Alþýðublaðið - 09.02.1984, Page 1
alþýöu-
I UlTLLL
Fimmtudagur 9. febrúar 1984
Hvað segja þau um niðurstöður
Kjararannsóknarnefndar?
28. tbl. 65. árg.
Ragna Bergmann Framsókn:
Staðfestir það
sem við vissum
„Niðurstöður þessarar könnunar
staðfesta það sem við vissum í raun
fyrir að það eru konurnar sem hafa
lægstu launin. jafnvel þó 90% af
bónus sé færður yfir á dagvinnuna.
Þetta töldum við okkur vita og því
skrifuðum við í Framsókn og Sókn
þetta bréf þar sem við fórum fram
á að fá þetta svart á hvítu,“ sagði
Ragna Bergmann, formaður verka-
kvennafélagsins Framsóknar þegar
Alþýðublaðið innti hana álits á nið-
urstöðum könnunar Kjararann-
sóknarnefndar.
50% félagskvenna í Framsókn
reyndust hafa undir 13 þúsund
krónur fyrir mánaðar dagvinnu, en
73% með undir margumtöluðum
15 þúsund króna mörkunum. Hér
er miðað við fullvinnandi giftar
konur. Meðallaun þessara kvenna
fyrir dagvinnuna voru um 14 þús-
und krónur. Engin kvennanna í úr-
Framhald á 2. síðu
Karl Steinar Guðnason, varaform. VMSI:
Margir eiga um
sárt að binda
„Niðurstöðurnar koma í sjálfu
sér ekki á óvart. Þær sýna að margir
búa við þokkalegar heildartekjur,
en jafnframt að mjög margir eiga
um sárt að binda" sagði Karl Stein-
ar Guðnason, varaformaður Verka-
mannasambandsins og alþingis-
maður er Alþýðublaðið innti hann
álits á niðurstöðmn könnunar
Kjararannsóknarncfndar.
„Væntanlega verða þessar niður-
stöður til að hvetja menn til að ná
fram sérstakri leiðréttingu þessu
fólki til handa. Ég hygg að besta
leiðin til þess væri að hressa upp á
tryggingakerfið með ýmsu móti
samhliða því að fyrir verkafólk
almennt náist í samningum veruleg
kjarabót. Það verður að freista þess
á allan hátt að ná viðunandi kjara-
samningum“ sagði Karl.
Magnús L. Sveinsson V.R.:
Atvinnurekendur geta
borgað mun betur
„Það er villandi að segja að félags-
menn í VR hafi einhverja sérstöðu í
þessari könnun. Þó „aðeins“ 10%
hafi verið undir 15 þúsund króna
markinu verður að gæta að því að
þetta er um 1000 manns. Það bætir
ekki hag þessa fólks þó 8% félags-
manna hafi yfir 30 þúsund,“ sagði
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
er Alþýðublaðið innti hann álits á
niðurstöðum könnunar kjararann-
sóknarnefndar.
„Við höfum vitað það um nokkurt
skeið að hluti starfsamanna í VR er
verulega yfirborgaður, það kom í
ljós í samantekt frá 1981 að 80% af
skrifstofufólki var yfirborgað um
að meðaltali 22%, en um 20% þessa
fólks var ekki yfirborgað. Á hinn-
bóginn kom í ljós að aðeins 50% af
afgreiðslufólki var yfirborgað og þá
aðeins um 15% að meðaltali, en hin
Framhald á 3. síðu
Þátttaka borgarinnar í ísfilm:
Einkaframtak
Davíðs Oddssonar
„Rœddi við mig stuttlega þegar hann lagði þetta
fyrir borgarráðf segir Magnús L. Sveinsson
Oddsson ræddi fyrst við mig
stuttlega um þetta mál þegar það
var lagt fyrir borgarráðþ sagði
Magnús.
Með öðrum orðum hafði borg-
arstjóri ekki fyrir því að kynna
samherjum sínum þetta einka-
framtak sitt fyrr en þann sama
dag og hann lagði málið fyrir
borgarráð, þar sem Magnús á
sæti. Sjálfsagt er þá sömu sögu að
segja um þau Markús Örn
Antonsson og Ingibjörgu Rafnar,
sem einnig eiga sæti í borgarráði
fyrir flokkinn. Nú eru málefni
borgarinnar ekki lengur einkamál
Sjálfstæðisflokksins. Þau er
einkamál Davíðs Oddssonar
borgarstjóra.
það voru ekki bara fulltrúar
minnihlutans í borgarráði og
borgarstjórn sem vissu ekkert um
það fyrirfram að borgarstjóri
hygðist leggja fram tillögu um
þátttöku Reykjavíkurborgar í
fjölmiðlaþursinum ísfilm. Komið
hefur í Ijós að hann hafði ekki
einu sinni fyrir því að hafa samráð
við félaga sína í meirihlutanum.
Þetta staðfestir að minnsta
kosti Magnús L. Sveinssón borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
samtali við Alþýðublaðið.
„Það hefur ekki farið fram
Jtæmandi umræða um þetta mál
innan okkar herbúða enn þá svo
ég vil ekki tjá mig unt málið ítar-
lega. Þó get ég sagt að Davíð
Kjaradeilan í dlverinu:
Forstjórinn læt-
ur ekki sjá sig
Ragnar Halldórsson forstjóri
ÍSAL hefur ekki látið svo lítið að
taka þátt í yfirstandandi samninga-
viðræðum starfsmanna álversins
við yfirboðara fyrirtækisins. Hann
hefur nánast ekkert sést á samn-
ingafundum eftir að hann kom
heim úr reisu sinni til Hong Kong
fyrir skömmu; rak þó inn nefið á
samningafund og sagði starfs-
mönnum að þeir ættu að hugsa sinn
gang. Með það fór hann.
Menn hafa talsvert' íhugað
ástæður fjarveru Ragnars Hall-
dórssonar i þessari kjaradeilu allri,
því það er samdóma álit manna,
sem til þekkja, að þeir er nú sitja í
samninganefnd fyrir hönd ÍSAL
hafi tæpast umboð til neinna
ákvarðana né tilboða. Þess vegna
séu samningaviðræður meira og
• minna sýndarmennska. Telja menn
að álforstjórinn sé með þessu að
reyna taka starfsmenn álversins á
taugum — vinna þá á tímafaktorn-
um.
Virðingarleysi álforstjórans
gagnvart þessurn samningaviðræð-
um hefur hins vegar orðið til þess
að stappa enn stálinu í starfsmenn
álversins. Dónaskapur Ragnars
Halldórssonar í þeim efnum hefur
því síst af öllu orðið til þess að
draga úr þeint tennurnar — heldur
þvert á móti.
Fleiri „sálræn“ brögð hafa verið
reynd af hálfu forsvarsmanna fyrir-
tækisins. Þeir hafa lýst því við
starfsmenn að stefnt sé :ð því að
slökkva alveg undir ákveðnum
hluta kerjannaog það muni óhjá-
kvæmilega þýða að framleiðslugeta
verksmiðjunnar verði miklum mun
minni um alllangt skeið, þegar deil-
unni lýkur og þar af leiðandi verði
ekki komist hjá því að segja upp
fjölda starfsmanna.
Hansína Stefánsdóttir, Verzlunarmannafélagi Árnessýslu:
80% undir 15000 kr.
„Vegna könnunar Kjararann-
sóknarnefndar langar okkur til að
koma á framfæri upplýsingum sem
við höfum tekið saman um félags-
menn okkar. 79.3% reyndust hafa
undir 15 þúsund krónur á mánuði
fyrir dagvinnu sína“ sagði Hansína
Stefánsdóttir, starfsmaður Versl-
unarmannafélags Árnessýslu, sem
liafði samband við blaðið i gær.
Sagði Hansína að miðað væri við
félagsgjald hinna 266 fullgildu fé-
laga, en 1% af dagvinnu er talið fé-
lágsgjald.
„Önnur 6% reyndust vera með
yfir 18 þúsund krónur fyrir dag-
vinnuna og því 14.7% þarna á milli.
Það má geta þess að talsverður hóp-
ur bætist alltaf við á sumrin og þá
lækkar meðaltalið talsvert. Þá má
líka geta þess að á milli 80 og 85%
af félagsmönnum okkar eru konur.
Þetta kemur okkur ekkert á óvart
að svona hátt hlutfall félagsmanna
okkar séu fyrir neðan þessi mörk,
t.d. í samanburði við útkomu V.R. í
könnun Kjararannsóknarnefndar-
innar, þar sem 10% voru undir
þessum mörkunt. Hér hafa aldrei
tíðkast yfirborganir og Suðurland-
ið hefur verið í næst neðsta sætinu
þegar meðaltekjur á landinu eru
skoðaðar og þá eru Vestmannaeyj-
ar taldar með Suðurlandinu“ sagði
Hansína.
Svínakjöt lækkar
Félagsráð Svínaræktarfélags
íslands kom saman til fundar i
Reykjavík' fimmtudaginn 2.
fcbrúar sl.
Á fundinum var nt.a. rætt um
verðlag á svínaafurðum og stöðu
búgreinarinnar í samkeppni við
búgreinar sem njóta opinberrar
fyrirgreiðslu og styrkja.
Med/ hliðsjón af markaðs-
ástæðum, þá var ákveðið að
lækka verð á svinakjöti frá fram-
leiðendum um 5% frá og með 3.
febrúar. En bent skal á að svína-
kjöt hefur ekki verið niðurgreitt
af hinu opinbera og vcrða svína-
bændur því að lækka verð á
afurðum sínum, þegar svigrúm á
ntarkaðnum þrengist, segir í
fréttatilkynningu frá stjórn
Svínaræktarfélags íslands.