Tíminn - 04.02.1967, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.02.1967, Blaðsíða 3
T LAUGARDAGUR 4. febrúar 1967 TÍMINN 3 MINNING ÞORSTEINN JÓSEPSSON Þorsteinn Jósepsson var um margt óvenjulegur maSur. En það hygg ég, að hafi borið af, hve einbeittur og óhvikull vilji hans var. Hann fór ungur að heiman með tvær hendur tómnr og ekki annað veganesti en góðar gáfur. Hvergi voru útréttar hend- ur, sem buðust til pess a'5 styðja hann, — engir, sem óðfúsir vildu hlaða undir hann. Einn og óstudd- ur komst hann sakir eliu sinnar og einbeittni í fremstu röð á mörg um sviðum Hann gerðist kornungur iþrótta- maður og sigurvegari , sinni grem Hann brauzt til metinta í fram- andi löndum og lagði slíka rækt við tungu þeirra þjóða, sem hanni dvaldist á meðal, að ég hygg, að vald hans á henni hafi verið með sérstökum ágætum. Hann gerð- ist ferðamaður og náttúruunn- andi einn hinn mesti, komst í fremstu röð ljósmyndara og varð loks bókasafnari slíkur, að þá ís-i lendinga má telja á fingrum sér, er stóðu honum jafnfætis. Jafnhliða þessu vann hann full- gilt starf í annarri þjónustu. þar sem blaðamennskan var, hafði samt ærinn tíma til þess á lífs- leiðinni að sinna gestum, sem oft voru margir á heimili hans, og leiðbeina fjölda útlendinga, Þjóð- verja og Svisslendinga, sem leit uðu til hans með margan vanda. Bg hygg, að í flestum mönn- um búi hæfileikar.til þess að inna meira af höndum en raun vill verða á. Þorsteinn Jósepsson er mér ein sönnun þess, hve miklu má áorka, ekki á einu sviði heldur jafnvel mörgum, þegar saman fer einbeittur vilji og orka. Starfsfýsn Þorsteins var fágæt. Hann tók jafnan snemma til vinnu, sat lengi við og afkascaði miklu. Helsjúkur gerði hann hvoTt tveggja hina síðustu mánuði ævi sinnar, að hefjast handa um nýtt stórvirki, þar sem var ritið Land- ið þitt, og vinna linnulaust að hugðarmálum sínum. Fram á sið- asta dag var hann að leggja drög að útvegun þess, sem hann taldi vanta í hið góða bókasaín sitl. Hann lét engan bilbug á sér finna andspænis sjálfum dauðanum, svo einbeittur var viljt hans og af- dráttarlaus trúnaður hans yið það málefni, sem hann helgaði sig. Þó að Þorsteinn væri jafnan maður önnum kafinn, hafði hann einnig nægan tíma cil þess að gleðjast, þegar það átti við. Þá var hann í senn veitull gestgjafi og glaðvær félagi, og í hvívetna var hann hinn bezti drengur, heill og sannur maður. Margir kveðja Þorstein Jóseps- son með eftirsjá. Þar er pú skarð fyrir skildi, er áður var vel skip- að, og nrnnlífið allt fátæklegra en áður var Svo finnst mér, og svo mun fleiri fara. Vinir Þorsteins telja sig hafa mikið misst. En hvað mun þá um konu hans, Edit Wischarta, og Ástríði dóttur hans og Jósefínu Gísladóttur, fyrri konu hans. Þeim votta ég innilégustu samúð mína. J.H. Ef væri mér ggfin sú mikla rit- leikni og. skarpa hugsun, sem ein kenndi hinn látna sæmdarmann, Þorstein Jósepsson, myndi mér reynast auðvelt að tjá huga minn á verðugan hátt, en hugur og hönd eru bundin. Kynni okkar voru í rauninni frem ur stutt og má rekja þau til árs- byrjunar 1965 er hann tók að sér að rita bók þá er kom út fyrir síðustu jól, „Landið þitt“- Þorj steinn var að vísu löngu ' orðinn’ landskunnur maður og áður en kynni okkar tókust hafði ég nokkra hugmynd um hæfni hans og áhuga svið, en það verð ég að viður- kenna að ekki hafði ég gert mér veitingahúsið ÆSKUR BÝÐTJR YÐUR GRILLAÐAN KJUKLING o.fl. í handhœgum umhúðum til að taka HEIM ASKUK suðurlandxbraut 14 sími 38550 Stýrimannafélag Islands Fyrri hluti aðalfundar verður haldinn sunnudag- inn 5. febrúar kl. 15.30 að Bárugötu 11. 1. Uppstilling til stjórnarkjörs. 2. Önnur naál. Stjórnin. TILBOÐ óskast i nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis að Grensásvegi 9, miðvikudaginn 8. febrúar kl. 1— 3. Tilboðin verða opnuð i skrifstoíu vorri kl. 5 sama dag. SÖLUNEFND VARNARLIÐSEIGNA. I grein fyrir því hvílíkur fræðasjór hann var né afkastamaður. Hvort i tveggja var rneð ólíkindum. Frum I handriti að bókinni skilaði hann \ á þremur mánuðum og var þá ekk- ert að vanbúnaði að hýn yrði birt, miðað við fyrstu áætlanir, ef ekki hefði svo um samizt okkar á milli að hann breytti gerð hennar að | nokkru vegna breyttra aðstæðna. 1 Þessar breytingar voru hins vegar mjög tafsamar og kröfðust jafn- vel enn meiri vinnu en hann hafði þegar framkvæmt Ekki skoraðist hann undan hin / uiklu viðbótar- vinnu og fók til yið breytingarnar í ársbyrjun 1966. En nú var sköp um skiph Hann kenndi sér hins voðalega sjúkdóms er um síðir fékk hann að velli lagðan og tví vegis lagðist hann undir skurðar hniíinn meðan hann vann að end urskoðuninni. Engan bilbug lét hann á sér finna og vann af óbug aðri elju að ritverkinu, þar til hann lagðist á skurðarborðið í bæði skiptin. Og ekki var hann fyrr vaknaður af svæfingunni en hann tók aftur til við fyrri störf, þótt sárþjáður væri. Eg undraðist hinn óþrjótandi kjark og dáðist að karlmennsku Þorsteins, sem verður mér hvort tveggja næstum óskilj anlegt því meir sem ég hugsa um það- í rauninni var það næstum ofurmannlegt. Eg hlaut að hafa mjög náið sam starf við Þorstein þetta tímabil og gat því fylgzt nokkuð með vinnu- brögðum hans sem fræðimanns og rithöfundar. Eitt var hans aðal einkenni; sannleiksleitin. Vissi hann nokkurn vafa á heimildum, gerði hann sitt ítrasta til að leita hins rétta. Því varð ég ekki undr- andi. en þótti að sama skapi vænt um, er eijin úr foringjaliði lögregl unnar í Reykjavík gat þess við mig að Þorsteinn hefði verið sá fréttamaðurinn er ætíð hefði haft lögreglufréttir réttast eftir, öllum öðrum fremur. Það voru mér mikil gæfuspor er leiddu til kynna minna af Þor- steini. Þá gafst mér tækifæri til að kynnast manni sem á skömmum tíma hefur haft meiri áhríf á mig en flestir aðrir. Aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni og aldrei skyldu sleggjudómar um menn eða málefni heyrast af hans vörum. Mér er að skiljast nú, bet- ur en áður, merking þess að vera drengur góður. Þótt Þorsteini væri það ekki eiginlegt að flíka tilfinningum sín- um, þá mátti ég þó vel finna gleði l hans vegna þeirra viðtaka sem j bók hans fékk. Það gladdi hann ' áreiðanlega mikið, og ég veit að það gladdi einnig alla hans nán- ustu vini er fylgzt höfðu með harðri baráttu hans við að ljúka , verkinu áður en kallið kæmi. Þor steinn var sérstaklega vinmargur maður og vinfastur og veit ég að hans verður saknað af mörgum, hérlendis og erlendis. Á heimili Þorsteins kynntist ég einnig þeim tveim manneskjum sem honum þótt áreiðanlega vænst um af öllum, dóttur hans Ástu og eiginkonu hans Edith sem er af austurrísku bergi brotin. Báðar vissu þær hvert stefndi en báru harm sinn í hljóði. Án þess að kasta rýrg á nokkurn annan get ég ekki látið hjá líða að geta þess með aðdáun og virðingu hvernig Edith annaðist Þorstein og gerði allt sem hún gat til að styðja hann og styrkja. Hún reis hærra við hverja raun og býr sýnilega yfir þeim mannkostum sem öllum eru ekki gefnir. Eg vil votta Ástu og Edith, syst ur hans og öðrum vandamönnum samúð mína. Með Þorsteini er g'enginn óvenjulegur mannkosta- maður, sem sigraði þótt hann félli. Megi minning hans lifa íslcuzkri þjóð til blessunaar. Örlygur Ilálfdanarson. m ma Á VÍÐAVANGI Jafnvægi landshlut- anna Dagur segir svo í forestu- grein um jafnvægið í byggð landsins nýlega: „Vcrndun og efling lands- byggðar er þjóðarnauðsyn. Hér er ekki um það að ræða að hvergi megi leggja niður byggð ból cða flytja á hagkvæmari stafj. Uppbygginguna ber að miða við það að hagnýta sem bezt gæði náttúrunnar tii lands og sjávar, þar sem þau eru til staðar. Björgulega staði ætti ekki að vfirgefa. Jafnframf ber að hafa það í huga að ráðið til þess að hjndra beina og hlutfallslega fólksfækk un í einhverjum Iandshluta get ur verið meðal annars fólgið í því að koma þar upp þéttbýlis- hverfum eða efla kaupstaði og kauptún ,sem fyrir eru. Aukn- ing fólksfjölda á slíkum þétt- bvlisstöðum getur, þótt hún í bili dragi til sfn eitthvað af fólki úr umhverfi sínu, verið brýnt hagsmunamál hlutaðeig- andi landshluta, ef hún ræður úrslitum um það, að sá lands- hluti, sem heild haldist í byggð og eflist. I bæjum og þorpum skapast líka markaður og ýms ir aðrir möguleikar fyrir nálæg ar sveitir. Af þessu leiðir. að byggðajafnvægið verður ekki Ieyst svo að vel sé, hema á það sé litið frá heildarsjónarmiði hinna stóru landshluta. en þá jafnframt baft í huga að björgu legar byggðir, þótt nú séu fá- mennar og eigi í vök að verj- ast, dragist ekki aftur úr í sókn þjóðarinnar til bættra atvinnu- hátta og betri lífsvjara“. Afköst fámennisins „Byggðajafnvægisstarfsemin á ekki að vera fólgin í „atvinnu leysisráðstöfunum" eða örvun þjóðhagslega óhagkvæmrar framleiðslu. Koma þarf í veg fyrir þann misskilning, sem stundum ber á, að hin fámenn- ari byggðarlög og atvinnu- rckstur þeirrá sé yfirleitt byrði á þjóðarbúskapnum. Athuganir hafa leitt í ljós, að i sumum fá mennum sjávarplássum til dæm is skilar hver íbiti að meðaltali svo mikilli gjaldeyrisvörufram- leiðslu í þjóðarbúið, að athygli vekur við' samanburð. Víða > sveitum er framleiðslan líka án efa mjög mikil, ef reiknað er á þennan hátt. En þar sem tilfinn anlegur skortur er á fjármagni og tækni af skornum skammti, getur þetta orðið á annan veg. Það er athyglisvert í þessum samanburði, að engin stétt þjóðfélaginu mun leggja eins mikið fram hlutfallslega af eig in tekjum og með vinnu sinni til uppbyggingar í landinu og bændastéttin Óhætt mun að gera ráð fyrir. að hagnýt þjóð- arframleiðsla minnki ekki held ur vaxi við aukið jafnvægi byggð landsins. Með aðstoð fjármagns og tækni þarf að gera börnum (andsins kleift að grundvalla bú setru sína, lífsafkomu og menn ingu á náttúrugæðum til lands og sjávar. hvar á landinu, sem þau náttúrugæði eru’.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.