Alþýðublaðið - 11.01.1984, Síða 3

Alþýðublaðið - 11.01.1984, Síða 3
Miðvikudagur 11. janúar 1984 3 wjúr f «■ m * m WjmH - > •'i Hl&jfL SU ** 1 - ' : * Bruno Hjaltested, aðstoðarframkvœmdastjóri Samvinnutrygginga g.t. afhendir Kára Arnórssyni, skóla- stjóra Fossvogsskóla gjöfina frá Samvinnutryggingum. Viðstaddir eru fulltrúi Foreldra- og Kennarafélags Fossvogsskóla, fulltrúi Námsstjóra og 2 deildarstjórar frá Samvinnutryggingum. Samvinnutryggingar veita Fossvogsskóla viðurkenningu: Slysum við Bústaðaveg hefur fækkað til muna Yfirlýstu norrænu umferðar- öryggisári er að ljúka. Nemendur Fossvogsskóla unnu að margs kon- ar verkefnum um umferðarmál, sem ætlað var glæða áhuga þeirra og skilning á auknu öryggi gang- andi fólks og þeirra, sem farartæki nota. Verkefnin voru ýmist unnin í Sighvatur 1 á næstunni. Eins og Alþýðublaðið greindi frá í gær, sótti Einar Karl Haraldsson ritstjóri Þjóðviljans einnig um þennan sama starfa. Ekki hefur verið starfandi framkvæmdastjóri hjá Norræna félaginu á íslandi hin síðustu ár, en starfsemi félagsins engu að síð- ur verið mikil og vaxandi. For- maður félagsins er Hjálmar Ólafsson. Launamunur 1 1.3%, en konum um 7%. En það segir ekki alla söguna, því ekki er sama hvort um fullt starf er að ræða eða hlutastörf. Árið 1980 unnu 50% kvenna V* starf eða fullt starf og þar afleið- andi 50% minna. Hins vegar unnu nær 70% karla 3A eða fullt starf og um 30% minna. Árið 1981 breyttist hlutfallið hjá konunum í 52.6% með lengri vinnutímann, en 47.4% með styttri, en hjá körlunum í 75.5% með lengri vinnutímann en 24.5% með styttri. Hlutfallið hafði því aukist hjá báðum kynjum þegar um V* eða fullt starf var að ræða. Árið 1982 breytast hlutföllin enn, þá unnu 54.7% kvenna 3A eða fullt starf, en 76.6% karla. Á þessum tveimur árum hafði hlutfall þeirra kvenna sem unnu V» eða fullt starf hækkað úr 50% í tæplega 55% og verður hver og einn að meta hvort það telst mikil ásókn eða ekki. Á sama tíma jókst hlutfallið hjá körl- unum úr 70% í 76.6% sem fyrr seg- ir. Hlutastörf virðast almennt á undanhaldi hjá báðum kynjum. Nú er svo komið að 67.1% kvenna á aldrinum 15—75 ára voru virkar í atvinnulífinu árið 1982 og hafði það hlutfall risið úr 64.7% frá 1981. En aðeins um 37% þeirra unnu fullt starf og er virknin því í reynd minni en þessar tölur gefa í skyn. Annar mælikvarði er að miða við ársverk, eiginlegt „vinnufram- lag“ og kemur þá í ljós að vinnu- framlag kvenna er eins og að 51.8% þeirra hafi unnið heilt ársverk árið 1982, en aftur á móti 49.8% árið 1981. skólanum eða á götum úti og voru hin fjölbreyttustu. Sem dæmi má nefna, að teiknuð var stór yfirlits- mynd af Bústaðavegi og næsta ná- grenni og sýndi myndin umferðar- ljós, biðstöðvar strætisvagna, þver- götur, gangbrautir, umferðaskilti og annað markvert á leið vegfar- enda. Einnig könnuðu nemendur háttu ökumanna i umferðinni á nokkrum stöðum í borginni, t.d. á notkun bílbelta og stefnuljósa. Öll verkefnin vöktu fjöruga og ýtarlega umræðu barna og kennara. Markmið norræna umferðar: öryggisársins hvatti foreldra- og kennarafélög Fossvogssköla til að vinna að bættu öryggi vegfarenda í hverfinu. Bústaðavegur var kominn í hóp gatna í borginni með mesta bílaumferð. Jafnframt var hún orð- in mjög hröð, og slysum fjölgaði ó- hugnanlega mikið. Stjórn félagsins skrifaði borgaryfirvöldum bréf og benti á leiðir um úrbætur. Ásamt foreldra- og kennarafélögum ná- grannaskólanna, Réttarholtsskóla og Breiðagerðisskóla var efnt til funda um vandamál Bústaðavegar og umferðar í hverfinu í heild, ýmist með fulltrúum borgaryfirvalda og lögreglu eða meðal fólks í hverfinu. Er skemmst að segja frá því, að skilningur borgaryfirvalda á á- hyggjum íbúa hverfisins og við- brögð við þeim hugmyndum, sem settar voru fram til að bæta öryggi á Bústaðavegi, voru lofsverðar. Nefna má, að óskir félagsstjórnar um umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar og Hörgslands/Rétt- arholtsvegar, gönguljós á Bústaða- veg á móts við Bústaðakirkju og stórbætta götulýsingu á Bústaða- vegi voru allar uppfylltar á skömm- um tíma. Árangurinn hefur ekki látið standa á sér. Að sögn lögreglu í yfirliti Slökkviliðsstöðvarinnar í Reykjavík yfir brunaútköll árið 1983, kemur í Ijós að ekki hafa verið færri útköll allt frá árinu 1969, eða 328, miðað við 360 árið 1982. Útköll þar sem slökkva þurfti eld fækkuðu frá 1982 úr 276 í 233. Nokkur fækkun varð á sjúkra- flutningum stöðvarinnar, úr 11.184 í 10.400 árið 1983. Frá 1973 hafa sjúkarflutningar stöðvarinnar yfir- leitt verið rétt rúmlega 10 þúsund á ári. Þegar brunaútköll eru athuguð nánar kemur í ljós áð eldar í íbúðar- húsum urðu alls 83, þar af flestir í á- hefur slysum og óhöppum fækkað að mun á Bústaðavegi eftir þessar aðgerðir. Sem viðurkenningu á því mikla starfi sem nemendur Fossvogsskóla og foreldra- og kennarafélags hans hafa unnið, bæði með mikilli og ár- angursríkari fræðslu og í góðri samvinnu við borgaryfirvöld um umferðaröryggismál, ákváðu Sam- vinnutryggingar g.t. að veita skól- anum viðurkenningu í tilefni norr- æna umferðaröryggisársins. Viðurkenningin, sem veitt var í lok ársins, var myndsegulbands- tæki og litsjónvarpstæki, hvort tveggja af stærstu og fullkomnustu gerð sem völ var á á markaðinum. Tækin munu án efa verða skól- anum til mikils gagns til marghátt- aðrar fræðslu, ekki síst umferðar- fræðslu, því að reynsla af ýtarlegri umfjöllun og fræðslu um umferð- armál á norrænu umferðaröryggis- ári í skólanum hefur sannað mikil- vægi slíkrar fræðslu. Þegar skólinn hefur einnig eignast eigin upptöku- tæki, verður unnt að fjalla um raunhæf dæmi, tekin í daglegri um- ferð. Viðurkenning Samvinnutrygg- inga er glöggt dæmi um áhuga fé- lagsins á því að leggja sitt af mörk- um til að stuðla að auknu öryggi í umferð. Foreldra- og kennarafélag Foss- vogsskóla er ljúft að þakka höfð- inglega gjöf Samvinnutrygginga til skólans og lítur svo á, að hún sé við- urkenning, fyrst og fremst veitt börnum skólans, sem með áhuga sínum hafa glætt skilning sinn og annarra á þörfum bætts öryggis í umferðinni. Félagið óskar þess, að nú sé hafið almennt umferðar- öryggisár án nokkurs endis að loknu yfirlýstu norrænu umferðar- öryggisári. gústmánuði eða 11. Alls urðu 35 eldar í bifreiðum og 3 í skipum, en 105 af ýmsum orsökum, þar af langflestir í apríl. Almennt virðist brunahætta vera mest ríkjandi í mars og apríl, Alls urðu auk þessa 95 kvaðningar þar sem ekki var um eld að ræða og þar af 5 tilfelii þar sem um gabb hefur verið að ræða. Eitt meiriháttar brunatjón varð á árinu, á Álafossi. Tvö ungmenni fórust í eldsvoða, en enginn árið áð- ur. Tjón varð „mikið“ í þessu eina tilfelli hjá Álafossi, „talsvert“ í 13 tilfellum, „lítið“ í 50 tilfellum, en „ekkert“ í 169 tilfellum af 233. Útköll Slökkviliðsins í Reykjavík 1983: Hin fæstu frá 1969 Úthlutun veiðileyfa 1984 Frestur til að skila upplýsingum um frátafir frá veiðum vegna meiri háttar bilana eða breytinga á skipum, á tímabilinu frá 1. nóvember 1980 til 31. október 1983 hefur verið framlengdur til 20. janúar n.k. Eigendur fiskiskipa, að undanskildum opnum bátum, sem hafa á þessu tímabili orðið að hætta veiðum í samfellt meira en tvær vikur i hvert skipti, og óska eftir þvi að tekið verði tillit til frá- tafa þeirra við úthlutun veiðileyfa, skulu senda upþlýsingar þar um til ráðuneytisins þarsem fram komi eftirfarandi atriði: 1. Á hvaða tímabili var skipið frá veiðum? 2. Frá hvaða veiðum tafðist skipið? 3. Af hvaða orsökum tafðist skipið frá veiðum? Ennfremur þurfa að fylgja sönnunargögn um að frátafir hafi orðið vegna bilana eða breytinga eins og t.d. upplýsingar frá viðgerðarverkstæði eða tryggingarfélagi. Upplýsingar, sem berast eftir 20. janúar n.k. verða ekki teknartil greina, komi til úthlutun veiðileyfa, sem byggja á áðurgreindum forsendum um skipt- ingu. Sjávarútvegsráðuneytið, 10. janúar 1984. SHappdrætti Sjálfsbjargar 24. desember 1983 Aðalvinningur: Bifreið SUBARU — 4WD Station GLF, árg. 1984 nr. 12338. Sex sólarlandaferðir að verðmæti kr. 25.000.00 hver. 43 vinningar — vöruúttekt, að verðmæti kr. 2.500.00 hver. 800 20075 999 20632 1080 21194 1404 22097 1497 sólarlandaferð 22395 1592 22817 1666 24296 3150 24562 sólarlandaferð 4447 sólarlandaferð 24977 5501 25503 5674 25515 6016 29063 7173 31168 9338 31590 10305 33454 11079 38794 12338 Bíllinn 39620 13631 39622 sólarlandaferð 13929 41521 14404 sólarlandaferð 42201 16120 sólarlandaferð 44371 17076 44376 17115 47699 17686 47723 19237 49404 Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra. A iS&J Útboð Tilboð óskast i eftirtaida verkþætti við barna- heimili við Grænatún í Kópavogi: — pípulögn — raflögn — málun — dúkalögn bjóða skal i hvern verkþátt fyrir sig. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings Fann- borg 2, gegn 200 króna skilatryggingu. Tilboð í alla verkþætti verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 17. janúar 1984 klukkan 11.00 fyrir hádegi. Bæjarverkfræðingur

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.