsmál-
,um og gerbreyttra stjórnarhátta.
- GÁS.
RITSTJÓRN ARGREIN
Sundraður Sjálfstæðisflokkur
„Einn flokk til ábyrgðar,“ segir í slagorði Sjálf--
stæðisflokksins. Þar er biólað til kjósenda og þeir
beðnir um að'veita Sjálfstæðisflokknum fulltingi og
tryggja honum meirihlutavald á Alþingi.
v Finnst fólki það fýsilegur valkostur ?
En hvaða flokk í Sjálfstæðisflokknum er verið að
kalla til ábyrgðar, ef fólk krossar við D - ið í kjörklef-
anum. Er þá verið að krossa við Geirsflokkinn,
Gunnarsflokkinn eða-Albertsflokkinn ? Það vita
kjósendur aldrei fyrirfram. Þegar fslenskir kjósend-
ur láta glepjast til stuðnings við Sjálfstæðisflokkinn,
þá er það eins og að veðja hver úrslitin verða og
þannig er því farið með Sjálfstæðisflokkinn, þú
veist aldrei, fyrir víst, hverjir fara þar með völdin
hverju'sinni.
Ef litið er á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í
þessu tilliti, þá er því enn ósvarað hvort hugsan-
legir kjósendur Sjálfstæðisfloksins væru að skipa
Albert Guðmundssyni til öndvegis í flokknum, hvort
Friðrik Sophussón væri á toppnum, hvort Ellert
Schram og DV sætu á valdastólum , eða jafnvel
hvort einhverjum kjósanda hafi dottið í hug að-
styðja við bak Geirs Hallgrímssonar með því að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Allirþessirframbjóðend-
ur hafa með ýmsum hætti reynt að skapa sér sér-
stöðu innan Sjálfstæðisflokksins og hafa þar af
leiðandi verið ósammála í afstöðunni til ýmissa
grundvallaratriða.
Neyðarlegri er þó staðan í Norðurlandi - vestra
hjá Sjálfstæðisflokknum. Ef fólk í því kjördæmi dytti armur flokksins kominn undir og annar klofnings-
í hug að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, hvað væri það hópur tekinn við taumunum.
þá að biðja um ? Óbreytta ríkisstjórn með Pálma Hitt er svo annað mál, að út af fyrir sig væri
Jónsson I ráðherrastóli, en meirihluta þingflokks kannski nauðsynlegt að láta Sjálfstæðisflokkinn
Sjálfstæðisflokksins út á klakanum, eða væri verið einan og óstuddan fá ábyrgð landsmála í hendur.
aö reyna lyfta Eyjólfi Konráð Jónssyni til vegs og Það myndi vafaiaust draga fram ýmis þau svip-
virðingar og koma Pálma út á gaddinn ? Þetia leiftur flokksins, sem foringjar flokksins reyna að
dæmi getur ekki gengið upp.Hvernig ætla þeir að fela fyrir fólki. f stjórnarsamstarfi við aðra aðila,
fara að sjálfstæðismenn á Norðurlandi vestra ? hefur flokkurinn ekki fengið að sýna sitt rétta andlit
Ætlar Pálmi að hrósa ríkisstjórninni í hástert á fram- - andlit afturhalds og íhalds. Það er í sjálfu sér tími
boðsfundum fyrir kosningar, en Eyjólfur Konráð til kominn að fólk fái að sjá Sjálfstæðisflokkinn fyrir
jafnóðum að rífa það niður sem Pálmi hefur sagt ? það sem hann er. Sjálfstæðisflokkurinn lýtur stjórn
Og þetta eru menn, sem sitja hlið við hlið á lista kaupahéðna og lögfræðinga. Allt tal málsvara
Sjálfstæðisflokksins. flokksins um að Sjálfstæðisflokkurinn sé flokkur
En hin forkostulega staða í Norðurlandi vestra er allra stétta, er auðvitað algjörlega út í bláinn. Það
langt frá því einstök ínnan Sjálfstæðísflokksins. þarf ekki annað en líta yfir sviðið og skoða fulltrúa
Línurnar þar eru einfaldlega gleggri, en svipaðar flokksinsá Alþingi. Hvarerufulltrúarlaunafólks?-
uppákomur hafa gerst, eru að gerast og mun ger- Nei, lögfræðingaveldið ræður þar ríkjum í Sjálf-
ast í röðum sjálfstæðismanna. Þar berst einn hóp- stæðisflokknum.
urinn gegn ríkisstjórninni, annar með henni og sá Það væri því freistandi að gefa Sjálfstæðis-
þriðji veit ekki í hvorn fótinn skal stíga. Hvernig er flokknum tækifæri á því að afhjúpa sig. Það er hins
hægt að treysta fiokki til ábyrgðar, sem svona er vegar alltof dýrt spaug að iáta stjórn landsins í
ástatt um ? hendur Sjálfstæðisflokksins eins, þótt um
Það var því skiljanlega ekki mikill sannfæringar- skamman tíma yrði. Þjóðin yrði lengi að ná sér eftir
krafturinn í Geir Hallgrímssyni formanni Sjálfstæð- slíkt tímabil. En sá dagur rennur upp, að gríma
isflokksins í sjónvarpinu fyrr í þessari viku, þegar Sjálfstæðisflokksins fellur; og þá blasir við ramm-
hann lét þá von í Ijós, að Sjálfstæðisflokkurinn fengi asta afturhald og samtryggingarflokkur atvinnurek-
meirihlutaaðstöðu á þingi. Forysta flokksins rekur enda og kaupahéðna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
sem rótlaust þang fyrir veðri og vindum. Einn dag- aldrei verið og verður aldrei flokkur launafólks.
inn er þessi armurinn ofan á, næsta dag er sá -GÁS
Sveitarstjóri - Ólafsvík
Starf sveitarstjóra í Ólafsvík er laust til umsóknar. Starfið veitist frá
1. fébrúar 1983. Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist sveitarstjóra Ólafsvikurhrepps, sem
veitir allar nánari upplýsingar fyrir 7. jan. næstkomandi.
Hrep snefnd Ólafsvíkurhrepps.
Bílbeltin
hafa bjargað
II
UMFERÐAR
RAÐ
Landhelgisgæslan hafði afskipti af
11 netaveiðibátum á 3 vikum
Á seinustu 3 vikum hefur Land-
helgisgæslan haft afskipti af 11
netaveiðibátum, sem stundað
hafa veiðar fyrir Suðurlandi,
Vesturlandi og Norðurlandi.
Bátar þessir hafa verið á neta-
veiðum, ýmist án þess að hafa til-
skilin veiðileyfi frá Sjávarútvegs-
róðneytinu - eða þeir hafa verið
með ranglega merkt veiðarfæri
eða ómerkt, - og einnig hcfur
verið um að ræða of mörg net í
sjó. Landhelgisgæzlan gaf við-
komandi fiskiskipunr fyrirmæli
um að sigla til hafnar og þurftu
því ýmsir bátar að hætta veiðum
strax, svó að settum reglum og
skilyrðum væri uppfyllt.
Mál þessara báta eru tekin fyrir
hjá viðkomandi embættum í
heimahöfnum þeirra. Landhelg-
isgæzlan kannar alltaf af og til á
hafi úti hvort lögboðinn öryggis-
búnaður fiskiskipa sé í lagi og
haffærisskírteinr sömuleiðis og
sendir upplýsingar þar um eftir
hverja skoðun til Siglingamála-
stofnunarinnar. Nú í vikunni
kom varðskip að togara á hafi úti
fyrir Vestfjörðum, sem ekki var
með gilt haffærisskírteini. það
hafði runniö út fyrir rúmum 3
mánuðum síðan. Skipherra
varðskipsins gaf fyrirmæli um að
togarinn skyldi strax sigla til
hafnar og fór hann til ísafjarðar
til þess að koma málum sínum í
lag.