Tíminn - 04.02.1967, Síða 13
LAUGARDAGUR 4. febrúar 1967
TÍMINN
13
MINNING
Framhald af bls. 9.
aðall til œviloka. Naut hann þess
þar og að eiga konu, sem hvatti
hann en ekki latti. En þau báru
ekki góðgerðasemi sína á glæsi-
brekkur né litu til endurgjalds.
En sá. sem hefur vakið gleðitár
f augum hins snauða, á sér endur
gjald í betri stað en hér á jörðu.
Jóhann andaðist viku fyrir síð-
ustu jól eftir harðsnúna baráttu
við ólæknandi sjúkdóm. JDauða
sínum ’tók hann með æSíureysi og
karlmennskuró, — vakti til síðustu
stundar yfir velferð fjölskyldu
sinnar og vina.
Eiginkonu Jóhanns, börnum
hans og aidraðri móður flyt ég
innilegar samúðarkveðjur.
Þar eru guðs vegir, er góðir
menn fara.
Vinur.
FRÁ ALÞINGI
Framhald af bls. 5.
fundi Væntanl. mundí forsætisráð
herrann líka sjálfur gera grein
fyrir henni og fengist^þá aðstaða
til að ræða hana. Annars virðist
ríkistjórnia_.S£ra_farin_ að nota
Efnahagsstofnunina eins og póli
tískt tæki sitt, og væri furðu-
legt, að Efnahagsstofnunin léti
þannig hvað eftir annað nota sig
til að vitna með ríkisstjórninni í
ýmsum deilumálum, þar sem
hún ætti að vera óbáð og ópóli-
tísk stofnun. Annars sagði Þór-
arinn, að ekki þyrfti neitt að leita
til Efnahagsstofnujiarinnar í
þessum efnum. Samkjomulagið,
sem náðzt hefði í Kjararannsókn
arnefnd, væri bezti grundvöllur-
inn, sem enn hefði verið lagður
að útreikningum um kaupmátt
tímakaupsins. Hann hefði rakið
það í fyrri ,ræðu sinni, hver sú,
niðurstaða væri, og hún stað-
festi það, sem haldið væri fram
f greinargerð tillögunnar.
Þórarinn kvaðst taka árið 1959
til samanburðar af tveimur ástæð
um. í>að væri seinasta árið fyrir
„viðreisn". Það ár hefði kaupið
raunverulega verið ákveðið af
Alþmgi og þá verið byggt á því
mati hagfræðinga, að kaupið j/æri
ekki of hátt.
Þá sagðist Þórarinn vera undr
andi yfir því, að Ólafur teldi, að
ekki mætti gera samanburð á
árskaupi Dagsbrúnarmanns, sem
er 114 þús. kr. samkv. mánaðar
taxta Dagsbrúnar, og því, sem
framfræsluvísitalan áætlar
fjögurra manna fjölskyldu til
greiðslu á vörum, þjónustu og
beijium sköttum, að húsnæði und
anskildu, en sú upphæð nemur
117 þús. kr. Telur einn af þing
mönnum Sjálfstæðjsflokksins
virkilega að fjögurra manna fjö! !
skylda geti komist af með minna
117 þús. kr. vegna þessara,
útgjalda?
Ólafur Bjömsson svaraði stutt
lega aftur, aðallega til að bera
blak af Efnahagsstofnuninni, en
síðan var umræðunni frestað.
skarð fyrir skildi í bandarísk-
um geimvísindum. Hann hafði
skipað sér í fremstu röð geim-
fara, og fáir höfðu jafnmikla
reynslu og hann. Hann sýndi
jafnan frábært hugrekki og
jafnaðargeð í hverju sem á
gekk.
Hann . gekk snemma í flug-
herinn og gat sér frægðarorð
í Kóreustríðinu og hlaut fyrir
bragðið Flugorðuna, sem ekki
er veitt nema fyrir frábær af-
rek. Árið 1959 var hann val-
inn einn af 7 fyrstu geimför-
um Bandaríkjamanna, og var
annar til að fara út í geiminn-
Sú ferð var nokkuð söguleg,
eins og menn muna, því að
lúgan á geimhylkinu opnaðist
við komuna til jarðar, og það
tók að sökkva. Grissom sýndi
mikið æðrpleysi, skreið út úr
hylkinu og svamlaði í hafinu
þar til hjálp barst. Grissom fór
aðra geimferð, þá með Gemini
3 og þótti sú ferð’ takast með
eindæmum vel.
Roger B. Chafee.
Hann var flugverkfræðingur
að mennt, og gekk í flugher
inn árið 1957.- Alls mun hann
hafa flogið 2.100 flugtíma, eig-
inlega eingöngu í orustuþotum.
Árið 1963 var hann- valinn til
að taka þátt í geimferðaáætl-
uninni, og hafði hann aldrei
tekið þátt í geimferð, er hið
hörmulega: slýs váTrð.
SLYSIÐ í GEIMFARINU
Framhald af bls. 9
mínútum á eftir áætlun, gerðij
hann það þó, og sagði síðar,
að sér hafi þótt rnjög fyrir bví i
að þurfa að hlýða. White /ar
flugverkfræðingur frá háskól-
anum í Michigan. Árið 1957
fékk hann skyndilega áhuga á
geimvísindum, og gekk í flug-
herinn. Árið 1962 var hann
valinn til að taka þátt í geim-
ferðaáætluninni, og þremur ár
um síðar fór hann í sína fyrst
ferð, er hann var látinn fara út
úr geimfarinu og var hann
fyrsti „geimgöngumaður“
Bandaríkjanna.
Gus Grissom.
Við fráfall Gus Grissom er
MINNING
Framhald af bls. 8
fræðslu til fermingaraldurs að
þeirra tíma hætti. Hefur
hugur hans vafalítið staðið til
frekari menntunar, ef að þess
hefði verið kostur.
var sfofnað^i ytri hlutá Babjar-
hrepps, gekk Ólafur strax í það
og starfaði þar með lífi og sál,
um margra ára skeið, og var for-
maður þess um hríð. Þótt árin
færðust yfir hætti hann aldrei
afskiptum af félaginu og var með
limur þess alla tíð.
Ég hygg að Ólafur hafi eins og
fleiri samtímamenn hans, hrifist
af hugsjón ungmennafélaganna,
eins og hún var þá túlkuð, og
sótt aukinn þroska og manndóm
í þennan félagsskap. Ólafur var
vel greindur maður, drenglynd-
ur og félagslyndur og var gott að
starfa með honum. Hann var sam
vinnuþýður, hreinskiptinn og
hjartahreinn. Hann var víkingur
til allrar vinnu og má segja að
kappið hafi verið helzt til mikið,
þvj að hann ætlaði sér tæplega
af.
16. nóv. 1940 giftist Ólafur
eftirlifandi konu sinni Kristínu
Guðbjartsdóttur, úr Arnarfirði
vestra. Hún er hin mesta ágætis-
kona og var sambúð þeirra hjóna
hin ástúðlegasta alla tíð. Þau eign
uðust tvo syni: Guðjón, er nú býr
á Valdasteinsstöðum og Þórarinn,
er býr í Bæ. Hóf þar búskap á
síðastliðnu ári í samvinnu við
föður sinn.
Ólafur var hinn nýtasti bóndi
og kom það bezt í ljós. er hann
fluttist áð Bæ. Bær er mikil
kostajörð. en hún var líka vel
setin, og getur það ekki dulizt
neinum, er þangað kemur. Ólafur
endurbyggði öll hú.s jarðarinnar
með hinum mesta myndarbrag og
lagði auk þess mikið fé i ræktun
og framræslu Ólafur átti alltaf
mjög gagnsamt bú. Hann fór mjög
vel með skepnur sínar, enda að
eðiisfari mjöe glöggur fjármaður.
Þao sem mér fannst mest ein-
kenna Ólaf og þau hjón í búskap
sínum, var spyrtimennska í allri
umgengni. Þar sást aldrei neitt
rusl. allt hreint og fágað úti sem
inni.
Þau hjón voru mjög gestrisin,
og var gaman þjir að koma, enda
kom ég þar oft, eftir að þau fluttu
í nágrennið. Húsbóndinn glað-
ur og reifur og sagði
skemmtilega frá. Húsmóðurin þlý
og umhyggjusöm. Þar var \oft
dvalið við fjörugar samræður
fram á nætur.
Ólafur tók mikinn þátt í félags
málum, enda ágætlega til Jjess
fallinn. Honum voru falin ýmis
írúnaðarstörf, er hann innti af
'hendi með hinni mestu samvizku
semi. Hann hafði framúrskarandi
fallega rithönd og var því á fund
um oft ritari, og gat það á stund-
um verið erfitt hlutverk. Ég, sem
þessar línur rita, vann töluvert
með Ólafi að félagsmálum, og féll
mér það vel. Hann var glöggur
og lagði sig fram um að kynna
sér vel mál áður en afstaða væri
tekin. En eftir að hún var tekin,
reyndist hann fastur fyrir og hélt
ótrauður fram sinni skoðun. Hann
var nokkuð ör í lund og gat
brðið hvassyrtur, ef að því var
að skipta. Aldrei erfði hann slík-
ar deilur við nokkurn mann og var
jafn ljúfur og áður við næstu
fundi. Svo sem áður er gétið sleit
Ólafur bernskuskónum í Heydal
og dvaldi þar allt til fullorðinsára.
Sú jörð er nú, fyrir nokkru, kom-
in í eyði. Mjög virðist dalurinn
hlýlegur og fallegur, og allt er
þar grasi vafið, svo sem nafnið
bendir til. Mikið bar Ólafur hlýjan
hug til dalsins. Það var eins og
birti yfir svip hans ef að á hann
var minnst. Mjög lofaði hann land
kosti þar og fleira, vafalaust með
réttu. Ólafur helgaði heimili sínu
og sveit alla starfskrafta sína, og
lá ekki á liði sínu, enda hefur
hann með starfi sínu reist sér
traustan minnisvarða, bæði í stór
felldum framkvæmdum á jörð
sinni, Bæ, svo og í hugum sveit-
unga sinna og samferðarmanna,
vegha mannkosta og öruggs stuðn
irigs ' við framfaramál héraðsins.
Eiginkonu lians, sonum og öðru
venzlafálki færi óg innilegar sam
úðarkfeðjur. Að leiðarlokum' er
margs að minnast. Við samferða-
mennirnir minnumst sviphreina
mannsins, er með okkur fagnaði
unnum sigrum. einnig í ósigrum
og vonbrigðum alltaf heill og
sannur.
Það 'er bjart yfir minningu
hans.
Jón Kristjánsson.
v/Miklatorg
Simi 2 3136
AKURNESINGAR!
BORGFIRÐINGAR!
UTSALA
Á ALLSKONAR FATNAÐI
KVEN OG KARLA
BÚTAÚTSALA
TEPPAÚTSALA
NOTIÐ TÆKIF/ÍRIÐ OG
GERIÐ GÓÐ KAUP
VERZLUNIN
FtDÓ
AKRANESI
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í notaða sandhörpu, sem nú er stað-
sett við Malbikunarstöð Reykjavíkurborgar við Ár-
túnshöfða.
Sandharpan samanstendur af:
Þremur trésílóum úr eik, fyrir 4 tegundir.
Sigtasamstæða með útbúnaði fyrir þvott, 3x2
rammar.
Nýtt gúmmíband til vara.
Gúmmífæriband með skúffum.
Skammtari.
Rafmótor fyrir skammtara.
Rafmótor fyrir færiband.
Rafmótor fyrir sigti.
Kaupandi skal taka þessi tæki niður og fjarlægja
þau af núverandi stað á einum mánuði frá sam-
þykkt tilboðs.
Bjóðéndur geta skoðað þessi tæki á ofangreindum
stað og ber að snúa sér til yfirverkstjóra Grjót-
náms í bifreiðavog borgarinnar við Ártúnshöfða.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonar-
stráeti 8, þriðjuáaginn Í4. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
STÚLKUR
Stúlkur vantar í Veitingahúsið Hreðavatnsskála
sem fyrst. Upplýsingar á símsstöðinni, Hreðavatns
skála.
/