Alþýðublaðið - 08.12.1983, Side 4
alþýðu-
rTFT.TT.J
Fimmtudagur 8. desember 1983
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Arni Stefánsson.
Blaðamenn: Þráinn Hallerímsson og Friðrik Þór Gjiöraundsson.
Auglýsingastjóri: Hclma Jóhannesdóttir
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866.
Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Ekki alltaf gaman að vera blaðamaður:
Blaðamaðurinn Xavier Vinander hefur hlotið sjö ára fangelsisdóm á
Spáni. Grein sem hann skrifaði i spœnska blaðið Interviu varð til þess
að tveir menn voru drepnir. Sjálfur segist hann alls ekki bera ábyrgð á
þessum morðum. Hann segir að þetta mál sýni vel hve mannréttindum
og málfrelsi sé mikil hœtta búin í heimalandi sínu.
The Day After“ fyrst sýnd í kvikmyndahúsum á Norðurlöndum:“
Sýnd í sjónvarpi
eftir tvö ár
Viðtalið sem leiddi
til manndrápa
Engar líkur eru á því að við Is-
iendingar eða aðrir Norðurlanda-
búar fáum að sjá hina umtöluðu
sjónvarpsmynd „The Day After,“
sem sýnd var í Bandaríkjunum
fyrir nokkru og vakti gífurlega at-
hygli. Milljónir manna fylgdust
með áhrifum kjarnorkuspreng-
ingar í Bandaríkjunum á skján-
um, götur tæmdust og fjölmiðlar
fjölluðu vart um annað efni dag-
ana á eftir. Myndin kallaði fram
mikla umræðu um kjarnorku-
vopn eins og vænta mátti og öll
gömlu vopnin í ræðu og riti voru
grafin fram á ný.
Myndin dregur að sögn fram
hryllilega mynd af ástandinu
skömmu eftir að kjarnorku-
sprengja hefur fallið í Bandaríkj-
unum. Milljónir manna eru látnar
og sárar, heilbrigðisástand í mol-
um, samgöngukerfið lamast og
varanlegt tjón orðið á öllum
mannvirkjum og stofnunum, sem
áhrif sprengjunnar ná til. Svo
Fyrir hálfum mánuði var
spænskur blaðamaður að nafni
Xavier Vinander dæmdur í sjö ára
fangelsi í heimalandi sínu. Hann
var ekki viðstaddur dómsupp-
kvaðningu, enda ekki likur á, að
hann yrði langlífur á Spáni eftir
það sem á undan er gengið. Mál
þetta sýnir vel, hve starf blaöa-
manna víða um heim getur verið
hættulcgt. Árið 1979 átti Xavier
mörg viðtöl við lögreglumann,
sem upplýsti hvernig lögregian á
Spáni notar nýfasista til að vinna
hryðjuverk gegn baskneskum
flóttamönnum. Stuttu eftir að
viötölin hirtust, voru tveir
nýfasistar, sem iögreglumaðurinn
nefndi drepnir af ETA skærulið-
um Baska. „Dómurinn endur-
speglar hve höllum fæti málfrels-
ið stendur á Spáni“, segir Xavier í
nýlegu viðtali.
Xavier Vinander er einn af
þekktustu blaðmönnum Spánar.
Hann hefur ferðast víða um heim
og tekið viðtöl í mörgum þjóð-
löndum. Fyrir þremur árum fór
hann til Afghanistan og vöktu
greinar hans þaðan mikla athygli.
Hann hefur sérhæft sig í skrifum
um starfsemi ýmissa öfgahópa á
Spáni svo sem fasista. Þetta mál
lögreglumannsins bar að með
nokkuð merkilegum hætti.
Þannig var, að árið 1979 komst
hann að því að lögreglan á Spáni
notar ýmsa hópa hægri öfga-
manna til að vinna niðingsverk á
baskneskum flóttamönnum sem
búa á landamærum Spánar og
Frakklands.
— Eiginlega byrjaði þetta allt á
ástarsögu, segir hann. Lögreglu-
maður varð ástfanginn af stúlku í
Baskalandi, sem ekki er í frásögur
færandi nema fyrir það, að um
leið var hann settur út í kuldann
hjá félögum sínum í lögreglunni.
Það er nefnilega ekki talið lög-
reglumanni til tekna, ef hann hef-
ur náið samband við svo óæðri
þjóðflokk. Þar kom, að maður-
inn hætti í lögreglunni og um
haustið sama ár kom hann til mín
til að Iétta á samvisku sinni. Hann
sagði allt að létta.Hvernig nýfas-
istar fengju vopn til að vinna gegn
flóttamönnum Baska, hvar þeir
héldu fundi sína, hvernig sam-
vinnan væri við lögregluna og
hverjir tækju þátt í þeirri sam-
vinnu, segir hann. — Þegar lög-
reglumaðurinn fékk morðhótun,
þá ákvað ég að birta greinina, seg-
ir Xavier.
Framhald á 2. síðu
mögnuð eru áhrif myndarinnar,
að viðkvæmu fólki er eindregið
ráðlagt að horfa ekki á hana:
En nánast engar líkur eru taldar
á að við hér á norðurhjaranum
fáum að sjá þessa mynd á næstu
mánuðum eins og þeir vestra.
Sjónvarpsstöðin, sem framleiddi
myndina, hefur ákveðið að hún
verði seld í kvikmyndahús á Norð-
urlöndum fyrst og síðan verði
sýningarréttur framseldur til.
Framhald á 2. síðu
Þannig sýnir myndin ástandið „daginn eftir“ að kjarnorkusprengja hefur
fallið í Bandaríkjunum. Myndin hefur valdið gífurlegu fjaðrafoki vestra,
þar sem hún hefur sýnt mönnum á hvíta tjaldinu hve ógnvœnleg áhrif
þessara eyðingarvopna eru..
Er það sem ég sé? Jónas
Kristjánsson að fara heim í
lögreglufylgd?
Blaðamannafundur í Moskvu:_
„Bandarísku flaugarnar
munu auka hættuna44
— segja Rússar
Sovétmenn héldu mikinn frétta-
mannafund í vikunni þar sem þeir
skýrðu sjónarmiö sín í deilunni um
hinar nýju eldflaugar Atlantshafs-
bandalagsins í Evrópu. Nú er byrj-
að að setja flaugarnar upp sam-
kvæmt hinni tvíhliða ákvörðun
Nato frá 1979, þegar ákveðið var að
setja upp flaugarnar ef Sovétmenn
drægju ekki úr vígbúnaöi sínum á
sviði kjarnorkuvopna er beindust
gegn Evrópu. Á fundinum voru
margir helstu yfirmenn hermála og
utanríkismála í Sovétríkjunum
þ.a.m. Georgi Kornienko, fyrsti
varautanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, Nikolaj Ogarkov, marskálk-
ur Sovétríkjanna og fleiri stór-
menni. Ogarkov var stóryrtur á
fundinum i garð Bandaríkjamanna
og sagði hann að flaugarnar í V-
Þýskalandi myndu ekki einungis
auka hættuna í garð Sovétríkjanna,
heldur myndu V-Þjóðverjar einnig
búa við aukna kjarnorkuógn á
næstu árum.
Ogarkov, marskálkur sagði varð-
andi þær staðhæfingar leiðtoga
NATO, að SS-20 eldflaugar Sovét-
manna hefðu skapað krítískt á-
stand, að þær staðhæfingar væri
ekki í samræmi við staðreyndir. SS-
20 eldflaugarnar hefðu ekki raskað
því grófa jafnvægi, sem ríkti í Evr-
ópu og hefðu ekki skapað krítískt
ástand. Fyrir hverjar tvær nýjar SS-
20 eldflaugar, sem hefðu verið sett-
ar upp, hefðu verið teknar niður
þrjár SS-4 og SS-5 eldflaugar. Fyrir
uppsetningu SS-20 eldflauganna
hefðu Sovétríkin átt í vesturhluta
lands síns um 600 eldflaugar, en nú
ættu þau aðeins 473. Kjarnaoddar
á SS-4 og SS-5 eldflaugunum hefðu
verið fleiri en á SS-20 eldflaugun-
um. Heildarmagn kjarnaodda væri
1.7 sinnum minna en áður. Fyrir
uppsetningu SS-20 eldflauganna
hefðu Sovétríkin átt í vesturhluta
lands sins um 60 eldflaugar, en nú
ættu þau aðeins 473. Kjarnaoddar
á SS-4 og SS-5 eldflaugunum hefðu
verið fleiri en á SS-20 eldflaugun-
um. Heildarmagn kjarnaodda væri
1. 7 sinnum minna en áður.
Þess vegna væri hið krítíska á-
stand í Evrópu ekki komið til vegna
SS-20 eldflauganna heldur vegna
uppsetningar hinnar nýju banda-
rískuÆldflauga, sem breyta hinu
strategíska ástandi verulega og
auka hættuna.
Varðandi það að Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands hefði sagt, að
uppsetning bandarísku eldflaug-
anna þar í landi muni auka á öryggi
þess, sagði Ogarkov, marskálkur:
„Vestur-þýski kanslarinn sagði ný-
lega, að kjarnorkufráfæling væri
öruggasta tryggingin til að koma í
veg fyrir styrjöld. Þetta er í sam-
Framhald á 2. síðu