Alþýðublaðið - 15.03.1984, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 15. mars 1984
■RITSTJÓRNARGREIN ■ ■■■■ ....
Stefnir í ófremdarástand
í húsnæðismálunum
Flokksstjóm Alþýðuflokksinsályktaði áfundi
sínum sl. mánudag um húsnæðismál og þar
vár átalið harðlega sinnuleysi ríkisstjórnarinn-
ar í húsnæðismálum.
Það er óþarfi að rifja það upp, að húsnæðis-
málin voru eitt aðaimál kosninganna í fyrra og
núverandi stjórnarflokkar voru með yfirboð og
gylliboð af ýmsum toga í þeim efnum. Hús-
byggjendum og íbúðakauþendum var lofað
gulli og grænum skógum af sjálfstæðismönn-
um og f ramsóknarmönnum. Margt hefur breyst
frá því þá. Langflest stóru loforðin frá í kosn-
ingabaráttunni sl. vor hafa verið svikin. Meira
að segjaerþróunin í öfugaátt; dregið hefurver-
ið úr þrótti hins opinbera húsnæðislánakerfis
og var þó nóg að gert í þeim efnum í tíð Svavars
Gestssonar sem féiagsmálaráðherra, þegar
raungildi húsnæðislánanna fór stiglækkandi.
Nú erástandiðáð verðaþannig, að Húsnæð-
, isstofnun getur ekki einu sinni ráðið viö þær
skuldbindingarsem á hana eru lagðar; hún sér
ekki fram áað geta lánað íbúðakaupendum og
húsbyggjendum þær lágmarksupphæðir, sem
þeireiga þó rétt á. Er nú rætt um nauðsyn þess
að fresta stórum.hiuta útlána, sem til greiðslu
eiga að koma á hausti komandi, eitthvað fram
á næsta ár. Þetta orsakar ekki einungis veru-
lega lækkun á raungildi lánanna, heldur og
skapar þetta að sjálfsögðu ómælda erfiðleika
fyrir það fólk, sem hefur gengið út frá því að fá
sína lánafyrirgreiðsiu áákveönum tíma í haust,
en fær svo ekki vegna svika ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórnin hefur því ekki aðeins svikið lof-
orð um stórkostiegar úrbætur í húsnæðismál-
unum, heldur hefur hún búið svo um hnútana,
að draga verður enn úr lánveitingum frá þvf
sem verið hefur. Var þó varla bætandi þar á.
Sömu sögu er að segja um hið félagsiega
íbúðakerfi. Þar áætlar ríkisstjórnin einnig að
skref verði tekin afturábak. Um þessi mál sagði
m.a. í ályktun flokksstjórnar Aiþýðuflokksins:
Samkvæmt frumvarpi til lánsfjárlaga er fyrir-
hugað að stöðva algerlega nýjar framkvæmdir
í verkamannabústöðum og seinka fram á árið
1985 stórum hluta þeirra bústaða sem lofað var
að afhenda á þessu ári. Jafnframt er gert ráð
fyrir að almenn lán til nýbygginga og til kaupa
á eldri íbúðum dragist saman um nærfellt
fjórðung. Samkvæmt þessu má áætla að upp
undír 1000 fjölskyldur verði fyrir töfum á af-
hendingu fbúða eða afgreiðslu lána á árinu, ef
svo fer fram sem horfir.“
m
I flokksstjórnarsamþykktinni er einnig bent á
þau sannindi, að þrátt fyrir þennan gífurlega
niðurskurð f húsnæðislánakerfinu, þá hafi rík-
isstjórnin ekki einu sinni tryggt fjármagn til að
standa undir þeim lánum sem hún þó fyrirhug-
ar að greidd verði út. Vantar hundruð milljóna
upp á að það dæmi gangi upp.
Og ekki er að sjá að rfkisstjórnin ætli að taka
á sig rögg í þessum málum, þvf engar tillögur
hafa f ram komið hjá ríkisstjórninni um að bæta
úr ástandi þessara mála og allar yfirlýsingar
ráðherra stangast á.
í lok ályktunar flokksstjórnar Alþýðuflokks-
ins segir: Flokksstjórnin varar eindregið við
þessari þróun málaog krefst þess að húsnæð-
islánunum verði komið á viðunandi grundvöll
þegar f stað þannig að mikill fjöldi fólks verði
ekki fyrir stórkostlegum áföllum vegna van-
efnda ríkisstjórnarinnar.“
— GÁS
Aslaug 4
reynir að bæta stöðu sína nteð því
að fara á endurmenntunarnám-
skeið hjá Námsflokkunum,— ríkið
hefur ekki séð ástæðu til að lög
binda slíka endurmenntun. — Síð-
an sækir hún um vinnu, full bjart-
sýni. Nafnið er skrifað niður og
biðin hefst. En það hringir hvorki
sími né berst bréf. Hún hefur verið
dæmd úr leik. En kannski á hún
smugu að komast i fisk eða vera á
símaborði.
í fiskinum tekur við áframhald-
andi réttindaleysi, og öryggisleysi.
Það má senda hana heim með viku
fyrirvara.
Kannski er henni bara sagt að
fara í spilaklúbb eða að hún sé lið-
tæk í góðgerðarfélag. Ekki geri ég
lítið úr því. En hver er uppskera
allra áranna? Hvar er rétturinn til
þess, sem er afrakstur ævistarfs.
Spyrji sig hver og einn. — Kannski
má dunda í garðinum, ef eignin
leyfir slíkt. Svo má sitja og prjóna
og láta útlendinga græða á vinn-
unni, og þannig að dútla ýmislegt,
þar til þjóðfélagið loks veitir heima-
vinnandi húsmæðrum athygli, og
fer að senda þeim ellistyrkinn. Um
þetta leyti fer hringurinn að lokast.
Meira var það ekki frá mér.Ég
vona aðeins,. að fyrr en síðar verði
staða okkar hóps þannig, að þjóð-
félagið minnist okkar áður en við
komumst á ellilaun eða í minning-
argrein í Mogganum.
Borgarstjórn 1
fulltrúi leggur fram á borgarstjórn-
arfundinum í dag tillögu þess efnis,
að borgarstjórn samþykki að leggja
fyrir borgarstjóra að hafast eigi
frekar að við samningaviðraeður í
nafni Reykjavíkurborgar án vit-
undar og heimildar borgarráðs og
borgarstjórnar.
í samtali við Alþýðublaðið sagði
Sigurður að það væri algjörlega
óviðunandi að borgarstjóri væri
semjandi út og suður án vitundar-
vilja borgarfulltrúa. Nú sé nóg
komið og tímabært að hreinlega
banna honum slíkt.,,Hér er ekki um
árás á borgarstjóra að ræða, heldur
einungis að borgarstjórn beini því
til hans að hann haldi ekki áfram
uppteknum hætti‘, sagði Sigurður.
Agnar 1
síðasta ár. Þá sagði Agnar að ekki
hefði enn reynt á það nákvæmlega
hvort fyrirtækið ætti veð upp í lán-
ið, enda tekur matsuppgjör langan
tíma og í mörg horn að líta.
Hvað varðar beiðni um fyrir-
greiðslu vegna láns að fjárhæð 800
þúsund dollara sem fram hefur
komið með afskiptum Alberts
Guðmundssonar, Steingríms
Hermannssonar og Matthíasar
Bjarnasonar vildi Agnar ekki tjá
sig, en sagðist ekki vita hvað ráð-
herrar væru að tala um við Búnað-
arbankann.
Auglýsing
um almenna skoðun ökutækja í
lögsagnarumdæmi Keflavíkur-
flugvallar 1984.
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar
1984 sem hér segir:
1. Eftirtalin ökutæki sem skráð eru 1983 eða fyrr.
a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga.
b. Bifreiðir, er flytja mega 9 farþega eða fleiri.
c. Leigubifreiðir til mannflutninga.
d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu í atvinnu-
skyni án ökumanns.
e. Kennslubifreiðir.
f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g. Tengi- og festivagnar, sem eru meira en 1500
kg. að leyfðri heildarþyngd skulu fylgja bifreið-
um til skoðunar.
2. Aðrar bifreiðiren greinir í lið nr. 1, sem skráðar
eru nýjar og í fyrsta sinn fyrir árslok 1981.
Sama gildir um bifhjól.
Skoðun ferfram í húsakynnum bifreiöaeftirlitsins
að Iðavöllum 4, Keflavík eftirtalda daga, kl 08-12
og kl. 13-16.
Mánudaginn
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudaginn
19. mars J -1 - J -100
20. mars J -101 - J - 200
21. mars J - 201 - J - 300
22. mars J - 301 - J - 400
23. mars J - 401 - J og yfir
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram gild öku-
skirteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts og
vottorö um að vátrygging ökutækis sé í gildi.
í skráningarskírteini skal vera áritun um það að
aðalljós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31. júll 1983.
Vanræki einhver að færa skoðunarskylt ökutæki
til skoðunar á auglýstum tíma, verður hann látinn
sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin tekin úr um-
ferð hvar sem til hennar næst.
Lögreglustjórinn
12. mars 1984.
á Kef lavíkurf lugvelli,
Skagaströnd —
sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra Höfðahrepps, Skagaströnd er
laust til umsóknar og er umsóknarfrestur til 30.
mars nk. Allar frekari upplýsingar gefur oddviti í
síma (95)4651 og sveitarstjóri í síma (95)4707.
Hreppsnefnd Höfðahrepps.
Árshátíð
Alþýðuflokksfélaganna
í Kópavogi
verður haldin laugardaginn 17. mars í félagsheim-
ilinu annarri hæð.
Árshátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.
Veislustjóri verður Þráinn Hallgrímsson.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Hljómsveitin Alfa Beta leikur fyrir dansi.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Fundur í Borgarmálaráði
Alþýðuflokksins
Fundur verður haldinn í Borgarmálaráði Alþýðu-
flokksins í Reykjavík n.k. mánudag 19. mars kl. 5
síðdegis, á venjulegum fundarstað að Austur-
stræti 16 efstu hæð.
Mikilvæg mál á dagskrá.
Formaður.
Kvennfélag
Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
Heldur fund fimmtudaginn 15. mars kl. 20.30 í Al-
þýðuhúsinu Hafnarfirði.
Gestur fundarins verður:
Jóhann Ágúst Sigurðsson, héraðslæknir.
Félagskonurfjölmennið og takið með ykkurgesti.
Stjórnin.