Alþýðublaðið - 05.10.1983, Side 3
Miðvikudagur 5. október 1983
3
Þroskahjálp með ráðstefnu
um málefni þroskaheftra
Landssamtökin Þroskahjálp, -
sem vinna að málefnum þroska-
heftra verða með landsþing dagana
7. 8. og 9. okt. n.k. I tengslum við
landsþingið efna'samtökin til ráð-
stefnu um málefni þroskaheftra.
Viðfangsefni þingsins verður
stefnumótun í þeim málaflokkum,
sem hafa verið til umfjöllunar á
Nýtt búvöruverð:
Dilkakjötið
upp um 15%
Dilkakjötið hækkaði um 15%
um mánaðamótin, sé miðað við
það verð sem gilti í sumar. Sé hins
vegar miðað við „útsöluverðið" á
gamla kjötinu, sem í gildi verður
til 10. október, nemur hækkunin
allt að 43%.
Mjólkurvörur hækka um 4%.
Mjólkurlítrinn kostar nú 17.10
krónur.
Útsölusúpukjötið kostaði
85.30 kr. kílóið, en kílóið af nýja
kjötinu mun kosta um 122 krón-
ur. Lærisneiðarnar fara hins vegar
úr um 125 kr. kílóið í um 171 kr.
Mjólkurvörurnar hækkuðu
þetta lítið vegna þess að ýmislegt
kom þar til frádráttar, svo sem
eins og niðurfelling á söluskatti
vegna kaupa á vélum, „kreppu-
aðstoð" til bænda frá í sumar og
fleira. Hækkunin á kjötinu varð
hins vegar öllu meiri vegna þess að
nú kom sláturkostnaðurinn inn í
dæmið, en sláturkostnaðurinn
hækkaði um 65% á milli ára.
BSRB Akureyri:
Áskorun
til launafólks
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á fundi BSRB
um afnám samningsréttar og
kjaramál á Akureyri fimmtudag-
inn 29. sept. 1983.
„Fundur starfsmanna ríkis og
bæjar á Akureyri mótmælir ein-
dregið afnámi samningsréttar og
þeirri miklu kjaraskerðingu, sem
launafólk hefur orðið fyrir. Skor-
ar fundurinn á allt launafólk í
landinu að undirrita áskorunina“.
Stjórnmálafrœði
á Islandi:
Umræðufundur
um ástand
og horfur
Umræðufundur verður haldinn á
vegum félagsvísindadeildar Há-
skóla Islands fimmtudaginn 6.
október 1983 í hliðarsal Félags-
stofnunar stúdenta, klukkan 20:30.
Að þessu sinni er fundarefnið
„Stjórnmálafræði á íslandi, ástand
og horfur“. Svanur Kristjánsson,
prófessor hefur framsögu, en síðan
eru almennar umræður.
Fundurinn er öllum opinn en
nemendur í stjórnmálafræði og
stjórnmálafræðingar eru hvattir til
að mæta.
fyrri landsþingum og ráðstefnum
samtakanna þann 8. okt.
Fengnir verða framsögumenn,
sem kunnugir eru þeim umræðum
sem fram hafa farið og er þeim
ætlað að draga fram inntak um-
ræðnanna og leggja fyrir vinnu-
hópa til frekari umfjöllunar er síð-
an skila áliti til aðalfundar. Vinnu-
hóparnir starfa eftir hádegi laugar-
daginn 8. okt. og verða niðurstöður
þeirra lagðar fyrir starfsnefndir
aðalfundarins.
Við mælumst til að þingfulltrúar
rifji upp og kynni sér umfjöllun
fyrri þinga og ráðstefna samtak-
anna um þessa málaflokka og lát-
um við fylgja hér með þessu upp-
talningu greina er birst hafa í Tíma-
ritinu þessu lútandi og vísum til sér-
rita um sama efni.
Með tilliti til þeirra aðstæðna
sem nú ríkja í þjóðfélaginu er
brýnna en nokkru sinni fyrr að
marka ábyrga og raunæfa stefnu i
málefnum þroskaheftra. Væntan-
legir fulltrúar eru hvattir til að taka
virkan þátt í störfum þingsins og
koma skoðunum sínum á framfæri
svo stjórnvöldum megi verða ljós
vilji samtakanna og stefnumörkun.
I tengslum við ráðstefnuna verð-
ur efnt til heimsókna í stofnanir í
Reykjavík ef næg þátttaka fæst.
Þær ferðir eru ætlaðar fulltrúum
utan af landi, en óskir hafa komið
fram um að efnt yrði til slíkra ferða
í tenglsum við landsþingin.
Eftirtaldar stofnanir hafa lýst sig
fúsar til að taka á móti gestum
föstudaginn 7. okt.:
Kl. 10.00 Stofnanir Styrktar-
félags vangefinna við Stjörnugróf
7—9.
- Bjarkarás, starfsjálfunar og
kennslustofnun.
- Lækjarás, þjálfunarstofnun.
- Ás, vinnustofur.
Kl. 13.00 Safamýrarskóli, þjálf-
unarskóli, Safamýri 5. Lyngás, dag-
heimili, Safamýri 5.
Tekið verður á móti þátttakend-
um við Bjarkarás kl. 10.00 föstu-
daginn 7. okt. og stofnanir félags-
ins skoðaðar. Þaðan verður haldið
að Safamýrarskóla.
Tilkynningu um þátttöku ber að
senda með kjörbréfum á skrifstofu
Þroskahjálpar, Nóatúni 17, 105
Reykjavík, fyrir 25. sept. n.k.
Verslunarráð íslands:
Stefna ríkisstjórnar
innar getur leitt til
atvinnuleysis
Á almennum félagsfundi hjá
Verslunarráði íslands var nýlega
samþykkt ályktun þar sem á það
var bent, að þó margt hafi áunnist
i stjórn efnahagsmála á skömmum
tíma séu mörg viðfangsefni enn ó-
leyst. Er bent á of stóran fiski-
skipastól miðað við afrakstur fiski-
miða, offramleiðslu í landbúnaði
og fjárfestingamistök.
I ályktuninni segir, að þær að-
gerðir sem gripið var til í sumar til
að ná jafnvægi í efnahagslífinu og
laga útgjöld þjóðarinnar að lægri
þjóðartekjum hafi „að sjálfsögðu
orsakað samdrátt í atvinnulífinu á
vissum sviðumþ og að þetta kunni
að leiða til minni atvinnu og jafnvel
atvinnuleysis ef ekki er brugðið rétt
við tímanlega. Bendir V.í. á nokkur
atriði sem það telur að gera eigi, að
lögum um tekju- og eignarskatt
verði breytt, á frjálsa verðmyndun,
frjálsræði í gjaldeyrisviðskiptum,
dregið úr skattheimtu og skipulagi
lánamála verði breytt.
Enn fremur segir í ályktuninni að
þeim árangri sem þegar hefur náðst
sé „auðvelt að spilla með óraun-
hæfum kjarasamninguml*
Landsþing haldiö að
Hótel Loftleiðum
dagana
7^9. okt. 1983.
Dagskrá
iroskahjá/p
NÚATÚN117,105 RÉYKJA VlK SlMI23901
Föstudagur 7.okt.
Kl. 20.30 Þingsetning: Eggert Jóhannesson, for-
rnaður
Ávarp: Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra
Raeða: Vilhjálmur Hjálmarsson, frv. ráð-
herra
Milli atriða verður tónlistarflutningur. Að
lokinni þingsetningu er þingfulltrúum og
gestum boöið til kaffisamsætis í Kristal-
sal.
Laugardagur 8. okt.
Kl. 09.00 Ráðstefna um málefni og markmið
samtakanna.
Stutt framsöguerindi:
Fjallað verður um eftirtalda málaflokka
m.a. í Ijósi þeirra umræðna, sem fram
hafa farið innan samtakanna á undan-
förnum árum:
1. Mennta- og skólamál: Einar Hólm
Ólafsson, yfirkennari.
2. Langtímavistun/heimili: Lára Björns-
dóttir, félagsráðg. Jón Sævar Alfons-
son, skrifst. st.
3. Atvinnumál: Friðrik Sigurðsson,
þroskaþjálfi
4. Ráðgjöf og stuðningur við fjölskyldur:
Halldóra Sigurgeirsd., húsm. Þor-
steinn Þorsteinsson, bóndi
5. Ráðstöfun fjármagns til framkvæmda
og uppbyggingar: Bjarni Kristjánsson,
framkvst.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.30 Vinnuhópar taka til starfa og ræöa efni
áöur upptalinna erinda.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Niöurstöður vinnuhópa kynntar.
Kl. 16.30 Erindi um réttindagæslu þroskaheftra,
Jóhann Guðmundsson, læknir.
Kl. 16.45 Stuttar umræður.
Kl. 17.00 Ráðstefnuslit.
Kl. 19.30 Sameiginlegur kvöldverður þingfulltrúa
og gesta í Blómasal.
Sunnudagur 9. okt.
Kl. 9.00 — 12.00 Aðalfundarstörf Landssam-
takanna Þroskahjálpar.
Kl. 13.30 — 17.30 Aðalfundarstörf Landssam-
takanna Þroskahjálpar.
Ath. Aðaláhersla verður lögð á umræður um niður-
stöður vinnuhópa og ályktanir í framhaldi þeirra.
Þessar umræður hefjast strax að loknu matarhléi.
Ráöstefnan, laugardaginn 8. okt., eröllum opin og er
áhugafólk um málefni þroskaheftra og aörir sem því
tengjast hvattir til að sækja ráðstefnu þessa.
Landssamtökin Þroskahjáip.
HAB
VIÐ MINNUM A
Happdrætti Alpýðuflokksins
og Alpýðublaðsins
1983
Vinningar:
1. Mazda Gupe GLX kr. 353.000:
.2.-11. Utanlandsferðir meö
Úrval hver að upphæð kr. 30.000 -
Vinninga skal vitja innan árs
Margfaldur verðlaunabíll
Bfll ársins f Bandarfkjunum og Japan
Verð kr. 10a
Upplag 35.000
Upplýsingasími 91-81866
Númer 00001
Alþýðuflokkurinn — Alþýðublaðið