Alþýðublaðið - 27.09.1983, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.09.1983, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. september 1983 3 Hvaö er Kjartan Jóhannsson formaður Alþýðuflokksins flytur ræðu sína á Akranesi. Al- þýðuflokkurinn hefur nú byrjað fundarherferð um allt land undir kjörorðinu: Hvað er ríkisstjórniu að gera þér. Á laugardaginn var einnig fundur á Húsavík, þar sem Árni Gunnarsson og Jón Baldvin Hannibalsson voru frummælendur. Um 70 til 80 manns voru á þeim fundi. Með Kjartani á myndinni er hinn máls- hafinn á Akranesi Eiður Guðnason alþm. og fundarstjórinn Rannveig Edda Hálfdanardóttir. Eiður Guðnason minnti á orð fyrrum formanns fjárveitinga- nefndar nörska þingsins, Gunnar Berge í nýlegu viðtali, þar sem hann segir, að engin ríkisstjórn í Noregi hefði geta gert svo harðar efnahagsráðstafanir sem sú ís- lenska, hvortsem jafnaðarmenn eða hægri menn hefðu verið við völd. Hann hrakti þær fullyrðing- ar talsmanna ríkisstjórnarinnar að aðgerðirnar væru sambærileg- ar við það sem gert hefði verið á öðrum Norðurlöndum á síðustu árum. Hvorki aðgerðirnar í Nor- egi eða Finnlandi á sínum tíma væru sambærilegar við aðgerðir ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar. ráðherra er að skopast að íslensku þjóðinni hún á það ekki skiliðþ sagði formaður Alþýðuflokksins. Kjartan Jóhannsson sagði einnig, að á sama tíma og verið væri að skerða kjör fólks með 12000 krónur í mánaðarlaun, væri hver stórbyggingin á vegum hins opinbera og fjársterkra aðila að rísa. Það þyrfti að beina fjár- magni þangað sem þess væri mest þörf í þrengingum okkar. Ríkis- stjórnin hefði ekki tekið á neinum málum öðrum en launamálum. Ekki hefði verið hróflað við spilltu kerfi í landbúnaði og sjáv- arútvegi. Ofaná þetta allt bættist síðan það að nú ætti að reka ríkis- sjóð með halla, sem þýddi efna- hagsstefnu undir kjörorðinu: Eyðum núna, borgum seinna. Fjölmargar fyrirspurnir komu fram á fundinum og voru umræð- ur fjörugar. Fundarmenn ræddu þaú mál sem hæst ber svo sem húsnæðismál og skattamál. Landsfundir Alþýðubandalags og Sjálfstœðisflokks á nœstunni ÚR EINU Sívaxandi ólga vegna titlatogs Mikil og sívaxandi togstreita gerir nú vart við sig í öfgaflokk- unum tveimur, Sjálfstæðisflokki og Alþýðubandalagi. Ekki milli þessara tveggja flokka eins og oft áður; nei nú eru innanflokks- vandamálin í þessum flokkum yfirþyrmandi. Það eru nefnilega landsfundir Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks í nóvember ( í sitthvoru lagi þó) og það er hart barist um titlana í þessum íhalds- flokkum báðum. Sagan endurtekur sig hjá Sjálf- stæðisflokknum; spurningin er vill Geir áfram eða ekki. Ekki þarf að spyrja þess, að fáir flokks- menn óska eftir Geir áfram, a.m.k. á þessu stigi málsins og kunnugir telja Geir sjálfan ekki sérlega áhugasaman um áfram- haldandi setu á þeim ófriðarstóli, sem formannssætið í Sjálfstæði- flokknum er. Og nákæmlega eins og gerðist nokkrum mánuðum fyrir síðasta flokksfund Sjálf- stæðisflokksins, þá rís upp sveit kandídata, sem telur sig uppfylla öll skilyrði til starfans. Síðast gerðist það, að þrátt fyrir fjölda lysthafenda, þá þótti skásti kost- urinn sá, að Geir yrði áfram. Gæti niðurstaðan orðið sú sama nú? Ýmsir telja ekki ólíklegt að svo gæti farið, þ.e. að Geir sæti áfram til að forða upplausn og stríði inn- an flokksins. Þegar eru komnir fram á sjónarsviðið þrír frambjóðendur til formanns, enda þótt Geir sjálf- ur hafi ekkert formlega gefið út um það, hvort hann vilji sitja áfram eða ekki. En þremenn- ingarnir eru, Friðrik Sóphusson varaformaður flokksins, Þor- steinn Pálsson þingmaður og fyrrum framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins og loks Birgir ísleifur Gunnarsson þingmaður og fyrrum borgar- stjóri. Ýmsir telja að með fram- boði Birgis ísleifs hafi staðfesting fengist á því, að Geir ætli ekki fram, því samstarf þeirra á milli hefur verið einkar náið í gegnum tíðina og þeir sækja styrk í flokknum til svipaðra hópa. En mikið vatn á eftir að renna til sjávar áður en glögg mynd fæst af stöðu foringjaslagsins í Sjálf- stæðisflokknum. Eitt er víst, að miðað við núverandi stöðu mála, þá er alltof fljótt að afskrifa Geir Hallgrímsson. Þróun mála gæti orðið sú sama og stundum áður, að enginn annar valkostur væri fyrir hendi og af mörgum vondum valkostum, væri sá skásti að Geir sæti áfram. Titlatogið í Alþýðubandalag- inu snýst fyrst og fremst um embætti varaformanns. Þar hefur setið Kjartan Ólafsson ritstjóri Þjóðviljans og fallkandídat Tekjur ríkisins að raungildi: 14% lægri en I fyrra Tekjur ríkisins á fyrstu sjö mánuðum ársins voru 14*% lægri að raungildi en á sama tima i fyrra. Það er einkum vegna minnkandi tekna af óbeinum sköttum sem þessi þróun hefur orðið, ríkið hcfur ekki fengið eins mikið í aðra hönd í gegnum söiu- skatt, vörugjald, aðflutnings- gjöld og fleira vegna minnkandi eftirspurnar. Þannig hefur minnkandi kaupmáttur dregið úr tekjum ríkisins af óbeinum skött- um. Samdrátturinn hefur mestur orðið hvað aðflutningsgjöldin varðar, sem í ár hafa verið 29% lægri að raungildi en í fyrra. Inn- heimta söluskatts og orkujöfnun- argjalds hefur á sama tímabili dregist saman um 22% mælt í föstu verðlagi. Hins vegar hafa tekjur ríkis- sjóðs á þessu tímabili vegna beinna skatta, tekju- og eigna- skatta einkum, nokkurn veginn haldist að raungildi, hækkuðu um 86% á þessu ári í krónutölu, á meðan framfærsluvísitalan hækkaði um 84.2%. Gróf atlaga að launafólki Félagsfundur í verkakvenna- félaginu Framtíðinni, Hafnarfirði mótmælir harðlega þeirri kjara- skerðingu og afnámi samningsrétt- ar sem felst í bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar frá því í maí í vor. Frá 1. febrúar til 1. september hækkaði verðlag í landinu yfir 50%. Á sama tíma og verðlag æðir áfram er kjarasamningunum kippt úr sambandi og allar launahækk- anir bannaðar umfram 8% 1. júní og 4% 1. október. Afleiðingin er sú að nú vantar þriðjung á umsamin Til umhugsunar: Ákvörðun Ellerts Schram: Ovirðing við kjósendur Það vekur óneitanlega athygli, þegar nýkjörinn þingmaður ákveður að taka ekki sæti sitt á þingi. Þetta hefur nú gerst. Ellert Schram einn þingmanna Sjálf- stæðisflokksins og ritstjóri DV hefur lýst því yfir, að hann óski eftir launalausu fríi frá þingstörf- um um óákveðinn tima af per- sónulegum ástæðum. Þessum persónulegu ástæðum hefur Ellert lýst í blöðum og sagt að flokksbræður hans í Sjálfstæðis- flokknum vilji lítt sína starfs- krafta nýta og þess vegna sjái hann ekki tilgang sinna starfa á Alþingi. Þessi ákvörðun Ellerts Schram varpar ljósi á ástand innanflokks- mála í Sjálfstæðisflokknum. Einnig vekur það spurningar um eðli og tilgang þingstarfa. Það er greinilegt að hagsmunabaráttan innan Sjálfstæðisflokksins er engu minni nú en fyrr. Titlatogið og persónulegur reipdráttur ein- staklinga og hópa er ennþá vandamál í flokknum. Ellert hef- ur lýst því þannig, að ákveðin valdaöfl í flokknum, „hafi sett hann út í horn“. Hitt er svo annað mál, að kjós- endur kusu Ellert Schram og 59 aðra einstaklinga til þingstarfa í kosningunum í apríl síðastliðn- um. Frambjóðendur lofuðu fyrir þær kosningar að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að vinna þjóðinni og fólkinu í landinu vel. Tæpast verður séð hvernig þeir ætla að fara að því, ef þeir neita svo nokkrum mánuðum siðar að taka sæti á Alþingi. Ellert Schram er enginn ný- græðingur á þingi, þótt ungur sé. Hann hefur setið þar áður og þekkir starfsvenjur þingsins mæta vel, alveg eins og hann er gjörkunnur ástandi innanbúðar- mála í Sjálfstæðisflokknum. Hann mátti því vita, þegar hann bauð sig fram, hver þróun mála yrði. Ekki er því hægt annað en gagnrýna ákvörðun Ellerts Schram. Hann getur ekki varið afsögn sína gagnvart kjósendum Sjálfstæðisflokksins né stuðn- ingsmönnum í prófkjöri flokks- ins með því einu að hann hafi ekki hlotið þá titla né þann frama inn- an Sjálfstæðisflokksins, sem hann hafði dreymt um. Hann var kjörinn þingmaður, en segir af sér því embætti áður en hann hefur störf. Þessi afsögn leiðir einnig hug- ann að stöðu DV í hinu pólitíska litrófi. Þetta er enn ein staðfesting þeirra tengsla sem „hið óháða og frjálsa“ síðdegisblað hefur við Sjálfstæðlsflokkinn. Menn hlaupa úr ritstjórastól þess blaðs inn á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins og síðan til baka aftur, þegar þingmennskan freistar ekki lengur. Það þarf ekki frekar vitn- anna við: DV er og hefur verið blað Sjálfstæðisflokksins. Allt fréttamat og öll pólitísk skrif staðfesta það. Ákvörðun Ellerts Schram leiðir einnig til þess, að Geir Hallgríms- son utanríkisráðherra og formað- ur Sjálfstæðisflokksins sest nú á þing. Hann er fyrsti varaþing- maður reykvískra þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Tæpast mun hins vegar Geir vera fús til að setjast á þing undir þessum kringumstæðum og fá að sitja þar svo lengi sem duttlungar Ellerts Schram segja til um, því hvernær aðstæður gætu breyst á þann veg, að Ellert langaði á þing á nýjan leik. En það sem fyrst og fremst stendur upp úr í þessu máli, er sú óvirðing, sem kjósendum er sýnt með ákvörðun af þessu tagi. Ekki er fráleitt að ætla að með þessari ákvörðun hafi Ellert Schram endanlega undirritað sinn póli- tíska dauðadóm, því þetta er ekki í fyrsta sinn, sem hann hefur ekki þolað pressuna; 1978 stóð hann upp úr öruggu sæti.á lista Sjálf- stæðisflokksins, svo Pétur Sigurðsson mætti komast á þing. Alþýðubandalagsins á Vestfjörð- um. Flokksfólk hefur lítinn áhuga á áframhaldandi varaformanns- setu Kjartans og hann hefur sjálf- ur fundið þann andbyr og metið stöðuna þannig, að betra sé að segja af sér embætti, frekar en falla með skömm á landsfundin- um. Og ýmsir vilja í sætið hans. Talið er þó að slagurinn um vara- formanninn komi til með að tengjast ýmiss konar hagsmuna- streitu, sem átt hefur sér stað innan Alþýðubandalagsins hin síðari ár og hefur meðal annars endurspeglast í hörðum kosning- um til miðstjórnar Alþýðubanda- Iagsins. Þar má finna þrýstihópa, eins og Þjóðviljaklíkuna, sem tengist að hluta til gáfumanna- félaginu eða menntamannaklík- unni, á öðrum vængnum er svo verkalýðsarmur flokksins. Þá má finna togstreitu þéttbýlis og dreif- býlis, karla og kvenna svo fátt eitt sé talið. Vaxandi ólga gerir vart við sig í þessum flokkum báðum eftir því sem nær dregur landsfundum þeirra. Alþýðublaðið fylgist grannt með þróun mála og hita- stigi baráttunnar á næstu vikunr. I ANNAÐ kjör launafólks og þúsundir heimila í Iandinu ramba á barmi gjaldþrots. Samningsrétturinn, einn af horn- steinum lýðræðis í Iýðfrjálsum ríkj- um, er tekinn af aðilum vinnu- markaðarins með lögum. Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn- ar eiga sér ekki hliðstæðu í sögu lýðveldisins. Félagið fordæmir þessa grófu atlögu að launafólki og krefst samningsréttar, afnáms bráða- birgðalaganna og nýrrar efnahags- stefnu. Ráðstefna Ráðstefnan samþykkti eftirfar- andi ályktun: „Ráðstefna Sambands Aiþýðu- flokkskvenna, haldin 24.'septem- ber 1983, fordæmir harðlega það launamisrétti sem ríkir á vinnu- markaðinum. Ráðstefnan samþykkir að efna til þverpólitísks samstarfs um launa- mál kvenna á vinnumarkaðinum. Samþykkir ráðstefnan að boðað verði til fundar kvenna úr öllum stjórnmálaflokkum, þar sem leitað verður samstöðu kvenna í laun- þegahreyfingunni og öðrum áhuga- aðilum um launajafnrétti kynj- anna, sem skipuleggi síðan aðgerðir sem leiði til úrbóta og uppræti launamisréttið". Undir þessa ályktun rituðu: Jó- hanna Sigurðardóttir, Björg Ein- arsdóttir, Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Ragna Bergmann og Jóhanna Friðriksdóttir. Þögn staðreyndum. Hundrað þúsund Suður-Kóreu- menn söfnuðust fyrir nokkru sam- an á íþróttaleikvangi í Seoul til að minnast hinna látnu. Mikil reiði ríkti á þessum fundi í garð Sovét- ríkjanna. „Ágiskanir um að slíkir fundir séu einungis áróðursfundir eru úr lausu lofti gripnar. Maður gleymir fljótt slíkum fullyrðihgum við að vera staddur á staðnum", seg- ir danski blaðamaðurinn Lennart Weber, sem fylgdist með minning- arathöfninni. Hann segir, að mót- mælaaldan í Suður-Kóreu sé í raun- inni mótmælaaðgerð heillar þjóðar og endurspegli reiði alls almennings í landinu. Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði Heldur fund 28.9 kl. 8.30 í Alþýðuhúsi Hafnarfjarðar. Fundarefni: Friðarmál Gestur fundarinser Guðmundur Árni Stefánsson

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.