Alþýðublaðið - 05.10.1983, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 05.10.1983, Qupperneq 1
al tm u ðu- ! ] h I' ] ið Miðvikudagur 5. október 1983 159. tbl. 64. árg. Ollum ræstingakonum á Sólvangi sagt upp Kjaramálaráðstefna ASV um síðustu helgi: " „Forsætisráðherra hlýtur að geta sett lög um afnám bílafríðinda" segir Pétur Sigurðsson form ASV „Það skýtur skökku við að um leið og forsætisráöherra hvetur fólk til að herða sultarólina, þiggur hann að gjöf frá almenningi fjárhæð sem nemur 30% af húshitunarkostnaöi um 850 íbúða í kjördæmi ráðherr- ans í september“. Svo segir m.a. i kjaramálaályktun Alþýðusam- bands Vestfjarða, sem haldinn var á ísafirði um síðustu helgi. Fundinn sóttu um 30 manns, tveir fulltrúar frá hverju verkalýðsfélagi á svæð- inu. Pétur Sigurðsson, formaður ASV sagði í samtali við Alþýðu- blaðið að fundarmenn hefðu ein- róma fordæmt þá aðför sem ríkis- stjórn Steingríms Hermannssonar Pétur Sigurðsson gerði nú að lífskjörum fólks. „Það var hægt að setja bráðabirgðalög um að svipta launafólk almennum mannréttindum. Það hlýtur því einnig að vera hægt að setja bráða- birgðalög um að breyta reglum um bílagjafir til ráðherra. Hann hefur jú lýst því yfir að hann muni fylgja reglum út í ystu æsar“, sagði Pétur Sigurðsson. Á ályktun ASV segir einnig, að Alþýðusamband — Vestfjarða for- dæmi þau stjórnvöld sem með laga- boði hafi svipt launafólk helgasta rétti sínum. Skorar kjaramálaráð- stefnan á alla landsmenn að beita sér fyrir að þrælalögin verði numin úr gildi. Þá er minnt á að launa- hækkanir frá því á vordægrum hafi verið hér um 8% á meðan verðbólg- an æðir áfram og er yfir 50% á sama tímabili. Launafólk eitt verði nú að greiða verðbólguna niður, en verkalýðs- hreyfingin hafi lagt áherslu á að hún meti allar aðgerðir sem miði að því að lækka verðbólgu í landinu s.s. afnám tekjuskatts á almennar launatekjur, afnám söluskatts á flutningsgjald og lækkun olíu- kostnaðar til húsahitunar. Þá skoraði ráðstefnan á öll aðildarfélög Alþýðusambands Vestfjarða að segja upp kaup og kjarasamningum. „Þessi grófa lágasetning kemur í veg fyrir þjóðarsátt og samstillt átak til viðreisnar atvinnu og efna- hagslifi þjóðarinnar. Ráðstefnan skorar á alla landsmenn að afnema þrælalög þessi“, segir í ályktuninni. Algengt að nær allir starfsmenn undirriti Undirskriftasöfnun launþega- samtakanna gegn afnámi samn- ingsréttarins gengur víðast hvar mjög vel. Algengt er að nær allir starfsmenn fyrirtækja og stofnana skrifi undir áskorunina um að þau ákvæði sem skerða samningsréttinn verði felld úr gildi og að launafólk endurheimti þar með sín grund- vallarmannréttindi. Þánnig má t.d. nefna að í Fisk- iðjusamlaginu á Húsavík, þar sem hátt á annað hundrað manns starfa, hafa allir nema tveir starfsmann- anna skrifað undir. Eins og fram hefur komið í frétt- um stóðu nokkrir stjórnarsinnar á Húsavík fyrir undirskriftasöfnun sem beint var gegn áskorun laun- þegasamtakanna. Alþýðublaðinu hefur ekki tekist að ná tali af þeim sem fyrir þessari söfnun stóðu og eru mjög ólikar fréttir að hafa af undirtektunum við hana. Á skrif- stofu verkalýðsfélagsins var fullyrt að stjórnarsinnarnir hefðu í hæsta lagi fengið 30 manns til að skrifa undir. Hins vegar náði Alþýðublaðið sambandi við einn mann sem skrif- aði undir á lista stjórnarsinna. Full- yrti sá að hann hefði heyrt að undir- tektir við þennan lista hefðu verið mjög góðar þar sem listinn lægi fyr- ir. Sagði sá hinn sami að fólki blöskraði sá þrýstingur sem beyttur væri til að fá fólk til að skrifa undir lista launþegasamtakanna, og að hann væri sannfærður um að nú væri verið að biðja um samnings- réttinn einungis í því skyni að nota hann og þar með að eyðileggja þann árangur sem náðst hefði. Aðspurður hvort hann teldi aðgerð- ir ríkisstjórnarinnar með öllu rétt- lætanlegar, með hliðsjón af fréttum af nauðungaruppboðum, gjald- þroti og ásókn í aðstoð hjá félags- málastofnunum, sagði hann að þær fréttir væru verulega ýktar, þó vissulega væru erfiðleikar til staðar. Tryggingaráð:___________________ Ásökunum ráöuneytis- manna mótmælt Vegna blaðaskrifa um trygg- ingarmál að undanförnu hefur Tryggingaráð samþykkt ályktun þar sem ásökunum tveggja for- stöðumanna heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytisins um að Trygging- aráð hafi sniðgengið lögmætar reglugerðir er mótmælt. Segir í samþykkt Tryggingaráðs, Auglýsingadeild rikisútvarpsins neitaði í gær að birta auglýsingu frá Alþýðuflokksfélaginu á Akureyri, þar sem veriö var að auglýsa fund þeirra Jóns Baldvins Hannibals- sonar og Árna Gunnarssonar, sem fram fór í gærkvöldi á Akureyri. Taldi auglýsingastofa útvarpsins að sneitt væri að ákveðinni persónu í texta auglýsingarinnar, en fundur- inn var auglýstur undir slagorðinu „Ráðherrabíllinn og sultarólin“. Fundur þessi á Akureyri er hluti af fundaröð Alþýðuflokksins, sem haldnir hafa verið að undanförnu um allt land undir orðunum: Hvað er ríkisstjórnin að gera þér? Þegar að á fundi þess 1. júní s.l. hafi reglu- gerðir varðandi vasapeninga verið kynntar fyrir ráðinu með því að lesa þær upp, en að tryggingaráðsmenn hafi ekki fengið þær í hendur, og einnig skýrt frá þvi að ráðuneytið teldi 8% þau, sem ákveðið var með bráðabirgðalögum, eiga að koma ofan á hækkanir þær, sem ákveðn- tilkynning var send um fundarefni frá Akureyri í gær, er lesa átti í há- degisfréttum var í textanum slag- orðið „Ráðherrabíllinn og sultaról- in“. Forráðamenn auglýsingadeild- ar komu þeim skilaboðum á fram- færi við Alþýðuflokksfélagið á Akureyri að með þessum texta væri verið að sneiða að ákveðinni per- sónu. Ekki fylgdi nánari skýring á því er eftir var leitað. Hins vegar samþykkti auglýs- ingadeildin síðar um daginn auglýs- ingu undir slagorðinu „Sultarólin og siðgæðið“. Var þar með siðgæði auglýsi.ngastofu ríkisútvarpsins fullnægt. ar voru með reglugerðunum. Síðan segir: „Tryggingaráð hafði alls ekki fengið tóm til að athuga reglugerð- irnar varðandi áfangahækkanir, tók þær ekki til umræðu á fundi sínum né heldur það bréf, sem ráðuneytið hafði sent endurskoð- enda stofnunarinnar varðandi verð- bætur á þær hækkanir svo sem á aðrar bætur, þar sem þau mál höfðu þegar verið afgreidd af hálfu ráðuneytisins, en fjallað eingöngu um það, hvort réttmætt gæti talist, að ákvæði bráðabirgðalaganna tæki til „vasapeninga" eins og til annarra bótagreiðslna. Tekið skal fram, að ráðinu var ókunnugt að gildistöku reglugerðanna hefði ver- ið breytt að ósk stofnunarinnar af tæknilegum ástæðum. í júníbyrjun, er þessi fundur tryggingaráðs var haldinn, voru bráðabirgðalögin nýsett og málið nokkuð óljóst. Tryggingaráð ákvað því, að svo stöddu, að greidd skyldi 8% hækk- un á þá fjárhæð, sem gilti í maí, en málið athugað betur og viðbót greidd síðar eftir því sem efni stæðu til. Sú athugun dróst þó úr hömlu, því miður. Umræddar bætur (vasapening- ar) verða greiddar hlutaðeigendum á mánaðarlegum útborgunardegi bóta, þann 10. október n.k. svo sem reglugerð ráðuneytisins mælir fyrir um. Enn skal það ítrekað, að með afgreiðslunni 1. júní var trygginga- ráð því ekki að ógilda gerðir fyrr- verandi ráðherra, heldur aðeins að ákveða nánari athugun á túlkun bráðabirgðalaganna. Því síður hef- ur núverandi ráðherra ógilt ákvarð- anir fyrirrennara síns, heldur þvert á móti staðfest þær.“ RUV neitar að birta auglýsingu frá Al- þýðuflokknum: „Ráðherrabíllinn og sultarólin" — samrœmist ekki reglum auglýs- ingadeildar RUV ÖUum ræstingakonum við hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfiröi hefur verið sagt upp - störfum frá áramótum, en þær eru um 12—13 talsins. Þar er ráð- gert að gera breytingar á núver- andi ræstingarfyrirkomulagi á svipaðan hátt og gerðar hafa verið á Landakostsspítala. Breytingar þessar eru umdeildar mjög. Á Landakotsspítala hefur ræst- ingafyrirkomulaginu verið breytt með umdeildum árangri. Fyrirhug- aðar breytingar á Sólvangi eru í svipuðum dúr og búið að segja upp öllu starfsfólki við ræstingu. I fundargerðum stjórnar Sól- vangs kemur fram að breytingin muni m.a. hafa I för með sér fækkun á starfsfólki og hefur því öllu starfsfólki við ræstingu verið sagt upp með þriggja ntánaða uppsagnarfresti frá síðustu mánaðamótum. Gert er ráð fyrir endurráðningu starfsfólks „eins og þörf krefur" og enn fremur að hinir verða látnir ganga fyrir störfum sem „kunna að losna á öðrum sviðum“. Það er mikið til elstu starfs- menn Sólvangs sem verða fyrir þessum uppsögnum og að því er Alþýðublaðið hefur fregnað hyggjast ræstingarkonurnar mót- mæla þessari ákvörðun. Sem fyrr segir eru fyrirhugaðar breytingar í anda þeirrar endurskipulagningar sem átt hefur sér stað að sænskri fyrirmynd í Landakotsspítala og fyrirhugaðar eru á Borgarspítal- anum. Haft er eftir Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur í Tímanum að vegna þessara breytinga hefðu 14 ræstingarkonur og allir ræstinga- Framh. á 2. síðu „Hvað er ríkisstjórnin að gera þér?“ Fjölmennur fundur í Hafnarfirði Hátt i hundrað manns komu á opinn fund Alþýðuflokksins í Hafnarfirði á mánudagskvöldið, undir yfirskriftinni „Hvað er ríkis- stjórnin að gera þér?“ Eftir að alþingismennirnir Kjart- an Jóhannsson, Eiður Guðnason og Karl Steinar Guðnason höfðu flutt framsöguræður tóku við líf- legar umræður þar sem mörg mál voru tekin fyrir. Var andinn á fund- inum mjög á einn veg. Á fundinum kom fram mikil andstaða gegn aðgerðum ríkis- stjórnarinnar. Þótti fundurinn tak- ast vel í alla staði og stóð til um 23.30. Fundarstjóri var Sigþór Jó- hannesson, formaður kjördæma- ráðsins.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.