Tíminn - 04.02.1967, Side 12
12
TlfálNN ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 4. febrúar 1967
Reykjavíkur-liðið sterk-
ara en Khafnar-úrvalið?
Alf-Reykjavík. — Leikur Reykja
Tíkur og Kaupmannahafnar, leik-
urinn, sem handknattleiksunn-
endur hafa beðið lengi eftir, verð-
ur háður í Laugardalshöllinni í
dag og hefst klukkan 5. Dönsku
leikmennirnir komu til Reykjavík
ur í fyrrakvöld og j hópi þeirra
eru fimm af landsliðsmönnum
Dana, sem tóku þátt í nýafstað-
inni heimsmeistarakeppni. Reykja
víkur-liðið á erfitt verkefni fyrir
höndum, en við skulum vona, að
leikanennirnir standi sig vel og
sigri Danina. Yrði það nokkur
uppreisn fyrir ísl. handknattleik,
sem varð fyrir mörgum áföllum á
síðasta ári.
Það verður hinn gamalreyndi
Körfuboltí \
í næstu viku
íslandsmótinu í körfuknattleik
verður haldið áfram á mánudags-
kvöld að Hálogalandi. Leika þá
í 4. fl. ÍR—ÍKF, í 3. fl. KR—ÍKF
og í 1. flokki ÍR—KR. Keppninni
í 1. deild verður haldið áfram á
miðvikudagskvöld og leika þá ÍR
—f S og KR— Ármann.
Staðan j 1. deild er nú þessi:
KR 1 1 0 0 94: 60 2
ÍR 1 1 0 0 45: 37 2
Á 2 1 0 1 106: 88 2
ÍHF 2 1 0 1 130:127 2
KFR 2 1 0 1 131:151 2
ÍS 2 0 0 2 99:142 0
Gunnlaugur Hjálmarsson, sem stýr)
ir Reykjavíkur-liðinu í dag. Eng-1
inn hefur leikið fleiri landsleiki
! en hann, eða 35 talsins, og gam-
1 an yrði, ef Gunnlaugur næði að
i sýna „glans-leik“ í dag. Við hlið
! Gunnlaugs standa þeir Guðjón |
Jónsson og Karl Jóhannsson
af hinum reyndari leik-
mönnum liðsins. Gaman verður að
sjá Karl leika aftur með úrvals-
liði, en hann hefur ekki átt upp
á pallborðið hjá þeim aðila, sem
velur landslið. Karl er aldursfor-
seti liðsins, 32ja ára gamall, og
hefur 29 landsleiki að baki.
Línumenn í liðinu eru þeir
Framhald a bls. 15.
Badmintonmót
hjá KR í dag
Badmintondcild KR heldur op-
ið mót í tvíliðalejk í KR-húsinu
í dag. Er hér um að ræða keppni
í 1. flokki karla, en um síðustu
helgi var keppt í meistaraflokki.
Þátttaka í mótinu í dag er mjög
góð og hafa þegar yfir 30 kepp-
endur tilkynnt þátttöku. Eru þeir
frá KR, TBR, Vas og Akranesi.
Athygli vekur, að Valur sendir nú |
þáttakendur í fyi'Sta skipti í bad-
minton. Væntanlega líður ekki á
löngu áður en stóru knattspýrnu-
félögin j höfuðborgiflni fyrir ut-
an KR stofni badminton-deildir.
Keppnin í dag hefst klukkan 3.
FH kikur í Buda-
pest á sunnudaginu
íþróttir í blað-
inu á morgun
Skrif um íþróttir hafa yfirleitt
ekki verið j Tímanum á sunnu-
dögum, en nú verður breyting á
því. f blaðinu á morgun byrjai
nýr þáttur, sem nefnist „Á víta-
teig“ og verður það rabbþáttur
um íþróttir. Þátturinn á morgun
fjallar um landsliðsmálin í knatt
spymu. Þátturinn „Á vítateig*'
mun svo birtast í Tímanum fram-
vegis á sunnudögum.
Einn af silfurmönnum Dana frá HM, Bent Jörgensen, skorar gegn Tékk
um. Hann leikur meS Khafnarúrvalinu f dag.
B-lið Kefla-
víkur vann!
- og blaðamenn
unnu Val í hörku
leik 7:5
B-Iið Keflavíkur bar sigur
úr býtum í innanhúss knatt
spymumóti Vals, sem lauk í
Laugardalsliöllinni í gær-
kvöldi. Léku Keflavfk b og
Keflavík a til úrslita og eft-
ir venjulegan leiktíma var
staðan jöfn 3:3. Eftir fram-
lengingu var enn jafnt, 4:4
og var þá hlutkesti varpað.
Vann b-liðið hlutkastið.
Leikur kvöldsins var leik
ur íþróttafréttamanna og
„old boys“ Vals, sem tefldu
fram stjörnum eins og Al-
bert Guðmundssyni, Lollá,
Sig. Ólafssyni og fleirum.
Blaðamenn, með sitt bezta
lið, létu þessi stjörnunöfn
ekki hræða sig og léku af
öryggi allan tímann. Þeir
höfðu yfir í hálfleik 4:3,
komust um tíma í síðari hálf
Framhald á bls. 14-
Á fimmtudaginn hélt handknatt
leikslið FH með PanAm-þotu frá
Keflavíkurflugvelli áleiðis til Buda
pest. Og það er á morgun, sunnu-
dag, sem FH-ingar mæta mót-
herjum sínum í Evrópubikarkeppn
inni, Hoved, í Búdapest.
Ungverska liðið Honved er geysi
sterkt og hefur á að skipa mörg-
um ungverskum landsliðsmönnum.
Eiga FH-ingar því erfiðan leik
fyrir höndum. Eins og áður hefur
komið fram, gat Ragnar Jónsson
ekki farið með liðinu utan, en
að öðru leyti fóru allir sterkustu
menn FH með í förina.
Sagt verður frá úrslitum leiks-
ins í þriðjudagsblaðinu.
Skíðamót Rvík-
ur um helgina
1 Skíðamót Reykjavikur hefst
á sunnudaginn með keppni j
svigi í öllum flokkum. Fer mót
ið; fram í Skálafelli, en þar er
nu gott skíðafæri. Keppendur
eru um 70 talsins frá 4 félög-
um, flestum frá Ármanni, 24.
ÍR og KR senda 22 keppend-
ur hvor og 2 keppendur verða
frá Víking.
Keppnin hefst klukkan 11
f.h. á sunnudaginn með keppni
í drengjaflokki og telpnaflokki
og einnig fer þá fram keppni
í c-flokki. Klukkan 2 e. h. hefst
keppni í a- og b-flokki og
kvennaflokki. Skíðadeild KR
sér um mótið.
er KR-liöiö í sundknattleik, sem stöðvaði sigurgongu Ármanns, sem staðið hafði yfir i rúm 20 ár. Með
á myndinni er Einar Sæmundsson, form. KR, og til vlnstri er þjálfari þeirra, Þorsteinn Hjálmarsson
BORGARKEPPNI I HANDKNATTLEIK
ídagki. 17: REYKJAVÍK - KAUPMANNAHÖFN
Dómari Hannes Sigurðsson. Forleikur: UNGLINGALANDSLIÐ A og B
Verð miða kr. 125,00, og fyrir börn kr. 50,00. H* K. R. R.