Alþýðublaðið - 13.07.1983, Page 1
Míövikudagur 13. júlí 1983 99. tbl. 64. árg.
Borgarráð:
40% hækkun á heitu vatni
Hitaveitan hækkað
um 170% á einu ári
Borgarráð ákvað á fundi sínum í
gær að fara að tillögu stjórnar
Veitustofnunar Reykjavíkur og
samþykkja hækkun á heitu vatni í
borginni um hvorki meira né minna
en 42%. Rummetrinn af heitu vatni
hækkar við þetta úr 8.34 krónum í
12 krónur hinn fyrsta ágúst ef verð-
lagsyfirvöld samþykkja hækkun-
ina. Ef þetta gengur fram, þá mun
heitt vatn hafa hækkað í borginni
um 168% á einu ári milli 1. ágúst í
ár og 1. ágúst á síðasta ári. Þetta er
meira en tvöföld hækkun launa á
þessu tímabili. Sigurður E. Guð-
Alger óhæfa að samþykkja stöðug-
ar hækkanir á opinberri þjónustu
á sama tíma og landsstjórnin hefur
sett þrælalög á almennt launafólk
og skorið niður vísitölubætur, seg-
ir Sigurður E. Guðmundsson,
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins
mundsson, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins sagði í samtali við Al-
þýðublaðið í gær, að óverjandi væri
að samþykkja svo mikla hækkun
sem þessa á sama tíma og í gildi
væru þrælalög um afnám samn-
ingsréttar launafólks og vísitala
væri skorin niður hvað eftir annað.
Auk hækkunar á heitu vatni var
einnig samþykkt á sama borgar-
ráðsfundi að hækka stofngjald
hitaveitu fyrir nýbyggingar um
20%. Allir minnihlutaflokkarnir í
borgarstjórn voru á móti þessum
hækkunum.
Sigurður E. Guðmundsson sagði
í gær, að hann gæti út af fyrir sig
fallist á að Veitustofnanir væru
fjárþurfi. Þær ættu eflaust við fjár-
hagsvanda að glíma eins og fjöldi
annarra stofnana og fyrirtækja í
landinu. Hins vegar væri það svo
eftir nýsett þrælalög ríkisstjórnar-
innar, þá eru heimilin í borginni
einnig í gífurlegum fjárhagsvanda
og væri ekki á bætandi með verð-
lagshækkunum hins opinbera
margföldum miðað við launabreyt-
ingar. „Þetta er óverjandi á sama
tíma og launþegar eru sviptir samn-
ingsrétti og vísitölubætur á laun eru
stórskertar“, sagði hann.
Minnihlutaflokkarnir í borgar-
stjórninni sem eiga kjörna fulltrúa
í borgarráði, Alþýðubandalag og
Framsóknarflokkur, greiddu báðir
atkvæði gegn hækkununum, en á-
heyrnarfulltrúarnir þ.e. Sigurður E.
Guðmundsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir fyrir Kvennaframboð,
bókuðu andstöðu sinna flokka.
Góðra vina fundur í Nýja-Miðbœnum
Skammt milli Húss Versl-
unarinnar - Morgunblaðs-
ins og Bandaríska sendi-
ráðsins
Það verður eflaust einhvern tím-
ann góðra vina fundur í Nýja Mið-
bænum við Kringlumýri í Reykja-
vík þegar þau andans stórhýsi verða
risin sem nú er áformað að leiti til
himna úr Kringlumýrinni. Morgun-
blaðið fékk fyrir nokkru úthlutað
lóð í Nýja Miðbænum — skammt
frá stórhýsi Verslunarinnar. Nú hef-
ur Bandaríska sendiráðið bæst í hið
fríða lið sem fyrir er og verður þar
engin smásmíði á ferð.
Davíð Oddsson, borgarstjóri út-
hlutaði á síðasta fundi borgar-
stjórnar bandaríska sendiráðinu
lóð við Ofanleiti/Háaleiti í nýja
miðbænum i Reykjavík. Lóðin er
Framhald á 3. síðu
Borgarráð:
Lóðum undir 970 íbúðir
úthlutað í gær
Á fundi Borgarráðs Reykjavíkur
var í gær úthlutað lóðum undir alls
um 970 íbúðir í borgarlandinu.
Þessar lóðir eru undir einbýlishús
og raðhús í Selási, Seljahverfi, og
fyrstu þremur áföngum í Grafar-
vogslandi, sem koma til fram-
kvæmda í ár og næstu tvö árin.
Borgarráð samþykkti einróma til-
lögur lóðanefndar Reykjavíkur um
úthlutunina. Samþykkt var jafn-
framt að fresta úthlutun lóða í Ár-
túnsholti.
Ný stjórn kjörin
á aðalfundi Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur
Hluti fundarmanna á aðalfundinum á mánudagskvöld. Á innfelldu mynd er nýkjörinn formað-
ur félagsins, Þorsteinn Eggertsson
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur var haldinn á mánu-
dagskvöld. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa var kjörin ný stjórn
fyrir félagið. Guðmundur Haralds-
son lét nú af formennsku í félaginu,
sem hann hefur haft á höndum í
þrjú ár. í skýrslu stjórnar kemur
fram, að alllíflegt starf hefur verið
í félaginu á siðasta starfsári, en hús-
næðisleysi háir þó nokkuð allri
starfsemi Alþýðuflokksfélaganna.
Formaður hinnar nýju stjórnar
Alþýðuflokksfélaganna er Þor-
steinn Eggertsson, lögfræðingur.
Hann sagði í viðtali við Alþýðu-
blaðið í gær, að hann væri bjart-
sýnn á starfið framundan. „Ég hef
mér við hlið í stjórninni dugandi
fólk og við munum reyna að efla fé-
lagið eins og kostur erý sagði hann.
Allmargir hafa að undanförnu
bæst við félagatal Alþýðuflokksins
í Reykjavík og er það ánægjuleg
þróun.
Guðmundur Haraldsson, fyrr-
verandi formaður sagði í skýrslu
stjórnar, að húsnæðisvanda fé-
laganna í Reykjavík yrði að leysa á
næstunni þar eð hann væri stærsti
þröskuldur í vegi fyrir auknu starfi
félagsins. í máli hans kom m.a.
fram að fjölmargir fundir voru
haldnir á vegum félagsins á starfs-
árinu, en auk þess gekkst félagið
fyrir árshátíð og sumarferð, sem var
fjölmenn að vanda. Þá rakti hann
nokkuð áform um byggingu undir
starfsemi félaganna.
Úr stjórn með Guðmundi
Haraldssyni gengu að þessu sinni
þau Guðrún Sigurgeirsdóttir,
Sverrir Kjartansson, Guðmundur
Bjarnason og Þorgrímur Guð-
mundsson.
í hinni nýju stjórn eiga sæti
Þorsteinn Eggertsson, formaður
eins og áður segir. Með honum í
stjórn eru Birna Eyjólfsdóttir,
Maríanna Friðjónsdóttir, Grétar
Nikulásson, Jón Hjálmarsson,
Magnús Marísson og Haukur
Haraldsson.
í varastjórn eru Garðar Jensson,
Lísbet Bergsveinsdóttir og Ágúst
Guðmundsson.
Ekkert lát á verðhœkkunum:
Eðvarð Sig-
urðsson látinn
Eðvarð Sigurðsson, fyrrver-
andi alþingismaður og um ára-
bil formaður Dagsbrúnar í
Reykjavík lést að Egilsstöðum á
sunnudag sjötíu og tveggja ára
að aldri. Hann var alla sína
starfsævi í forystusveit verka-
fólks í Reykjavík, starfsmaður
Dagsbrúnar frá 1944 og for-
maður félagsins um tveggja ára-
tuga skeið. Þá varð Eðvarð Sig-
urðsson einnig formaður Verka-
mannasambands Islands frá
stofnun 1964 til ársins 1975.
Eðvarð Sigurðsson kom víða
við í félagsmálastarfi. Hann var
einn af stofnendum Kommún-
istaflokksins, átti sæti í mið-
stjórn Sósíalistaflokksins og
einnig í miðstjórn Alþýðu-
bandalagsins. Hann átti einnig
sæti í stjórn atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og stjórn Sambands
almennra lífeyrissjóða. Hann
sat á þingi fyrir Alþýðubanda-
lagið frá 1959-1971.
Eftirlifandi kona hans er
Guðrún Þorbjörg Bjarnadóttir.
flllt æðir
upp -
nema
launin
Verðhækkanaskriðan heldur
áfram, enda þótt launin séu bund-
in föst.
í gær hækkaði verð á bensini
um hvorki meira né minna en
13.5% og kostar nú hver bensínlít-
ir 21 krónu og 90 aura. Rúmar
tvær krónur hækkunarinnar
renna til ríkissjóðs, en um 55 aur-
ar til oliufélaganna.
En það var ekki aðeins bensinið
sem hækkaði. Brauð hækkuðu
einnig um allt að 19% smjörlíki
um 5%. Þá varð einnig hækkun á
þjónustugjöldum skipafélaga.
Þessar nýju hækkanir koma í
kjölfar þeirrar verðhækkunar-
skriðu, sem áttu sér stað í júlí-
mánuði, þá m.a. vegna hinnar
stórfelldu gengisfellingar, sem þá
var gerð.
. Visitala framfærslukostnaðar
^ækkaði um heil 14% í mánuðun-
um maí og júní. Á sama tíma
leyfði ríkisstjórnin aðeins 8%
verðbætur á laun og það voru
verðbætur vegna hækkunar fram- .
færsluvísitölunnar í febrúar, mars
og apríl. Það er ljóst að allar þær
hrikalegu verðhækkanir, sem orð-
ið hafa á ýmsum nauðsynjavörum
og sést best i risi framfærsluvísi-
tölunnar, verða á engan hátt bætt-
ar í launum. Ríkisstjórnin hefur
bannað verðbætur á laun og
grunnkaupshækkanir verða eng-
ar fyrr en 1. október næstkom-
andi og þá aðeins um 4%. Og þess
ber einnig að gæta, að búist er við
annarri verðhækkunarskriðu í
haust.
Allt að einu, þá er það fyrir-
Iiggjandi, að þessar verðhækkanir
koma með fullum þunga á launa-
fólk og það verður að leysa dæm-
ið með þeirn peningum, sem það á
nú — eða á ekki — í buddum sín-
um.
Það er þvi hrópleg móðgun við-
alla skynsemi og svívirðilega
blekkingarstarfsemi, þegar fjár-
málaráðherra reynir að slá sjálfan
sig til riddara með hinrii svoköll-
uðu tollalækkun á dögunum, þar
sem einkum voru lækkaðir tollar
á þeim vörum, sem lítt eða ekki
eru keyptar, eins og sykruðum
niðursoðnum ávöxtum, þurrkuð-
um ferskjum og öðru ámóta. Sú
tollalækkun mælcjist 0.25% í
framfærsluvisitölunni. Þeirri
sömu og hækkaði um heil 14% i
maí og júní.
Sífellt hefur verið klifað á því
að skera verði á sjálfvirka víxl-
verkun kaupgjalds og verðlags til
að stemma stigu við verébólgu-
þróun. Nú hefur verið skorið á
þessa víxlverkun með afnámi
samningsréttarms. Einnig hafa
launahækkanir verið bannaðar.
En hinn þátturinn í málinu, verð-
lagið, er látið ganga laust. Það er
einungis hamrað á launafólkinu.
Þvi má blæða. Steingrimur segir
nefnilega að það verði að ná verð-
bólgunni niður, hvað sem það
kostar — þótt það kunrii að kosta
gjaldþrot þúsunda heimila, land-
flótta, og atvinnuleysi. Steingrím-
ur og stjórnin ætla nefnilega að
stjórna þessu þjóðfélagi til til-
breytingar, eins og forsætisráð-
herrann sagði í sjónvarpinu á dög-
unum.