Alþýðublaðið - 04.02.1984, Page 1

Alþýðublaðið - 04.02.1984, Page 1
Endurskipulagning Tímans: Úr tengslum við starfsfólk — segir Gísli H. Sigurðsson, fráfarandi framkvœmda- stjóri blaðsins. „Endurskipulagning blaðsins hefur því raunverulega verið alger- lega úr tengslum við starfsmenn þess og er það vitaskuld í hæsta máta óeðlilegt. Samskiptin hafa farið fram á pappírsmiðum og hefur nefndin aldrei sýnt neinn áhuga á sam- starfi“ segir meðal annars í yfirliti sem Gísli H. Sigurðsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Tímans hefur sent frá sér, þar sem hann fjallar ítarlega um endurskipulagn- ingu á blaðinu og vandamál þau sem upp komu í samskiptum starfs- manna blaðsins við fulltrúa Fram- sóknarflokksins. Gísli var sem kunnugt er látinn víkja til hliðar er stjórn blaðsins var stokkuð upp. Einnig var Elías Snæ- land Jónsson ritstjóri látinn víkja úr sæti sínu. í yfirliti sínu bendir Gísli á að eftir þær breytingar sem hann stuðlaði að sem fram- kvæmdastjóri Tímans, hafi hagur blaðsins vænkast mjög og nú sé svo komið að hinir nýju menn taki við hallalausum rekstri með bjarta framtíð framundan. í yfirliti sínu kemur Gísli víða við, fjallar um auglýsingar, áskrift, dreifingu, efni og vinnslu blaðsins, málefni Blaða- prents og svo um áðurnefnd sam- skiptavandamál. Þar tekur hann meðal annars fyr- ir nefnd þá sem sett var á Iaggirnar til að stuðla að framgangi þeirra breytinga sem lagðar höfðu verið til Framhald á 3. síðu son er látinn Einn af traustustu og dyggustu stuðningsmönnum Alþýðuflokks- ins, Guðmundur R. Oddsson, framkvæmdastjóri, er látinn. Guð- mundur var framkvæmdastjóri Alþýðubrauðgerðarinnar um langt árabil og gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Alþýðuflokk- inn. Hann var í sveit þeirra manna, sem ruddu flokknum braut á mestti erfiðleikatímum íslenskrar alþýðu. — Alþýðublaðið flytur ættingjum og vinum Guðmundar samúðarkveðjur. Guðmundar R. Oddssonar verður nánar minnst í Alþýðublaðinu. Guðmundur R. Odds- Albert undir býr afsögn! „Nánast skipun um að ég segi af mér.“ Ótímabærar yfir- lýsingar.“ „Steingrimur er allt of mikill tækifærissinni." „Þeir vaða í reyk“. „Óskiljan- leg afskiptasemi." „Gróf íhlut- un.“ „Vilja losna við mig.“ Þetta eru meðal þeirra mörgu yfirlýsinga sem Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra hef- ur látið frá sér fara að undanförnu í fjölmiðlum og greinilegt að hann fer hamförum. Tilefnið eru um- mæli Steingríms Hermannssonar og Sverris Hermannssonar efnis- lega á þá leið að stefna rikisstjórn- arinnar myndi varla kollvarpast þó launarammi stjórnarinnar eða girðing myndi víkka út frá 4% í 6%. Telja þeir tvímenningarnir að verðbólgan yrði e.t.v. um 1% meiri á árinu og viðskiptahaliinn 2% í stað 1%. Benda þeir á að samn- ingar eru frjálsir og því ekki rétt að rikisvaidið geti sett óumbreyt- anlegan 4°7o ramma. Albert hefur hins vegar brugð- ist ókvæða við þessum yfirlýsing- um og túlkar þær sem svo að sam- ráðherrar hans vilji losna við hann. Borgarstjóri: Laugardagur 4. febrúar 1984 25. tbl. 65. árg. Einangraður í varnarstöðu Þóttu svör Davíðs ansi rýr og full af fyrirvörum um þróun þessa máls. Varnartónninn var áberandi í máli borgarstjóra og treysti enginn annarra fulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins sér til að koma til liðs við Davíð. Enda talið að innan borgarstjórn- armeirihlutans sé síður en svo full samstaða um málið, né meðal sjálf- stæðismanna almennt. „Svör borgarstjóra voru hvorki fugl né fiskur“ sagði Sigurður E. Guðmundsson, borgarfulltrúi Al- þýðuflokksins er Alþýðublaðið ræddi við hann um umræðurnar. „Fulltrúar minnihlutans gagn- rýndu harðlega hvernig að þessu máli hefði verið staðið. Ég lagði í samræmi við áður kornin atriði fram bókun, þar sem ég boðaði flutning tillögu minnar um að borg- in setti það skilyrði fyrir þátttöku sinni í þessu fyrirtæki að það yrði almennt hlutafélag, opið öllum“ sagði Sigurður. Kristján Benediktsson var fjar- verandi umræðurnar, en Gerður Steinþórsdóttir lýsti yfir afdráttar- lausri andstöðu sinni við þátttöku Reykjavíkurborgar í fyrirtækinu. Sagðist hún greiða atkvæði á móti fyrirætlun meirihlutans. Fyrirspurn fulltrúa minnihlutans var í sjö liðum, en í svörum Davíðs kom meðal annars fram að eftir að borgin kom inn í myndina hefði engum öðrum aðilum verið boðin þátttaka, en hann kvað þó ekkert útiloka að aðrir gætu gerst hluthaf- ar gegn almennum skilyrðum. Taldi hann þetta fyrirtæki geta opnað stórkostlega möguleika fyrir þá að- ila sem þegar vinna á sviði fjölmiðl- unar. Éngu áþreifanlegu svaraði hann til um fjármögnun fyrirtækis- ins. Ýmsir eru þeir þó sem telja hitt réttara, að hér sé Albert að nota kærkomið tækifæri til að losna út úr ríkisstjórninni, enda marg lýst yfir að honum sé fjármálaráð- herraembættið ekki fast í hendi. Miklar umræður urðu á fundi borgarstjórnar í fyrradag er Davíð Oddsson borgarstjóri svaraði fyrir- spurn fulltrúa minnihlutaflokk- anna um þátttöku borgarinnar í fjölmiðlahlutafélaginu ísfilm. r-RITSTJORNARGREIN- Eru jafnaðarmenn hlaupatíkur Kremlverja? Skrif (slenskra blaða um njósnamálið í Noregi taka á sig ýmsar myndir, og eru sum- ar þeirra fremur ógeðfelldar. Morgunblaðið, eins og blöð hægri flokkanna i Noregi, hef- ur reynt að koma höggi á jafn- aðarmenn og jafnframt reynt að gerajafnaðarmannaflokka- Evrópu tortryggilega, sérstak- lega fyrir afskipti þeirra af frió- armálum og fyrir kröfuna um afvopnun. Þetta gerist á sama tima og hrunadans kalda stríðsins ógnar tilveru allra jarðarbarna. Njósnir fööurlandssvikara ( Noregi eru þannig notaðar til að læða þeim grun að almenn- ingi, að það sé nánast almenn regla, að innan jafnaðar- mannaflokka séu karlar og konur í löngum röðum á mála hjá KGB. Þessi kenning er rétt- lætt með því, að forystumenn margra jafnaðarmannaflokka veiki stöðu Atlantshafsbanda- lagsins með því að taka þátt í friðarbaráttunni og með þvf að reyna að knýja stórveldin til að hefja afvopnunarviðræður aö nýju. Fyrir þá, sem þekkja sögu jafnaðarmanna I Evrópu, hljómar þetta eins og fárán- leikinn uppmálaður. Allt frá rússnesku byltingunni hafa flokkar jafnaðarmanna verið helsta vígi hins frjálsa heims gegn hverskonar öfgastefn- um, svo sem kommúnisma, nasismaog helköldum kapíta- lismanum. Hina siðari áratugi hafa jafnaðarmenn talið það eitt mikilvægasta verkefni sitt 'aö spyrna gegn áhrifum kommúnista, enda kommún- istar talið þá í hópi erkifjenda sinna. — Það eru staðreyndir stjórnmálanna, og þaö hafa ekki verið til umræðu neinar „sögulegar sættir“, eins og heyrst hefur úr herbúðum Morgunblaðsins og lesa hefur mátt á siðum þess. Alþýðu- flokkurinn hefur ekki he;ldur þurft að hrópahúrrafyrir klofn- ingsstarfi kommúnista hina síðari áratugi. En í allri þessari umræðu tek- ur fyrst steininn úr í fimmtuda- gsgrein Magnúsar Bjarnfreðs- sonar! Dagblaðinu. Þessi dag- farsprúði maður virðist þar fá útrás fyrir bælda andúð eða hatur á jafnaöarmönnum, og því miður verða skrif hansáð- eins flokkuð undir andlegan sóðaskap. Arne Treholt skipaði sér í .Jriöar”- arm norska krataflokksins, var á móti vestrænu samstarfi, baröist gegn kjamorkuvopnum og svo framvegis, en varö þó aö gæta n(Akurs hófs. Kannski hann gæti gefiö einhverjar upplýsingar um þaö hvers vegna krataflokkar Norövestur-Evrópu hafa einn af oörum lagt á flótta frá fyrri skoöunum og grafa nú hver sem betur j .ugum svu teiigi sem þau kommúnismanum. En ef Ame Treholt skýröi frá öllu^ sem hann veit um moldvörpustarfsemi , kommúnista í Norðvestur-Evrópu, ! ekki hvaö síst innan krataflokkanna, þá færi skjálfti um marga. Þá myndu jafnvel Kremlarmúrar kippast örlítiö tU og ýmsir kikna i hnjáUðunum — jafnvel uppi á^slandi. Þá myndu mold- vörpurskjálfa. Magnús Bjarofreðsson. I grein sinni gefur Magnús fyllilega i skyn, að innan Al- þýðuflokksins eigi sér stað einhver moldvörpustarfsemi í þágu kommúnista. Skrif hans verða ekki skilin á annan veg en þann, að í Alþýðuflokknum sé stunduð njósnastarfsemi fyrir Kremlverja. Ef Anre Tre- holt opni á sér munninn muni þetta koma í Ijós, og þá muni moldvörpurnar í fslenska krataflokknum fara að skjálfa. — Þannjg skrifar „gullpenni“ Dagblaðsins um íslenska jafnaðarmenn. Þessi skrif Magnúsar Bjarn- freðssonar eru auðvitað svo alvarlegs eðlis, að gera verður þá kröfu til hans, að hann renni stoðum undir þær getsakir, að innan Alþýðuflokksins séu menn, er stundi njósnir í þágu Sovétrlkjanna. Alþýðuflokkur- inn mun ekki þola áburð um föðurlandssvik. Aðdróttanir Magnúsar eru svipaðs eðlis, og ef Alþýðu- blaðið léti að þvi liggja, að flokksbræður hans í Fram- sóknarflokknum hlytu að ganga erinda Kremlverja vegna hinna miklu samskipta, sem þeir hafa við Sovétmenn vegna margvislegra viöskipta samvinnuhreyfingarinnar við Sovétríkin. Benda mætti á, að einmitt verslunarsendinefndir Sovétrikjanna á Vesturlöndum hafa verið helstu njósnamið- stöðvar Sovétmanna. Eða þá að Alþýðublaðið teldi Fram- sóknarmenn sérstaklegahalla undir Moskvu-valdið vegna þess að Timinn birtir blaða mest greinar sovésku frétta- stofunnar APN,— Alþýðublað- inu dytti hins vegar aldrei ( hug, að gera því skóna að Framsóknarmenn væru hlaupatíkur Kremlverja, ekki einu sinni þeir í hópi Fram- sóknarmanna, sem standa framarlega f friðarhreyfing- unni. Magnús Bjarnfreðsson nýtur þess álits, að taka verður tillit til skrifahansog gerahann um leið ábyrgan fyrir þeim. Ef hann ekki færir betri rök fyrir máliisinu en i fimmtudagsgrein Dagblaðsins, verða skrif hans flokkuð undir ómerkilegan vaðal. ÁG

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.