Tíminn - 18.01.1967, Qupperneq 13

Tíminn - 18.01.1967, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 18. janúar 1967 13 ÍÞRÓTTIR TÍMINN Viðkvæmt mái á dagskrá Alf — Reykjavík. — Eins og kunnugt er, þá er Karl Bene- diktsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, staddur í Sví- þjóð ásamt Sigurði Jónssyni, ,,einvaldi um val ísl. Iandsliðs ins“, þar sem þeir fylgjast með HM. Á íþróttasíðunni í dag birt um vis bréf frá Karli, en í því víkur hann að viðkvæmu máli, sem er á flestra vitorði í HM, samspili rúmenska þjálfarans Kunst og sænska þjálfarans Wadmarks. Hafa þeir Karl og Sigurður dvaliS í ,,herbúðum“ Pólvcrja, og kemur i ljós, að Pólverjar eru mjög svo óánægð ir með þetta samspil. Karl Ben. Frá leik Pólverja og Svía. Bengt Nedvall skorar fyrir Svía. í baksýn sést hinn rúmenski dómari Sidea. Hjálpaði hann Svíum á sama hátt og Janerstam hjálpaði Rúmenum í leiknum gegn A-Þjóðverjuml Danir í 4ra Ii5a úrsiit - ásamt Rúmenum, RússumogTékkum Þau óvæntu úrslit urðu í 8-1'iða keppninni á HM í gærkvöldi, að Danir unnu Júgóslava með 14:13 í hörkuspennandi leik, og eru þar með komnir í fjögurra liða úrslit (semifinal) keppninnar Önnur úr slit í gær urðu þau, að Rúmenar unnu Ungverja 20:19, Rússar unnu Vestur-Þjóðverja 19:16 og Tékkar unnu Svía 18;11. Þar með er ljóst, að Rúmenar, Tókkar, Danir og Rússar kepþa fjögur efstu sætin. en Júgó Svíar, Ungverjar og.Vestur- Þjóðverjar keppa um 5. til 8. sæti. í fjögurra liða úrslitum leika þessi lönd s'aman: Rúmenía—Tékkóslóvakía Danmörk—Sovétríkin. Þessir leikir fara fram á morg un, fimmtudag. í Vesterás. en í kvöld fara fram tveir leikir i b- semifinal og leika þá þesisir: Júgóslavar—V-Þ j óðver j ar Svíar Ungverjar Sigurvegarar í þessum leikjum keppa sín á milli um 5. og 6. sæti en liðin. sem tapa um 7 og 8. sæti. Eins og fyrr segir, komu úrslit- in í leik Dana og Júgóslava mjög á óvart. Leikurinn var allan tím ann mjög jafn, t.d. var staðan í hálfleik 6:5 fyrir Dani. Danir börðust eins og ljón frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu, og létu ekki bugast, þótt Júgóslav ar kæmust þrívegis yfir í s. hálf- leik. 7:6, 10:9 og 12:10. Erik Holst stóð sig mjög vel í markinu, en Framhald á bls 15. Hafa flestir leikið hér Alf—Reykjavík. — Til gamans má benda á, að flest ir leikmenn fjögurra sterk- ustu handknattleiksþjóð- anna í HM, þ.e. Rúmena, Rússa, Dana og Tékka, hafa leikið liér á landi fyr'ir nokkrum mánuðum. Lands- lið Rússa. Rúmena og Dana voru hér á ferð, og uppi- staða tékkneska landsliðsins er úr Dukla Prag, sem hér lék gegn FH. „Við búum hér á sama hóteli og Pólverjar. Þeir eru að sjálf- sögðu mjög leiðir og að nokkru leyti argir yfir hinni. lélegu út- komu sinni. Þjálfari þeirra, Breg- ula, segir, að ástæðan fyrir tapi þeirra sé fyrst og fremst lakari leikir þeirra Cholewa og Klosek. Tek ég undir það. Þeir eru ekki svipur hjá sjón miðað við getu þeirra í fyrra, þegar þeir léku gegn okkur. Uppstökkin ekki eins kröftug og skotin ekki örugg. T. d. átti Cholewa 6 skot og ekkert mark í síðari hálfleik gegn Sví- um. Þeir hafa ekki lagt næga rækt við uppstökkin og skot úr þeim, sagði Bregul* * 3 4- Cho’.ewa meiddist á íslandi. og hefur ekki náð sér fyllilega. Það er engin von fyrir lið að komast áfram, nema hafa þrjá til fjóra topp- menn, „hástökkvara“ og fallbyss- ur“ og' með þessum mönnum „spretthlaupara" og „fimleiva- menn“ með þol langhlauparans. Með Pólverjunum er blaðamað- ur heldur skotharður. Hann ræddi við mig hlut, sem hann kallar D:ð skuggalega samspil sænska þjálf- arans Wadmarks og rúmenska þjálfarans Kunst, en báðir þessir menn eru voldugir j tækninefnd alþjóðahandknattleikssambands- ins. Þeir eru vinir og staðráðnir í að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til að hjálpa hvor öðrum áfram upp á toppinn. Þeir sjá um niðurröðun dómara á leiki. Þeir hafa sett dómara, sem eru persónulegir vinir þeirra á leiki sem ráða úrslitum í framgangi þeirra liða. Sagði pólski blaðamað urinn. að Kunst hefði verið hjá Wadmark í Lundi sem hefði gert allt fyrir hann, sem hægt var. Einnig hefði Wadmark verið í Rúmeníu á sama grundvelli. Síð- an rakti blaðamaðurinn gang mála: 1. í leik Svía og Pólverja var dómarinn rúmenskur, Vasile Sid- ea frá Bukarest. Allir voru sam- mála um, að dómarinn hefði dæmt Svíum í vil, Og þetta var áber- andi á mikilvægustu mínútum síð ari hálfleiks, þegar staðan var 9:9 og brotið gróflega á Pólverj- um. Pólsku leikmennirnir bjugg- ust við dómi og hikuðu, en Svíar brunuðu UPP völlinn og skoruðu. Á 5 mínútum ná þeir 7 marka forskoti. 2. í leik Rúmena og Austur- Þjóðverja er dómari Torild Jan- erstam, sá hinn sami og oft hefur dæmt landsleiki heima, síðast í leikjum okkar gegn Vestur-Þjóð- verjum í nóvember. í þessum þýð- ingarmikla leik höfðu Austur- Þjóðverjar yfir 14:13, þegar klukk an sýndi, að leik væri lokið. Aust- ur-Þjóðverjar hættu leik og fögn- uðu sigri. En tveimur sekúndum síðar skora Rúmenar Jöfn- unarmark, 14:14. Og þegar komið er 36 sekúndum fram yfir leik- tíma, flautar Janerstam loks af! 3. í leik Austur-Þjóðverja og Rússa er dómarinn Jan Dolerzal frá Tékkóslóvakíu. Hann er dóm- ari í körfuknattleik og er því mjög strangur gagnvart föstum leik. Með þessu er öruggt, að Rússar vinni Austur-Þjóðverj, (það er hagkvæmara fyrir Rúm- ena), sagði blaðamaðurinn dag- inn fyrir þennan leik. Og þetta reyndist rétt, því Rússar unnu 22:17. 4. Kunst hefur tekið kvikmynd ir af pólska landsliðinu í leikjuni og sent Wadmark. Með þessu jfengu Svíar mikilsverðar upplýs- jingar um helzta keppinaut sinn fyrir utan Júgóslava, í riðlakeppn inni. Þetta sagði pólskj blaðamaður inn og var argur. Sagði hann, að tækninefnd alþjóðahandknattleiks- samhandsins væri í handknattlei’ eins og Stalín í Rússlandi. Þar réðu ríkjum Kunst og Wadmark. sjálfum sér til framdráttar, röð uðu dómurum á leiki efti eigin vild, en eins og allir vita, er cóm- arinn orðinn of stórt númer og tími til kominn að bæta öðrum dómara við, þannig, að þeir verði tveir. Málmey, 14. janúar. Karl Benediktsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.