Alþýðublaðið - 30.12.1983, Side 3
Föstudagur 30. desember 1983
3
Kjartan 4
eða truflaðist þar sem slík endur-
skipulagning væri augljóslega
nauðsynleg. Atvinnumálasjóður
með þessu hlutverki gæti augsýni-
lega verið mjög gagnlegur til þess
að tryggja fulla atvinnu á komandi
ári.
Frá bölsýni til bjartari framtíðar
Með alhliða stefnubreytingu í þá
veru sem ég hef hér lýst gætum við
komist úr því bölsýnisfari sem ríkis-
stjórnin er nú að festast í og búið
okkur bjartariog traustari framtíð.
Það er einmitt meginhlutverk efna-
hagsmálastjónar.
Válynd verður á alþjóðavettvangi
Á erlendum vettvangi eru veður
öll válynd. Frelsi og mannréttindi
eru víða fótum troðin. í Mið-Aust-
urlöndum ríkir styrjaldarástand og
vígbúnaðarkapphlaupið heldur
áfram. En við megum ekki glata
trúnni á grundvallarverðmæti eins
og frelsi, frið og mannréttindi. Fyr-
Auglýsing til
skattgreiðenda
Samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt
eru gjalddagar tekjuskatts og eignarskatts tíu á
ári hverju þ.e. fyrsti dagur hvers mánaðar nema
janúarog júli. Dráttarvexti skal greiðaaf gjaldfall-
inni skuld sé skatturekki greiddurinnan mánaðar
frágjalddaga. Gildasömu reglurum greiðslu ann-
arra þinggjalda.
Af tæknilegum ástæðum hefur til þessa ekki ver-
ið unnt að miða dráttarvaxtaútreikning við stöðu
gjaldenda um hver mánaðarmót. Hefur því í fram-'
kvæmd verið miðað við stöðuna 10. dag hvers
mánaðar sbr. auglýsingu ráðuneytisins dags. 27.
apríl 1982. Dráttarvextir hafa því ( reynd verið
reiknaðir 10 dögum seinna en lög kveða á um. Er
nú stefnt að því að stytta þennan frest eins og
kostur er. Geta gjaidendur því framvegis búist við
að dráttarvextirverði reiknaðir þegareftir að mán-
uður er liðinn frá gjalddaga.
Þáersérstök athygli vakin áþví að launagreiðend-
um ber að skila því fé sem haldið er eftir af kaupi
launþega innan sex daga frá útborgunardegi
launa.
Fjármálaráðuneytið, 27. desember 1983.
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Skólastarf Fjölbrautaskólans í Breiðholti á vor-
önn 1984 hefst með almennum kennarafundi mið-
vikudaginn 4. janúar kl. 9.00—-16.00.
Fimmtudag 5. janúar verða nemendum Dagskóla
F.B. afhentar stundatöflur frá kl. 9.00—15.00.
Sama dag verður deildarstjórafundur kl. 9.00—
12.00 og sviðsstjórafundur kl. 14.00—16.00. Bók-
sala skólans verður opin kl. 10.00—15.00.
Föstudaginn 6. janúar verður sérstök kynning ný-
nemaáskólanum kl. 9.00—16.00. Þann dag verður
bóksala skólans einnig opin frá kl. 14.00—16.00.
Innritun í Öldungadeild E S svo og val náms-
áfanga fer fram 4. og 5. janúar frá kl. 20.00—22.00
einnig 6. janúar frá kl. 18.00—20.00.
Kennsla í skólanum hefst mánudaginn 9. janúar
samkvæmt stundatöflu nemenda í dagskóla og
öldungadeild.
Skólameistari
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á
árinu 1984.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóösins nr. 361 30. september
1977 ertilgangursjóðsins „að veitastyrki til stofnanaog ann-
arra aöila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd
þeirraverömætalandsog menningar, sem núverandi kynslóð
hefur tekið I arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
Friölýsingarsjóös til náttúruverndar á vegum Náttúru-
verndarráös.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
varöveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menn-
ingarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju
sinni I samræmi við megintilgang hans, og komi þareinnig til
álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er ( liðum a) og b).
Við það skal miðaö, að styrkir úr sjóðnum verði viöbótarfram-
lag til þeirraverkefna, sem styrkt eru, en veröi ekki til þess að
lækkaönnuropinberframlög til þeirraeðadragaúr stuðningi
annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknar-
frestur er til og með 24. febrúar 1984. Eldri umsóknir ber að
endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi ( afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík. Nánari upp-
lýsingar gefur ritari sjóösstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, i
s(ma (91) 20500.
Þjóðhátiðarsjóður
ir því verður að heyja sífellda sókn.
Friður, frelsi, framtíð
Á flokksþingi Alþýðuflokksins í
nóvember 1982 gerði ég þessi atriði
m.a. sérstalega að umtalsefni í setn-
ingarræðunni. Þau orð sem ég þá
mælti eiga allt eins við nú eins og
þá. Ég ætla að gera þau að lokaorð-
um mínum í þessari hugleiðingu við
áramótin 1983-84. Þau voru flutt
undir kjörorðinu: Friður, frelsi,
framtíð:
„Án friðar er engin framtíð, án
frelsis ekki friður. Við íslendingar
njótum friðar og frelsis en hvorki
friður né frelsi er sjálfgefið. Ófrið-
ur hefur verið regla frekar en und-
antekning í sögu mannkynsins.
Frelsið er nýunnin mannréttindi
fárra útvaldra þjóða. Frið og frelsi
megum við ekki glata.
Jafnaðarstefnan er friðarstefna.
Frelsið er hornsteinn jafnaðarstefn-
unnar. Við eigum okkur framtíð ef
friður og frelsi fær að ríkja í heim-
inum. Við eigum okkur batnandi
framtíð ef jafnaðarstefnan fær að
ríkja, við eigum okkur traustari
framtíð í þessu landi ef við kunnum
fótum okkar forráð og nýtum land-
gæði af kostgæfni.
Verkefni okkar er að treysta frið,
að efla frelsi, að hafa framtíðarsýn.
Verkefni okkar er að jafna kjör, að
brúa bilið milli ríkra og snauðra, að
efla bræðralag manna og þjóða.
Við verðum að læra að lifa saman á
bústað okkar, jörðinni. Jafnaðar-
stefnan er lykillinn að þeirri leið.
Við njótum frelsis og friðar en
veröldin er grimm. í Afghanistan er
háð hetjufull frelsisbarátta gegn
ógnarveldi Sovéthersins. í E1 Salva-
dor er lífið murkað úr þúsundum
manna. Þar eru pyntingar daglegt
brauð og mannréttindi fyrirfinnast
ekki. í Póllandi er bannað að bind-
ast í samtök eins og verkalýðsfélög.
Þar er bannað að hugsa og vilja.
Þar ríkir ónýtt kerfi sem ekkert
frelsi þolir, kerfi sem ekki einu sinni
getur brauðfætt sitt fólk, hvorki í
Póllandi né annars staðar þar sem
það er við lýði.
í Suður-Áfríku er stærsti hluti
þjóðarinnar tæpast talinn til
manna. Mannréttindi þekkja þeir
ekki. Þessar þjóðir fá ekki að njóta
frelsins og þær njóta ekki friðar.
í stórum hluta heims ríkir argasta
fátækt. Bilið milli ríkra þjóða og
fátækra er stöðugt að vaxa. Fimmti
hver maður á jörðinni býr við algera
fátækt, hungur, næringarskort.
Hann á í rauninni ekkert nema
sjálfan sig. Hann veit ekki hvort
hann fær nóg að borða á morgun. í
þessari fátækt býr hætta á ófriði.
Hætta á ófriði er ekki einungis
vegna átaka austurs og vesturs,
heldur felst hún líka í viðtæku
hungri og baráttunni um auðlindir
jarðar.
Það er okkar hlutverk að skilja
og gera það sem við megum til þess
að brúa þetta bil á milli ríkra og
snauðra þjóða. Til þess þarf mikið
fé. Það fé má finna í samdrætti í
vígbúnaði. Það er hörmulegt til
þess að vita að fimmtungur mann-
kyns svelti meðan síauknum fjár-
hæðum er varið til vígbúnaðar.
Vígbúnaðarkapphlaupið beinist nú
í æ ríkara mæli í kjarnorkuvopn.
Vopnabúr stjórveldanna í kjarna-
vopnum nægir til þess að drepa
mannkynið mörgum sinnum. Þessi
vopn má aldrei nota og framleiðsla
þeirra erí sjálfu sér vitfirring. Um
þettaer fólk aðvakna til vitundar.
Menn biðja um grið frá því að
afrakstri vinnunnar sé varið í slíka
vitfirringu. Þessi vakning verður að
ná jafnt til vesturs sem austurs.norð-
urs sem suðurs. Við skulum Ieggja
okkar lóð á vogarskálarnar í þeirri
vakningu. Enginn vinnur heldur
þetta vígbúnaðarkapphlaup, sem
knúið er áfram af tortryggni og
ótta.
Þeirri tortryggni og þeim ótta
þarf að eyða. Smáþjóð eins og við
eigum þar hlutverki að gegna. Smá-
þjóð ógnar engum, smáþjóð er
vopnlaus eða vopnlítil. Smáþjóðir
ættu að bindast samtökum um það
verkefni að eyða tortryggni stór-
veldanna í milli. Þámun raunhæfur
árangur nást í afvopnun. Þá opnast
leiðirnar til þess að jafna bilið á
milli snauðra og ríkra þjóða.
Megi nýtt ár færa okkur frið, og
batnandi framtíð. Gleðilegt nýtt ár.
Kjartan Jóhannsson.
Scx bombur
og skothólkur
saman í pakka.
Þrumur >
sem scgja scx. h-
GÍTl FLUGELDAMARKADIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Útboð
Fyrir hönd Innkaupanefndar sjúkrastofnana er
óskað eftir tilboðum í eftirtaldar sjúkrahúsavörur
fyrir sjúkrahús og heilsugæslustofnanir á höfuð-
borgarsvæðinu og víðar:
1. Utboð nr. 2976/83 — Skurðstofuhanskar o.fl.
gerðir hanska.
2. Utboð nr. 2977/83 — Pappír á skoðunarbekki
og munnþurrkur.
Söluverð útboðsgagna er kr. 500.- per sett. Út-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og skal til-
boðum skilað á sama stað eigi síðar en kl. 11:00
f.h. föstudaginn 27. janúar nk. og verða þau þá
opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Boraartuni 7. simi 25844