Alþýðublaðið - 27.09.1983, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 27.09.1983, Blaðsíða 4
alþyðu-S Maðid I Þriöjudagur 27. september 1983 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guómundsson. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guómundur Árni Stefánsson. Blaðamenn: Þráinn Hallgrimsson og Friðrik Þór Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Helma Jóhannesdóttir Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármóla 38, Keykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprcnt hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprcnt, Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 Met í ferðalögum til útlanda Félagsheimili Selljarnarness var þéttsetið allan laugardaginn er þar fór fram ráöstefna um launamál kvenna á vinnumarkaöinum. Samband Alþýðuflokkskvenna stóð fyrir þessu ráöstefnuhaldi, sem greinilega féll í frjóan jarðveg mcðal kvenna á höfuðborgarsvæð- inu. Á annan tug erinda voru flutt, sem fjölluöu öll um launamis- réttið gagnvart konum frá mismunandi sjónarhornum og síðan fóru fram fjörugar umræður og fyrirlesarar svöruðu fjölmörgum fyrirspurnum fundarmanna. Að erindum loknum fór síðan fram pallborðsumræða undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, þar sem- menn skiptust á skoðunum um efni ráðstefnunnar. Krislinn Karlsson, félagsfræð- ingur fjallaði í erindi sínu um launamisrétti kynjanna i ljósi fé- lagsfræðinnar. I máli hans kom fram, að hefðbundin félagsfræði hefði á undanförnum árum verið gagnrýnd fyrir að lita of gagnrýnis- laust á stöðu kvenna i samfélaginu. Hann fór yfir upplýsingar sem fram hafa komið í könnunum á islandi um stöðu kvenna, en þær sýna að atvinnuþátttaka kvenna fer vaxandi hér á landi á síðasta áratug jafn- framt sem fram kemur, að þó að konur sæki nú í vaxandi mæli út á vinnumarkaðinn, þá liggja heim- ilisstörfin mun meira á þeirra herð- um. Einnig kom fram í máli Krist- ins, að konur ráðast fremur i þau störf á vinnumarkaðinum, þar sem þeim eru ekki fengin mannaforráð eða stjórnun. í erindi Hannesar G. Sigurðsson- ar um niðurstöður vinnumarkaðs- könnunar Framkvæmdastofnunar kom m.a. fram, að atvinnuþátttaka kvenna hefur margfaldast frá því 1960 til 1981. Hefur fjöldi kvenna nærri fjórfaldast á vinnumarkaðin- um á þessu kjörtímabili. Á árinu 1980 voru karlar með um nálægt 50% hærri árstekjur en konur. Þar af skýrði lengri vinnutími um 27% mun. Björn Björnsson, hagfræðingur ASI fjallaði um eftirvinnu, bónus og yfirborganir á vinnumarkaðin- um með tilliti til launa karla og kvenna. Fram kom í erindi hans að yfirborganir og yfirvinna skapa stærri hluta af launum verkamanna en verkakvenna, en konur fá hins vegar hærra hlutfall bónuss. Hann deildi mjög á bónusfyrirkomulag- ið, þó að það hefði ákveðna kosti, þá fylgdu því einnig miklir gallar. Finna þyrfti nýtt og heilbrigðara launakerfi til að leysa hinn ómann- eskjulega bónus af hólmi. Vilhjálmur Egilsson, hagfræð- ingur vinnuveitenda fjallaði um viðhorf vinnuveitenda til launamis- réttis í landinu. Hann sagði að verð- mætasköpun fyrirtækja skipti mestu máli og fyrirtæki gætu ekki og mættu ekki láta fordóma og klikuskap ráða ferðinni við t.d. val Framh. á 2. síðu Eftir harmleikinn yfir Sjakalín: Þögn í N-Kóreu Beiskja og reiði í Suður-Kóreu Þegar ríkisstjórn Pouls Schluters tók við rikisforráðum í Danmörku, gáfu ráðherrar og þá sérstaklega forsætisráðherrann Poul Schliiter út yfirlýsingar um að ríkisstjórnin ætlaði að vera heima og stjórna, en láta af' þeim afleita sið fyrri ríkis- stjórna að vera á sífelldum ferða- algert með í utanferðum. Hver ein- asti ráðherra héfur verið á faralds- fæti — nenta kirkjumálaráðherr- ann, sem orðið hefur að vera heima hjá sér og stjórna! Ekki eru allar ferðir ráðherranna opinberar heimsóknir. Sumar ferðir þeirra eru vegna „samráðs“ við starfsbræður í öðrum löndum, aðrar beinlínis á vegum hins opin- bera og enn aðrar sem flokkast ekki undir opinberar ferðir. Af ferðum þeirra félaga má nefna að forsætisráðherrann hefur ekki látið sitt eftir liggja og hefur m.a. heimsótt London, París, Osló, Washington, New York, Thailand, Japan og Helsingfors. Forsætisráðherrann hefur haft svo mikið að gera, að hann hefur leyft sér að heimsækja einar fimm til sjö heimsborgir. Fjármálaráðherrann, Henning Christofersen, hefur einnig verið iðinn við kolann í útlöndum. Hann hefur komið við í New York, Was- hington, Brussel, Frankfurt, Osló London, París, Canada, Stavanger, Bonn, Helsingfors, Rom, Líbanon, Jordan, Moskvu, Genf og Tel Aviv. Reiðir Suður-Kóreubúar fara um götur í Seoul liæfi „bandarískra heimsvalda- sinna“, viku eftir árásina á S-Kóre- önsku vélina. Það er ekki óvenjulegt, að slíkar greinar birtist í málgögnum í Norð- ur-Kóreu. En einmitt vegna þess, hvernig á'stóð, þ.e. að fjöldi fólks hafði misst ættingja sína og vini í suðurhluta landsins, fylltust margir reiði við þessi greinaskrif og einnig vegna þess að ekki var minnst á at- burðinn í fjölmiðlum. En öruggt má telja, að áróður stjórnar Norður-Kóreu nær ekki inn að hjartarótum alls ahnennings í landinu. Margir þeifra sem fórust með flugvél Suður-Kóreanska flug- félagsins eiga einnig ættingja og vini í Norður-Kóreu; og þó að við- brögð þeirra komi ekki fram í fjöl- miðlum í norðurhlutanum, þá má gera ráð fyrir því að þau séu mjög af svipuðum toga og annars staðar i heiminum, þar sem fólk fylgist með Framh. á 3. síðu lögum um heiminn. Reynslan hefur nú sýnt Dönum að þeir sem tala mest um aðhald og sparnað fyrir kosningar, eru ekki reiðuþúnir til að spara og beita aðhaldi þegar á reynir. Þurfum víð íslendingar reyndar ekki að leita út fyrir land- steinana til að sjá það. En hvað um það. Það hefur sem sé komið í ljós, að á síðasta ári á aðhaldsstjórn Pouls Schluters í Danmörku (Sumir myndu segja afturhaldsstjórn) Utanríkisráðherrann gerir það gott í útlöndum. Á lista hans yfir ferða- lög til útlanda eru nú þegar Brussel, Strassborg, Bonn, Maputo, Dar es Salam, Mareru, Osló, Bankok, París og að sjálfsögðu Reykjavík. Kirkjumálaráðherrann er eini ráð- herrann í dönsku aðhaldsstjórn- inni, sem hefur verið heima hjá sér að stjórna aðhaldinu síðasta árið. Of langt yrði upp að telja öll ferðalög ráðherranna. Minnt skal þó á í lokin að gott væri að sjá sam- bærilegan lista yfir ferðalög íslensku ráðherranna frá því að ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar tók við völdum í vor. Hún hefur gefið út fyrirskipanir um sparnað og aðhald í ríkisrekstri, en nú síðustu daga er erfitt að finna þann ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem ekki er í útlöndum. „Þeir ættu að sýna einhver merki um sorg. Við erum þó þrátt fyrir allt í sömu fjölskyldu“. Þetta eru dæmigerð viðbrögð Suður-Kóreu- manna við þögn Norður-Kóreu- manna eftir harmleikinn yfir Sjakalín, þar sem Sovétmenn skutu niður farþegaflugvél með 269 far- þega innanborðs. Þessi atburður hefur eins og nærri iná geta skcrpt andstæðurnar inilli Norður og Suð- ur-Kóreu. Suöur-Kóreumenn eru sárir og reiðir vegna viðbragðanna í norðurhluta landsins. Fréttamenn segja, að reiði manna eftir fjölda- morðiö beinist fyrst og fremst að Sovétmönnum en síðan að vinum þeirra og bandamönnum í Norður- Kóreu. Ekki hefur það bætt úr, aö í Norður-Kóreu hefur ekki verið minnst á þetta mál í fjölmiölum, hvorki í blöðum, útvarpi eða sjón- varpi. Hins vegar birtist í opinberu málgagni stjórnarinnar í Norður- Kóreu grein um giæpsamlegt at- Aðhaldsstjórnin í Danmörku á: Glæsileg ráðstefna Sambands Alþýðuflokkskvenna um launamál: Breiöfylking gegn launamisrétti

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.