Tíminn - 18.01.1967, Blaðsíða 12

Tíminn - 18.01.1967, Blaðsíða 12
SÞROTTIR ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 18. janúar 1967 12 TÍMINN Myndin aS ofan er frá leik 'FH og Fram ( fyrrakvöld, og sést GuSjón Jónsson skorar eitf af mörkum sínum. (Tímamynd Róbert) Vestur-Þjóðverjum tókst ekki að hindra línuspil Rússanna - Klimov maðurinn á bak við sigur Rússa, 19:16. hlé tókst Þjóðverjum að minnka bilið aðeins, en staðan í hálfleik var 10:7. Eins og vænta mátti var Klimov aðalmaður sovézka liðsins. Hann skoraði 8 mörk og var tvímæla- laust maðurinn á bak við sigur Rússa. í v-þýzka Uðinu stóðu sig bezt Herbert Liibking og Hansi Schmit, sem skoruðu 4 mörk hvor. Þá vakti frammistaða markvarðar ins, Bode, athygli. Ungverjar hreMu heimsmeistarana HÁLFSYSTKIN! Framhald af bls. 8 laganna bókstaf, verðskulduðu þau a.m.k. þá hegningu, að vera skilin að um nokkurt skeið. — Þau verða að skilja að lög vor heimila ekki slík sambönd sem þetta, sagði hann. Kjeld Rosenberg dómari í undirrétti leit á málið með fullum skilningi og það var meira en bæði sækjandi og verjandi höfðu í rauninni þorað að vona. Dómarinn byggði úrskurð sinn á því, að Ingrid og Leif hefðu í raun réttri ekki alizt upp sem syst kini, en hafi fyrst farið að búa saman, þegar Ingrid var 16 ára. Hann sagðist taka til lit til þessara orða Ingrid. — Eg hef aldrei getað Utið á Leif, sem bróður í venjulegum skilningi þess orðs. Dómarinn sagði og: — Samband þessara) hálfsystkina er mjög náið ogj innilegt, og þau hafa gefizt upp við að búa hvort í sínu lagi. Ef þau yrðu dæmd til aðskilnaðar, myndi það ein ungis hafa í för með sér, sorg og óhamingju, og eftirliti með þeim, yrði gjörsamlega gagnslaust. Eins og málum er háttað verðum við því að gera undantekningu, og leyfa þeim að halda sambandi sínu áfram. Við treystum að þau efni það loforð að geta ekki fleiri börn, þar til lögunum hefur verið breytt. „Viljum ekki að börn okkar drýgi hór“. — Þetta er svo dásamlegt að við eigum ekki til orð, sagði Ingrid, er hún hafði jafnað sig dálítið eftir geðs- hræringuna. — í átta ár höfum við barizt fyrir þvf að vera viðurKennd sem maður og kona, er elska hvort annað, og eiga þá einu ósk að fá að lifa saman eins og aðrir elskendur. — Við fáum sjálf- sagt einhvern tíma leyfi til þess að giftast o<g þá verður þetta auðvitað enn dásamiegra. en eins og sakir standa eru við fullkomlega ánægð með að j fá að búa saman og að sjálfj sögðu munum við halda það j heit sem við höfum gefið, aði eignast ekki börn, fyrr en samband okkar hefur verið lög gilt. Sá leikur í 8-liða úrslitunum, sem búfet var við, að yrði hvað Jafnastur, var leikur Rússa og Vestur-Þjóðverja í Erikshallen í Stokkhólmi. Leikurinn var mjög spennandi, etnkum í síðari hálf- leik, þegar Vestur-Þjóðverjum tókst að jafna og komust yfir, 16:15. En á síðustu 12 mínútunum léku Rússar mjög vel og tókst að skora f jögur mörk í röð án þess að Þjóðverjum tækist að svara. — Lauk leiknum því 19:16. í byrjun leiksins náðu Rússar upp mjög góðu línuspili. sem Vest ur-Þjóðverjum tókst ekki að hindra. Var staðan í fyrri hálfleik um tíma 7:2 Rússum í vil. Fyrir Körfubolti í kvöld f kvöld verður fslandsmótinu í körfuknattleik haldið áfram að Há- logalandi. Léiknir verða tveb: leik ir í 2. flokki karla. Fyrst mætast ÍKF—KR og síðan ÍR—Ármann. Loks leika í 1. flokki KFR—ÍS. Fyrsti leikur hefst kl. 20.15. En ekki voru allir jafn- ánaégðir með dóm þennan. For eldrar þeirra urðu miður sín af örvæntingu. Stjúpi Leif og faðir Ingrid var viðstaddur dómsuppkvaðninguna, og er hann hafði hlýtt á ræðu dóm arans, varð hann æfur og neit aði að trúa að lögin legðu blessun sína yfir hið nána samband barna hans. Hann sagði síðar í viðtali við Ekstra bladet. — Ég er reiður og óham- ingjusamur, og nú hefur það verið sannað að ' ver og einn getur gengið í berhögg við lögin. Það skilur engin, hvað þetta mál hefur bakað fjöl- skyldunni mikla óhamingju og Leif og Ingrid hugsa bara um sjálf sig. Ég hélt að lögin myndu stemma stigu við þessu glæpsamlega sambandi, en þar sem þau fá einnig stuðning frá þeirri hlið, getum við ekkert gert. Bæði fjölskyld- unni og lagabókstafnum hefur verið sýnd grófleg óvirðing. — Þau Leif og Ingrid hafa inæistum lagt móður sírna í gröfina á síðari árum. Hún er alltaf mjög veik, og við von uðum í lengstu lög, að nú yrði þetta leiðindamál útkljáð á skynsamlegan hátt. Nú hefur þetta allt verið eyðilagt fyrir okkar, hvorugt okkar getur sætt sig við, að börn okkar drýgi hór. Ungverjar veittu heimsmeistur unum frá Rúmeníu verðuiga keppni í 8-liða úrslitunum þannig, að ó- víst var um úrslit allt til sdðustu mínútu. Það. sem gerði gæfumun inn, var, að einum ungversku leik mannanna var vísað út af undir lokin og léku því Rúmenar einum fleiri. Héldu þeir knettinum og tefldu ekki í neina tvísýnu. Urðu lokatölur 20:19 Rúmenum í vil. Til að byrja með héldu Ungverj- ar forustu 2:0 og höfðu síðar yfir í hálfleiknum 6:4 og 8:5, áður en ALDARMINNING Framhald af bls. 9 skrifað í kirkjubókina stöðu henn ar j þjóðfélaginu með einu orði: Sveitarómagi. Lítið man ég eftir prédikunum séra Sigfúsar, en hann hafði góðan málróm og flutti mál sitt skörulega. Eitt atriði man ég þó: Hann sagði að hið kristilega tak mark væri sett svo hátt, að hin venjulegi maður gæti ekki náð því, en ætti að hafa það að leiðar ljósi í smæð sinni og veikleika. Oft hef ég spurt mér eldra fólk um það, hvort séra Sigfús hafi verið góður ræðumaður í kirkju og er það einróma um- sögn að svo hafi verið, en sér- staklega hafi margar tækifæris- ræður hans verið mjög góðar. Hjálpfús var hann og ráðhollur og naut svo mikillar virðingar og trausts hjá sóknarbörnum sínum að á betra varð ekki kosið og hann var ajlrar virðingar verður, því engan skugga þar á og ekki sat hann að drykkju. Haustið 1915 lagðist faðir minn mikið veikur og var Jónas læknir Kristjánsson sóttur. Ég var látinn fylgja lækninum út að Mælifelli um kvöld. Hann hefur ef til vill þurft að koma þar. Og ég fékk að borða kvöld verð með þessum fyrirmönnum og þótti mér það mikil upphefð, sem ekki var að furða 10 ára snáða. Þeir prestur og læknir voru báðir miklir húmoristar á góðri stund og ég hef ekki gleymt því, hvað lampaljósið var bjart í stofunni á Mælifelli þetta haust kvöld og hvað samræður þeirra voru léttar og skemmtilegar. Jón as læknir fór með vísu um Ólaf Briem. sem þá mun hafa verið ný af nálinni og kímdu þeix að góðlátlega. Vísan er svona: Við stjórnir allar er í sátt Álfgeirsvalla goðinn Leikur alla aðra grátt, anzi er karlinn loðinn. Fáum dögum síðar kom séra Sigfús ) heimsókn að Sveinsstöð um. Foreldrar mínir voru þá bæði Moser & co í rúmenska liðinu kom ust í gang. í hálfleik höfðu Rúmen ar yfir 13:12. Skoraði Moser 5 mörk, en Jakob var einnig mjög góður og skoraði 4 mörk. Tékkar unnu Svía 18:11 Tékbar voru allan tímann sterkari en Svíar og unnu þá 18:11 en í síðari hálfleik var staðan 9:3. Minnsti mun ur í síðari hálfleik var 10:6, en Bruno, hin mikla skytta Tékka (hann leikur með Ka„ viná, sem hingað kom) skor aði 3 mörk í röð og Tékkax bættu síðan enn tveimur mönkum við. Var staðan þá orðin 15:6 og útséð um úr- slit. ------------■ rúmföst. Hún lá á sæng. Prest- urinn settist á koffortið við borð ið undir glugganum í borðstofu- húsi foreldra minna. Ekki man ég hvað hann ræddi við þau, en það var alvörumaðurinn, sem var í heimsókn, ekki húmoristinn. En áður en hann fór rétti hann þeim tíukróna seðil hvoru um sig. Tíu krónur voru þá næstum þvi ær verð. Ekki get ég skilið við minn- ingar mínar um séra Sigfús án þess að minnast á fermingarundir undirbúning hans. Hann var kannski nokkuð strangur. vildi að við kynnum vel kristin fræði en í frístundum fór hann með okkur i eyjuleik úti á túni og lék á alls oddi Ekki vildi séra Sigfús halda fram kenningunm um eilífa útskúfun, en hann sagði að allir yrðu að vera við þvi búnir. að líða eitthvað fyrir sínar syndir. Þó ég hafi borizt með stefnum og straumum í hálfa öld, stendur þessi kenning ó- högguð með mér. Ég var fermdur á Mælifelli vor ið 1919. Fermingarbörnin voru 6 og þeirra á meðal yngsti son ur séra Sigfúsar. Séra Sigfús kvaddi söfnuðinn í þessari messu Ekki man ég neitt eftir prédik- uninni. Eg hef líklega verið að hugsa um hvernig ég _3tti aö sitja og standa fyrir altarinu. En ég man indælan söng og sálminn sem sunginn var ,.Ó hversu sæll er hópur sá“. Kynslóð séra Sig- fúsar er horfin af sviði jarðlífsins. Kynslóðir koma og fara og hver kynslóð hefur dauðann í Ijáfari sínu. En minningin varir um góða menn og mildlhæfa. Sveinsstöðum, 30. des. 19' Björn Egi'« (Þýtt úr Ekstrabladet.) Símar okkar eru 18060 — 23490 ALÞJÓÐALÍFTRYGGINGAFÉLAGIÐ H.F. AUSTURSTRÆTI 17

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.