Tíminn - 18.01.1967, Qupperneq 14

Tíminn - 18.01.1967, Qupperneq 14
TIMINN MIÐVIKUDAGUR 18. janúar 1967 14 BÆIR RAFMAGNSLAUSIR Framhald af bls. 16 erfið, reisa þarf nýjar staurasam- stæður beggja vegna áriimar og koma línunni yfir, en vonazt er til að viðgerð ljúki á morgun. Að lokum var flogið með þyri- unni að Flúðum í Hrunamanna hrepgi, en þar er nú unnið að því að tengja dieselrafstöð við þann hluta hins rafmagnslausa svæðis sem ekki fékk rafmagn eftir við- gerðina við Auðsholt. Var vonazt til að hægt væri að hleypa straumi á seint í kvöld eða fyrramálið, og eru rafmagnsmálin þar með öll leyst til bráðabirgða á því svæði sem rafmagnslaust varð. Sagði Guðjón að með dieselraf- stöðinni gætu þeir veitt um 100 kílóvöttum inn á línuna í Hreppa og suður á Skeið. Guðjón Guðmundsson sagði að í dag hefði jafnframt verið athugað hvort ekki væri hægt að flytja línuna, og teldu þeir sig hafa fundið svæði fyrir linuna, þar sem hún væri ekki í hættu vegna flóða. Verður hafizt handa um það í vor að breyta línunni. í kvöld fékk blaðið þær upplýs- ingar austan úr Biskupstungum að rafmagnið hefði komið um klukk- an fjögur á efstu bæina í Gríms- nesi og á bæi í Biskupstungum. Hefðu menn orðið fegnir því þeg- ar rafmagnið kom, því svo mikið væri nú treyst á það að illmögu- legt væri að vera án þess. Þannig gengju mjaltavélar fyrir rafmagni og á stórum kúabúum hefðu bænd ur svo að segja verið við mjaltir allan daginn meðan á rafmagns- leysinu stóð. Mikið var farið að sjatna í ám þar eystra, en vegir . væru víða í slæmu ástgndi. Guðjón á Stóra-Hþfi í Gnúp- verjahreppi, fréttaritari Tímans, sagði að ástandið hefði víða verið slæmt á bæjum þar í kring vegna rafmagnsleysis. Víða hefði ekiki verið nema prímus til að elda á, köld hús þar sem oliukyndingar ganga fyrir rafmagni, matur legið undir skemmdum í frystikistum og þar fram eftir götunum. Þá hafði fól'k flúið af einum bæ og til Reykjavíkur, vegna þess að ný- fætt barn var þar, og ekki þótti forsvaranlegt að vera með það í köldu húsinu .í rafmagnsleysinu hafa menn gripið til þess ráðs að láta dráttarvélarnar drífa mjaltavélarnar, þar sem svo hag- ar til, og einnig hafa menn gripið til gamalla benzínmótora, sem þeir geta látið drífa mjalta- vélarnar, en annars hefur þurft að mjólka upp á gamla lagið með höndunum. GRIMOND Framhals af bls. 1. lega þekktur á opinberum vett vangi. Eftirmanni hans er því mikill vandi á höndum og mun ekki veita af tímanum til næstu kosninga til að byggja upp fylgi sitt, jafnvel þótt kosn- ingar verði ekki fyrr en árið 1970. E'kki hefur eftirmaður Grimond verið útnefndur enn. Fyrir þingkosningamar á síðasta ári hafði Grimond þeg- ar lýst því yfir, að e.t.v myndi hann segja af sér formennsku, ef Verkamannaflokkurinn eða íhaldsflokkurinn ynni kosning arnar með miklum meirihiuta. Stjómmálafréttaritarar líta margir svo á, að afsögn Gri- mond sé viðurkenning á því, að honum hafi mistekizt að mynda grundvöll fyrir nýjan róttækan flokk í Bretlandi með samsteypu frjálslyndra og vissra hægfara afla innan Verkamannaflokksins. Um slíka samsteypu var mikið tal- að það hálft annað ár, sem stjórn Wilsons var við völd með knappan meirihluta í neðri deild brezka þingsins, eft ir kosningarnar 1964. Innan Frjálslynda flokksins óttast nú margir, að kjósend- ur flokksins yfirgefi hann og fari yfir til stóru flokkanna tveggja. BRÚIN Á JÖKULSÁ Framhald af bls. 16 en þar hafði snjóað nokkuð í nótt, og því ekki fært nema stærri bílum og jeppum. Reykjadalsá flæddi yfir Vesturlandsveg hjá Fellsenda í Dalasýslu og skemmdi hann nokkuð, en vonast var til að viðgerð lyki í kvöld, og á þá að vera fært vestur í Reyk- hóiasveit- Vegurinn í Langadal í A.-Hún er lokaður við Æsustaðj vegna þess að Blanda flæðir þar yfir veginn, en farin er Svínvetninga- braut. Hefur áin unnið töluverð spjöll á veginum. Héraðsvötn lágu yfir Norðurlandsvegi á um eins og hálfs kílómeters kafla í gær, en vatnið hafði sjatnað í dag og yeg urinn ekki stórskemmdur. Kinnarvegur í S.-Þing. og veg urinn við Stóru-Velli ,í Bárðardal eru lokaðir vegna þess ag á báð um stöðunum flæddi Skjálfanda fljót yfir vegina. (gnlinental SNJÓ- HJÓLBARÐAR með eða án nagla undir bílinn Gúmmí- vinnusfofan hf. Skipholti 35, sími 31055 Jarðarför mannsins mlns, Eggerts Kjartanssonar, Hofsstöðum, Miklaholtshreppi. fer fram frá Fáskrúðarbakkakirkju laugardaginn 21. þ. m. kl. 2. eh. Bíll frá Helga Péturssyni fer frá Umferðarmiðstöðlnni I Reykjavík kl. 7 að morgni sama dag. Sigríður Þórðardóttir. ÁSKRIFT AÐ SÓKN OG SIGRUM Sókn og sigrar, saga Fram sóknarflokksins, fæst bæði í áskrift og í bókaverzlunum. Bókin er eðlilega töluvert ódýrari í áskrift en þeir sem vilja gerast áskrifendur geta snúið sér 111 eftirfarandi að- ila: Stefáns Guðmundssonar, Hringbraut 30, sími 12942, Skrifstofu Framsóknarflokks ins, sími 16066 og 15564 <4g Afgreiðslu Tímans, Banka stræti 7, sími 18300 og 12323. Sðkn og sigrar er glæsi- legt verk um eitt allra glæsilegasta tímabilið í stjórnmálasögu landsins. Fólk, sem hefur hug á að ná sér í þessa merku bók, ætti ekki að draga það, vegna þess að upplagið að bókinni er ekki stórt. Bolholti 6, (Hús BelgjagerSarínnar) Vélahreingerning — Vanir menn. Þrifaleg, fljótleg. vönduS vinna. Þ R l F — simar 41957 og 33049. • SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. — JÖN AGNARS FRlMERKJAVERZLUN SíMI 17-5-61 kl. 7.30—8 e.h. Jarl Jónsson lögg. endurskoðandi Holtagerði 22. Kópavogi Sími 15209 T rúlof unarhringar afgreiddir samdægurs. Sendum um aflt land. H A L L D Ó R , Skólavörðustig 2. LAUGAVEGI 90*92 Stærsta úrval bifreiSa á einum staS — Salan er örugg hjá okkur. PÍANÓ - FLGLAR Steinway & Sons Grotrian-Steinweg Ibach Schimmel Fjölbreytt úrval. 5 ára ábyrgð PÁLMAR ISÓLFSSON & PALSSON, Símar 13214 og 30392. Pósthólf 136, Jón Grétar Siourðsson héraösdómslögmaöur Austurstræti 6. 18783. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla Sendum gegn póstkröfu Guðm. Þorsteinsson, gullsmiður, Bankastræti 12. BRIDGESTONE HJÓLBARÐAR Slaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggi i akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og viðgerðir. Sími 17-9-84. Gúmmíbarðinn hi, Brautarholti 8, Brauðhúsið LAUGAVEGI 126. % Smurt brauð $ Snittur $ Cocktailsnittur $ Brauðtertur S I M I 2-46-31. islenzkur heimilisiðnaður, Laufásveg 2. Höfum miklð drval af ta) Iegum ullarvörum. silfur og leirmunum, tréskiirði batik munsturoókum oe fleira. Islenzkur heimilisiðnaður, Laufásveg 2. BiKrn Sveinbiörnsson, hæstaréttarlögmaður . Lögfræðiskrifstofa, Sölvhólsgötu 4, Sambandshúsinu, 3. hæð, simar 12343 og 23338 HllSBYIÍŒNDUR Smíðurr svetnherbergis oc eldhússinnróttingar SlMI 32 2-52 HÖGNI JÓNSSON, Lögtraeði og tasteionastot Skólavörðustig 16, sími I303ó heims 17739

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.