Alþýðublaðið - 25.01.1984, Síða 4
alþýóu-
■ n hT'TT'M
Miövikudgur 25. janúar 1984
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson.
Blaðamaður: Friðrik Þór Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Helma Jóliannesdóttir
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
Kitstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866.
Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Fangaverðir og verkstjórar
Horseröd-fangelsisins:
Vilj a ekki
Glistrup!
Yfirmaður Horseröd fangelsis, fangelsisverðirnir 102 þar og verkstjór-
ar stofnunarinnar hafa ritað yfirvöldum í Danmörku bréf þar sem þeir fara
fram á að ef Glistrup verður aftur sviptur þinghelgi verði hann ekki sendur
til þeirra aftur.
Mikil ólga rikir í fangelsinu eftir kæru Glistrups á hendur átta fangavörð-
um fyrir ofbeldi og landráð. Verkstjórar fangelsisins segja að umtalið hafi
haft neikvæð áhrif á vinnumóralinn hjá föngunum og skapað úlfúð. Yfir-
maður fangelsisins, Erik Christensen tekur undir kröfur fangavarðanna og
telur ekki fært að Glistrup dveljist í opnu fangesli.
Glistrup er ekki vinsœll maður í Horseröd fangelsinu eftir að hann kœrði stjórnendur þarfyrir landráð og
ofbeldi. Til vinstri eru formaður og varaformaður fangelsisvarðanna: Við viljum ekki sjá Glistrup hér aftur...
Henry Kissinger
Steingrímur segir í DV að
hann gæti samþykkt tölur úr
leyniviðræðum VSÍ og ASi meö
ákveðnum skilyrðum. Hvenær í
andsk. voru þau bráðabirgðalög
getin út, að Steingrímur yröi að
blessa alla kjarasamninga sem
gerðir væru í landinu og setja
fingrafarið sitt á þá?
Meirihluti Bandaríkjamanna:_
Á móti hernaðaraðstoð
til hægri einræðisstjórna
Meirihluti Bandaríkjamanna er á
móti þeirri stefnu Reagan-stjórnar-
innar að dæla fjármunum og her-
gögnum í stórum stíl til hægri ein-
ræðisstjórna í Mið-Ameríku. Þetta
kom fram í nýlegri skoðanakönnun
í Bandaríkjunum.
Þessi könnun var gerð um það
leyti, sem Kissingernefndin, sem
fyrrum utanríkisráðherra USA,
Henry Kissinger, veitti forstöðu,
hafði lagt til að 8,4 milljörðum doll-
ara yrði veitt til ríkja og ríkis-
stjórna, í Mið-Ameríku, sem væru
Bandaríkjastjórn hliðholl.
Skoðanakönnun Harris-stofn-
unarinnar leiddi hins vegar í ljós, að
67% þeirra Bandaríkjamanna, sem
leitað var til, voru á móti tillögum
Kissingernefndarinnar, en aðeins
25% þeim sammála.
Þá kom einnig í ljós í könnun-
inni, að 75% aðspurða voru ein-
dregið á móti hækkun á hernaðar-
stoð til hinnar illræmdu stjórnar í
E1 Salvador, en stjórnvöld í Banda-
ríkjunum ætla að hækka það fjár-
magn sem renna á til beinnar hern-
aðar aðstoðar úr 65 milljónum
dollara í 176 milljónir. Aðeins 17%
voru meðmæltir þessari hækkun.
Þá voru 60% þeirra sem svöruðu
andvígir fjárstuðningi til uppreisn-
armanna í Nicaragua, sem velta
vilja Sandinistastjórninni þar í
landi. 25% fannst hins vegar það af
hinu góða, að Bandaríkin styddu
uppreisnaröfl, sem vildu koma á
hægri einræðisstjórn þar á nýjan
leik — a la Somosa.
Það er því alveg ljóst að banda-
rískur almenningur er allt annað en
hrifinn af þeirri stefnu Reagans og
fylgifiska að styðja og styrkja í sessi
einræðisstjórnir í Mið-Ameríku,
sem margar hverjar hafa orðið upp-
vísar af grimmúðlegustu fólsku-
verkum og hafa troðið á almennum
mannréttindum fólks í þessum
löndum.
TASS
fréttastofan
of fljót á sér:
ríkisráðherra Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna í Stokkhólmi á
dögunum.
Þegar TASS sagði frá umræðum
á fundinum sl. miðvikudag rétt fyr-
ir klukkan 19 að sovéskum tíma, þá
var klukkan fimm í Stokkhólmi og
„Takist í hendur“ lœtur Jan O. í
Adresseavisen Olof Palme segja
við Gromyko og Schultz á þessari
teiknimynd.
Sagði fréttir af viðræðum
meðan þær stóðu yfir
Hin opinbera sovéska fréttastofa,
TASS, var heldur fljót á sér í síðustu
viku og setti raunar hálfgildings
met í fréttamiðlun, þegar hún
greindi frá viðræðufundi Andrej
Gromyko og George Shultz utan-
Stofnfundur Samtaka um friðaruppeldi um næstu helgi:
Nám og uppeldi rækti
með fólki friðarvilja
Dagana 27. lil 29. janúar koma
góðir gesfir (il íslands í boði Sam-
taka um friðaruppcldi og Norræna
Hússins, en Samtökin verða form-
lega stofnuð um þessa helgi.
Eva Nordland, prófessor í upp-
eldisfræði við Oslóar háskóla, flyt-
ur erindi á stofnfundi samtakanna,
sem haldinn verður laugardaginn
28. janúar í Norræna Húsinu og
hefst kl. 13:00. Þar talar líka Magne
Askeland, kennari og fulltrúi sam-
takanna „Lærere for Fred“ í
Noregi, og söngkonan Birgitta
Grimstad syngur.
Samtök um friðaruppeldi eru
stofnuð til að vinna að alheimsfriði
og afvopnun. Einkum ætla samtök-
in að stuðla að því að nám og upp-
eldi rækti með fólki friðarvilja, veki
skilning á öðrum þjóðum og um-
burðarlyndi, hvetji til alþjóðlegrar
samvinnu. Við þetta starf skal hafa
að leiðarljósi samþykkt Menning-
armálastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna (UNESCO) frá 1974 um
fræðslu til skilnings milli þjóða,
samvinnu og friðar.
Á fundinum flytur Jónas Páls-
Framhald á 2. síðu
fundur utanrikisráðherranna í full-
um gangi ennþá. Það sem sovéska
fréttastofan hafði ekki reiknað með
var að fundur leiðtoganna stóð
helmingi lengur en ætlað var — eða
fimm klukkustundir í stað tveggja
og hálfrar klukkustundar.
En fréttastofan lét sig samt ekki
muna um það, að segja í fréttinni,
að bandaríski utanríkisráðherrann
hefði hlustað illa og haft lítill skiln-
ing á því er Gromyko hefði haft
fram að færa. Þetta hafði sem sagt
hin opinbera fréttastofa gefið sér
fyrirfram og ekki hirt um að leita
raunverulegra frétta um árangur af
fundinum.
Kannski afleiðingar þessa hafi
verið þær, að Gromyko fremur en
TASS fái orð í eyra vegna þessa
máls, þ.e. að sovéski utanríkisráð-
herrann hafi farið út af þeirri línu
sem sovésk yfirvöld höfðu lagt fyrir
fund fulltrúa risaveldanna. Að
minnsta kosti fór eitthvað úr bönd-
um hjá sovéska kerfinu í þetta sinn.