Alþýðublaðið - 14.12.1983, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 14.12.1983, Qupperneq 2
2 Miðvikudagur 14. desember 1983 RITSTJORNARGREIN..... ....—............ íbúðir í stað loftkastala Morgunblaóið minnir f leiðara á þriðjudag á hina eftirminnilegu mynd af Evu Peron sem dregin var upp i sjónvarpskvikmynd, sem sýnd varhérásunnudagskvöld. RitstjóraMbl.erþað mikið umhugsunarefni, hvernig Eva Perón afl- aði sér vinsælda, sat i fjölmiðlaljósi og deildi út peningum á kostnað annarra og bauð enn meiri launahækkaniren beðiðvarum. „Komið á mánudaginn", sagði Eva Peron þegar pening- arnir voru búnir. Út á þessa sviðsetningu ávann Evita sér feikna vinsældir. Morgunblaðið kemst að þeirri niðurstöðu, að sagan um Evu Peron sé meðai mögnuðustu ádeilna á þá landsstjórnarmenn, sem þykjast geta gert allt fyrir allaá kostnað annarra. Eflaust geta flestir tekið undir það. Varla hefur það þó hvarflað að Morgunblaðs- ritstjórum að lita i barm þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr og skoða loforðalistana frá síða- stliðnu vori. Þávoru uppi miklarheitstrenginar sjálfstæðismanna i húsnæðismálum. Sjálfur oddviti sjálfstæðismanna i Reykjavík, Albert Guömundsson, lýsti þvi yfir, að hægt væri að veita öllum þeim sem byggðu i fyrsta sinn 80% lán. Þegar hann var spurður hvar ætti að taka einn til tvo milljarða sem á vantaði til að efna loforöiðvfsaði hanntil loforðaogefndaborgar- - stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Þetta er vel hægt, sagði Albert. En smám saman fór að draga af ihaldinu, þeg- ar reyna átti á stóru orðin. Hvert loforðið á fætur öðru er nú farið fyrir Htið. Frumvarpið, sem leggjaátti fram á Alþingi fyrst allra frum- varpa, húsnæðisfrumvarp félagsmálaráðherra, er lagt fram rétt fyrir þinghlé, þegar vitað er að nánast enginn tfmi er til að fjalia um þetta stór- mál. Þannig fer fyrir þeim sem þykjast geta gert allt fyrir alla. Þegar upp er staðið hafa lof- orðin reynst orðin tóm. „Komið aftur á mánu- daginn“, sagði Eva Peron. Já, komið aftur á næstaári, segirfjármálaráöherravið húsbyggj- endur nú. Þá verður hægt að skoða málin. Vissulega er fengur í ýmsum nýmælum i því sem fram kemur í húsnæðisfrumvarpi félags- málaráðherra. Opnaðir eru möguleikar á bygg- ingu fbúða fyrir lágiaunafólk og félagasamtök- um gert kleift að byggja leiguhúsnæði fyrir félagsmenn sína. En það meginatriði stendur óhaggað eins og f vor þegar sjálfstæöismenn viðruðu gylliboð sfn að hætti Evu Peron, að ■fjárveitingar og fjármögnun til húsnæðismál- anna er ails ekki tryggð. Láglaunafólk mun þurfa að leggja fram helmingi meiraféen áðurtil aðtryggjasérlbúð í Verkamannbústöðum.Byggingasjóður verka- manna fær ekki nema helming þess fjár- magns, sem hann þarf til nauðsynlegra fram- kvæmda. Miklar likur eru á, aö lánsfjáröflun sú sem fyrirhuguð er standist illa eða ekki. Sem dæmi má nefna, að gert er ráð fyrir tekjuöfiun af skyldusparnaði er nemur42 millj- ónum skv. frumvarpinu. Allt stefnir nú f, að skyldusparnaður verði neikvæður á þessu ári. hvaða Ifkur eru á, að hægt sé að Ieggja42 millj- óniraf skyldusparnaöi fram til húsnæðismála á næsta ári? Þetta benti Jóhanna Sigurðar- dóttir á í ræðu sinni á þingi ( síðustu viku. Samai er að segja um fjármögnun i gegnum skuldabréf og lánsfjáröflun almennt. Þarerað finna loftkastala en ekki fé til að byggja ibúðir. Félagsmálaráðherra, Alexander Stefánsson, verður því að finna traustari grundvöll fyrir fjár- hagslegum grunni húsnæðisfrumvarpsins, ef ekki á að fara fyrir honum eins og Albert og sjálfstæðismönnum. Húsbyggjendur og ibúðakaupendur um allt land bfða þess nú með óþreyju að sjá raunhæfaraðgerðir í húsnæðis- málum. Þeir munu ekki sætta sig við að sagt verði „komið á mánudaginn" þegar peningarnir eru búnir. Og sjálfstæðismenn ættu að minn- ast þess, hvernig fer fyrir þeim sem þykjast geta gert allt fyrir alla á kostnað annarra. Ef þeir læra af reynslunni má koma i veg fyrir svip- aðar vanefndir og þeir hafa gerst sekir um í húsnæðismálum. Morgunblaðið ætti því sem oftast að minna þingmenn og sérstaklega odd- vitann I Reykjavík á söguna um Evitu. Það er ekki hægt til langtíma að „gera allt fyrir alla á kostnað annarra". - K U Jókanna 4 inn á Alþingi til að knýja enn frekar á um hve mikilvægt er að brugðist verði við þessum vanda með skjót- um hætti, en það er ekki síst undir dómsmálaráðherra komið að átak verði gert til þess að fyrirbyggja út- breiðslu ávana- og fíkniefna þannig að tekið verði á þessum málum þeg- ar áður en málið sækir í enn verra horf heldur en nú er. Dýr störf 4 samt umtalsvert fé í hlut skipa- smíðastöðvanna á næsta ári. Styrk- irnir hljóða upp á 58 milljónir dala, en stjórnarandstaðan vildi að þessi upphæð færi yfir 70 milljónir dala. I rökstuðningi sínum lagði stjórnarliðið áherslu á, að enginn iðnaður í Noregi hlyti svo háar nið- urgreiðslur sem skipasmíðaiðnað- urinn. Fjármálaráðherrann, Rolf Presthus, varaði skipasmíðafelögin við því að opna allar gáttir til mik- illa launahækkana. „Ef þið haldið ekki launum í skefjum, þá mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir niðurgreiðslurnar“, var boðskapur fjármálaráðherrans til eigenda skipasmíðastöðva í Noregi, sem eins og áður segir sækja nú þriðj- ung af kostnaði við hvert skip beint í ríkiskassann. Þórunn 1 knýjandi nauðsyn vegna lélegrar af- komu hjá fólki en þó væri það langt frá því að vera nóg, síður en svo, en spor í rétta átt. „Það er margt sem yrði eftir, en það hefur nú gengið svo í gegnum baráttu verkalýðshreyfingarinnar að við höfum alltaf staðið uppi með ýmsa hluti án þess að vera ánægð með það. En varðandi þessa kröfu nánar, þá verð ég að viðurkenna að ég er dálítið smeyk um framvindu þess- ara mála. Það hefur ekki verið rætt um aðrar leiðir á þessum vettvangi, það var rætt um þessi mál á for- mannafundinum, en ekki hefur enn verið ákveðið neitt um hvaða leiðir yrðu farnar ef þessi brygðist. Því miður finnst mér sem við séum fast að því að missa af lestinni með bráðabirgðasamning, því miður eru það ekki fögur svör sem við fáum, hvorki frá ríkisstjórninni né vinnu- veitendum“ sagði Þórunn. Bjartsýnn 1 söfnuninni liggur fyrir, en ég tel ekki ólíklegt, að þarna verði aðstoð við eitt til tvö hundruð þúsund manns og þá er ég að tala um þá sem svelta á svæðinu í dagþ sagði hann. Guðmundur Einarsson var spurður hvort hér væri eingöngu um skammtímaaðstoð að ræða eða hvort áætlanir hjálparstofnana á þessum svæðum væru í tengslum við langtímaastoð. „Við áiítum, að í rauninni eigi engin aðstoð að vera þannig, að ekki sé hugað jafnframt að grund- velli fyrir áframhaldandi hjálp. í því sambandi vil ég nefna, að nú er ætlunin að senda vatnsborunar- menn til þurrkasvæðanna m.a. í Uganda. Tæki til vatnsborunar eru þegar komin á staðinn, en það vant- ar menn til að vinna þessi verk. Þannig munum við geta aðstoðað við langtímahjálp á þessum svæð- um jafnframt því, sem við veitum neyðaraðstoð. Einnig er verið að at- huga með sams konar aðstoð í Eþíópíu. En er ekki erfitt að velja úr svæði í heimi þar sem milljónir manna svelta og ákveða þannig, hverjir lifa af? „Vitanlega er þetta erfið ákvörð- un. En við störfum ekki að þessu einir. Þarnaeru teknar sameiginleg- ar ákvarðanir hjálparstofnana og við erum svo heppnir íslendingar, að vegna þess hve við erum fámenn þjóð, þá fáum við að jafnaði úthlut- að svæðum þar sem minna er um vandamál en stórþjóðirnar fá að glíma við. Stærri þjóðirnar þurfa oft að stunda hjálparstarf, þar sem hernaðarátök eiga sér stað, en við höfum notið þess í þessu starfi að við erum fámenn þjóð,“ sagði Guð- mundur Einarsson að lokum. Hjálparstofnun hefur sent út söfnunarbauk ásamt gíróseðli og má koma gíróseðlinum til skila í öll- um bönkum og póstafgreiðslum á Iandinu. Ennfremur taka sóknar- prestar, skrifstofa Hjálparstofnun- ar og Kirkjuhúsið við Klapparstíg við framlögum og söfnunarbauk- um. Ásmundur 1 Tímans að verkalýðsforystan væri að guggna á kröfunni um 15 þús- und króna lágmarkslaun, þar sem hún væri óframkvæmanleg. Það er jafnframt ljóst að vegna þess hvað tekjufallið er mikið, miklu meira en við höfum nokkurn tíma áður staðið frammi fyrir, eins vegna þess að það er bannað að semja um verðbætur, að þá er óhjá- kvæmilegt að samningsgerð geti tekið töluvert langan tíma. Þess vegna var það okkar skoðun að taka þessa kröfu Verkamannasam- bandsins upp og reyna að ná bráða- birgðasamkomulagi á þeim grund- velli. Atvinnurekendur hafa hins vegar ekki reynst tilleiðanlegir til þess á nokkurn máta, við eigum að sjálfsögðu eftir að ræða við þá frekar um málið. Ég held nú satt að segja að málið strandi frekar á neit- un af þeirra hálfu, frekar en að það sé vegna innbyrðis ágreinings okkar megin. En það er öllum ljóst og ekki dul- ist neinum, að það eru margir fram- kvæmdaerfiðleikar í sambandi við svona lausn. Auðvitað hljótum við að skoða allar leiðir í þessu sam- bandi. Við tökum fegins hendi öll- um hugmyndum sem að gagni geta komið til þess að létta á þeim erfið- leikum sem blasa við þeim sem verst eru staddir“,sagði Ásmundur. Umsóknir um leyfi til hörpudiskveiöa á Breiða- firði Þeir aðilar, sem stunda útgerð frá Breiðafjarðar- höfnum og hafa áhuga á að stunda hörpudisk- veiðar á Breiðafirði á næsta ári skulu sækja um leyfi til þeirra veiða til ráðuneytisins fyrir 1. janúar n.k. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. I umsóknum skal greina f rá nafni báts, umdæmis- númeri.skipaskrárnúmeri, ennfremur nafni skip- stjóra og nafni og heimilisfangi móttakanda leyf- is. Ráðuneytið mun að loknum umsóknarfresti taka afstöðu til einstakra leyfisumsókna og setja regl- ur um úthlutun leyfa. Sjávarútvegsráðuneytið 12. desember 1983. Tilkynning til launaskattsgreiöenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi launaskatts fyrir mánuðina ágúst, september og október er 15. desember n.k. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Dráttarvextir eru 4% á mánuði. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns rikissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Rannsóknaaðstaða við Atómvísindastofnun Norðurlanda (NORDITA) Við Atómvlsindastofnun Norðurlanda (NORDITA) í Kaupmannahöfn kann að verða völ á rannsóknaað- stöðu fyrir Islenskan eðlisfræðing á næsta hausti. Rannsóknaaðstööu fylgir styrkur til eins árs dvalar við stofnunina. Auk fræðilegraatómvlsindaer við stofnun- ina unnt að leggja stund á stjarneðlisfræði og eðlis- fræði fastra efna. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi i fræði- legri eðlisfræði og skal staðfest afrit prófskírteina fylgja umsókn ásamt Itarlegri greinargerð um mennt- un, vísindaleg störf og ritsmiðar. Umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavlk. Umsóknir skulu sendartil NORDITA, Blegdamsvej 17, DK-2100 Köbenhavn Ö, Danmark, fyrir 30. desember n.k. Menntamálaráðuneytið 9. desember 1983.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.