Alþýðublaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 31.03.1983, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 31. mars 1983. Útboð Tilboð óskast í byggingu dagheimilis og leikskóla viö Hraunberg 10 í Reykjavik, fyrir byggingadeild borgarverk- fræðings. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík gegn 3000 kr. skilatryggingu. Tilboöin verða opn- uð á sama stað, þriðjudaginn 19. apríl kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Fóstrur Starf forstöðumanns dagvistarheimilisins á Eskifirði er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. júní en starfið veitist frá 1. ágúst. Bæjarstjóri Laus staða Lektorsstaða í íslenskum bókmenntum við heimspekideild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækj- enda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 18. apríl n.k. Um er að ræöa sömu stööu og auglýst var með auglýsingu dags. 18. þ.m. sem lektorsstaða í bókmenntum við heim- spekideild Háskóla íslands. Menntamálaráðuneytið 28. mars 1983 J.E. Fogarty-stofnunin í Bandaríkjunum býður fram styrki handa erlendum vísindamönnum til rannsóknarstarfa við vísindastofnanir í Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomedical science). Hver styrkur er veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1984—85. Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa umsækj- endur að leggja fram rannsóknaáætlun í samráði við stofn- un þá í Bandaríkjunum sem þeir hyggjast starfa við. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um styrki þessa fást í menntamálaráðuneytinu. — Umsóknir þurfa að hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykja- vík, fyrir 20. júlí n.k. Menntamálaráðuneytið, 24. mars 1983 Lausar stöður Fjórar stööur fulltrúa viö embætti ríkisskattstjóra, rannsóknardeild, eru hér meö auglýstar lausar til um- sóknar frá 15. apríl n.k. Hér er um aö ræöa tvær stööur löglærðra fulltrúa og tvær stöður þar sem viðskiptafræðipróf er æskiiegt, þótt einnig komi til greina menn með verslunarskóla- próf eða samvinnuskólapróf og staögóöa þekkingu og reynslu í bókhaldi. Umsóknir meö upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist skattrannsóknarstjóra, Skúlagötu 57, Reykjavík, fyrir 11. apríl n.k. Reykjavík 18. mars 1983 Skattrannsóknarstjóri. Eiginmaður minn Oddur A. Sigurjónsson fyrrv. skólastj. Hólagötu 24 Vestmannaeyjum lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja aöfararnótt 26. mars. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 2. apríl kl. 17. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Sjúkrahús Vestmannaeyja. Fyrir mína hönd barna okkar, tengdabarna og barna- barna Magnea Bergvinsdóttir Minning_________________ Oddur A. Sigurjónsson, skólastjóri f. 23. júlí 1911 d. 26. mars 1983 Sumarið 1942 voru kosningar til Alþingis. Að venju voru víða haldnir framboðsfundir og sótti ég, þá stráklingur, einn slíkan á Húsavík. Á meðal frambjóðenda, sem komu fram á senunni í sam- komuhúsinu, er mér enn í dag minnisstæður þéttvaxinn en svip- mikill maður, sem þar talaði fyrir Alþýðuflokkinn. Sá reyndist heita Oddur A. Sigurjónsson, og vera þá skólastjóri í Neskaupstað. — Svipmyndin frá þessum fundi þar sem Oddur stóð í miðjum hita hins pólitíska bardaga, hefur mér ávallt verið minnistæð og tákn- ræn, ekki síst eftir að kynni okkar hófust, og hann veitti mér hlut- deild með samstarfi í baráttugleð- inni fyrir málstað þeirra er minna máttu sín, á vettvangi bæjarmála í Kópavogi. Oddur A. Sigurjónsson fluttist til Kópavogs í byrjun sjöunda ára- tugsins og gerðist fyrsti skóla- stjóri nýstofnaðs gagnfræðaskóla þar, en hafði áður stýrt farsællega gagnfræðaskólanum í Neskaup- stað um aldarfjórðungs skeið. — Nokkur átök urðu í skólamálum, út af komu Odds hér til starfa, en hann var fljótur að sigra í þeim átökum, enda bardaga vanur og baráttuglaður. Fór svo í þeim mál- um mörgum árum síðar er Oddur hugðist láta af skólastjóra störf- um skv. eigin ósk, án þess að vera kominn á endanleg aldursmörk opinberra starfsmanna, að sam- kennarar hans óskuðu eindregið eftir því, að hann gegndi skóla- stjórastörfum áfram og varð hann við þeim óskum og stýrði skólan- um af festu og reisn þar til honum þótti sínum tíma lokið og nýir kennsluhættir hér á landi að hefjast, sem honum þótti ekki vera allskostar að sinu skapi. Á Kópavogsárum Odds hafði það fallið í hlut undirritaðs að sitja um nokkurt árabil í bæjar- stjórn Kópavogs fyrir Alþýðu- flokkinn. Meðal allra nánustu stuðningsmanna og hugmynda- fræðinga var Oddur A. Sigur- jónsson, og ekki meiriháttar mál- um ráðið til lykta, án þess að við hann væri rætt og ausið af brunni víðtækrar reynslu hans og þekk- ingar frá árum hans í Neskaup- stað en þar hafði hann átt sæti í bæjarstjórn um árabil. Var hann óspar á tíma sinn í þessum efnum, skrifaði ótal greinar í Alþýðublað Kópavogs á þeim árum, enda ein- dæma baráttufús og bardaga- glaður með stílvopnið í hendi og latti sjaldan stórræðanna en und- ir harðri skel baráttumannsins sló heitt og viðkvæmt hjarta. Greinar hans voru yfirleitt beinskeittar, enda manninum einstaklega létt um áhrifamikinn rithátt og þaul- lesinn í fornsögunum, sem hann vitnaði til eftir þörfum til að krydda mál sitt og stíl. Hann hafði skrifað og gefið út um Iangt skeið í Neskaupstað eigið blað, og hér sunnanlands ritaði hann margar athyglisverðar greinar í dagblöð um áhugasvið sín, með því orðfæri að eftir var tekið. Hann starfaði um skeið eftir að hann lét af kennslustörfum, við blaðamennsku hjá Alþýðublað- inu og ritaði þar fasta dálka. En eftirminnilegastur er þó hinn sterki persónuleiki einarðar skoðanir hans og víllaus tilsvör og málflutningur. Nú að leiðarlokum minnist ég með innilegu þakklæti ánægju- legra stunda á hans góða heimili og óhvikuls stuðnings og vináttu í samstarfi við Odd hér í Kópavogi og sendi eftirlifandi konu hans Magneu Bergvinsdóttur og þeirra stóra og myndarlega afkomenda- hópi samúðarkveðjur. Ásgeir Jóhannesson • Tvær vikur eru liðnar síðan ég heimsótti vin minn, Odd A. Sigur- jónsson, þar sem hann dvaldist á Landspítalanum eftir uppskurð. Sá stutti heimsóknartími var fljótur að líða eins og flestar aðrar stundir, sem við Oddur höfum setið að spjalli. Og þótt ég sæti þarna við sjúkrabeð hans, verður ekki sagt að orðfæri hans væri frábrugðið því, er ég átti að venjast, þegar ég hitti hann að máli áður fyrr í fullu fjöri. Hann fór ekki mörgum orðum um veik- indi sín eða dvölina á Landspítal- anum, en gerði það með þeim hætti að ekki varð varist hlátri, þó að hlátur væri kannski ekki innst í huga. En þannig var Oddur A. Sigurjónsson allar stundir, hress í máli og víkingur á orðsins víga- slóðum. Þegar við kvöddumst þarna á Landspítalanum, þá lá það ein- hvern veginn í loftinu, að báða grunaði, að við ættum ekki eftir að bera saman bækurnar framar, þó að vandlega væri þagað um slíkt. Þess vegna kom mér það ekki á óvart, þegar ég frétti síðast liðinn föstudag, að Oddur væri Iátinn. Hann dó á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum, en þangað hafði hann verið fluttur af Land- spítalanum hálfum mánuði áður. Oddur A. Sigurjónsson skóla- stjóri fæddist 23. júlí 1911 að Grund í Svínadal í Á-Húnavatns- sýslu. Foreldrar hans voru Sigur- jón bóndi að Rútsstöðum í Svína- vatnshreppi, Oddssonar sjó- manns í Brautarholti i Reykjavík, Jónssonar, og Ingibjörg Jósefs- dóttir bónda á Hamri í Svína- vatnshreppi, Jósefssonar. Oddur fæddist ekki með silfur- skeið í munninum. Hann ólst upp með móður sinni, við skorinn skammt veraldlegra lífsgæða.sem í þá daga var tildæmt hlutskipti einstæðra mæðra og reyndar fá- tækrar alþýðu þessa lands yfir- leitt. Þau misjöfnu kjör, sem hann hafði fyrir augunum í upp- vextinu, beygðu hann samt hvorki né brutu niður, heldur hertu hann í eldinum og mótuðu lífsviðhorf hans um alla ævi. Þannig gekk hann snemma til liðs við Alþýðu- flokkinn, til baráttu fyrir betra hlutskipti til handa umkomulaus- um og fátækum, sem þá áttu formælendur fáa. Og síðar gerði hann það að ævistarfi sínu að leiða æskufólk til menntunar og þroska, svo að það þyrfti ekki að lúta sömu örlögum og margur af hans kynslóð, sem varð að láta sér ,það lynda að sitja heima og horfa á eftir embættismanna-og stór- bændasonum til fundar við menntagyðjuna. Sjálfur braust Oddur til mennta af miklu harðfylgi og dugnaði, enda hafði hann til þess alla hæfileika, þó að fararefni væru að öðru leyti af skornum skammti. Gangfræðaprófi lauk hann 1930 og stúdentsprófi frá Menntaskóla Akureyrar 1935, en það nám hafði hann að miklu leyti stundað utanskóla. Próf í forspjallsvísindum tók hann í Há- skóla íslands 1936 og loks kennaraprófi frá Kennaraskólan- um 1937. í fyrstu kenndi hann um skeið i heimabyggð sinni, en 1937 flytur hann til Neskaupstaðar og gerist þar skólastjóri gagnfræðaskólans og síðan einnig iðnskólans þar, sem hann mun hafa átt ríkan þátt í að stofna og að sjálfsögðu að leiða og móta. Eftir langa og farsæla skóla- stjórn í Neskaupstað flytur hann svo með fjölskyldu sína til Kópa- vogs árið 1960 og tekur þar við starfi skólastjóra í nýstofnuðum gagnfræðaskóla staðarins og heit- ir sá skóli nú Víghólaskóli. Þó að pólitískir vindar léku um Odd A. Sigurjónsson í fyrstu, er hann tók við þeim skóla, þá stóð hann þann pilsaþyt af sér og stýrði þeim skóla með festu og öryggi í 14 ár, þannig að sá skóli hefur ávallt verið í fremstu röð meðal jafningja. Það mun Oddi einnig hafa verið mikið ánægjuefni að hafa átt þess kost að leggja fyrstu hornsteinana að menntaskóla í Kópavogi þarna í Víghólaskólan- um, en þar steig menntaskólinn sín fyrstu spor undir leiðsögn hans. Áður er hér vikið að því, að Oddur Sigurjónsson hafi snemma komið til liðs við Alþýðuflokk- inn. Sú liðveisla varð heldur ekki endaslepp. Með hugsjónum jafnaðarmanna stóð hann vígreif- ur til hinstu stundar og hafði þá marga hildi háð fyrir þann mál- stað bæði í ræðu og riti. Slíkur félagsmála- og bardagamaður lét sér það ekki lynda að sitja auðum höndum. í Neskaupstað sat hann tvívegis í bæjarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn, fyrst 1946 - 1950 og síðan aftur 1954 - 1958. Þá var hann einnig í framboðum fyrir Alþýðuflokkinn í S-Múlasýslu og S-Þingeyjarsýslu. Á Neskaup- staðarárunum gaf hann út Hamar, fjölritað blað, sem hann skrifaði og vann að öllu leyti. Óvíða mun málstaður Alþýðu- flokksins hafa verið sóttur og var- inn af meira harðfylgi en á síðum Hamars, enda ritstjórinn ekki þekktur fyrir hálfvelgju, vinguls- hátt eða vettlingatök, hvorki í ræðu né riti. Oddur A. Sigurjónsson kvæmtist eftirlifandi konu sinni, Magneu Sigríði Bergvins dótturfrá Svalbarðseyri, 13. ágúst 1938, dóttur Bergvins Jóhannssonar verkamanns og konu hans Sumar- rósar Magnúsdóttur. Magnea er mikil mannkostamanneskja og hefur án efa reynst manni sínum ómetanlegur lífsförunautur. Hún hefur verið eiginkona, móðir og húsmóðir í þeirri bestu merkingu, sem þau orð hafa í huga og hjarta okkar, enda duld- ist engum, hversu Oddur mat hana mikils. Þau hjón eignuðust sex börn, röskar og dugandi manneskjur, sem bera vitni um hollt og gott uppeldi og þá mannkosti, er þau eiga kyn til. Börn þeirra eru: Rósa Ingibjörg póstfulltrúi í Kópavogi, býr með Sigurði Sigvaldasyni tré- smið, Jóhann Bergvin skipstjóri í Vestmannaeyjum, giftur Maríu Friðriksdóttur, Guðmundur Magnús yfirkennari og bæjarfull- trúi í Kópavogi, giftur Sóleyju Stefánsdóttur, Hrafn Ósk ar stýrimaður í Vestmannáeyjum, sambýliskona hans er Friðrikka Sævarsdóttir, Svanbjörg kennari í' Vestmannaeyjum, gift Sævaldi Elíassyni stýrimanni á Herjólfi, og Lea ljósmóðir í Vestmannaeyj- um. Þegar Oddur A. Sigurjónsson lét af skólastjórn í Kópavogi 1974, gerðist hann blaðamaður við Al- þýðublaðið um fjögurra ára skeið, en þau hjón fluttu síðan heimili sitt til Vestmannaeyja 1978. Ég saknaði vina í stað, þegar þau fluttu úr bænum. Það var allt- af gott og notalegt að sækja þau hjón heim á Skjólbraut og njóta þar þeirrar einlægu gestrisni og vináttu, sem „kom að innan“. Oddur hafði margt að miðla í samræðum. Hann átti að baki sér margvíslega lífsreynslu, var flest- um mönnum minnugri, víðlesinn og fróður í sögu þjóðarinnar fyrr og síðar og bókmenntum hennar fornum og nýjum. Allt þetta lék honum á tungu ásamt ófáum kvæðum og lausavísum, sem hann kunni reiprennandi og gat

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.