Alþýðublaðið - 06.04.1983, Blaðsíða 4
alþýðu- Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. , Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. Blaðamenn: Þráinn Haligrímsson og Friðrik Þór Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Áslaug G. Nieisen. Gjaldkeri: Halldóra JÓnsdóttir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Áskriftarsíminn er 81866
Miðvikudagur 6. apríl 1983
Magnús H. Magnússon
Kosningaloforð Sjálfstæðismanna og Alþýðubanda-
lagsins í húsnæðismálum hafa heyrst víða á undanförnum
dögum. Sjáifstæðismenn lofa nú 80% lánum til þeirra sem
eru að byggja í fyrsta sinn og alþýðubandalagsmenn tala
nú um nauðsyn þess að byggja fyrir unga fólkið. Það er
eins og þeir gieymi því um ieið, að þeir hafi verið í stjórn
undan farin ár. Magnús H. Magnússon skrifaði nýlega í
Brautina grein um þetta efni. Hún fer hér á eftir.
í kosningastefnuskrá sinni lofa
sjálfstæðismenn gulli og grænum
skógum án þess að nokkur þurfi
neitt fyrir það að borga. Þeir lofa
því að takmarka mjög lántökur og
stórlækka alla skatta. Ekkert
minnst á méiriháttar áþreifanlega
lækkun útgjalda.
Samtímis lofa þeir ýmsum úrbót-
um, sem kosta stórfé. Þannig lofa
þeir öllum, sem eignast íbúð í fyrsta
sinn, láni sem nemur 80% af í-
búðarverðinu. Til að standa við
þetta þarf á annað þúsund milljón
krónur á ári og þess fjár verður auð-
vitað að afla með sköttum og lán-
tökum, eða hvað?
Alþýðubandalagsmenn vilja ekki
verða eftirbátar í loforðagerðinni.
Þeir tala nú fjálglega um „íbúðir
fyrir ungt fólk“ og fleira í þeim dúr
og sérstaka sjóðmyndun til að
standa undir lánveitingum til
þessara hluta.
Þessu lofa sömu mennirnir og
skert hafa markaða tekjustofna
Byggingarsjóðs ríkisins um 3/4
hluta síðustu 3 ár og lækkað opin-
ber framlög til íbúðarlánakerfisins i
heild, Byggingarsjóðs ríkisins og
Byggingarsjóðs verkamanna um
meira en helming þann tíma sem
þeir hafa ráðið þessum málum.
Afleiðingarnar eru m.a. þær að
almenn lán til nýbygginga eru að-
eins 10-12% af byggingarkostnaði
staðalíbúða, á móti 45% ef stefna
Alþýðuflokksins frá 1979 hefði ráð-
ið ferðinni, og lán til kaupa á eldri
íbúðum eru svo lág, að varla tekur
að minnast á þau.
Afleiðingarnar eru einnig þær,
að nú er báðum sjóðunum bjargað
frá greiðsluþroti frá degi til dags
með söfnun óhemjumikilla yfir-
dráttar- og óreiðuskulda hjá Seðla-
bankanum og veðdeild Lands-
Þroskahjalp:
Námsstefna um samhæf-
ingu í almennum skólum
veröur haldin í apríl
Landssamtökin Þroskahjálp
gangast fyrir námsstefnu (symposi-
um) í umboði Norrænu samtak-
anna NFPU (Nordiska Förbundet
Psykisk Utvecklingshamning) um
efnið „En skola för alla“ dagana
18r-22. apríl n.k. að Hótel Loft-
leiðum. Sérfræðingarí kennslumál-
um þroskaheftra á öllum Norður-
löndunum munu sækja þessa
námsstefnu, en þar verður fjallað
um samhæfingu á námi þroska-
heftra í hinum almenna skóla og
samræmdar aðgerðir í þeim málum
á Norðurlöndum.
NFPU samtökin eru 20 ára á
þessu ári. Bæði einstaklingar og
félagasamtök á öllum Norðurlönd-
unum eiga aðild að þeim. Þau hafa
frá upphafi haft 6-8 námsstefnur
um málefni vangefinna á hverju ári,
gefa út vandað tímarit — Psykisk
Utvecklingshamning — og halda
Norðurlandaþing 4. hvert ár. Síð-
asta þing í Reykjavík 1979. Það
næsta verður í Stavanger, Noregi i
ágúst n.k.
bankans og nema þær nú 120 millj-
ónum króna.
Hver tekur mark á þeim?
Þegar þær staðreyndir liggja
fyrir, að Alþýðubandalagið er á
góðri leið með að leggja hið opin-
bera íbúðalánakerfi í rúst þá tala
þeir fjálglega um endurbætur og
nýja sjóði. Hver skyldi taka mark á
slíkum málatilbúnaði?
Þegar Alþýðuflokkurinn fór með
stjórn húsnæðismála, árin 1978
-1980, var mörkuð stórhuga og
framsækin stefna í málefnum hús-
næðislánakerfisins. Stefnt var að
uppbyggingu öflugra íbúðalána-
sjóða sem gætu á næstu árum fjár-
magnað, til langs tíma og með við-
ráðanlegum kjörum, ibúðarhús-
næði einstaklinga og leyst um þriðj-
ung íbúðarþarfa landsmanna á fé-
lagslegum grundvelli. Meðal margs
annars var stefnt að því, að almenn
nýbyggingarlán Byggingarsjóðs
ríkisins hækkuðu í fyrirfram á-
kveðnum áföngum, á eigi lengri
tíma en 10 árum, í 80% byggingar-
kostnaðar og samsvarandi hækk-
unar annarra lána.
Með rækilegri úttekt á ítarlegri
áætlanagerð var sýnt fram á, að
þessi markmið voru raunhæf og
viðráðanleg, ef rétt væri að málum
staðið og jafnframt sýnt fram á, frá
ári til árs, hvernig unnt væri að ná
þessum markmiðum.
Ef stefna Alþýðuflokksins hefði
ráðið ferðinni væru almenn ný-
byggingarlán Byggingarsjóðs
ríkisins nú 45% af kostnaðarverði
staðalíbúða í stað 10-12% eins og
nú er og greiðslubyrði lána fyrstu
3-5 árin eftir að byggingarfram-
kvæmdum lýkur eða eftir íbúðar-
kaup aðeins þriðjungur af því sem
nú er algengast.
Við treystum því, að almenning-
ur meti meira vönduð vinnubrögð,
sem ekki eru í neinum tengslum við
kosningar og þar sem þrædd er leið
milli þess mögulega og þess æski-
Iegasta, heldur en innihaldslausar
upphrópanir rétt fyrir kosningar.
Magnús H. Magnússon skrifar um húsnæðismál:
Ef Alþýðuflokkurinn hefði
ráðið ferðinni - næðu lán nú
45% af verði staðalíbúða
Aðalskrifstofa
Alþýðuflokksins
Alþýðuhúsinu, Reykjavík, er opin daglega frá kl. 09.00 - 22.00. Þar er
veitt öll sú aðstoð sem unnt er I sambandi við komandi alþingiskosning-
ar, svo sem upplýsingar (þ.m.t. kjörskrárupplýsingar), gögn og leið-
beiningar.
Símar flokksskrifstofunnar eru 29244, 29273, 29282 og 15020.
KOSNINGA-
SKRIFSTOFUR
ALÞÝÐU-
FLOKKSINS:
Akranes:
Félagsheimilinu Röst, Vesturgötu 53.
Sími: 93-1716.
Akureyri:
Strandgötu 9, sími 96-24399.
Opið kl. 13.30 - 18.00 fyrst um sinn.
Borgarnes:
Skúlagötu 13, sími: 93-7714.
Fyrst um sinn opið kl. 20-22.00 virka daga.
Hafnarfjörður:
Strandgötu 32, simi: 50499. Opið kl. 16-19.00.
Starfsmaður: Hólmfríður Finnbogadóttir.
ísafjörður:
Mjallargötu 5, sími 94-3944.
Opið kl. 13.30-19.00. og kl. 20.00-22.00.
Starfsmaður: Margrét Pálmarsdóttir.
Keflavík:
Bárunni, Hringbraut 106, sími: 92-3030.
Opið eftir kl. 13.00 daglega.
Starfsmaður: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Reykjavík:
Laugaveg 59, jarðhæð (Kjörgarður). Gengið inn frá Hverfisg.
Opið kl. 09.00-22.00 daglega.
Símar: 10027, 10332, 11179, 11307, 13037.
Starfsmenn: Marianna Friðjónsdóttir og Kristinn Grétarsson.
Reykjaneskjördæmi:
Aðalkosningaskrifstofa kjördæmisins er að Jófríðarstaðavegi 11,
Hafnarfirði.
Sími: 53511 og 54053. Opið kl.09.00 - 22.00
Starfsmaður: Ólafur Einarsson.
Kosningasjóður. “
Alþýðuflokksfólk.
Munið kosningasjóði Alþýðuflokksins.
Oft var þörf en nú er nauðsyn.
Sjálfboðaliðar.
Við hvetjum allt alþýðuflokksfólk til að hafa samband við kosninga-
skrifstofurnar og láta skrá sig til vinnu, bæði dagana fram að kjördegi
og á kjördag.
Utankjörfundarkosning.
Skrifstofa Alþýðuflokksins vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu i
Reykjavík er í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10.
Opið daglega kl. 09.00 - 22.00.
Símar 29244, 29273, 29282.
Kosningaskrifstofur Alþýðuflokksins annars staðar á landinu veita
einnig alia aðstoð og upplýsingar.
Alþýðuflokksfólk er vinsamlegast beðið að láta kosningaskrifstofur
flokksins vita um kjósendur Alþýðuflokksins sem ekki verða heima ál
kjördag,
23. apríl n.k.
Kjörskrár.
Upplýsingar eru veittar um kjörskrár á öllum kosningaskrifstofum
flokksins.
Athugið, að kærufrestur rennur út 8. apríl n.k.
Alþýðuflokkurinn.