Tíminn - 04.02.1967, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 4. febrúar 1967
TÍMINN
FLYTJA RUSSAR LID AÐ
LANDAMÆRUM KÍNA?
VTB-Varsjá, föstudag I að Sovétríkin hafi kallað heim fjöl Sögusagnir hafa verig á kreiki
Sendifulltrúar Vesturveldanna í mennar hersveitir fi'á ýmsum Aust síðustu mánuði um stórkostlega
Varsjá iáta í ljós efasemdir um ur-Evrópuríkjum til þess að styrkja herflutninga Rússa #ð landamær
íannleiksgildi þeirrar fréttar, sem | vamirnar við landamæri Sovétríkj um Kína, en þær hafa aldrei feng
nú er mikið umtöluð víða í Evrópu anna og Kína. 1 izt staðfestar. Erlendir sendifull-
PB-Reykjavík, föstudag.
Leikfiélag MA er komið til
Reykjavíkur í þeim tilgangi að
sýna hér þrisvar sinnum leik-
inn Bledermann og brennu-
vangana, en IMA hefur nú þeg
ar gýnt þennan leik sjö sinn-
um, fimm sinnum á Akureyri
og tvisvar á Húsavík. Sýning-
arnar verða í Tjarnarbæ kl. 8
á laugardagskvöld, og síðan kl.
4 og 8 á sunnudaginn. Héðan
fer LMA til Akraness og sýnir
leikinn þar einu sinni í Bíó-
höllinni á þriðjudagskvöldið.
Erlingur E. Halldórsson er
leikstjóri en Biedermann
(lengst til vinstri á myndinni)
leikur Sigurgeir Hilmar,
Schmitz leikur Sverrir Páll Er-
lendsson, Eisenring og Babet
(lengst til hægri) leikur Stein-
unn Jóhannsdóttir.
STEFNUBREYTING
HJÁ HANOI STJÓRN?
iioí
NTB-Lundúnum, föstudag.
Stjórnflnálamenn á Vesturlönd-
um athuga hú gaumgæfilega síð-
ustu yfirlýsingar Hanoi-stjórnar
í sambandi við möguleikana á
friðarviðræðum um Vietnam. Enda
þótt þessar yfirlýsingar séu í ger-
samlega allt öðrum anda en fyrri
afstaða Hanoi-stjórnar til friðar-
viðræðna verður ekki fullyrt hvort
um raunverulega stefnubreytingu
Hanoi-stjórnar er að ræða.
í yfirlýsingu Hanoi-stjórnar í
síðustu viku, sem síðan var endur-
Stjörnubíó hefur sýnt í
rúmar tvær vikur myndina
Eiginmaður að láni, eða
Good Neighbour Sam með
Jack Lemmon, Romy Schn-
eider og Dorothy Provine í
aðalhlutverkum. Þétta ér
gamanmynd í litum, gerð
eftir skáldsögu Jack Finney.
Kvikmyndahandritið er eftir
James Fritzell, Everett Gree-
nbaum og David Swift og
framleiðandi og leikstjóri er
David Swifti íslenzkur texti
er með myndinni.
tekin í Kambodju í dag, er ekki
minnzt á fyrra skilyrði. Hanoi-
stjórnar, að allur bandarískur her
verði að fara brott frá Vietnam,
áður en friðarviðræður hefjist. í
yfirlýsingunni segir aðeins, að
loftárásum Bandaríkjamanna á
Norður-Vietnam verði að linna.
Velta menn nú fyrir sér, hvort
einn fulltrúi Hanoi-stjórnar, Ngu
yen Vuy Thu, á blaðamannafundi
í höfuðhorg Kambodju í dag. Sagði
hann, að ef Bandaríkjamenn
hættu skilyrðislaust öllum loftárás
um á Norður-Vietnam og stönz-
uðu allar aðrar hernaðaraðgerðir
gegn landinu, yrði hægt að hefja
friðarviðræður.
þetta þýði fráhvarf Hanoi-stjórn- V4C , . „ .
ar frá skilyrðinu um brottflutn-j Tallíl.er að Vietnam-deil-
ing alls herafla Bandaríkjamanna1 an tl1 “T*
frá Vietnam, áður en viðræður um
geti hafizt.
Á blaðamannafundi í gær tók
Johnson, Bandaríkjaforseti skýrt
fram, að hann hefði ekki látið í
ljós neifín vilja til að hætta loft
árásum á Norður-Vietnam og
segja fréttamenn, að með þessum
ummælum hafi forsetinn viljað
kveða niður alls konar sögur um
afstöðu Bandaríkjastjórnar í þessu
sambandi. Lagði Johnson áherzlu
á, að hann hefði ekki orðið var
við neinn raunverulegan samnings
vilja af hálfu Hanoi-stjórnar, þrátt
fyrir endurtekin tilboð Banda-
ríkjastjórnar um skilyrðislausar
viðræður.
Áðurnefnda yfirlýsingu gaf
Kosygin, forsætisráðherra
Sovétríkjanna og Harold Wilson,
forsætisráðherra Breta, sem hitt
ast munu innan tíðar í Lundún-
um.
trúar í Varsjá segja, að það hafi
verið almenn skoðun, að herflutn
ingum hafi lokið í fyrrahaust, er
Voltava-heræfingarnar áttu sér
stað. í þeim tóku þátt fjögur ríki
Varsjár-bandalagsins og miðuðu
þær að því að fá úr því skorið, á
hve skömmum tíma hægt væri að
flytja sovézkar hersveitir til eða
frá Austur-Evrópu.
Áður en heræfingarnar hófust
hafi verið búið að ákveða að kalla
heim til Sovétríkjanna 20.000 her-
menn til ag gegna þar varaliðs
störfum.
í marga má.nuði hafa verið sögur
á kreiki um mikla herflutninga
Sovétríkjanna og í september s. 1.
birtu v-þýzk blöð þær fréttir, að
sex sovézkar herdeildir hefðu ver
ið fluttar heim frá Austur-Þýzka
landi. Staðfesting fékkst aldrei
á þeim fréttum.
Robert McNamara, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna sagði í
Róm nýlega, að Sovétríkin hefðu
20 herdeildir í Austur-Þýzkalandi,
en samanlagður herstyrkur Varsjár
bandalagslandanna væri 800.000
herménn, þar af 300.000 sovézkir
hermenn.
Þessar síðustu fréttir setja
menn í samband við tíðar ferðir
sovézkra ráðamanna að landamær
um Kína, þar sem nokkrar róstur
hafa verið undanfarið, aðallega við
landarnærin hjá Sinkiang, þaðan
sem fjöldi Kínverja hefur flúið
yfir landamærin til Sovétríkjanna.
Bent er á, að síðustu atburðir
menningarbyltingarinnar í Kína
geti verið orsök tryggari umbúnað
ar Sovétríkjanna við landamærin.
í dag fullyrtu kínversk yfirvöld
að sovézkir lögreglumenn hefðu
barið kínverska sendifullbrúa fyrir
utan sendiráðið í Moskvu, en eins
og áður hefur verið skýrt frá hafa
sovézkir sendifulltrúar verið bein-
línis í lífshættu vegna umsáturs
Kínverja um sovézka sendiráðið í
Peking. Þessar síðustu gagnkvæmu
ásakanir gefi e.t.v. til kynna, að
ekki sé langt að bíða þess, að full
slit verði á stjórnmálasambandi
ríkjanna.
Gjöf til Háskólans
Forráðamenn fyrirtækisins J.
Þorláksson og Norðmann h.f. hafa
í dag í tilefni af hálfrar aldar
afmæli fyrirtækisins gefið 100.000
krónur í Minningarsjóð Jóns Þor-
lákssonar verkfræðings til styrkt-
ar verkfræðinemum við Háskóla
íslands eða til framhaldsnáms
þeirra við annan háskóla.
Minningarsjóður Jóns Þorláks-
sonar verkfræðings var stofnaður
af ekkju hans frú Ingibjörgu Þor-
láksson á sjötíu og fimm ára af-
mæli- manns hennar, hinn 3. marz
1952. Úr sjóðnum er árlega út-
hlutað styrkjum til verkfræðinema
og hefur sjóðurinn gegnt mikil-
vægu hlutverki við Háskóiann.
Háskóli í'slands þakkar þessa
stórgjöf og þá ræktarsemi, er for-
ráðamenn fyrirtækisins J. Þorláks-
son og Norðmann hafa á(5ur sýnt
Háskólanum.
HÉRAÐSLÆKNIR Á
EYRARBAKKA
Hinn 21. janúar veitti forseti
íslands Einari Th. Guðmundssyni,
héraðslækni á Bjldudal, héraðs-
læknisembættið í Eyrarbakkahér-
aði, frá 1. júní n.k.
Embættið var auglýst laust til
umsóknir 13. desember s. 1. og
voru umsækjendur þrír, þeir Ein-
ar Th. Guðmundsson, héraðslækn-
ir á Bíldudal, Magnús Sigurðsson,
aðstoðarTæknir á Borgarspítalan-
um í Reykjavik og Vigfús Magnús
son, héraðslæknir í Vík í Mýrdal.
SKIPAÐUR
PRÓFESSOR
í LAGADEILD
Hinn 31. janúar sl. var Þór Vil-
hjálmsson, borgardómari, skipað-
ur prófessor í lagadeild Háskóla
íslands frá 1. febrúar 1967 að
telja.
Menntamálaráðuneytið, 1. febrúar
1967.
UNGUR SÖNGVARI SYNG-
UR í LANDAKOTSKIRKJU
GÞE—Reykjavík, föstudag,
N.k. sunnudagskvöld kl. 8.30
verða haldnir kirkjutónlcikar í
Kristskirkju að Landakoti.
Hreinn Líndal tenórsöngvari
syngur einsöng, og við orgelið
er Hilmar Guðlaugsson. Á
efnisskránni eru þrjú íslenzk
iög, tvö lög eftir Gluck, Ave
Maria eftir Luzzi, tenórsóió úr
Sáiuimessu Verdi o.fl.
Hreinn Lindal hefur undan-
farin 6 ár verið við söngnám
á Ítalíu, og þetta eru hans
fyrstu opinberu tónleikar hér
á landi. Hann stundaði undir-
búningssöngnám hjá Maríu
Markan í hálft annað ár, hélt
síðan til Ítalíu og sótti um inn-
göngu.í tónlistarháskóla Santa
Sicilia í Rómarborg, sem er
einn fremsti tónlistarháskóli í
heimi. Umsækjendur voru 65,
en aðeins 15 fengu skólavisú og
Hreinn var nr. 2 í röðinni við
inntökuprófið og fékk fyrir
bragðið. ókeypis skólavist þau
fjögur ár, sém hann var þar.
Meðal kennara hans voru Ant-
oni Lini og Maria Pediconi,
sem á sínum tíma var í fremstu
röð ítalskra söngkvenna. Er
skólanum sleppti fór Hreinn i
einkakennslu hjá barytonsöngv
aranum Boriello, sem starfað
hefur við Scalaóperuna í Róm
s.l. 15 ár, og einnig hefur hann
stundað nám hjá Moriello
hljómsveitarstjóra í Rómaborg.
Blaðamaður Tímans ræddi
við Hrein í dag, og kvaðst hann
aðeins vera í heimsókn hér
heima, en hann hygði á áfram-
haldandi dvöl á Ítalíu. Hann
sagði, að hugur sinn stefndi
að Scala- eða Rómaróperunni,
en ekki væri hlaupið að því
að komast þangað, því að fram
boðið á góðum söngvurum væri
svo mikið í Róm. Aðspurður
kvaðst hann ekki hafa komið
fram opinberlega nema á nem
endatónleikum, m.a. hefði hann
sungið Don Basilio í óperunpi
Brúðkaup Figaros á skólaár